Tíminn - 16.12.1939, Síða 4
584
TlMUVIV, langardagtnm 16. des. 1939
146. blað
YSir landamæría
1. Vísir virðist seinþreyttur um árásir
sínar á Kaupfélag Reykjavlkur og ná-
grennis.
í gær gerir Árni frá Múla klaufalega
tilraun til að yfirfæra óvinsældir
kommúnista á KRON. Nefnir hann
Eystein Jónsson viðskitamálaráðherra
í því sambandi og hneykslast mjög á
því, að ráðherrann skuli vilja vera í
kaupfélaginu vegna þess, að Einar Ol-
geirsson er þar líka_ félagsmaður.
Sennilega hefir Árni ekki athugað
það, að hann svarar sjálfum sér £ sömu
greininni, þar sem hann 'minnist á
hitaveituna og spyr hvort Pétur Hall-
dórsson ætti að fara að berjast á móti
henni, vegna þess að Einar Olgeirsson
er henni meðmæltur. Það mætti nefni-
lega með sama rétti spyrja, hvort allir
Framsóknarmenn, Sjálfstæðismenn og
Alþýðuflokksmenn ættu að flýja úr
KRON með þeim rökum, að þar séu
nokkrir kommúnistar félagsmenn. Enn-
fremur er rétt að leggja þá spurningu
fyrir Árna greyið, hvort hann telji sig
ekki óþægilega flekkaðan af Einari Ol-
geirssyni, sem sítur með honum á
þingi, þótt hann sé þar í minnahluta
líkt og í KRON.
2. En svo sleppt sé allri gamansemi
um rökvísi rithöfunda á borð við Árna
frá Múla, þá dylst það engum, að
fjandskapur kaupmannablaðanna í
garð kaupfélagsins er ekki af neinu öðru
sprottlnn en því mikla gagni, sem þessi
stofnun hefir unnið öllum neytendum
í Reykjavík og nágrenni, með því að
draga allverulegan hluta af verzluninni
og æfintýralegan milliliðagróða úr
höndum harðsvíraðrar og einokunar-
sinnaðrar kaupmannaklíku og fá neyt-
endum þetta sjálfum í hendur.
3. Þegar Visir ræðir um pólitísk
verzlunarfyrirtæki, ætti hann að minn-
ast hinnar frægu samkomu að Eiði,
þar sem Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur „stillti upp“, nazistanum Knúti
Arngrímssyni til að prédika um
„brennandi ofstæki". Sá fyrirlestur var
prentaður í Vísi.
IVýjustu fréítlr.
Bardagarnir í Finnlandi eru
nú harðari en nokkru sinni áð-
ur. Rússar halda uppi harðri
sókn, en Finnar veita víðast öfl-
ugt viðnám og hrinda áhlaup-
unum. í Norður-Finnlandi hefir
rússnesku herliði þó tekizt að
sækja fram suður á bóginn frá
bænum Salmijárvi. Finnar
leggja eld í bæi og býli, jafn-
óðum og þeir hörfa undan.
Rússar tefla alls staðar fram
grúa herliðs og hergagna og
nýjar og óþreyttar hersveitir
taka við eftir hvert áhlaup,
sem hrundið hefir verið af
finnska varnarliðinu. Finnar
viðurkenna, að þeim sé háski
búinn, ef þeir fá enga hjálp áð-
ur en langt um líður.
Þjóðstjórnarmyndun er talin
vera í aðsigi í Noregi undir
forystu Nygaardsvold, forsætis-
ráðh. núverandi ríkisstjórnar.
Sjóorusta hefir orðíð við
strönd Uruguay, út af hafnar-
borginni Montevideo. Áttu þrjú
ensk herskip þar við þýzka
brynskipið Graf von Spee, sem
að lokum flúði til hafnar í
Montevideo, allmikið laskað.
Stjórnarvöldin í Uruguay hafa
krafizt þess, að þýzka orustu-
skipið hverfi á brott, í síðasta
lagi annað kvöld. Er talið, að það
muni freista þess að komast
undan, og er unnið af kappi
að nauðsynlegum viðgerðum á
því. Sagt er, að tvö ensk her-
skip og eitt franskt hraði sér
á vettvang til þess að aðstoða
hin herskipin, ef til orustu
kemur við Graf von Spee.
<JR BÆMl
Aðalfundur Þjóðvinafélagsins
var haldinn í fyrrakvöld i sameinuðu
alþingi. Var ákveðið, að félagsstjórnin
skyldi leita samvinnu við menntamála-
ráð um bókaútgáfu. Forseti félagsins
var kosinn Jónas Jónsson i stað Pálma
Hannessonar, er skoraðist undan end-
urkosningu, en Bogi Ólafsson varafor-
seti. í ritnefnd voru kjörnir: Þorkell
Jóhannesson, Guðmundur Finnboga-
son og Barði Guðmundsson, allir end-
urkosnir.
Jólatónleikar Tónlistafélagsins
Tónlistarfélagið heldur jólatónleika-
sina, Sköpunina eftir Joseph Haydn, í
bifreiðaskála Steindórs við Sellands-
stíg á mánudagskvöldið kemur. Páll
ísólfsson er stjórnandi. Tónlist annast
Hljómsveit Reykjavíkur, en sönginn
kór Tónlistarfélagsins og karlakórinn
Kátir félagar. Tónleikar þessir verða
ekki endurteknir. Aðgöngumiðar fást
í bókabúð Sigfúsar Eymundssonar, hjá
Sigríði Helgadóttur og í Hljóðfærahús-
inu. Tónleikar þessir eru einstakir í
sinni röð hér á landi og því vonlegt,
að fólk noti sér tækifærið, þegar það
gefst.
Málverkasýnlng.
Jón Engilberts heldur unr þessar
mundir málverkasýningu á Skálholts-
stíg 7.
Gautlandssystkini,
Jón Gauti Pétursson bóndi á Gaut-
löndum og Hólmfríður Pétursdóttir
húsfreyja á Arnarvatni, eiga fimm-
tugsafmæli á morgun.
Lögregluvemd gegn kvenfólki
Skipstjóri á vöruflutningaskipi, sem
i hér hefir verið, hefir snúið sér til lög-
reglu bæjarins og beðið um vernd
vegna ásóknar reykviskra kvenna, sem
telja sig eiga erindi við hina útlendu
skipsmenn.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Sherlock Holmes annað kvöld
fyrir lækkað verð. — Þetta verður sið-
asta sýning félagsins fyrir jól, en á
annan í jólum verður frumsýning á
nýju leikriti, sem heitir Dauðinn nýtur
lífsins.
Ávarp þaff, sem í. S. í.
og íslenzkir íþróttamenn ætla að
senda til finnska íþróttasambandsins,
liggur frammi á skrifstofu í. S. í.,
Mjólkurfélagshúsinu, uppi (herbergi
nr. 26), Hafnarstræti 5. Og er skorað
á alla íþróttamenn að skrifa undir
ávarpíð, í dag eða á morgun.
Á víbavangl.
(Framh. af 1. síðu)
ig mun þjóðin lítið geta sinnt
byggingum á næstu misserum.
Það er líka hætt við að nokkur
stöðvun verði í ræktunarmálun-
um vegna vöntunar og dýrleika
á tilbúnum áburði. Bóndi austur
í Skaftafellssýslu, Þórarinn
Helgason í Þykkvabæ, hefir
vakið máls á því, hvort ekki
væri hyggilegt að snúa sér nú
um hríð að ræktun, sem ekki
krefst neins áburðar, og land-
bótum, sem ekki eru ofviða
gjaldþoli landsins. Hann hefir
fært fram þá spurningu, hvort
næsta skrefið i ræktunarmál-
unum, og einmitt það, sem auð-
veldast sé að sinna meðan stríð-
ið stendur, eigi ekki að vera
skógrækt og skóggræðslu, að
nokkru leyti að minnsta kosti.
Skógræktin krefst ekki áburðar.
Víst væri það óráð, að láta
eðlilegar og ábatasamar um-
bætur niður falla, þótt þjóðin
geti eigi látið eftir sér mikil
innkaup erlendis. Hið rétta er að
snúa sér að þeim framkvæmd-
Tryggið heilsu og þrii
sauðfénaðarins
mcð fiví að láta hann a 111 a f eiga aðgang að
saltl. Hentuga saltgjöfin erSALTSTEINN
óilýr og handhægur.
Samband ísl. samvinnuiélaga
Fjaliagrös
Víð seljum ágæt hreinsuð
íjallagrös í heildsölu
Samband íslsamvínnuíéiaga
Sími 1080.
um, sem fremur þarf vilja,
starfsorku og manndáð til að
koma í kring, heldur en erlend-
an gjaldmiðil.
Fiskmarkaðurimn
(Framh. af 1. síðu)
var mikill hnekkir fyrir fisk-
verzlunina, sem meðal annars
leiddi til þess, að sumum fisk-
búðum hefir verið lokað.
Ég álít einnig, að verð það,
sem einstakir togaraeigendur
hafa undanfarið greitt fyrir
slatta af nýjum fiski, sé óeðli-
lega hátt, en þeir kaupa fisk-
inn þessu verði til þess að geta
farið með fullfermi til Englands.
— Hvað getið þér sagt um
freðfisksmarkaðinn í Bretlandi?
— Ég er einmitt mest riðinn
við verzlun með freðfisk. Ég vil
vekja athygli á því, að almenn-
ingur í Bretlandi er enn ekki
orðinn vanur freðfiski, og mark-
aðurinn því mjög takmarkaður.
Að sönnu er líklegt, að freð-
fiskneyzlan aukizt meðan
styrjöldin stendur yfir, vegna
skorts á nýjum fiski. En slíkt er
eigi traustur viðskiptagrund-
völlur. Markaðurinn mun drag-
ast saman strax og friður kemst
á og ensku togararnir eru leyst-
ir úr styrjaldarþjónustu. Hætt-
an er sú, að íslendingar auki
framleiðsluna um of til þess að
fullnægja óeðlilegri eftirspurn,
en slíkt myndi síðar meir leiða
til verðhruns. Ég álít, að frysti-
hús þau, sem nú eru starfrækt
á íslandi, nægi fyllilega til að
taka á móti því fiskmagni, sem
hægt er að selja I Bretlandi
með hagnaði fyrir báða aðila,
seljanda og kaupanda. Ef fall-
ið er fyrir freistingunni um
stóraukna framleiðslu og fljót-
tekinn gróða, er hins vegar
stefnt út í ófæru.
Auglýsið í Tímanum!
Leifefélttg ReykjavíUur
„SHERLOCK
HOLMES“
Sýning’ á morgnn kl. 8
Síðasta sýning fyrir
jól.
LÆKKAÐ VERÐ.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
Fléra
Austurstræti 7. Sími 2039.
Höfum nú mikið úrval af
Kertastjökum
og Kertum.
Gerfi-jólatré,
J ólaklukkur.
Pantiff jólakörfurnar í tíma.
FLÓRA.
Heimabakaðar kökur.
Gerið jólapöntun sem fyrst.
ÓLAFÍA JÓNSDÓTTIR.
Sími 2473.
Smíða frúlofunar-
hrínga
]ód Oalmannsson
gullsmiBur
Grettisgötu 6 - Reykjavlk.
V Vaka er ódýrasta og vand- V
A aðasta tímarit, sem gefið er A
K út hér á landi. Árg. kostar K
A kr. 5,00, og er um 300 bls. A
prýddur fjölda mynda. —
Gerist kaupendur nú um áramótin.
VAKA, Aðalstr. 9, Reykjavík.
Verzlun hlutlausu
Margaret Pedler: Laun þess liðna 63 þjóðamm
—.«OAMLA —o-
Vínírnír
Tilkomumikil og hrífandi
fögur kvikmynd um sanna
vináttu og fórnfúsa ást.
Aðalhlutverkin leika fjórir
helmsfrægir leikarar:
ROBERT TAYLOR,
FRANCHOT TONE,
ROBERT YOUNG og
MARGARET SULLIVAN
hin glæsilega leikkona,
sem öllum mun ógleyman-
leg, er sáu myndina —
„Affeins ein nótt“.
Komið flöskum og glös-
um í verð
Næstu viku kaupum við flöskur og glös undan okkar eigin
framleiðslu. Verðið er hækkað upp i 20 aura fyrir heilflöskur og
15 aura fyrir hálfflöskur.
Gjörið nú gangskör að því að koma tómum flöskum og
glösum í peninga. Móttaka er í Nýborg.
Áfengisverzlun ríkisins.
Tilkynning
Með því að i ráði er að leigja varðskipið
I»ór til framleiðslu, eru þeir, sem kynmi að
hafa áhuga fyrir að leigja skipið, beðnir að
gera tilhoð í leiguna.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri kl.
14 hinn 20. þessa mánaðar.
Állar nánari upplýsingar varðandi skipið,
er hægt að fá á skrifstofu vorri.
Skípaútgerð ríkisíns.
IVýfrægasti rithöfundur Ameríku á íslenzku:
fiátirvo vu karlar. •
eftir Jolin Steinbeck.
Karl fsfeld blaðamaður íslenzkaði.
Þessi saga gerist í Monterey, sem er smáborg á hinni sólgilltu
strönd Kaliforníu. Segir hún á hnyttinn og skemmtilegan hátt
frá nokkrum glaðlyndum náungum, er þar eiga heima — frá
ástaræfintýrum þeirra, því að þarna eru kátar og fjörugar
konur, sem setja sunnudagsandlitið oftar upp en tvisvar í viku,
— frá drykkjuskap þeirra og róstum — frá því hvernig þeir
tengdust vinaböndum og hvernig leiðir þeirra skildust að lokum.
— Þetta eru heiðingjar með sólblik i augum, og öllum þykir vænt
um þá, sem kynnast þeim.
Það leiðist euguiu um jólin, sem les þessa hók.
Hún er tilvalin jólagjöf handa kunningjunum.
Tilvsildar
jolagjafir
KARLMANNAFATAEFNI,
Draugahúsíð
Dularfull og spennandi
amerísk kvikmynd, er
sýnir hamramma drauga-
sögu og klæki og snarræði
blaðamanns, er tókst að
lokum að leysa ráðgátu
reimleikanna.
Aðalhlutv. leika:
CONSTANCE MOORE
og
PAUL KELLY.
Böm fá ekki affgang.
of auðvelt, eftir svip mannsins að dæma.
Hún fann það glöggt, jafnvel á meðan
hann talaöi til hennar, að hann beindi
ekki nema mjög litlu broti af athygli
sinni að henni. Hann var með allan hug-
ann við verkefni sitt. Elizabet þagði og
athugaði í laumi andlit hans og þessi
bláu augu, þegar þau störðu íhugandi
fram fyrir bátinn og athuguðu hvernig
ætti að taka þessu og þessu ólaginu.
Andlitið bar svip mótþróans, kinn-
beinin há, hakan hvöss og bitur glettni,
eða jafnvel hæðni í munnvikunum, sem
blítt og kátt bros þurrkaði þó út á svip-
stundu, þá sjaldan að það fékk að sýna
sig. Annars var andlitið alvarlegt, næst-
um þungbúið, eins og reynsla og þján-
ingar liðna tímans hefðu mótað það
varanlega, en virtist þó, þrátt fyrir þetta,
búa yfir hulinni kaldhæðni, fífldjarfri
og hárbeittri heimspeki, sem mundi
hoxfast í augu við og sigra hvaða ólán
sem væri.
Elizabet varð vör við áleitna, kven-
lega forvitni hjá sjálfri sér, viðvíkjandi
manninum, sem hafði komið henni til
hjálpar. Snöggvast gleymdi hún jafn-
vel hættunni vegna þessara tilfinninga.
En svo fann hún stóran regndropa á
nefinu, sem beindi athygli henn-
ar frá þessum hugleiðingum. Droparnitjj
féllu fleiri og fleiri. Þetta var augljós*
fyrirboði hellirigningar. Maðurinn við
stýrið sagði 1 skipunarróm um leið og
hann leit til lofts:
„Eftir örstutta stund verður komin
hellirigning. Farið inn í klefann svo að
þér verðið ekki gegndrepa.“
Elizabet hikaði við að hlýða. Ef eitt-
hvað yrði að, til dæmis að bátinn fyllti,
þá vildi hún miklu heldur vera kyrr þar
sem hún var, hvort sem hún yrði gegn-
drepa eða ekki, en vera innilukt í klef-
anum. Maðurinn leit á hana með háð-
brosi, eins og hann vissi hversvegna
hún hikaði.
„Þér þurfið ekki að vera hræddar,“
sagði hann, og var þurr á manninn.
„Þér drukknið ekki í þetta sinn. Farið
inn í klefann — heyrið þér það?“
Elizabet hlýddi án frekari undan-
dráttar, enda mátti það ekki seinna
vera. Stormurinn lamdi regninu niður.
Elizabet sat i klefanum og horfði gegn
um gluggann á alvarlegan manninn,
sem sat við stýrið. Hvað skyldi hann
hafa gert, ef hún hefði óhlýðnazt? Hann
leit ekki út fyrir að gefast upp við smá-
vægilegan mótþxóa.
Gegn um hinn gluggann sá hún hvert
báturinn stefndi. Hann stefndi beint á
lítið bátaskýli við litið, rauðmálað hús
á vatnsbakkanum, beint undan þeim
stað, þar sem hún hafði verið þegar
(Framh. af 1. síBu)
sjóhernaði. Það skeytingarleysi
um mannslíf, sem speglast i
tundurduflahernaðinum, er ein-
mitt samkynja mannúðarleys-
inu við Tékka, Gyðinga og Pól-
verja, og sýnir okkur það, sem,
eins og sakir standa, er mesta
hættan, er yfir menningunni
vofir.“
KÁPUEFNI, mikiff úrval,
ULLARTEPPI, margar gerffir,
KARLMANNAHANZKAR,
KVENIIANZKAR,
KVENLÚFFUR,
BARNALÚFFUR, með loffkanti og án,
FLUGHÚFUR o. m. fl.
Ferðasaga
Verðið hvergi hetra.
(Framh. af 3. siOu)
inin. En svo góðir og andríkir
kennimenn eru ekki á hverju
strái að þeir bæti allsleysið og
ömurleikann upp.
(Frh. í næsta laugardagsbl.)
Verksmiftjuútsalan
Geijun — Iðunn
Aðalstræti.
Saga Eldeyjar-Hjalta
er komín -. Bókaverzl. Isaíoldarprentsmiðju