Tíminn - 06.01.1940, Blaðsíða 4
8
TÍMIM, langardaginn 6. janúar 1940
2. blað
Neville Chamberlaln
(Framh. af 3. siöu)
öld hafizt, myndi sá orðrómur
hafa komizt fljótt á kreik, að
tækifærin til friðsamlegs sam-
komulags við einræðisríkin
hefðu verið látin ónotuð. Þótt
hinn raunverulegi tilgangur
meö stefnu Chamberlains hafi
misheppnazt, hefir hann samt
borið þann árangur, að Bretar
hafa siðferðilega langtum sterk-
ari aðstöðu í styrjöldinni en
ella.
Það er venja, að
Er hann rétti almenningur fái
mað'urinn? dálæti á sérein-
kennum ýmsra
frægra manna. Chamberlain
hefir fátt slíkra eiginleika og
framkoma hans er yfirleitt þur
og laus við það, að vera aðlað-
andi. Hann er enginn oflátung-
ur í klæðaburði. Vafalaust hefir
þetta átt sinn þátt í þvi, að hann
hefir aldrei náð neinum per-
sónulegum vinsældum meðal al-
mennings.
Chamberlain hefir talsvert
dálæti á íþróttum, enda þótt
faðir hans væri þeim mjög frá-
bitinn. Á yngri árum stundaði
hann einkum göngur, sund og
hjólreiðar. Á síðari árum hafa
laxveiðar verið bezta skemmtun
hans og er þolinmæði hans við-
brugðið. Hann getur beðið þess
tímum saman, að bitið sé á krók-
inn. í sambandi við þessa íþrótt
hefir hann sagt eina fræga
setningu, sem er á þá leið, að
menn muni betur þann lax, sem
þeir tapa, en þann, sem þeir fá.
Ef til vill birtist reynsla stjórn-
málamannsins í þessum ummæl-
um. Fólkið man betur það, sem
stjórnmálamönnunum tekst ekki
að gera, en það, sem þeir fram-
kvæma því til hagsbóta.
Chamberlain hefir mikla ást á
Shakespeare og gengur jafnan
með vasaútgáfu af verkum hans.
Hefir það komið fyrir, að hann
hafi farið að lesa Shakespeare
undir þreytandi umræðum í
þinginu. Hann hefir yndi af
hljómlist og hefir lært að leika
á allmörg hljóðfæri. Hann er
mikill fuglavinur, barngóður og
hefir gaman af garðyrkjuvinnu
í tómstundum sinum. Mun þá
talið flest það, sem honum er
fært til gildis, auk stjórnmála-
starfs hans.
Chamberlain er enginn sér-
stakur ræðusnillingur. Hann
rökræðir málin og bregður sjald-
an fyrir sig fyndni eða tilfinn-
ingasemi. Margir andstæðingar
hans eru langtum málsnjallari,
orðheppnari og ná betri tökum
á áheyrendunum. Hinsvegar
veitist þeim yfirleitt erfitt að
hnekkja rökum hans. í rökræð-
um er hann talinn einna snjall-
astur í enska þinginu.
Ef nefna ætti eitthvað, sem
sérstaklega einkenndi skaplyndi
Chamberlains, væri það stefnu-
festa og þrautseigja. Þeirri
stefnu, sem hann hefir markað,
fylgir hann hiklaust og gefst
ekki upp, þótt hann bíði nokkr-
um sinnum ósigur. Að reyna,
reyna, reyna aftur, er eitt helzta
máltæki hans. Það gildir jafnt
hvort hann fæst við hamprækt
á Suðurhafseyjunum eða stjórn-
ÚR BÆKCM
Hjúskapur.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Guðfinna Ingibjörg Guð-
mundsdóttir frá Bíldsfelli í Grafningi
og Grímur Ögmundsson á Syðri-
Reykjum í Biskupstungum. Lögmaður-
inn í Reykjavík gaf þau saman. Heim-
ili þeirra verður að Syðri-Reykjum.
Brezkur togari,
Sarpeton frá Grimsby, leitaði hafnar
í Reykjavík með tvo slasaða menn í
fyrradag. Togarinn er vopnaður, búinn
einni fallbyssu, sér til öryggis. Sex
brezkir togarar hafa siglt hingað til
lands til veiða og eru þeir búnir sinni
fallbyssunni hver.
Leikfélagið
sýnir leikritið Dauðlnn nýtur lífsins
annað kvöld fyrir venjulegt leikhús-
verð.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun sína
ungfrú Kristín Jónsdóttir á Hofi á
Eyrarbakka og Gísli Jónsson frá Lofts-
stöðum í Flóa.
Skíðaferð
fara Ármenningar i Jósefsdal i kvöld
kl. 8 og í fyrramálið kl. 9. Farið verður
frá íþróttahúsinu.
Kaupgjaldsnefnd
hefir samkvœmt nýjum lögum reikn-
að út vísitölu framfærslukostnaðar
nóvembermánaðar og desembermánað-
ar 1939, miðað við að vísitalan í jan-
úar—marz hafi verið 100. Reyndist
hækkun 12%.
málaflækjur. En honum er jafn-
ljóst að kapp er bezt með for-
sjá. Það er einkennandi fyrir
hann, að hann velur að jafnaði
samningaleiðina frekar en bar-
áttuna. Þegar hann barðist fyrir
bæjarbankamálinu, fór hann
fyrst á fund helztu andstæðing-
anna og ræddi málið við þá, þeg-
ar hann þurfti að koma hinum
óvinsælu herskyldulögum gegn-
um þingið ræddi hann fyrst við
forystumenn stjórnarandstæð-
inga og lét þá vita fyrirætlun
sína. Á sama hátt heimsótti
hann Hitler og Mussolini. Hon-
um er ljúfara að semja við and-
Afgreiðsla fjármála
(Framh. af 1. síðu.)
kr. Þótt heimildir þessar séu að
vísu ekki mjög stórvægilegar, þá
hefir með þeim verið tekin upp
aftur sú aðferð að veita greiðslu-
heimildir í fjárlögum, sem ekki
eru teknar með í heildarupphæð
fjárlaganna. En undanfarin ár
hafa slíkar heimildir tæpast
þekkzt.
Þá er og þess að geta, að ýms
lög, sem þingið hefir samþykkt,
munu hafa áhrif á fjárhagsaf-
komu ríkissjóðs til hins verra, þó
að eigi hafi verið tekið tillit
til þess í fjárlögunum. Verður
að telja það mjög miður farið, að
eigi skuli hafa verið teknar í
fjárlögin sumar þær upphæðir,
er bersýnilega koma til útgjalda
á þenna hátt og þannig brotin
sú regla, sem komið hefir verið á
undanfarin ár. í þessu sambandi
ber fyrst og fremst að minnast
á eftirfarandi:
í breytingum þeim á fram-
færslulögunum, sem Alþingi hef-
ir samþykkt, er gert ráð fyrir að
ríkissjóður beri ábyrgð á mest-
um hluta þeirra framlaga, er
bæjar- og sveitarfélög leggja út
fyrir þurfamenn annarra bæjar-
og sveitafélaga, sem dvelja utan
framfærslusveitar. (En sam-
kvæmt lögunum er upp tekinn
tveggja ára sveitfestitími þeirra,
er þegið hafa af sveit og flytjast
milli héraða). Það verður að
gera ráð fyrir því, að af þessu
stafi allverulegur útgjaldaauki
fyrir ríkissjóð, þar sem hætt er
við að erfitt reynist að inn-
heimta þær upphæðir, sem rík-
issjóður kann að þurfa að leggja
út vegna þessa lagaákvæðis. í
sömu lögum er gert ráð fyrir, að
sett verði á nefnd, til þess að
hafa með höndum margskonar
nýmæli í sambandi við fátækra-
málin í samráði við ríkisstjórn-
ina. Verður vitanlega ekki hægt
að komast hjá því, að af
hlýtur að leiða aukinn kostnað,
sem ekki er þó gert ráð fyrir í
fjárlögpnum .
Nefnd hefir starfað um skeið
á vegum ríkisstjórnarinnar, sem
kölluð er rannsóknanefnd ríkis-
ins. Hefir hún haft með höndum
margskonar verkefni m. a. í
sambandi við stríðsráðstafanir,
og að öðru leyti haft yfirstjórn
allra náttúrurannsókna og ann-
arra slíkra framkvæmda. Með
lögum, sem samþykkt hafa verið
nú í þinginu, er ákveðið að
nefnd þessi skuli starfa áfram
og m. a. hafa með höndum yfir-
stjórn rannsóknarstofu atvinnu-
veganna. Svo sem að líkum læt-
ur, hefir þessi nefnd orðið að
hafa á sínum vegum fastan
starfsmann og einhvern kostn-
að, en ekki hefir verið gert ráð
fyrir því í fjárlögum.
Þá er þess að geta, að í sam-
bandi við afgreiðslu kaupgjalds-
málanna var ríkisstjórninni gef-
in heimild til þess að ákveða
með reglugerð verðlagsuppbót
til handa opinberum starfs-
mönnum. Var ekkert seinkað
með þessu við afgreiðslu fjár-
laganna.
Eins og kunnugt er, hefir
skapast sú .venja, að lítið sem
ekkert hefir verið samþykkt af
útgjaldatillögum í sambandi við
fjárlögin, nema þær sem ríkis-
stjórn og fjárveitinganefnd hafa
tekið upp eða gefið meðmæli sín.
Hefir þessi sjálfsagða regla, sem
á sínum tíma var mikið umdeild,
í raun og veru útrýmt að mestu
leyti hrossakaupum í þinginu.
Að þessu sinni gilti þessi
regla einnig að mestu, að því
er snerti tillögur við sjálf fjár-
lögin. Varð niðurstaðan sú, að
hækkunartillögur frá öðrum en
fjárveitinganefnd voru yfirleitt
felldar. Munu þær útgjaldatil-
lögur við fjárlögin sjálf, sem
samþykktar voru og komu frá
öðrum en fjárveitinganefnd
hafa numið samtals eitthvað
um 100 þús. krónur.
Hækkunartillögur fjárveit-
inganefndar voru þá einnig nær
allar samþykktar, með þeirri að-
alundantekningu að ekki var
samþykkt tillaga um að taka
allt að 200 þús. kr. lán til vega-
gerðar yfir Siglufjarðarskarð.
Lækkunartillögur fjárveit-
inganefndar við fjárlögin sjálf
voru samþykktar með þeirrl
undantekningu að fellt var að
fresta prentun þingtíðinda.
Hinsvegar féllst þingið ekki á
tillögu frá fjárveitinganefnd,
sem fram kom í öðru sambandi,
sem a. m. k. í framtíðinni hefði
haft einhver áhrif á fjárhags-
afkomu rikissjóðs, en hún var
um lengingu starfstíma 1 opin-
berum skrifstofum og eigi held-
ur á tillögu um að heimila ríkis-
stjórninni að stytta skólahald.
Tolla- og skattaákvæði þau,
sem áður hafa gillt, voru fram-
lengd, en tollskráin kom í stað
eldri ákvæða um verðtoll, við-
skiptagjald, vörutoll og annað
aðf lutningsgj ald.
Af þessu yfirliti ætti að vera
kleift að skapa sér skoðun um
afgreiðslu þessara mála á Al-
þingi.
Aðrar fréttir. .
stæðinginn en að láta hann
kenna aflsmunar, enda þótt
slíkt kosti meira tillit til óska
hans. Einmitt þessi stefna hefir
reynst enska heimsveldinu far-
sælust. En sé Chamberlain tekið
með ófyrirleitni og illvilja, er
hann jafn staðfastur í barátt-
unni og honum var það mikið
kappsmál að fara hina frið-
samlegu leið. Má vel marka
þetta á því, að það eina, sem
sagt er að honum hafi aldrei
verið borið á brýn, er kjarkleysi.
Hann óttast ekki baráttuna,
þótt hann telji rétt að fórna
nokkru til að komast hjá henni.
Chamberlain á vissulega ekki
hinar stórbrotnu gáfur, sem
einkennt hefir suma forvígis-
menn enska heimsveldisins.
En hann hefir í ríkum mæli
festuna og seigluna, — þá eig-
inleika, sem öðrum fremur hafa
grundvallað enska heimsveldið
og valda mestu um það, hve vel
því hefir farnazt fram á þenn-
an dag. Þess vegna er það senni-
lega rétt, sem enska blaðið
Spectator sagði í fyrra, að
Chamberlain hafi einmitt þá
eiginleika, sem forystumaður
þjóðarinnar þyrfti að hafa, þeg-
ar þykknaði í lofti og óveðrið
færðist stöðugt nær. Þ. Þ.
nefndinni leiði nokkurn kostn-
að, en fyrir honum er ekki gert
ráð í fjárlögum. Hinsvegar verð-
ur að vænta þess, að mikið gagn
geti orðið af störfum nefndar-
innar og stefnubreyting í þeim
málum.
Ennfremur er í fátækralögun-
um nú ákveðiö að ríkissjóður
skuli jafna fátækraframfæri
sveitarfélaga, ef jöfnunarsjóður
ekki hrökkvi. Veit enginn hváð
af þessu kann að leiða fyrir rík-
issjóð. Undanfarin ár hefir verið
reynt að takmarka útgjöld ríkis-
sjóðs með ákvæðum í fjölmörg-
um lögum um hámark þess
kostnaðar, sem af þeim skyldi
leiða fyrir ríkissjóð. Þessi af-
greiðsla er brot á þeirri reglu. —
Héraðsskólalögin nýju gera
ráð fyrir að ríkissjóður taki að
sér hluta af skuldum héraðs-
skólanna, og hefir verið áætlað
að þær næmu um 350 þús. kr.
í sömu lögum er gert ráð fyrir
nokkuð hækkuðum rekstrar-
styrk til héraðsskólanna, eða ár-
lega um 15 þús. kr.
Með lögum um breytta skipun
lögreglu- og dómsmála í Reykja-
vík, hefir verið myndað nýtt
embætti,— sakadómaraembætti.
Er þetta fyrirkomulag talið tví-
mælalaust til bóta, en af þvi
“™~~*GAMLA
Börn Hardys
dómara
Skemmtileg og spennandi
gamanmynd. — Aðalhlut-
verkið leikur hinn röski
leikari
MICKEY ROONEY.
Ennfremur leika:
LEWIS STONE
og
CECILIA PARKER.
**NÝJA BÍÓ ——~
Stanley
og Livingstone.
Söguleg stórmynd frá Fox
er sýnir einn af merkustu
viðburðum veraldarsög-
unnar, þegar ameríski
maðurinn Henry M. Stan-
ley leitaði trúboðans Da-
vid Livingstone á hinu ó-
rannsakaða meginlandi
Afríku. — Aðalhlutverkin
leika:
Spencer Tracy,
Sir Cedrie Hardwicke,
Nancy Kelly,
Richard Greene o. fl.
Orðsending lil bænda.
Enn er allt í óvissu um það hvort gjaldeyrir verður fyrir
hendi til kaupa og innflutnings tilhúins áburðar, svo um muni
fyrir komandi vor. Eigi að síður er þess vænst, að kaupfélög,
kaupmenn, búnaðarfélög og hreppsfélög, sem þess óska, og áður
hafa keypt áburð frá Áburðarsölu ríkisins, sendi áburðarpant-
anir sínar fyrir 15. febrúai’ næstkomandi, svo hægt sé að hafa
þær til hliðsjónar við úthlutun þess áburðar, er inn kann að
verða fluttur. Búast má við, að verð áburðarins verði um 50%
hærra en það var síðastliðið ár.
Tegundirnar, sem reynandi er að panta, eru:
Kalksaltpétur, Kalkammonsaltpétur,
Kalí, Superfosfat og Garðáburður.
Nitrophoska túnáburð er aftur á móti tilgangslaust að biðja
um. Tilgangslaust er með öllu fyrir aðila að panta meiri áburð,
en þeir keyptu síðastliðið ár, í von um að bæta hlut sinn við
væntanlega skömmtun áburðarins.
Pantanir frá einstökum mönnum verða ekki teknar til greina.
Munið, að greinilegar pantanir, sem berast nægilega snemma,
eru eitt af frumskilyrðunum fyrir þvi, að úthlutun þess áburðar,
sem inn verður fluttur geti farið vel fram og réttlátlega.
Áburðarsala ríkisins.
M i mikil
mIíWW verðlœkkun
OHTAR
irá Mjólkuriélagi Flóamanna
með heildsöluverði
Matardeildin
Hafnarstræti. Sími 1211.
Mafarbúðin
Laugaveg 42. Sími 3812.
Kjötbúðin
Týsgötu 1. Sími 4685.
Kjötbúð Sólvalla
Sólvallagötu 9. Sími 4879.
Kjötbúð Austurbæjar
Njálsgötu 87. Sími 1947.
Talið er að i Dvöl eé
að finna stærsta og
merkasta safn af úr-
valsskáldsögum heimsbókmenntanna,
scm til er á Islenzku. Árg. kostar 6 kr.
Adr.: Dvöl, Reykjavík.
Vinnið ötullega fyrir
Tímann.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síðu.)
er fyrir þá að panta meiri áburð nú
heldur en í fyrra, í þeirri von að hljóta
Leikfélag Reyhjjavíkur
DAUÐINN
NÝTUR LÍFSINS
Sjónleikur í 3 þáttum eftir
ALBERTO CASELLA
Sýnlng á morgnn kl. 8.
Hljómsveit aðstoðar undir
stjórn Dr. Urbantschitsch.
Venjulegt leikhnsverð
82 Margaret Pedler:
um og mér sjálfri, og öllu því, sem
krafðist starfs og hreyfinga, svo sem
veiðum, tennis, dansi og öllu slíku.
Hann var ákaflega þróttmikill. Nú er
þessu öllu lokið og hann getur einskis
af þessu notið, það sem eftir er æfinn-
ar, þótt hann sé aðeins þrjátíu og
fimm ára.“
Elizabet þagði. Henni fannst að hún
gæti ekkert sagt, sem væri hughreyst-
andi, orðin voru gersamlega vanmátt-
ug gegn því áfalli, að verða af öllu því,
sem áður hafði gefið lífinu gildi. Það
var skrítið, en fyrir hugskotssjónum
Elizabetar brá fyrir mynd af öðrum
manni, sem einnig var fimur, stoltur
og ákaflega þróttmikill, manninum með
sólbrunna andlitið, sem hafði bjargað
henni á Como-vatninu. Hún átti svo
hægt með að gera sér í hugarlund
hvernig lömun myndi gera hann. Hún
hugsaði að hann yrði eins og örn með
stífða vængi. Þessi ókunni Colin hafði
einu sinni verið eins og hann.
Rödd Jane hreif Elizabet aftur upp
úr hugsunum hennar.
„En það er ekki beinlínis viðeigandi",
sagði Jane afsakandi, „að bjóða þig
velkomna á þann hátt, að byrja á því
að rekja raunir mínar fyrir þér. Ég bið
þig að fyrirgefa mér framkomu mína“.
„Það er ekkert að fyrirgefa“, sagði
Luun þess liðna 83
Elizabet, en bætti svo við feimnislega:
„Ég vona, að þú viljir leyfa mér að
taka þátt í raunum þínum, meðan ég
er hjá þér. Ég tek alltaf þátt í raun-
um Candys.“
„Candy,“ át Jane undrandi eftir
henni. „Kallar þú hann það líka?"
Elizabet kinkaði kolli.
„Já, alltaf,“ svaraði hún brosandi.
„Við erum allt of góðir félagar til þess
að ég geti nefnt hann þessu lotningar-
fulla nafni, faðir!“
Vegurinn beygði skyndilega og þá sá
allt í einu yfir allan fjörðinn. Jane
stöðvaði vagninn og Elizabet laut á-
fram og virti með ákefð fyrir sér þenna
stað, sem átti að verða heimili hennar
hér eftir. Þorpið Waincliff stóð niður
við fjörðinn. Það vaT lítið, aðeins fá-
einir fiskimannakofar, ýmist niður við
fjöruna eða dálítið uppi í hæðinni.
Margir kofanna stóðu einir, út af fyrir
sig, en sumstaðar stóðu tveir eða þrír
saman. Þök þeirra voru úr rauðum tíg-
ulsteini og flest orðin veðurbarin. Fag-
urgrænum mosanum hafði, á einstöku
stað, tekizt að festa rætur milli tígul-
steinanna. Til beggja handa, svo langt
sem augað eygði, teygðist graslendið og
myndaði græna kórónu á gráa klett-
ana. Hin mikla heiði, sem Elizabet hafði
séð frá lestinni, lá til vinstri handar,
(Framh. af 1. síöu.)
til vopna og verður það aðal-
lega látið stunda æfingar fyrst
um sinn. Geta þeir ekki haft
nema takmarkað herlið á Finn-
landsvígstöðvunum í einu, og er
þessi liðssamköllun aðallega til
þess, að þeir geti skipt þar um
lið eftir þörfum.
Bretar og Frakkar hafa til-
kynnt Þjóðabandalaginu, að
þeir séu reiðubúnir að veita
Finnum þá fyllstu aðstoð, sem
sé í þeirra valdi, Er talið, að hér
sé aðeins um hergagna- og flug-
vélasendingar að ræða. í næstu
viku verður fundur í utan-
ríkismálanefnd öldungadeildar
bandaríska þingsins og verður
þar rætt um hjálp til Finnlands.
Hore-Belisha hermálaráð-
herra Breta og Mae Millan upp-
lýsingamálaráðherra hafa sagt
af sér. Ókunnugt er um ástæð-
ur, en Hore-Belisha var talinn
einn dugmesti maður ensku
stjórnarinnar. Hermálaráðherra
hefir verið skipaður Oliver
Stanley, sem var verzlunar-
málaráðherra, og upplýsinga-
málaráðherra John Reith, sem
verið hefir forstjóri enska út-
varpsins og er orðlagður fyrir
dugnað. Verzlunarmálaráð-
herra hefir verið skipaður
þekktur iðjuhöldur og fjármála-
maður, Andrew Duncan.
meira magn áburðar við úthlutunina
heldur en ella, þar eð slíkum pöntun-
um verður ekkí sinnt. Vafa er undir-
orpið, hvaða áburðartegundir verður
hægt áð fá, og víst, að sumar verða
ófáanlegar. Verðlag á áburði mun
einnig hækka til muna og verður
sennilega 50% hærra i vor heldur en
síðastliðið ár.
Ferðasaga
(Framh. af 3. siðu)
virtist ganga til með prýði og
hávaðalaust og vafalaust berast
þaðan hollir straumar nú eins
og fyrr.
Og svo kvöddum við, þökkuð-
um fyrir kaffið og alúðlegt við-
mót þessa dagana og héldum af
stað.
Leið mln lá norður í Fljótin,
þvi þangað átti ég einkum er-
indi. Sama veðurblíða var eins
og undanfarna daga og fagurt
til fjalla að sjá og heim að mörg-
um bænum. Hjaltadalurinn og
Óslandsheiðin eru vinalegar
sveitir. En ókunnugur er ég þar,
hefi aðeins farið þar um um
hávetur fyrir rúmlega 10 árum.
Við erum ekki lengi út á Hofsós,
því færið er gott fyrir bílinn, og
þar skilja leiðir okkar Kristins
á Skriðulandi.
Frh. í næsta laugard.bl.
Aðgöngumiðar að báðum sýn-
ingunum eru seldir í dag frá kl..
4 til 7 og eftir kl. 1 á morgun.
M.s. Helgi
hleður fyrir hádegi á mánudag
n. k. til Ólafsvíkur, Stykkis-
hólms, Patreksfjarffar, Bíldu-
dals, Þingeyrar og Flateyrar.
Sundhöllín tilkynnír:
Að gefnu tilefni hefir verið ákveðið,
að einkatímar fyrir konur, sem hafa
verið á mánudögum og miðvikudögum
kl. 5—6, skulu framvegis vera jafnt
fyrir konur sem karla. En tíminn á
föstudögum kl. 5—6 verður áfram sem
einkatími fyrir konur.
Kopar,
aluminium og fieiri málmar
keyptir í LANDSSMIÐJUNNI.