Tíminn - 13.01.1940, Side 4
20
TÍMIM, langardaglim 13. Janúar 1940
5. blati
ÚR BÆNIJIM
Frestun Alpingis
Yfir landamæria
1. Einhverjir leyniþrœðir virðast enn
liggja milli kommúnista og þess hluta
Sjálfstæðísflokksins sem Héðinn Valdi-
marsson kallaði í fyrra „frjálslyndari
hluta ihaldsins". Verkamenn 1 Sjálf-
stæðisflokknum og Alþýðuflokknum
hafa komið sér saman um baráttu á
móti kommúnistum í Dagsbrún. En
um sama leyti og samkomulag næst
um þetta, hefja kaupmennirnir nýja
baráttu gegn Framsóknarflokknum og
Alþýðuflokknum í íhaldsblöðunum og
láta segja, að þessir flokkar sitji á
svikráðum við Sjálfstæðisflokkinn og
ætli að bola honum úr ríkisstjórninni.
Pátt virðist heppilegra til að skapa tor-
tryggni hjá Sjálfstæðisflokksmönnum
og hjálpa þannig kommúnistum í bar-
áttunni innan Dagsbrúnar.
2. Eggert Kristjánsson stórkaupmað-
ur hófst handa um blaðaútgáfu í fyrra
og átti fyrirtæki þetta að vera ópóli-
tískt. í seinasta blaðinu kemur glöggt
fram litarháttur einræðissinnaðs kaup-
sýslumanns, þar sem reynt er að ó-
frægja Alþingi eins freklega og unnt
er. x+y.
Hermami Göring
(Framh. af 2. slðu)
líka jafnan kappkostað að sýna
Hitler fyllstu trúmennsku og
má marka það traust, sem Hitl-
er ber til hans á því, að hann
hefir kjörið Göring sem eftir-
mann sinn, ef eitthvað henti
hann sjálfan.
Það starf, sem Göring hefir
látið bezt af hinum marghátt-
uðu stjórnarstörfum, eT vafa-
laust stjórn flugmálanna. Á því
sviði hefir hann líka náð þeim
árangri, að andstæðingarnir
verða að viðurkenna hann, og
þá jafnframt atorku Görings í
þeim málum.
Þótt Göring sé kappsmaður
mikíll er hann talinn meðal var-
færnari manna nazistaflokks-
ins í utanríkismálum. Það er t.
d. álitið, að hann hafi verið and-
vígur Gyðingaofsóknunum í
fyrrahaust, þar sem þær gætu
reynst skaðlegar áliti landsins
erlendis. Sömuleiðis er hann á-
litinn hafa verið frekar and-
vígur innrás Þjóðverja í Tékkó-
slovakíu í fyrravetur. Hender-
son, sem var sendiherra Breta í
BeTlín, er þeirrar skoðunar, að
Göring hafi verið meðal þeirra
forystumanna nazista, sem helzt
kusu friðsamlegt samkomulag
við Breta í haust. Það er haft
eftir Göring, að Bretar og Þjóð-
verjar gætu í sameiningu ráðið
flestu, sem þeir vildu, og enginn
mannlegur máttur myndi sigra
brezka flotann og þýzka herinn,
ef þeir stæðu saman. Sjónar-
mið Görings í þessum málum
má sennilega marka á þeim um-
mælum hans, að svo stórfellt
hefði endurreisnarstarf nazista
verið, að þeir vildu ógjarnan
tefla því í tvísýnu, nema í brýn-
ustu nauðsyn. Ýmsir telja, að í
þessum málum túlki Göring oft-
ast sjónarmið hersins, enda sé
hann honum nátengdastur af
foringjum nazista.
Göring er sá foringi nazista,
sem nýtur mestrar hylli næst á
eftir Hitler. Herinn hefir löng-
um átt rík ítök 1 Þjóðverjum og
enginn af foringjum nazista
hefir verið betri fulltrúi hans
en Göring: Þrekinn á velli, mik-
„Dauðinn nýtur lífsins“,
leikritið eftir Alfredo CaseUa, sem
Leikfélag Rvíkur byrjaði að sýna um
jólaleytið, hlýtur verðugt hrós leikhús-
gesta. Hafa leiksýningamar Jafnan
verið vel sóttar. Efni leiksins er það,
að dauðinn tekur á sig gerfi rússnesks
prins og dvelur I þrjá daga sem gestur
á rikulega búnu heimili. Hann kynnist
leyndardómum lifsins, hittir fyrir
þrjár ungar meyjar, sem allar heillast
af honum. Tvær hinar fyrri verða ótta-
slegnar, þegar þær skynja hver hann
er,ástþeirra ekki slik að þær séu færar
um að fórna neinu. En ást hinnar
þriðju er hrein og veilulaus og þegar
dauðinn kemur að sækja hana, búinn
sínu eigin gerfi, hauskúpan skinin,
tanngarðarnir berir, augnatóftimar
tómar, þá íylgir hún honum fagnandi.
Gmnur manns er að visu sá, að svo
einlæg og óskipt ást sé sjaldhitt, en það
spillir lelknum ekki og allt er leikritið
þrungið miklu ímyndunarafli frá hálfu
höfundar. Leikendur fara sumir ágæt-
lega með hlutverk sín og flestir vel.
Næsta sýning er á morgun, en þá sýnir
Leikfélagið einnig Sherlock Holmes.
Skemmtun
halda Framsóknarfélögin í Reykja-
vík n. k. miðvikudag að Hótel Borg, og
hefst hún kl. 8.30. Þar verður spiluð
Framsóknarvist, söngur, ræður og dans.
Skemmtanir Framsóknarmanna njóta
almennrar hylli allra, er þær sækja.
Er því að vænta að menn noti þetta
tækifæri og fjölmenni.
Messur á morgrm:
í dómkirkjunni kl. 11, séra Friðrik
Hallgrimsson prédikar; kl. 5, sr. Bjarni
Jónsson prédikar. — I fríkirkjunni kl.
2, barnaguðsþjónusta, séra Árni Sig-
urðsson prédikar; kl. 5, Stefán Snæ-
varr stud. theol. — í Laugarnesskóla
kl. 2, Ólafur Ólafsson kristniboði; kl. 10
árd., barnaguðsþjónusta. — í Landa-
kotskirkju: lágmessur kl. 6.30 og kl. 8
árdegis, hámessa kl. 10, bænahald með
prédikun kl. 6 síðdegis.
íþróttafélag Reykjavíkur
efnlr til skiðaferða að Kolviðarhóli
kl. 9 á morgun. Farið verður frá Sölu-
turninum
Fulltrúaráð Þjóðræknisfélagsins,
sem hér var stofnað á dögunum, hélt
fyrsta fund sinn í gær. A fundinum
var kosin nefnd, er Jakob Kristinsson
fræðslumálastjóri, Guðmundur Finn-
bogason landsbókavörður og Sigurgeir
Sigurðsson biskup skipa, til þess að
stuðla að aukinni sölu íslenzkra bóka
vestan hafs og vestur-íslenzkra bóka
hér á landl. Samþykkt var og, að Þjóð-
ræknisfélagið héldi árshátið sína að
Hótel Borg 2. febrúar og gangist fyrir
Vestmannadegi á Þingvöllum á sumri
kcmandl.
Hjúskapur.
í gær voru gefin saman í hjónaband
ungfrú Þóra Böðvarsdóttir frá Bakka
i Amarfirði og Ásgeir Guðmundsson
húsasmiður á Hrefnugötu 4 í Reykja-
vík. Heimili ungu hjónanna verður á
Hrefnueötu 6.
ilúðlegur ásýndum, djarflegur
og þróttmikill í framgöngu og
krýndur ljóma hernaðarlegra af-
reksverka. Göring hefir líka haft
lag á því, að láta veita sér at-
hygli á ýmsan annan hátt en
stðrf hans hafa gert. Hann hefir
mikið yndi af einkennisbúning-
um og orðum og er mjög til-
breytingasamur í þeim efnum.
Þetta eitt út af fyrir sig vekur
athygli og umtal, enda mun eng-
in þjóð hafa meira dálæti á
einkennisbúningum en Þjóð-
verjaT. Auk þess hefir verið
komið af stað um Göring alls-
konar skemmtilegum smáskrítl-
um og segja ýmsir, að sumar
þeirra hafi Göring sjálfur búið
til í þvi skyni að láta tala um
sig! Þ. Þ.
(Framh. af 1. síðu.)
næst áramótum, og meiri líkur
lægju fyrir um það, hvernig af-
koman yrði. Á nokkumveginn
venjulegum tímum er þetta
nokkur ávinningur. En nú eru
tímarnir svo sérstæðir og breyti-
legir,að enginn getur sagt fyrir,
hvernig fjárlögin, sem við af-
greiddum rétt fyrir áramótin,
koma heim við ástandið og fjár-
hagsafkomuna í ár, og við vit-
um jafn lítið um það ennþá.
Þess vegna veitti Alþingi stjóm-
inni heimild til niðurfærslu á
útgjöldum fjárlaganna. Það eru
því miður mestar líkur til að
styrjöldin haldi áfram enn um
skeið, og af reynslunni, sem við
fengum nú, er þvl miður líklegt,
að við vitum nokkurnveginn
jafn mikið um afkomu ársins
1941 nú í febrúarmánuði og
næsta haust. Það er því liklegt,
að ef neyðarástand yrði árið
1941, þá myndi Alþingi verða
kvatt saman til breytinga á
fjárlögum, og til þess að gera
ýmsar aðrar ráðstafanir, hvort
sem fjárlög yrðu samin nú í
vetur eða næsta haust.“
„Álítið þér að tíminn til 15.
febr. sé nægilegur til þess að
undirbúa þingstörfin?"
„Ég álít þann tíma alveg
nægilegan til þess að endur-
skoða fjárlögin og gera á þeim
nauðsynlegar leiðréttingar og
ganga frá þeim þannig á næsta
þingi, að sjálfsögðu með sams-
konar eða svipaðri heimild fyr-
ít ríkisstjórnina til niðurfærslu
útgjalda og nú er í gildandi
fjárlögum. Það hefir nýlega
verið lögð mikil vinna í athugun
á þvi, hvemig lækka mætti út-
gjöld fjárlaganna og samræma
þau þeim gengisbreytingum,
sem orðið hafa, og ég tel ekki,
að athugun á fjárlögunum til
hausts myndi leiða til breyt-
inga á þeim í aðalatriðum.
Menn eru sammála um að ekki
sé líklegt að fyrir næsta þing
verði lagt nema litið af öðrum
málum. Þess vegna ætti að
vera hægt að ljúka þeim jafn-
hliða fjárlögum, ef samkomu-
lag væri um það milli þing-
flokkanna. Ætti því að vera vel
mögulegt að ljúka þingstörfum
á stuttum tíma, ef vilji er fyrir
því. Að loknu næsta þingi, gætl
stjórnin haft vinnufrið til
þingsins 1941, nema ef eitthvað
mjög óvænt kæmi fyrir, sem
kynni að krefjast þess, að Al-
þing yrði kallað saman til að
taka ákvarðanir um einhver al-
veg sérstök mál.“
„Hvað olli því, að ýmsir voru
því mótfallnir að fresta þing-
haldi til haustsins?"
„Auk þeirra ástæðna, sem áð-
ur eru greindar, var á það bent,
að það er hin mesta nauðsyn
að hafa samstjórn allra lýð-
ræðisflokkanna, vegna þess
hvernig ástandið er. En þótt
menn voni og raunar treysti
því, að samstarfið um stjórn
landsins haldist a. m. k. meðan
núverandi ástand ríkir, þá er
vitanlega ekki útilokað að á-
greiningur rísi milli flokkanna.
En ef það kæmi fyrir á þingi
í haust, þá gætu afleiðingarnar
94 Margaret Pedler:
Jane og hina algerlega iðjulausu stjúp-
móður sína. Þessi samanburður hafði
sín áhrif.
Wentworth-systkinin voru ekki auð-
ug, samanborið við Frayne-fjölskyld-
una, en þau voru vel stæð og gátu alveg
lifað af eignum sínum. Samt rak Jane
búskapinn allan með þeim áhuga og
þeirri hagsýni, að vel hefði mátt í-
mynda sér, að afkoma þeirra væri al-
gerlega undir því komin, hvernig bú-
skapurinn bæri sig.
„Ég á alveg ómögulegt með að hálf-
gera nokkurn skapaðan hlut,“ sagði
hún eitt sinn við Elizabet, með því
hispursleysi og þeirri einbeittni, sem
var einkennandi fyrir hana. Öðru sinni
hafði Elizabet ávitað hana fyrir að
leggja svona mikið að sér við vinnuna.
Þá svaraði Jane alvarlega og dálítið
sorgmædd á svip:
„Ég skal segja þér það, góða mín, að
vinnan er það eina, sem getur hjálpað
manni að sigrast á ýmsu. Hún verndar
mann frá því að hugsa, að minnsta
kosti.“
Þá mundi Elizabet eftir því, sem
Candy hafði sagt henni. Hann hafði
sagt, að unnusti Jane hefði fallið í
stríðinu, réttri viku áður en þau ætl-
uðu að gifta sig. Þá skyldi Elizabet hinn
míkla vinnuáhuga, sem Jane ávallt
Laun þess liðna 95
sýndi, og fann jafnframt til djúprar
samúðar með henni, sem smátt og
smátt varð að innilegri ást.
í dag var Elizabet ein heima. Colln
og Jane höfðu farið í vagninum til
Starranbridge strax eftiT hádegið.
Starranbridge var allstór borg, um átta
mílur í burtu, og þar þurfti Jane að
kaupa hitt og þetta. Elizabet var nú bú-
in að koma blómunum fyrir og datt þá
í hug að flýta sér að drekka teið, og
nota svo tímann, þangað til systkinin
kæmu heim, til þess að ganga eitthvað
meðfram sjónum. Frá hjallanum lá ein-
stigi niður í fjöru. Einstigi þetta var
krókótt og torgengið, enda hafði það
að mestu leyti verið höggvið í klettana.
„Afsakið, ungfrú. Dr. Sutherland er
kominn. Á ég að segja, að þið séuð ekki
heima, eða vísa honum inn?“ Það var
Sara, gamla vinnukonan, sem þetta
sagði. Hún hafði verið Jane hægri
hönd, allt frá því að þau fóru að búa,
hún og Colin. Hún var stórgerð og
byrst, og sagði alltaf það sem henni bjó
í brjósti. Þetta skelfdi yngri vinnukon-
una oft, en Sara átti að segja henni
fyriT verkum. En Sara var afar dygg
húsbændum sínum. Mátti svo heita, að
hún elskaði jörðina, sem þau gengu á,
og hún hefði glöð gengið út 1 opinn
dauðann fyrir hvert þeirra, sem var, ef
orðið þessar: Það yrði að rjúfa
þing. Það er ekki hægt að kjósa
hér að vetrinum, það vita allir,
og kosningar yrðu vitanlega
auglýstar, og þing kvatt saman
á ný innan 8 mánaða frá þing-
rofi. Vel mætti svo fara, að
samkomulag næðist ekki um
stjórn þann tíma, og að minna-
hlutastjórn færi það tlmabil
með völd. Afgreiðsla fjárla'ga
fengist ef til vill ekki og þessi
minnahlutastjórn yrði að gefa
út bráðabirgðafjárlög og stjóma
samkvæmt þeim. Stjórnin yrði
jafnframt, þótt hún væri raun-
verulega ekki þingræðisstjórn,
að taka mikilvægar ákvarðanir
bæði út á við og inn á við, á
jafn vandasömum tímum. Eng-
inn veit hvað að höndum gæti
borið þann tíma. í stað sterkrar
samstjórnar gæti farið svo, að
þjóðin yrði að búa við stjórn,
sem ekki hefði meirahluta þings
að baki sér. Þótt við sjáum
engar ástæður til þess að álíta
að stjórnarsamvinnan þurfi að
slitna, þá hefir vitanlega eng-
inn leyfi til að vera svo bjaTt-
sýnn, að álykta að samvinnuslit
geti ekki komið fyrir. En ef svo
ógiftusamlega færi á haust-
þinginu, geta afleiðingarnar
orðið þær, sem ég hefi rakið.
En eins og ég hefi bent á áður,
þá eru kostir þess að hafa
haustþing alls ekki svo miklir,
að þeir á nokkurn hátt vegi
upp á móti þessari hugsanlegu
hættu.“
„En hvað segið þér um skrif
blaða Sjálfstæðisflokksins um að
stjórnarsamvinnan muni fara út
um þúfur og að Framsóknar-
flokkurinn hafi í huga á að slíta
henni?“
„Ég get ekki annað sagt en að
ég er mjög undrandi yfir þessum
skrifum. Það hefir ekkert komið
fram í samstarfi ráðherranna
síðustu vikurnar, sem bendir til
þess, að samstarf geti ekki lán-
ast, og sama er að segja um sam-
töl, sem ég og aðrir Framsókn-
armenn áttu við þingmenn
Sjálfstæðisflokksins rétt áður en
þingi lauk.
Afgreiðsla fjárlaganna stað-
festi að enginn ágreiningur var
um þau milli flokkanna. í þessu
sambandi vil ég nota tækifærið
til að leiðrétta þann leiðinlega
misskílning, sem fram kemur í
Visi i gær, að útgjöld fjárlag-
anna hafi orðið hærri vegna
þess, að Sjálfstæðisflokkurinn
hafi móti vilja sínum tekið tillit
til hinna flokkanna, og að út-
gj aldahækkanir hafi þó orð-
ið minni en ella vegna
áhrifa Sjálfstæðisflokksins. —
Það voru engin útgjöld sam-
þykkt sérstaklega fyrir óskir
Framsóknarflokksins eða Al-
þýðuflokksins — og fjárlögin
hækkuðu því ekki af þeirri sök.
Það komu heldur ekki fram
neinar tillögur um útgjalda-
lækkanir, sem Framsóknar-
flokkurinn og Alþýðuflokkurinn
voru ekki samþykkir — eins og
nú er ástatt. Stjórnin var öll
sammála um lækkunartillögurn-
ar ög þegar í þinginu komu
fram hækkunartillögur frá
mörgum einstökum þingmönn-
um samþykkti Framsóknarfl.
að óska eftir þvi við hina flokk-
ana, að engar þessara tillagna
yrði samþykktar nema stjórnin
og fjárveitinganefnd mælti með
þeim. Þessi vinnubrögð voru líka
viðhöfð. Af þessu ætti að mega
draga þá ályktun, að alls ekki
komi til ágreinings milli flokk-
anna á næsta þingi út af fjár-
lögunum.
Þær getgátur, að Framsóknar-
flokkurinn ætli að slíta sam-
vinnunni hafa auðvitað ekki við
neitt að styðjast. Framsóknar-
flokkurinn var eini flokkurinn,
sem beitti' sér fyrir samvinn-
unni, og eini flokkurinn, sem
hefir óskiptur frá upphafi stutt
hana. Hann telur nauðsynlegt
að samstarfið haldi áfram og
hefir aldrei verið sannfærðari
um nauðsyn þess en nú. — Hitt
vita allir, að hinir flokkarnir
voru allklofnir um málið, sér-
staklega Sjálfstæðisflokkurinn,
sem strax i byrjun skiptist i tvær
fylkingar, með og móti sam-
stjórn. Af þessu hefir samstarf-
inu frá upphafi stafað hætta.“
Ferðasaga.
(Framh. af 3. síðu)
þar tvíbýli. Nokkrar heitar upp-
sprettur eru þar, en vatnsmagn
litið, ylur dálítill í jörð kringum
líndirnar, en blautlent.
Niðurl. í næsta laugard.bl.
"”OAMLA bíó—’—- —■■
BÓFINN FRÁ
BRIMSTONE
Amerísk stórmynd frá
landnámstið Norður-Ame-
ríku.
Aðalhlutv. leika:
WALLACE BEERY,
LEWIS STONE,
DENNIS O’KEEFE o. fl.
Börn fá ekki aðgang.
§kemmtnn
halda Framsóknarfélögin í Reykjavík að Hótel Borg n. k. mið-
vikudag, sem hefst kl. 8%-
Þar verður:
Framsóknar-whist — Söngur — Ræður — Dans.
Aðgöngumiðar seldir á afgr. Tímans og við innganglnn.
Stjórnir félaganna.
Flttghetjur
í hernaði
Spennandi og stórkostleg
amerísk kvikmynd, er lýsir
lífi hinna hraustu og
fræknu flugmanna ófrið-
arþjóðanna, sem þrá frið
við alla, en berjast eins og
hetjur, séu þeir neyddir til
að berjast. Aðalhlutverkið
leikur hinn djarfi og karl-
mannlegi
ERROL FLYNN.
Börn fá ekki aðgang.
Tilkynnfiig.
Frá og rneð deginum í dag hækka flutn-
ingsgjöld innanlands uni 20% til viðbótar
áður auglýstri hækkun.
Heykjavík, 12. janúar 1940.
SKlPAtJTGERÐ RÍKISIIVS.
EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
SAMEIAADA GLFLSKIPAFÉLAGIÐ.
BERGETVSKA GLFUSKIPAFÉLAGIÐ.
P.UI.]aulseiiSOiH.s.
Timburverzlun
Símn.: Grunfuru. Stofnað 1824.
Carl Lundsgade — Köbenhavn.
Afgr. frá Kaupmannahöfn bæði stórar og litlar
pantanir og skipsfarma frá Svxþjóð.
S. t. S. og nmboðssalar annast pantanir.
— EIK OG EFAI í ÞILFAR TIL SKIPA. —
Leihfélag Iteykjaríkur
SHERLOCK HOLMES
Sýning á morgun kl. 3.
LÆKKAÐ VERÐ.
Síðasta sinn.
Dauðinn nýtur lífsins
Sýning annað kvöld kl. 8.
Venjulegt leikhúsverð.
Hljómsveit Dr. V. Urbantschitsch
aðstoðar.
Að göngumiðar að báðum
sýningunum eru seldir frá kl.
4—7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
Dvöl
í hennl er m.a. stœrsta
og merkasta safn, sem
til er á íslenzku, af
stuttum úraafsskáldsögum heimsbók-
menntanna. Geti einhver sannað að
það sé ekki rétt, þá er honum heitið
háum verðlaunum. — Dvöl frá byrjim
lækkar aldrei I verðl.
»Dettifoss«
fer í kvöld, 13. janúar, vestur og
norður, og aftur hingað.
Viðkomustaðir: Patreksfjörð-
ur, ísafjörður, Sauðárkrókur,
Siglufjörður, Akureyri, Húsavík,
Bíldudalur í suðurleið.
»Lag,arIoss«
fer eftir helgina austur og norð-
ur um land til Reykjavíkur.
Á viðavangi.
(Framh. af 1. síðu.)
urðu miklu minni en verið hefði,
ef þeir hefðu farið enn með
völd.“ Árni fer hér með vísvit-
andi lýgi til að reyna að koma af
stað deilum. Engar lækkunar-
tillögur komu fram, sem allir
stjórnarflokkarnir voru ekki
sammála um, engar hækkunar-
tillögur voru samþykktar, sem
Sjálfstæðisflokkurinn var ekki
jafn fús til að styðja og hinir
flokkarnir. Ekki í hinu minnsta
atriði kom fram sérstaða hjá
Sjálfstæðisflokknum við af-
greiðslu fjárlaganna.
Eija
fer samkvæmt áætlun i strand-
ferð vestur um land mánudag-
inn 15. þ. m. kl. 9. síðd.
Tekið á móti vörum til kl. 3
síðd. á laugardag.