Tíminn - 11.01.1940, Blaðsíða 4
16
Reykjavík, fiinmtmlaglim 11. jainiar 1940
4. blaS
Ylír landamærin
1. Það er nú Ijóst orðið, að brottför
Héðins Valdemarssonar úr kommún-
istaflokknum hefir aðeins verið til
málamynda, og fyrst og fremst til þess
gerð að bjarga umboðinu fyrir enska
olíuhringinn. Héðinn og kommúnistar
ganga nú sameiginlega til stjórnar-
kosninga í Dagsbrún og styðja komm-
únistar Héðinn sem formannsefni. Er
víst, að kommúnistar myndu ekki gera
það, ef Héðinn hefði ekki lofað því bak
við tjöldin, að vera reiðubúinn að
þjóna málefnum Stalins, ef á því þyrfti
að halda.
2. Áróður kommúnistablaösins fyrir
hinni rússnesku „paradís" fer nú stöð-
ugt vaxandi. Má nefna sem lítið dsemi,
að í gær birtir blaðið „opið bréf frá
formanni bílstjórafélagsins í Moskva
til formanns enskra flutningaverka-
manna", þar sem lýst er sælulífi bíl-
stjóra í Rússlandi!
3. Víða á landinu hefir fordæmi Al-
þingis veriö lofsamlega fylgt á eftir og
starísemi kommúnista sýnd verðug
fyrirlitning og því meir, sem blaðsnep-
ill þeirra er iðnari við að verja hið
glæpsamlega atferli Rússa í Finnlandi.
T. d. í þorpi einu á Suðurlandi, þar
sem þeir hafa látið nokkuð á sér bera,
auglýsti félag þeirra fyrir mánuði síð-
an almenna skemmtun, m. a. með
þekktu leikriti. 20—30 sálir komu. Þá
var reynt aftur og tókst ekki betur til,
því aðeins mættu 8 af 9 boðsgestum.
Skömmu síðar hélt annað félag þar á
staðnum skemmtun fyrir troðfullu
húsi. Slíka lítilsvirðingu, sem þessa,
á að sýna kommúnistum alls staðar,
op' láta þá finna að þeir eru einmana
og yfirgefnir, svo lengi sem þeir sýna
sig fjandmenn lýðræðisins og frelsis
smáþjóðanna.
x+y.
Sjö skáld
leiðbeina Alþingi
(Framh. af 3. siðu)
arssyni sömu viðurkenningu,
þó að hann sé miklu frægari
maður, meðan hann sækir ekki
á garðinn sjálfur eða einhverjir
aðrir fyrir hans hönd.
Aðstaða menntamálaráðs er
i þessu efni gersamlega ólík. Það
hefir og á að hafa yfirsýn um
málin. Það getur munað eftir
mætum mönnum, þó að þeir
minni ekki á sig sjálfir.
Mér þykir mjög ósennilegt, að
hin fyrsta úthlutun mennta-
málaráðs til skálda og lista-
manna líði, án þess að munað
verði eftir Gunnari Gunnars-
syni og Jóh. Kjarval, þó að þeir
minni elcki á sig fremur en und-
anfarið.
Og við nánari athugun mun
koma í ljós, að skáldin sjö hafa
ekki grundað rtægilega vel dóm
sinn um ágæti þess skipulags,
sem sprottið hefir upp úr niður-
lægingu og þreytu Alþingis í
skiptum við „grenjaskytturnar"
í hliðarherbergjum Alþingis.
Framh. J. J.
Fjárhagsáætluxa
Rey k j a ví kur hæ j ar
(Framh. af 1. siðu.)
gang að bæjarreikningunum.
Er það áreiðanlega ekki of mælt,
að launagreiðslur vegna skrif-
stofuhalds bæjarins og bæjar-
fyrirtækja sé milli 750—800 þús.
kr. eða sem svarar rösklega 1/10
hluta af útgjöldum bæjarsjóðs.
Geta má þess, að fjárhagsá-
ætlunin gerir ráð fyrir 33 þús.
Viðskiptaskráin 1940
Undirbúningur að útgáfu Viðskiptaskrárinnar 1940 er þeg-
ar langt kominn.
Þau verzlunar- eða atvinnufyrirtæki, er kynnu að vilja
breyta einhverju, sem um þau er birt í Viðskiptaskrá 1939,
eru beðin að tilkynna það sem fyrst. Sömuleiðis ný atvinnu-
fyrirtæki og verzlanir.
Aliar upplýsingar um ný félög, fyrirtæki eða starfrækslu
ávalt mótteknar með þökkum.
Viðskiptaskráin er handbók viðskiptanna.
Auglýsingarnar ná því hvergi betur tilgangi sínum en þar.
Láíið yður ekki vanta í Viðskiptaskrána.
Sleíndór sprent h.f.
Aðalstræti 4. Reykjavík.
fjR BÆNUIH
Lögreglumenn í Reykjavík
liafa ákveðið að láta niður falla
árshátíð sína að þessu sinni, en gefa
þess í stað það fé, er þeir hefðu notáð
i inngangseyri á samkomuna til styrkt-
ar Finnum. Nemur sú upphæð alls um
1000 krónum, þar eð inngangseyririnn
hefir verið 15 krónur fyrir hvert par.
Danskir sjómenn,
sex að tölu, gengu af danska flutn-
ingaskipinu Knut, er það var hér í
Reykjavík á dögunum. íslendingar
voru ráðnir í skipsrúmin í þeirra stað.
Kosningar í Dagsbrún.
Stjórnarkosningar í verkamannafé-
laginu Dagsbrún standa nú fyrir dyr-
um og eiga að hefjast 18. janúarmán-
aðar. Héðinn Valdemarsson og komm-
únistar hafa nú borið fram sameigin-
legan lista til þessara kosninga með
Héðin sjálfan í formannssæti, Jón
Guðlaugsson í varaformannssæti, rit-
araefni er Eggert Guðmundsson, fjár-
málaritari Sigurður Guðnason og gjald-
keri Sigurbjörn Bjömsson. í ráði mun,
að Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðis-
menn beri fram sameiginlegan lista til
kosninga, ef samkomulag næst þeirra
í milli um skipun slíks lista og með-
ferð ýmissa vandamála.
Leikfélagið
sýnir í kvöld sjónleikinn „Dauðinn
nýtur lífsins" fyrir venjulegt leikhús-
verð.
Leiðrétting.
í síðasta tölublaði Tímans misprent-
ast föðurnafn Helga á Melum við Hofs-
ós. Hann er Sigmundsson, en ekki Guð-
mundsson.
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman i hjóna-
band ungfrú Astrún Jónsdóttir og
Egill Þorfinnsson skipasmiður. Séra
Garðar Svavarsson gaf þau saman.
Heimili þeirra verður á ísafirði.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofim sína
ungfrú Hildur Þorfinnsdóttir kennslu-
kona frá Spóastöðum í Biskupstungum
og’ Júlíus Þórmundarson TBæ í
arfirði.
NÝJA Bló
| Fioghetjur
í herraaði
Spennandi og stórkostleg
amerísk kvikmynd, er lýsir
lífi hinna hraustu og
fræknu flugmanna ófrið-
arþjóðanna, sem þrá frið
við alla, en berjast eins og
hetjur, séu þeir neyddir til
að berjast. Aðalhlutverkið
leikur hinn djarfi og karl-
; mannlegi
\ ERROL FLYNN.
j Börn fá ekki aðgang.
Stúlku misþyrmt.
í nótt um eitt-leytið vaknaði fólk,
er býr í grennd við Grettisgötu 51, við
neyðarón stúlku, er æpti hvað eftir
annað. Þusti bráðlega margt fólk á
vettvang. Var þá karlmaður að lumbra
á ungri stúlku þar við húsið. Voru at-
vikin þau, að stúlkan, sem á heima
upp á Bergþórugötu, hafði um kvöldið
ásamt tveim systkinum sínum ungum,
gætt ungbams móður sinnar og stjúpa
síns, Jóns Tómassonar á Grettis-
götu 51. Seint rnn kvöldið komu þau
Jón Tómasson heim, bæði drukkin.
Lagði Jón þá hendur á stúlkuna, og að
sögn hennar barði hana, kleip hana í
graftarígerð, er hún hafði á handlegg,
hratt henni niður í götuforina og
sparkaði í hana.
Á myndinni sjást enskir hermenn á göngu í smabœ i Frakklandi, skammt
frá landamœrunum. Gangan fer fram í rigningu og eru hermennirnir því í
regnkápum.
kr. rekstrarhalla á sundhöll-
inni. Er nú svo komið, að þetta
fyrirtæki, sem var mjög álitlegt,
er orðið tekjuhallafyrirtæki
undir þeirri stjórn, sem bæjar-
stjórnarmeirihlutinn útvegaði
því.
Fleiri atriði mun gefast tæki-
færi til að ræða síðar. En sér-
stök ástæða þykir til að benda á
það aftur að þessu sinni, að svo
gersamlega hafa þeir menn
Sjálfstæðisflokksins, sem mest
töluðu um útgjaldalækkun og
skattalækkun á síðastliðnu
hausti, horfið frá þessum gífur-
yrðum sínum, að þeir leggja
til kinnroðalaust að stórhækka
hvorttveggja hjá Reykjavíkur-
bæ, þar sem þeir einir ráða öllu.
Á myndinni sjást þýzkir liðsforingjar á vesturvígstöðvunum vera að athuga
landabréf áður en þeir fara með njósnarflokk í könnunarferð.
“~~~“GAMLA BtÓ-°~°——
DRAUMA-
DANSINN
Ný dans- og söngvamynd
með hinum vinsælu leikur-
Aukamynd:
Walt Disney-teiknimynd.
um GINGER ROGERS
og FRED ASTAIRE
Sýnd kl. 9.
Kl. 5.15:
GAMLI PRESTURINN
AÖalhlutverk:
POUL REUMERT.
Síðasta sinn!
íltbreiðlð TÍMANN
Hundar eru uppáliald liermannanna á vígstöðvunum. — Hér sjást
enskir hermenn skemmta sér við einn þeirra.
Triehoian
90 Margaret Pedler:
lega óbreyttu sveitarlífi. Ég vona, að þú
sért við því búin.“
„Þið búið sjálf á .jörðinni ykkar, er
það ekki?“
„Jane gerir það.“ Svipurinn á andliti
hans varð allt í einu beiskjulegur. „Eins
og þú sérð, er ég ekki nýtur til neinnar
erfiðisvinnu, eða yfirleitt til neinna
starfa.“ En svo hélt hann hratt áfram,
eins og hann vildi koma í veg fyrir, að
Elizabet sýndi nokkurn samúðarvott,
þótt orð hans gætu gefið tilefni til þess:
„En dugnaöur Jane er margfaldur. Hún
sér um innanhússstörfin, stjórnar þjón-
unum og mér og sér sjálf um öll bú-
störfin, ásamt einum vinnumanni og
ungling. Hún býr til bezta smjörið, sem
búið er til í héraðinu, og hefir fengið
verðlaun fyrir það og hvaðeina. Svo leik-
ur hún sér að því í tómstundum sínum
að temja hesta, einkum póló-hesta.“
„Ég hefði haidíð að hún ætti ekki
margar tómstundir,“ sagði Elizabet.
„í sveitinni er allt af nægur tlmi til
alls,“ svaraði hann. Hann talaði hratt
og Elizabet fann að hún kenndi innilega
í brjósti um þenna mann, sem viður-
kenndi svo auðsjáanlega sína eigin
fjötra. En hún svaraði ekki, enda var
hún sannfærð um að hann vildi forð-
ast alla samúð frá hennar hendi, enn
sem komið var, að minnsta kosti. Hún
haun þess liðna 91
leiddi talið þess vegna að öðru efni.
„Hvað er þetta þarna, hinu megin,“
spurði hún og benti til Wain Scar, sem
var farið að byrja að skýrast vegna
kvöldhúmsins. „Það getur þó varla verið
hús þarna á bjargbrúninni?"
Colin leit yfir um, þangað, sem hönd
hennar benti.
„Jú, það er einmitt hús,“ svaraði hann.
„Það heitir Lone Edge, og stendur alveg
frammi á bjargbrúninni. Það hefir verið
í eyði í mörg ár, en nú hefir einhver
listamaður keypt það. Ég held að hann
sé myndhöggvari. Ég gæti trúað, að hann
væri allra mesti mannhatari, út því
að hann er setztur að á Lone Edge,“
bætti hann við brosandi.
Elizabet brosti glettnislega.
„Það gæti verið gaman að grafa
hann upp,“ sagði hún.
„Hvers vegna ekki að reyna við mig,
ef þú ert svo áköf í uppgröftinn?" spurðl
hann glaðlega.
„Þar er einnig betrunar þörf,“ svaraði
hún.
Hann þorfði glottandi á hana.
„Ég myndi byrja með því, að láta þig
skoða lííið almennt í bjartara ljósi,“
svaraði hún ákveðin.
Nú heyrðu þau til Jane heim við hús-
ið. Hún var að kalla á Elizabet. Elizabet
stðð upp og ætlaöi aö leggja af staö,
Eitt helzta úrræðið til þess að halda hársverðinum
og hárinu heilbrigðu er að nota hárvatnið
TRICHOSAN-S.
Leiðarvísir um notkun fylgir hverju glasi.
Fæst hjá rökurum og mörgum verzlunum.
Heildsölubrigðir hjá
Áfengisverzlun ríkisins
Leikfélag Reykjjavíhur
DAUÐINN
NÝTUR LÍFSINS
Sjónleikur í 3 þáttum eftir
ALBERTO CASELLA
Sýnmg í kvöld kl. 8
Hljómsveit aðstoðar undir
stjórn Dr. Urbantschitsch.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl.
1 í dag.
Sjö árgangar, sjö hæfi-
lega stórar bækur. —
Merkilegt safn og góð
eign. Fáeinum eintökum hefir tekizt
að safna saman af Dvöl frá byrjun,
ocr fást þau á kr. 39.00. Adressa: DVÖL,
Reykjavík.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
í Reykjavík
er á Lindargötu 1D
Framsóknarmenn utan af landl, sem
koma til Reykjavíkur, ættu alltaf að
koma á skrifstofuna, þegar þeir geta
komið því við. Það er nauðsynlegt
fyrir flokksstarfsemina, og skrifstof-
unni er mjög mikils virði að hafa
samband við sem fleata flokksmenn
utan af landi.
Aðrar fréttir.
(Framh. af 1. síðu.)
lítilsháttar. Finnum hefði tekizt
að eyðileggja 170 rússneskar
flugvélar. Kallio kvað Finna
ekki geta varizt til lengdar, ef
þeim bærist ekki hjálp.
Chamberlain forsætisráðherra
flutti í fyrradag ræðu, sem vak-
ið hefir talsverða athygli. í
fyrsta lagi endurtók hann þá
yfirlýsingu, að Bretar myndu
berjast þangað til sigur væri
fenginn og kollvarpaði með því
vonum þeirra, sem hafa vænzt
samkomulags bandamanna og
Þjóðverja til varnar gegn kom-
múnismanum. í öðru lagi lýsti
hann yfir því, að hjálp Breta til
Finna myndi Verða meiri en
orðin töm.
Balkanríkjabandalagið hefir
ákveðið að halda ráðstefnu í
Belgrad í byrjun febrúar. í
bandalaginu eru Tyrkir, Rúm-
enar, Júgoslavar og Grikkir. Er
talið líklegt að helstu dagskrár-
málin verði afstaðan til Rúss-
lands. Heyrzt hefir að Ítalía
hafi kvatt til fundarins.
Brezkt farþegaskip, Dunbar
Castle, sem var 10 þús. smál.,
rakst á tundurdufl við suður-
strönd Englands í fyrradag og
sökk. Næstum allri áhöfninni og
farþegum var bjargað. — Skips-
tap Breta hefir verið tiltölulega
lítið seinustu vikurnar og bendir
það til, að þeir séu búnir að
sigrast að mestu á tundurdufla-
hættunni.