Tíminn - 04.01.1940, Qupperneq 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDÐA h.í.
Símar 3948 og 3720.
24. árg.
Reykjavík, fisumtudagmn 4. janúar 1940
1. Mað
Vinnnfriðnr trygglisr
á þmn ári
Alþingi heSir lögíest tillögur frá
ríkísstjórninní um hækkun kaup-
gjaids vegna dýrtíðarínnar
Verðlagsnefmdims aftur veitt vald tU að ráða
verðlagi á mjólk og kjöti iimanlands.
Aistaða Framsóknarilokks-
íns til kaupgjaldsiaganna
Flokkurinn hefði koslð að hægt hefði verið
að taka meira tillit tfl afkomii framleiðsl-
unnar við ákvörðun kaupgjaldsins.
Alþingi lögfesti í gær
samkomulag það, sem náðst
hafði innan ríkisstjórnar-
innar. Voru ákvæðin um
kaupgjaldið felld inn í
bráðabirgðalögin um geng-
isskráningu og ráðstafanir
í því sambandi.
Samkvæmt lögunum um geng-
isskráningu og ráðstafanir í því
sambandi, er sett voru í apríl-
mánuði síðastl., eru eftirfarandi
ákvæði um kauphækkun, ef
dýrtíð hækkar:
Komist þar til kjörin nefnd
að þeirri niðurstöðu, að fram-
f ærslukostnaður í Reykj avík
hafi hækkað á tímabilinu júlí—
desember 1939 um meira en 5%,
miðað við framfærslukostnað-
inn janúar—marz 1939, skal
kaup ófaglfeerðra verkamanna,
sjómanna og fastráðinna fjöl-
skyldumanna, sem hafa minna
en 300 kr. á mánuði, hækka sem
nemui' helmingi dýrtíðaraukn-
ingarinnar, ef hún er minni en
10%, en um % af dýrtíðaraukn-
ingunni, ef hún er meira en
10%.
Jafnframt var öll önnur kaup-
hækkun bönnuð og ákveðið að
verðlag á kjöti og mjólk innan-
lands skyldi fylgja sömu regl-
um og kaupgjald verkamanna
og sjómanna.
Launagreiðslur
og verðlag
Sramleiðsluvara
Tillaga frá fimm
Fr amsóknarmöimum
í neðri deild.
Fimm Framsóknarmenn í
neðri deild, Skúli Guðmunds-
son, Bergur Jónsson, Bjarni Ás-
geirsson, Helgi Jónasson og
Sveinbjörn Högnason, flytja
eftirfarandi tillögu til þings-
ályktunar um launa- og kaup-
gj aldsmál:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að láta nndirbúa
fyrir næsta þing tillögur um
reglur fyrir útreikningi á verð-
breytingum á íslenzkum fram-
leiðsluvörum, sem hafa mætti á
hverjum tíma til hliðsjónar við
ákvarðanir um laun embættis-
og starfsmanna ríkisins og ann-
að kaupgjald í landinu.“
í greinargerð segir á þessa
leið:
„Að undanförnu hefir oft ver-
ið rætt og ritað um nauðsyn
þess, að miða laun starfsmanna
ríkisins og önnur starfslaun í
landinu m. a. við afkomu fram-
leiðendanna, en hinsvegar hefir
ekki enn verið fundinn grund-
völlur til að byggja á útreikn-
inga á verðbreytingum á ís-
lenzkum framleiðsluvörum, er
nota mætti í þessu skyni. Er
því hér lagt til, að ríkisstjórnin
láti gera tillögur um reglur fyr-
ir slíkum útreikningi fyrir
næsta reglulegt Alþingi."
Tillaga þessi er í fullu sam-
ræmi við stefnu Framsóknar-
flokksins í þessum málum og
hefir iðulega verið skrifað um
þetta í blöð flokksins. Fyrsti
flutningsmaður tillögunnar er
Skúli Guðmundsson.
Þær breytingar, sem hin nýju
lög gera á þessum ákvæðum, eru
aðallega þessar:
Fyrir hvert stig, sem vísital-
an fyrir tímabilið nóv.—des.
1939 hækkar frá grundvellin-
um jan.—marz 1939 (vísitala
þá talin 100) skal kaupgjald
hækka 1. jan. 1940 um 50% af
dýrtíðaraukningunmi, ef húpn
nemur 5 stigum eða meira, en
minna en 10 stigum, en sé dýr-
tíðaraukningin meiri skal það,
sem er framyfir 10 stig bætt
þannig: 80% ef tímakaupið er
kr. 1,50 eða lægra, 70% ef tírna-
kaupið er kr. 1,51—2,00, og 55%
ef tímakaupið er kr. 2,01 eða
hærra. Kaupgjaldshækkunin má
þó aldrei nema minna en 75% af
dýrtíðaraukningunni í fyrsta
fiokki, 60% i öðrum flokki og
50% í þriðja flokki. Kaupgjald í
hærra flokki skal þó aldrei vera
lægra en það, sem greitt er í
lægra flokki.
Samkvæmt sömu reglu skal
kaupgjaldið hækka 1. apríl, 1.
júlí og 1. október 1940 og er vísi-
íalan í hvert sinn reiknuð fyrir
næstu þrjá mánuðina á undan.
Kaup fyrir aukavinnu eða sér-
stök hlunnindi skulu hækka í
sama hlutfalli og aðalkaupið.
Þegar vísitalan fer lækkandi,
skal reikna uppbót á kaupgjald
eftir vísitölunni samkvæmt
framangreindum reglum frá og
með byrjun næsta ársfjórðungs.
Þegar vísitalan er komin niður í
105 reiknast engin kaupuppbót.
Ákvæði þessi um kaupliækk-
un ná til verkamanna, sjó-
manna, verksmiðjufólks og iðn-
aðarmanna, sem taka kaup
samkvæmt samningum milli
stéttarfélaga og vinnuveitenda
Áramótafagnaðir Reykvíkinga, er oft
hafa verið ærið sukksamir, að minnsta
kostí á hinum helztu skemmtistöðum
bæjarins, voru að þessu sinni róstu-
minni heldur en tíðkazt hefir áður.
Hvergi kom til stórkostlegra ryskinga
og engir hlutu mjög alvarleg meiðsli
vegna barsmíða eða sökum sprenginga.
Þó munu fáeinir menn hafa verið
fluttir á sjúkrahús. Ölvun var þó mikil
og áfengi mun hafa selzt fyrir tugi
þúsunda fyrir áramótin. Alls var lög-
reglan kvödd 36 sinnum til hjálpar á
gamlaárskvöld og nýársnótt. Nokkrir
menn voru settir 1 fangahúsið um nótt-
ina, og mun þó lögreglan skirrast við
því í lengstu lög, að grípa til þess ráðs
á nýársnóttina. Er því úrræði aðeins
beitt við örvita inenn. í öllum sam-
komuhúsum bæjarins voru dansleikir
haldnir og alstaðar húsfyllir. Miklu
minna bar nú á íkveikjuæði, sem oft
hefir gripið börn og unglinga á gamla-
árskvöld, heldur en verið hefir. Bar
það varla við að þessu sinni, að ung-
lingar reyndu að gera bál í húsaskot-
um og húsagörðum. Hins vegar var
miklu meira um sprengingar heldur en
í fyrra. Var lengi kvölds látlaus skot-
hríð á Austurvelli og víðar um bæinn.
Um miðnættið var flugeldum skotið
frá mörgum skipum er lágu í höfn-
inni, og einnig frá ýmsum húsum i
bænum. Var mikill mannfjöldi á
bryggjunum, þegar flugeldunum var
skotið frá skipunum.
r r t
Esja fór hraðferð til Austfjarða nú
eba kauptöxtum, sem stéttarfé-
lög hafa sett og glltu fyrir gild-
istöku laganna.
Á árinu 1940 er óheimilt að
hækka annað kaupgjald í land-
inu meira en svarar til þeirrar
hækkunar, sem verður á kaupi
framangreindra launþega. Þó er
heimilt að greiða sjómönnum
sérstaka áhættuþóknun á stríðs-
tímum.
Þær einu kaupgreiðslur, sem
bannað er að hækka, eru samn-
ingsbundnar greiðslur frá
sjúkrasamlögum fyrir unnin
störf, meðan núgildandi samn-
ingar halda. Samningum þess-
um má segja upp með þriggja
mánaða fyrirvara.
Ríkisstjórninni er heimilt að
ákveða í reglugerð verðlagsupp-
bót á laun embættismanna og
annara starfsmanna ríkisins,
svo og ríkisstofnana.
Félagsdómur sker úr ágrein-
ingi út af ákvæðum laganna.
Kaupgjald það, sem ákveðið
er samkvæmt framansögðu, skal
gilda sem samningur til 1. jan.
1941. Gildir þetta jafnt, þó að i
samningum séu ákvæði um
kaupgjaldsbreytingar vegna
hækkunar eða Iækkunar á
framfærslukostnaði og gengi.
Vilji annarhvor aðili hafa kaup-
gjald ósamningsbundið frá 1.
jan. 1941 skal hann hafa sagt
upp með tveggja mánaða fyrir-
vara, en eftir þann tíma verður
uppsagnarfrestur þrír mánuðir.
Verðlag mjólkur og kjöts á
innlendum markaði skal ekki
lengur fylgja kaupgjaldsákvæð-
um laganna og verður það þann-
ig hér eftir á valdi mjólkurverð-
lagsnefndar og kjötverðlags-
nefndar að ráða verðlagi þessara
vara.
Þau ákvæði gengislaganna frá
í vor gilda áfram, að húsaleiga
skuli ekki hækka á tímabilinu til
14. maí 1940 og að útgerðarfyrir-
tækjum sé skylt að ráða sjó-
menn gegn hluta af afla, ef þeir
óska þess. Skal þá um fyrir-
komulag hlutaskiptanna farið
eftir þeim reglum, sem áður
hafa gilt á viðkomandi útgerð-
arstað.
um áramótin og þykir það í írásögur
færandi, að hún var eigi nema rösk-
lega hálfan þriðja sólarhring í ferð
sinni. Átti hún þó viðdvöl í Seyðisfirði,
Neskaupstað í Norðfirði, Eskifirði og
Reyðarfirði. Hreppti hún þó hið versta
veður á bakaleiðinni. Perð þessi var
farin til þess að sækja sjómenn, er
voru að fara til sjóróðra á verstöðvum
á Suðurnesjum á vetrarvertíðinni, sem
nú er að hefjast. Alls tóku um 150 ver-
menn sér far með skipinu til Reykja-
víkur.
t r r
Um áramótin voru atvinnuleysingjar
í Reykjavík taldir vera 771, samkvæmt
skýrslum Vinnumiðlunarskrifstofunnar.
Eru þeir því heldur færri nú en í fyrra
um sama leyti, en nokkru fleiri en 1
desembermánaðarlok árið 1937.
t t r
Vetrarvertíð er að hefjast um þessar
mundir í öllum verstöðvum á Suðvest-
urlandi. Tíminn hefir enn eigi fengið
fregnir um vélbátaútgerðina í vetur
frá þessum verstöðvum. En víða mun
vera, auk heimabátanna, margt að-
komubáta, eftir því sem lendingarað-
staða og önnur útgerðarskilyrði leyfa.
r t r
Samkvæmt símtali við Runólf
Sveinsson skólastjóra á Hvanneyri, er
í undirbúningi að hefja aukna smíða-
kennslu í skólanum. Húsnæðisþrengsli
og hörgull á verkfærum er þó til baga,
auk þess sem erfitt er um öflun á
efnivið. Þegar hafa borizt svo margar
Litlar umræður urðu í þing-
inu um tillögur ríkisstjórnar-
innar í kaupgj aldsmálunum,
enda höfðu þær áður verið
ræddar og samþykktar á fund-
um þingmanna stjórnarflokk-
anna. Nokkrar umræður urðu
þó við fyrstu umræðuna í neðri
deild, en þá gerðu fulltrúar
flokkanna grein fyrir afstöðu
þeirra.
Eysteinn Jónsson viðskipta-
málaráðherra fylgdi málinu út
hlaði af hálfu ríkisstjórnar-
innar og gerði jafnframt grein
fyrir afstöðu Framsóknar-
flokksins. Sagði hann, að það
hefði komið fljótlega í Ijós eft-
ir að Evrópustyrjöldin hófst, að
kaupgjaldsákvæði gengislag-
anna fullnægðu ekki þörfum
lægst launuðu stéttanna, þar
sem dýrtíðaraukningin hefði
orðið miklu meiri en hægt var
að sjá fyrir, þegar lögin voru
sett. Ríkisstj órnin þefði þess
vegna tekið lögin til endurskoð-
unar og væru þessar tillögur
niðurstaðan af viðræðum henn-
ar.
Ráðherrann lýsti yfir því, að
það væri álit Framsóknarflokks-
ins, að heppilegast væri að leiða
kaupgjaldsmál til lykta með
frjálsu samkomulagi verka-
manna og atvinnurekenda og
flokkurinn vildi því stuðla að
því, að það fyrirkomulag kæm-
ist á aftur eins fljótt og auðið
yrði. Hinsvegar hefði ekki ver-
ið hægt að gera sér neina von
um það, að slíkt samkomulag
hefði getað náðst fyrir áramót,
og hefði því verið um það
tvennt að velja, að láta hin
nýju kaupgjaldsákvæði ná til
1. apríl eða til 31. desem-
ber þessa árs. Eftir nána í-
hugun hefði ríkisstjórnin kom-
izt að þeirri niðurstöðu, að
hyggilegast væri að láta lögin
gilda til næstu áramóta. Veiga-
mesta ástæðan væri sú, að menn
væru oft seinni að átta sig á
utnsóknir um inntöku í skólann, að
fullskipað er í hann næsta vetur.
t t t
Samkvæmt útdrætti úr reikningum
Búnaðarbankans nú um áramótin, er
blaðinu hafa borizt, eru eignir bank-
ans alls um 21.665 þúsund krónur, þar
af eru skuldlausar eignir um 8.900 þús-
und krónur, mest í ræktunarsjóði og
byggingar- og landnámssjóði. Inn-
stæður í bankanum í sparisjóði, á
skírteinum, hlaupareikningum og
reikningslánum eru alls rösklega 5.400
þúsund krónur. Auk þess, sem skuld-
lausar eignir bankans eru til trygg-
ingar þessum innstæðum, er ríkisá-
byrgð fyrir öllum innstæðum í Búnað-
arbankanum.
t r t
Hækkun hefir verið ákveðín á burð-
argjaldi bréfa og póstsendinga nú frá
áramótum. Verður burðargjald venju-
legra bréfa 25 aurar í stað 20 aura
áður. Undir almenn bréf til annarra
landa á að kosta 45 aura i stað 35
aura áður. Póststjórnin hefir látið búa
til ný frímerkl og eru þau af þrem
litum, 10 aura írímerki græn, 25 aura
rauð og 45 aura blá. Munu þessi frí-
merki fást í vikulokin.
t t r
í gærdag kom eldur upp í vélbátn-
um Bangsa á dráttarbrautinni á Akra-
nesi. Olli eldurinn miklu tjóni & vél
bátsins og innviðum, áðtu en slökkvi-
lið þorsins gæti kæft hann. Tjónið er
metið á 21 þúsund krónur.
,hinu raunverulega ástandi og
þess vegna væri óvíst, hvort
samkomulag gæti náðst á út-
mánuðum, nerna að undangeng-
inni lengri eða skemmri vinnu-
stöðvun, sem væri stórhættuleg
fyrir atvinnuvegina. Hins vegar
mætti frekar búast við því, að
menn væru búnir að ári liðnu
að gera sér Ijósari grein fyrir
ástandinu og því meiri mögu-
leikar þá fyrir friðsamlegu,
frjálsu samkomulagi verka-
manna og atvinnurekenda.
Ráðherrann sagði, að það
væri erfitt að finna þá lausn 1
þessu máli, sem væri réttlát að
allra dómi. Kröfur hefðu komið
fram um kauphækkun til jafns
við dýrtíðaraukninguna, en
flestum myndi það ljóst, að ó-
réttmætt væri að tryggja þann-
ig ákveðnar stéttir gegn öllum
óþægindum dýrtíðarinnar með-
an þau hlytu að koma mjög
hart niður á öðrum stéttum
þjóöfélagsins. í seinustu styrj-
öld hefði útlend vara hækkað
miklu meira í verði en útflutn-
ingsvörurnar og myndi kaup-
hækkun, sem hefði verið til
jafns við dýrtíðina, hafa þá
reynst óbærilegur baggi fyrir
atvinnuvegina. Horfurnar væru
sízt álitlegri nú en þá. Ef menn
athuguðu þetta myndi þeim
ljóst, að ekki hefði verið hægt
að fallast á meiri kauphækkun
en gert hefði verið í tillögum
r íkisstj órnarinnar.
Ráðherrann vék þar næst að
þeirri breytingu, að verðlag
mjólkur og kjöts á innlendum
markaði yrði ekki hér eftir lát-
ið fylgja sömu reglum og kaup-
gjaldið. Sýndi hann fram á, að
það væri í ýmsum tilfellum ó-
sanngjamt að láta afurðaverð
innanlands fylgja kaupgjald-
inu og hefði þess vegna verið
horfið að þvi ráði að rjúfa
þessi tengsli.
Ráðherrann sagði, að Fram-
sóknarflokkurinn liti þannig á,
að fulla hliðsjón ætti að hafa af
afkomu framleiðslunnar, þegar
kaupgjald væri ákveðið, og hefði
flokkurinn vakið máls á þessu
í samningunum á þann hátt, að
verðvísitala útflutningsvaranna
hefði einnig áhrif á breytingar
kaupgjaldsins. Þetta atriði hefði
hinsvegar ekki verið það vel
undirbúið. að hægt hefði verið
að koma því í framkvæmd nú.
Fimm Framsóknarmenn í neöri
deild flyttu þess vegna tillögu
um rannsókn þessa máls fyrir
næsta þing og bæri að vænta
þess, að sú tillaga yrði sam-
þykkt. (Tillagan er birt hér á
öðrum stað).
Ráðherrann sagði að lokum,
að verkamenn myndu ekki hafa
með fullum rökum getað gert sér
von um meiri kauphækkun, en
fælist í tillögum stjórnarinnar.
Þeir hefðu nú orðið fulla trygg-
ingu fyrir því, að hlutur þeirra
yrði verulega bættur, en hins-
vegar ættu framleiðendur allt á
hættu. Ríkisstjórnin hefði þrátt
fyrir þessa óvissu framleiðslunn-
ar horfið að þessu ráði, þar sem
henni hefði verið ljóst, að ekki
var hægt aö auka að verulegu
ráði byrðar þeirra, sem minnst
hefðu handa á milli. Þess bæri
því að vænta, að úrlausn ríkis-
stjórnarinnar mætti fullum
skilningi af þessum aðilum og
rnenn gerðu sér sem gleggsta
grein fyrir ástæðunum.
Stefán Jóhann Stefánsson fé-
lagsmálaráðherra talaði næstur
og gerði grein fyrir afstöðu Al-
þýðuflokksins. Sýndi hann fram
á, að verkamenn fengju öllu
hærri dýrtíðarupptaót hér en í
(Framh. á 4. síðu.)
Á víðavangi
Nokkru eftir að þing kom
saman í haust flutti Bjarni
Snæbjörnsson frv. um breytingu
á vinnulöggjöfinni. Var frv.
petta til 2. umr. í efri deild fyrir
nokkru og var samþykkt með
samhllóða atkvæðum að vísa
DVí frá með eftirfarandi dag-
skrá, er flutt var af forsætis-
ráðherra: „í trausti þess, að
samningar takizt milli fulltrúa
Deirra verkamanna, sem lýðræð-
sflokkunum fylgja, er leiði til
iess að einungis eitt félag fyrir
hverja stétt verði á hverju fé-
lagssvæði og að engir geti gerzt
meðlimir þess aðrir en menn
leirrar stéttar, er félagið er fyr-
ir; ennfremur að hið bráðasta
verði gerðar nauðsynlegar breyt-
ingar á Alþýðusambandi íslands
til þess, að það verði óháð öllum
stjórnmálaflokkum og tryggt
verði, að öllum meðlimum félaga
sambandsins verði veitt jafnrétti
til allra trúnaðarstarfa innan
viðkomandi félags án tillits til
stjórnmálaskoðana, þá tekur
deildin að svo stöddu ekki af-
stöðu til frumvarps þessa og tek-
ur fyrir næsta mál á dagskrá“.
Bendir þessi tillaga til að sam-
komulag sé fengið um þessi mál
innan ríkisstjórnarinnar og
verði unnið að lausn þeirra á
þeim grundvelli, sem tillagan
gerir ráð fyrir. Verður það að
teljast vel farið
* * *
Bæjarstjórn Reykjavíkur hef-
ir ennþá ekki samþykkt
neina fjárhagsáætlun fyrir
Reykjavíkurbæ fyrir yfirstand-
andi ár og hefir það mál ekki
einu sinni legið fyrir bæjar-
stjórninni. Sýnir þetta mjög
glögglega röggsemi bæjarstjórn-
armeirihlutans' Vonandi stafar
þessi dráttur af því, að bæjar-
stj órnarmeirihlutinn ætlar nú
að fara að sýna stjórnvísi sína
og gera ýmsar gagnlegar breyt-
ingar á framkvæmd bæjar-
málanna, t. d. fátækramálanna.
Öðru vísi verður þessi dráttur
ekki réttlættur og hljóta menn
því að bíða íjárhagsáætluna.r-
innar með nokkurri óþreyju.
* * *
í lögum þeim, sem afgreitt
hafa verið frá þessu þingi, um
síldarverksmiðjur ríkisins, er m.
a. það ákvæði að efnilegir stud-
entar og nemendur menntaskól-
anna skuli setja fyrir helmingi
þeirrar atvinnu, sem leiðir af
stækkun Raufarhafnarverk-
smiðjunnar. Er Jónas Jónsson
upphafsmaður þessarar tillögu.
Þótt undarlegt megi virðast
reyndu sósíalistar að bregða
fæti fyrir þessa hjálp til fátækra
og dugandi námsmanna og
vitanlega nutu þeir dyggilegs
stuðnings kommúnista í þeim
efnum. Virtist það þó eðlilegast,
að þeir, sem telja sig fulltrúa
verkamanna, vildu láta skapa
efnalitlum mönnum skilyrði til
framhaldsnáms, svo að afkvæmi
efnaðra foreldra hefði ekki eins-
konar sérréttindi í þeim efnum.
í þessu máli eru sosialistar hér
áreiðanlega á öðru máli en
flokksbræður þeirra annarsstað-
ar.
* * *
Fjárlögin fyrir 1940 voru af-
greidd frá þinginu síðastl. laug-
ardag. Er afgreiðsla þeirra
fyrir margra hluta sakir hin
merkilegasta og mun Tíminn
birta nákvæma frásögn um
hana áður en langt um líður.
Þingslii
Til þess mun hafa verið ætl-
azt að þingslit yrðu 1 dag, en lík-
legra má þó telja, að þau verði
ekki fyrr en á morgun.
Eru enn eftir óafgreidd nokk-
ur smærri mál, sem eiga eftir
eina eða tvær umræður og mun
verða reynt að afgreiða þau nú
frekar en að láta þau bíða til
næsta þings.
a. :k::r,ossc3-öttt:m:
Áramótafagnaður bæjarbúa. — Hröð ferð. — Atvinnuleysingjar í Reykjavík.—
Vetrarvertíðin. — Frá Kvanneyri. — Búnaðarbankinn. — Hækkun burðar-
gjalda. — Bátsbruni. —