Tíminn - 28.11.1939, Page 1
RITSTJÓRAR:
GlSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMADUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
23. árg.
RITSTJÓRN ARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMT\
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EÐDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Simi 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.í.
Símar 3948 og 3720.
138. Mað
Aukin kartöíluneyzla
Uppskeran í haust heíír verið míklu meíri
en þarf til að fullnægja venjulegrí neyzlu
Frásögn Árna G. Eylands framkvæmdarstjóra.
Auknar árásir Rússa á Finna
Þetr lctta að tilefnum til réttlætingar
nýj um ofbeldisverkum.
Tíminn hefir snúið sér
til Árna G. Eylands, fram-
kvæmdastjóra Grænmetis-
verzlunar ríkisins, og leitað
hjá honum upplýsinga um
kartöfluuppskeru í landinu
í ár, kartöfluneyzlu lands-
manna og fleira. Fer hér á
eftir frásögn Árna.
— Samkvæmt skýrslum þeim,
sem Búnaðarfélagi íslands hafa
borizt, um kartöfluuppskeruna í
haust, virðist hún hafa orðið
nær helmingi meiri en haustið
1938, eða um 90 af hundraði um-
fram það, sem þá var. Er þó
líklegt, að laklegar sé framtak-
ið nú en þá, þar eð nú er talið
fram til skatts en engra verð-
launa. Samkvæmt þessu hefir
uppskeran líklega verið um 126
—127 þúsund tunnur. Sé gert
ráð fyrir, að rýrnun kartöflu-
birgðanna og útsæðisnotkun
næsta vor nemi fjórða hluta
uppskerumagnsins, verða eftir
um 95 þúsund tunnur af kart-
öflum til neyzlu. Nemur það
tæplegá 80 kílógrömmum á
hvern mann í landinu, en meðal-
neyzla undanfarin ár hefir verið
um 50 kílógrömm. Góðærið
hefir þannig gefið mönnum
meiri kartöfluuppskeru en þeir
fá torgað, með svipaðri kartöflu-
neyzlu og verið hefir. Hinsvegar
er 80 kgr. kartöfluneyzla á mann
á ári mjög hófleg, sérstaklega
þegar þess er gætt, að við erum
kornlaus þjóð og kartöflurnar
okkar eini innlendi mjölvis-
matur.
í Noregi svarar kartöfluneyzl-
an til þess, að hver vinnandi
karlmaður borði 130 kgr. af
kartöflum. Er þá svo reiknað, að
100 börn og konur er talið til
jafns við um 83 karlmenn. í
Áttræður
Jósep Björnsson á Vatnsleysu
í Viðvíkursveit átti áttræðisaf-
mæli á sunnudaginn var.
Jósep fór ungur utan til bún-
aðarnáms í Noregi og Dan-
mörku og gerðist síðan skóla-
stjóri við bændaskólann á Hól-
um fyrir nær sex áratugum.
Var hann síðan kennari við
skólann á sjötta áratug, allt þar
til árið 1934. Jafnframt rak
hann búskap að Vatnsleysu.
Hann var um langa hríð
þingmaður Skagfirðinga.
Jósep Björnsson er maður
búinn miklum kostum, gáfu- og
lærdómsmaður og ástsæll af
nemendum sínum.
Jósep er síungur í anda, ern
og kátur. Hann sat m. a. síð-
asta flokksþing Framsóknar-
manna og fannst mörgum þá,
að enginn væri yngri en hann,
þótt elztur væri að árum.
sveitum í Svíþjóð er kartöflu-
neyzlan 172 kgr. á hvern vinn-
andi karlmann og 105 kgr. í
borgum. Danir nota 98 kgr. af
kartöflum á mann á ári, og 100
kgr. af grænmeti að auki. Þá eru
ekki þar með taldir ávextir, ber
og rabarbari. Við íslendingar
notum 50 kgr. af kartöflum á
mann á ári.
Hver rúgmjölstunna kostar nú
45 krónur, en í fyrra kostaði hún
22—25 krónur. Smásöluverð á
kartöflum í Reykjavík hefir ver-
ið sem hér segir undanfarin ár:
1935 34,5 aura hvert kgr.
1936 35,4 — — —
1937 35 — — —
1938 38,9 — — —
1939 38,9 — — —
Kjöt er sagt í minna lagi í
landinu í ár. Mætti ekki minnka
kjötneyzluna að því marki, að
borða eigi kjöt án kartaflna,
eins og víða hefir átt sér stað?
En það úrræði, sem mest
myndi muna um, er að nota
kartöflurnar í brauð. í sveitum
er það sjálfsagt, og framkvæm-
anlegt í kaupstöðum, ef svo
virðist, að þess sé þörf til þess að
forða tjóni. Brauðgerðarhús
Kaupfélags Eyfirðinga hefir
þegar gert tilraun um að nota
kartöflur til brauðgerðar. Væri
ekki rétt að gera samskonar til-
raunir hér í Reykjavík nú fyrir
áramót, svo að hægt verði að
grípa til slíkra ráðstafana í vet-
ur á skipulegan hátt, ef það álízt
ráð og nauðsyn?
Bændum, sem kartöflur eiga
og hafa ætlað þær til sölu, mun
ekki þykja þetta góðar fregnir.
En þeim mun bezt að taka þessu
með ró og bíða átekta. Nú þegar
er svo mikið af kartöflum komið
til hinna stærri kauptúna, að
sölumöguleikar hljóta að verða
þar litlir um hríð. Harðvítug
sölukeppni yrði því til ills eins.
Það er hyggilegast að geyma
kartöflurnar, og taka frá allt
(Framh. á 4. síðu)
í nýútkomnum hagtíðindum er birt
sundurliðuð áætlun húsameistara
ríkisins um byggingarkostnað í Reykja-
vík árið 1939. Er miðað við meðal
verðlag í sumar og áætlunin bundin
við steinsteypuhús, 8,5 x 7,2 metrar að
stærð, ein hæð, portbyggt, krossreist
með geymslukjallara, loft og gólf úr
timbri, húsið strigalagt innan og mál-
að, en án pípulagninga. Til saman-
burðar er settur kostnaður við bygg-
ingu samskonar húss árið 1914. Alls
hefði byggingarkostnaðurinn orðið
7288 krónur árið 1914, en 22854 krónur
í ár. Þessi hækkun stafar af þvi, að
vinnukaup hefir nálega fimmfaldazt,
en efni er tvöfalt til þrefalt dýrara nú
en þá. Nú nemur kaupgreiðslan 46%
af byggingarkostnaðinum, en áður 30%.
Fyrir trésmíði við byggingu sliks húss
var árið 1914 greiddar 866 krónur, nú
4349, fyrir múrsmíði 319 krónur, nú
1611, fyrir málaravinnu 191, nú 1029,
fyrir erfiðisvinnu 735, nú 3278. Timbur
í slíkt hús kostaði 1914 2209 ki'ónur, nú
5511, sement 775, nú 1568, járn 217,
nú 546, sandur og möl 395, nú 1727.
Auk þessa koma til greina allmargir
smærri kostnaðarliðir, sem allir hafa
hækkað talsvert.
t r t
Samkvæmt upplýslngum, sem Tím-
inn hefir aflað sér, hefir snjókoman
um helgina ekki orðið til teljandi
hindrunar bifreiðasamgöngum, hvorki
hér sunnanlands né i Eyjafirði. —
Nokkur truflun varð á bifreiðaferðum
Fiskimálaneínd
kaupir skíp til
fiskflutninga
Vífttal víð Sramkv.st).
nefndarinnar
Fiskimálanefnd hefir nýlega
fest kaup í Danmörku á skipi til
fiskflutninga. í tilefni af þvi
hefir Tíminn átt viStal við Run-
ólf Sigurðsson, framkvæmda-
stjóra nefndarinnar, og fer frá-
sögn hans hér á eftir:
Sala og útflutningur á fryst-
um fiski hefir aukizt mjög á
þessu ári frá því, sem verið hefir
undanfarin ár. — Síðan 1934
hefir þessi útflutningur því nær
tvöfaldazt ár frá ári og hefir
verið sem hér segir:
Meðalv.
Smál. Fyrir ákg. í
kr. kr.
1934 416 97 þús. 0.23
1935 626 212 — 0.34
1936 1020 529 — 0.52
1937 1776 1436 — 0.81
1938 1651 1632 — 0.99
til 31. okt.
1939 2036 2127 — 1.04
Birgðir eru nú um 1000 smá-
lestir og ef hægt væri að fá það
allt flutt fyrir áramótin, myndi
útflutningsverðmætið nema alls
um 3 miljónum króna á þessu
ári.
Af þessari aukningu á fram-
leiðslunni hefir leitt aukna
flutningaþörf. Undanfarið hafa
„Brúarfoss" og „Dettifoss" ann-
ast flutningana. Vegna ófriðar-
ins hafa verið miklir erfiðleikar
á að fá fiskinn fluttan síðustu
mánuðina og birgðir hafa því
safnazt.
Til þess að ráða bót á þessu, og
til þess að skapa meira öryggi
en nú er fyrir framleiðsluna,
hefir Fiskimálanefnd nýlega
keypt frystiskipið „Arctic". Er
það þrímöstruð skonnorta með
hjálparvél, 478 smálestir brúttó,
377 smálestir nettó og D. W. um
650 smál. Skipið er byggt í Berg-
kvora í Svíþjóð 1919 úr eik og
furu. Það er 142,3 fet á lengd,
34,6 fet á breidd og 11,1 fet á
dýpt.
f „Arctic“ eru tvær „Atlas“
frystivélar, sem eru knúðar með
(Framh. á 4. slðu)
héðan úr bænum á laugardaginn, að-
allega vegna veðurs, og var þá eigi
framfylgt áætlunum um bifreiðaferðir
yfir Hellisheiði, suður með sjó og upp
í Kjós. En er hríðinni létti af, féll
þetta í eðlilegt horf. Á stöku stað hefir
þó þurft að moka snjósköflum af veg-
unmn. Mestur virðist snjórinn vera í
grennd við Reykjavík, og einnig er
mikill snjór, þegar kemur austur í
Mýrdal. Áætlunarbifreið, sem fór aust-
ur í Vík i Mýrdal á föstudaginn, varð
þar veðurteppt á sunnudag. Á mánu-
daginn var lagt af stað, en varð henni
eigi komið lengra en að Litla-Hvammi
i Mýrdal þann dag. í gær komst hún
enn nokkuð áleiðis og var væntanleg
í dag. Er þungfært mjög út yfir Jök-
ulsá. Yfir Holtavörðuheiði er enn fært
og verða bifreiðaferðir að Blönduósi
framvegis eins og verið hefir. Mjólkur-
flutningar til Reykjavikur trufluðust
ekki, svo að neitt sakaði, og voru
algerlega óhindraðir eftir helgina. —
Samkvæmt símfregn frá Akureyri, hafa
mjólkurflutningar og áætlunarferðir
ekki truflazt þar nyrðra, og er enn fært
úr Svarfaðardal til Akureyrar, en á
þeirri leið verður fönn tíðast fyrst til
hindrunar. Snjór er fremur lítill nyrðra
enn sem komið er, jafnfallinn og hefir
lítið dregið í skafla.
t r t
Ólafur Kvaran ritsímastjóri hefir
tjáð Tímanum, að nokkrar bilanir hafi
orðið á símalínum nú um helgina af
völdum veðurfarsins. Var hin stór-
Ýmislegt þykir nú benda til
þess, að Rússar ætla að láta til
skarar skríða í viðskiptum sín-
um við Finna.
Síðastliðinn sunnudagsmorgun
hófu rússnesk blöð mjög svæsn-
ar árásir á Cajander forsætis-
ráðherra Finna og kröfðust þess
að stjórnin færi frá völdum, en
við tæki stjórn, sem væri vin-
samlegri Rússum. Einkum var
Cajander svívirtur í aðalmál-
gagni Kommúnistaflokksins
Pravda, og honum m. a. líkt þar
við fífl á leiksviði.
Síðar þennan sama dag var
birt hernaðartilkynning í
Moskva, þar sem skýrt var frá
því, að finnskir landamæra-
verðir á Kyrjálanesinu hafi ó-
vænt hafið fallbyssuskothríð á
rússneska landamæraverði og
skotið alls 7 skotum. Fjórir
Rússar hafi fallið og níu særst.
Á sunnudagskvöldið lét Molo-
toff afhenda finnska sendiherr-
anum i Moskva mótmæli út af
þessum atburði, og var þar jafn-
framt krafizt að Finnar drægu
herlið sitt 25 km. frá landamær-
unum.
Finnska stjórnin sendi Rúss-
um svar sitt í gærkvöldi, en áð-
ur var gengið til fulls úr skugga
um það,að finnskir landamæra-
verðir hefðu ekki gert hið
minnsta á hlut Rússa og á-
vægilegasta á Kjalarnesi, í grennd við
Skrauthóla. Brotnuðu þar tólf síma-
staurar og línur slitnuðu á laugardag-
inn, síðari hluta dags. Rofnaði þar með
símasambandið, svo að eigi var hægt
að tala á milli Norðurlands og Suður-
lands. Síðara hluta sunnudags var bú-
ið að tengja saman simavírana, svo
að talfært var, en áframhaldandi við-
gerð fór fram í gær. Orsök þessara
skemmda var ísing, er hlóðst á síma-
vírana. Aðrar skemmdir, sém uröu á
símalínum, voru smávægilegar.
r t r
Jóhann Krlstjánsson bóndi á Þór-
oddsstöðum við Reykjavík, lógaði ó-
venjulega vænu lambi nú fyrir nokkru.
Var það hrútlamb og vóg skrokkurinn
af því 31.5 kgr., en mörinn 6.5 kgr.
Gæran var 5 kgr. að þyngd. Mun það
algerlega einsdæmi hér sunnan lands,
að lömb nái slíkum vænleika, og senni-
lega er torfundið dæmi um jafn vænt
lamb, hvar sem leitað væri á landinu.
í hitteðfyrra lógaði Jóhann gimbrar-
lambi, er hafði 26.5 kgr. þungan skrokk
og 4.5 kgr. mörs, undan hinni sömu á
og þessi væni lambhrútur var.
t r t
Dágott skiðafæri er nú komið, og
hefir þó snjóinn dregið helzt til mikið
saman í skafla, svo að berangur er á
milli fannanna. Ekki hafa skíðafélög
bæjarins enn efnt til almennra skiða-
ferða, en fjöldi fólks hefir þó notfært
sér snjóinn innan bæjar og hér í
grenndinni.
sakanir Rússa væru því hrein-
asti tilbúningur. Mótmælti
finnska stjórnin því algerlega
þessum áburði á hendur finnsku
landamæravörðunum, en kvaðst
fús að sýna samkomulagsvilja
sinn með því, að færa herinn
25 km. frá landamærunum,
ef Rússar gerðu hið sama sín
megin.
Enn er óvíst um svar Rússa.
Rússar hafa notað þennan at-
burð til að herða áróður sinn
gegn Finnum um allan helming.
Blöðin segja, að stríðsæsinga-
menn fari með völd í Finnlandi
og geri þeir sitt ítrasta til að
espa þjóðina gegn Rússum. Þá
hefir stjórn kommúnistaflokks-
ins látið kalla saman fundi á
fjölmörgum vinnustöðvum og
hafa menn þar verið látnir
samþykkja kröfur um, að Finn-
um yrði hegnt fyrir þetta ill-
ræði og „æfintýrapólitík
finnskra herforingja verði ekki
látin endurtaka sig“, en þann-
ig er þetta orðað í íslenzka
kommúnistablaðinu í dag. Er
auðséð á öllu, að rússnesku
valdhafarnlr gera sitt fyllsta til
að skapa múgæsingar gegn
Finnum, og vekur það þann
ótta, að þeir ætli að nota sér
þetta til réttlætingar frekari
ofbeldisverkum gegn Finnum.
í erlendum blöðum er yfirleitt
litið svo á, að þetta mannfall
Rússa á finnskum landamærum
sé mjög dularfullt. Finnar við-
urkenna, að skot hafi heyrzt á
þeim slóðum, þar sem Rússar
segja að mennirnir hafi verið
drepnir. Virðist þeirrar skoðun-
ar gæta mjög almennt, að
þessar aðfarir Rússa minni
mjög á það, sem þeir hafa sak-
að nazista um í þinghúsbruna-
málinu.
Ýmsir gera sér þær vonir, að
Rússar séu aðeins með þessu að
herða taugastríðið, en margir
óttast, að þetta sé upphaf hern-
aðarlegra aðgerða, sem Rússar
muni þó draga þangað til vötn-
in séu vel lögð og ísinn þoli
þunga hergagnaflutninga.
Aðrar fréttlr.
Þýzk herskip hafa nýlega
sökkt tveimur enskum skipum.
Annað þeirra, „Rawal Pindar“,
var hjálparbeitiskip, 16.800 smá-
lestir, og er talið að 284 menn
hafi farizt af 300 manna áhöfn.
Skip þetta var vopnað í stríðs-
byrjun og telja sumir að það
hafi verið haft til gæzlu úti fyr
ir Vestfjörðum og m. a. sökkt
þar þýzku skipi. Enska flota-
málaráðuneytið tilkynnti líka
að því hafi verið sökkt við ís-
land af þýzka orustuskipinu
„Deutschland" og öðru þýzku
herskipi. Hitt skipið var „Roy-
stan Grange“, 5000 smálestir og
sökkti því kafbátur.
Nokkur skip hafa um helgina
sokkið við strendur Englands af
völdum tundurdufla. Þau
stærstu vóru pólska skipið,
Pilsudski, 14 þús. smál., og hol-
(Framh. á 4. slðu)
Á víðavangi
Árni G. Eylands framkvæmd-
arstjóri hefir nýlega flutt tvö
merkileg útvarpserindi um á-
burðarnotkunina. Sýndi hann
þar fram á, að vel gæti svo farið,
að ekki tækist að fullnægja
þörfinni fyrir erlendan áburð á
næsta ári. í fyrsta lagi getur
verð áburðarins orðíð svo hátt,
að það reynist bændum um
megn. í öðru lagi getur þurft að
spara áburð af gjaldeyrisástæð-
um, en til þess verður elcki grip-
ið, nema brýn nauðsyn krefji,
þar sem telja má áburðinn næst-
um jafn ómissandi fyrir land-
búnaðinn og olíu og kol fyrir
sjávarútveginn. í þriðja lagi
getur svo farið, að áburðurinn
verði ófáanlegur erlendis og má
telja nær fullvíst, að ekki verði
hægt að ná í sumar tegundir,
eins og t. d. Nitrophoska og
Superfosfat. Það strandar á fos-
fórsýrunni í þessum efnum, en
Þjóðverjar munu sennilega eng-
an áburð selja úr landi með þess-
ari sýru, og Norðmenn tæpast
framleiða meira af slíkum á-
burðartegundum en til eigin
þarfa. Hinsvegar má telja lík-
legt, að hægt verði að ná í köfn-
unarefnisáburð (saltpétur).
* * *
Hinn yfirvofandi áburðar-
skortur ætti að vera mönnum
aukin hvatning til að nota bet-
ur hin innlendu áburðarefni. í
erindum sínum benti Árni sér-
staklega á nauðsyn þess, að
hirða betur hverskonar fiskúr-
gang til burðar. Sumir útgerðar-
staðir eru vel á veg komnir 1
þessum efnum og má t. d. nefna
Vestmannaeyj ar og Húsavík. ,X
Vestmannaeyjum," sagði Árni,
„hefir þetta borið svo glæsilegan
árangur, að það væri þess vert
að menn væru sendir til Eyja úr
öðrum þorpum til þess að sjá,
sannfærast og læra. í Vest-
mannaeyjum eru þess dæmi, að
slorinu er stolið úr geymslum við
höfnina, ef þær eru ólæstar að
nóttu til. Er þetta nefnt Vest-
mannaeyingum til lofs, en ekki
til lasts, þótt tvær hliðar séu á
málinu.“
* * *
Árni taldi, að bætt hirðing
fiskiúrgangs til áburðar, væri
(Framh. á 4. síöu)
.......................7
Stalin faer transts-
yflrlýsmgu!
Þjóðviljinn birtir í morg-
un frásögn frá fundi
flokksstjórnar Sameining-
arflokks alþýðu-sósíalista-
flokksins. Birtir blaðið m.
a. samþykkt fundarins um
alþjóðamál og hljóðar einn
kafli hennar á þessa leið:
Flokksstjórnin telur ut-
anríkispólitík Sovétlýð-
veldanna hafa reynst
hættuiega fasismanum í
Mið-Evrópu og framrás
hans. Sovétríkin hafa eng-
ar þjóðir undir sig lagt í
þessari styrjöld, heldur
frelsað þær þjóðir, sem ella
hefðu orðið þýzka fasism-
anum að bráð. En hernað-
arbandalög Sovétríkj. hafa
skapað varnargarð gegn
framrás fasismans til aust-
urs. Það er fjarri því, að
staðhæfingar um virka að-
stoð Sovétlýðveldanna við
fasismann eigi sér stað í
framkomnum staðreynd-
um, heldur hefir andstöðu-
styrkur hins socialistiska
ríkis gegn fasismanum
orðið lýðum ljós. Afstaða
Sovétríkjanna er því í sam-
ræmi við heildarhagsmuni
verkalýðsins gegn alþjóð-
legu auðvaldi og fasisma
þess.“
Stalin má vissulega vera
hrifinn af svona trúverð-
ugum þjónum og hann þarf
ekki að óttast fráfall
þeirra, þótt hann beiti
Finna ofbeldi. Þeir mundu
áreiðanlega fúsir til að
samþykkja að hann geri
það til að „frelsa Finna,
sem ella hefðu orðið fas-
ismanum að bráð“!
A KROSSGÖTUM
Byggingarkostnaður 1 Reykjavík. — Bifreiðaferðir óhindraðar. — Símabilun
á Kjalarnesi. — Vænt lamb. — Skíðafærið. —