Tíminn - 15.02.1940, Side 4

Tíminn - 15.02.1940, Side 4
mh 72 1ÍMIM, fimmtMdaginn 15. febr. 1940 18. blað Y£ir landamærm 1. Kommúnistablaðið er íarið að hafa í hótunum. Það birtir „leiðara" í gær, þar sem Alþingi er jafnan kallað „greni“ og þingmennirnir „refir“. Greininni lýkur þannig: „Þjóðin verð- ur að gera sér ljóst, að „grenið" þarf að vinna áður en refirnir hafa bitið síðasta lamb þjóðarinnar, og það getur verið rétt að beita til þess harðvítug- um ráðstöfunum, sem annars vœri skemmtilegast að vera laus við, Það gengur svo við „grenjaveiðar". 2. Hverjar eru þessar „harðvitugu ráðstafamr", sem kommúnistar eru að glósa með? Bylting eins og sú, sem hefir verið undirbúin i Svíþjóð, eða landráð að dæmi Kuusinens hins finnska? Um annað en þetta tvennt getur ekki verið að ræða. Með þessum hótunum hafa kommúnistar varpað af sér lýðræðisgrímunni, sem þeir reyndu að hylja sig undir um skeið, og sýnt að fyrir þeim vakir ekkert annað en niðurrif þjóðskipulagsins með ofbeldi og aðstoð erlends valds. 3. Fyrir nokkru siðan birtist grein hér í blaðinu, sem nefndist „Sjálfstæð- isílokkurinn krufinn“. Þar var Sjálf- stæðisflokknum lýst eins og hann i raun og veru er. Grein þessi hefir vakið mikinn úlfaþyt i thaldsblöðunum og þau hafa sagt að hún væri „rógur“, „níð“ og „lygi“. Hins vegar hafa þau ekki gert hið minnsta til að hnekkja henni með rökum eða svara eln- hverju atriði í henni. Hversvegna þessi æðisgengnu stóryrði 1 stað raka? Er það ekki einmitt besta sönnunin fyrir réttmæti greinarmnar? 4. Árni frá Múla er með þá hótun í Vísi á þriðjudaginn, að Sjálfstæðis- menn muni bresta þolinmæði til sam- starfs við Framsóknarflokkinn, ef Tlm- inn haldi því áfram að lýsa Sjálf- stæðisflokknum á þessa leið. Hefir Sjálfstæðisflokkurinn ekki nægan blaðakost til að hnekkja skrifum Tím- ans, ef þau væri röng? Væri það ekki meiri sönnun fyrir góðum málstað Sjálfstæðisflokksins að reyna að hnekkja skrifum Tímans með rökum en að vera með slíkar hótanir? 5. Annars mun Tíminn láta sér slík- ar hótanir litlu varða. Hann telur það eitt af helztu skyldustörfum sinum að lýsa baráttuaðferðum og stefnumiðum stjórnmálaflokkanna, bæði síns eigin flokks og andstöðuflokkanna. Það að- eins styður þá trú blaðsins, að það fari með rétt mál, þegar andstæðingamir svara því með gífuryrðum og hótunum 1 stað röksemda. 6. Mbl. sakar Tímann um griðarof í samstarfinu við Sjálfstæðismenn. Vill blaðið prenta upp allar skammir og dylgjur Vísis um forsætisráðh. og við- skiptamálaráðherra, síðan samstarfið hófst, og geta þess Jafnhliða, að Tím- inn hefir á sama tíma ekki sagt auka- tekið orð um Ólaf Thors og Jakob Möller? 7. Menn nefna hérasamskot fjárbæn- lr þær, sem sumir leiðtogar Alþýðu- flokksins standa nú að til framdráttar kommúnistum. Þykir atferli þessara manna bæði héralegt, og auk þess minni aðferðin öll á héranefndarálitið nafntogaða. Annars kváðu samskotin ganga illa. Verkamenn telja sig ekki hafa aðstöðu til að keppa við auðmenn í Rússlandi um framlög til eflingar kommúnisma á íslandi. x+y. Furðuleg samvinna (Framh. af 1. siðu.) is, verður það að teljast í fyllsta máta vítavert, að einn af þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins, Jóhann Jósefsson, skuli nýlega hafa boðað til fundar í sam- vinnu við kommúnista. En Vís- ir skýrir svo frá þessu síðastlið- inn þriðjudag: „Alþingismenn- irnir, þeir Jóhann Þ. Jósefsson og ísleifur Högnason, boðuðu til sameiginlegs þingmálafundar tÍR BÆNUM Um daginn og veginn. í pólitískt reiptog þeir raða nú liðl af röggsemi, Gísh og Thor. Þeir hamhleypur gerast á hernaðarsviði og heita á OÖin og Þór. Það verður stympazt og hraustlega um hagsmunakaðalinn senn, [haldið því Kveldúlfur gamLi og kaupmanna- eru knálegir endamenn. [valdið Z. Þ j óðmálanámskeiði ungra Framsóknarmanha verður slit- ið í Alþýðuhúsinu á sunnudagskvöldið kemur. Mun þar fram fara sameigin- leg kaffidrykkja, en yfir borðum flytja hinir vrngu menn, sem sótt hafa námskeiðið stuttar ræður. Að ræðu- höldunum loknum, verður unað við dans og gleðskap nokkuð fram eftir nóttu. Vegna þess, að fyrirfram er mjög áskipaö í húsrúmið, eru þeir, sem ætla að sækja hóf þetta, beðnir að til- kynna þátttöku sína sem fyrst í síma 2323 eða 2353, og helzt ekki síðar en tímanlega á laugardaginn. Æskilegast væri, að fólk vildi láta vita um þátt- töku sína þegar á föstudaginn, ef þess væri kostur. Samkoma þessi verður að flestu leyti með líku fyrirkomulagi og gildi það, sem haldið var í Alþýðuhús- inu í fyrravetur, er þjóðmálanámskeiði Framsóknarmanna, því er þá var hald- ið, var slitið. Fundur í F. U. F. Fundur í F. U. F. verður i kvöld kl. 8% í Samvinnuskólanum. Þar fara fram kappræður milli námskeiðsmanna á stjórnmálanámskeiði S. U. F. annars- vegar og Félags ungra Framsóknar- manna hinsvegar, um þýðingarmikið þjóðmál. — Það má vænta fjörugra og skemmtilegra umræðna. Allir fé- lagsmenn þurfa að mæta. Enginn má láta sig vanta. Landssamband útvegsmanna heldur aðalfund sinn á morgun i Oddfellowhúsinu og hefst hann kl. 2. Óperettan Brosandi land verður sýnd í Iðnó annað kvöld. Sýn- ing hefst kl. 8. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Fjalla-Eyvind annað kvöld. — Vegna mikillar aðsóknar að þessum leik verður ekki svarað í síma fyrsta tímann eftir að sala aðgöngumiða hefst. Gamla Bíó sýnir nú ameríska mynd, sem gerð er eftir hinni frægu sögu enska skálds- ins Cronin, Borgarvirki. Saga þessi, sem nýlega er komin út í íslenzkri þýð- ingu, hefir hlotið hér miklar vinsældir. Má telja víst, að myndin verði llka vin- sæl, því hún er talin mjög vel leikin. Aðalfundur Sölusambands ísl. fiskframleiðenda hófst hér í bænum í gær. Hallbjörg Bjarnadóttir heldur næturhljómleiða i Gamla Bíó annað kvöld. Ættu menn að athuga að panta miða í tíma, því á síðustu hljóm- leikum urðu um 100 manns frá að hverfa, vegna hinnar miklu aðsóknar. Guðspekifélagar Septíma heldur aðalfund annað kvöld (föstud. 16. febr.). Venjuleg aðal- fundarstörf. Upplestur. Einsöngur. Hjj óðf æraleikur. í samkomuhúsi Vestmannaeyja síðastliðið kvöld“. Þessi samvinna Jóhanns við kommúnistaþingmanninn er i fullri mótsögn við þá andúð og fyrirlitningu, sem þjóðin og Al- þingi ætlast til að kommúnist- um sé sýnd. Er erfitt að finna skýringu á þessu framferði Jó- hanns, nema ef vera kynni sam- vinnu Rússa og Þjóðverja, en Jóhann hefir oft verið talinn standa nálægt nazistum i skoð- unum. Orusturnar á Kyrjálanesi (Framh. af 1. síðu.) á, að Finnar muni ekki geta varizt Rússum til lengdar, nema þeir fái liðsafla erlendis frá. Lið þeirra þreytist, þar sem það geti ekki fengið næga hvíld á milli. Þess vegna þurfi þeir ekki aðeins að fá hergögn heldur einnig mannafla. í Englandi er byrjað að skrá menn í finnska herinn og hafa 2000 manns þegar gefið sig fram. Frá fjölmörgum löndum streyma nú sjálfboðaliðar til Finnlands. Það þykir sýnt á orustum undanfarinna daga, að Finnar hafi fengið talsvert af fullkomn- um hergögnum og flugvélum frá Bandamönnum. Er þegar rætt um þetta mikið í rússneskum blöðum og er auðséð, að Rússar leggja á það mikið kapp að knýja fram úrslit áður en Finn- um berst stórfelld hjálp. Rússnesk blöð eru nú fyrst farin að skýra seinagang rauða hersins m. a. með því, að Finnar séu hraustir hermenn. Rússar halda áfram loftárás- um á finnska bæi með svipuð- um hætti og áður, en varnir Finna virðast vera orðnar miklu sterkari, einkum flug- herinn. í gær töldu Finnar sig hafa skotið niður 17 rússneskar flugvélar. Finnar telja, að um 15 þús. Rússar hafi fallið og 20 þús. Rússar særzt i orustunum á Kyrjálaeiðinu undanfarinn hálfan mánuð. Á öðrum vígstöðvum í Finn- landi hafa engar stærri orustur verið undanfarið, nema helzt norðan við Ladogavatn, þar sem Finnum hefir veitt stórum bet- ur. Á krossgötum. (Framh. af 1. síðu.) fram mat á tjóni því, er hann hafði orðið fyrir vegna þessara aðgerða. í undlrrétti voru honum dæmdar viðbót- arskaðabætur, er námu kr. 364.37. En hæstiréttur leit svo á, að dómstólamir væru ekki færir um að ákveða upp- hæðina, en taldl hinsvegar þá ágalla á yfirmati, sem fram hefði farið á skaða bóndans, að meta yrði hann að nýju. Aðrar fréttir. (Framh. af 1. síðu.) fannst bæklingur, sem hét: „Hvernig verður vopnuð bylting bezt skipulögð?“ Þá fannst á einum stað listi yfir menn, sem talið var að þyrfti að lífláta, ef byltingin heppnaðist. Fyrstu ráðstafanirnar eftir þessar upp- ljóstranir eru þær, að kommún- istar hafa verið sviptir umboði í bæjar- og sveitarstjórnunum og hefir sömuleiðis verið vikið úr öllum þingnefndum. Sjálfstæðisafmæli Lithauen er á morgun. Hefir það þá verið frjálst ríki 22 ár. Höfuðborg þess er hin endurheimta borg, Vilna. Er ríkið nú 60 þús. fer- kílómetrar að stærð, en íbúar um 3 miljónix. Eínyrkjabúskapurínn (Framh. af 2. siðu) stundir, og til undantekninga má teljast, sjái bændur sér fært að veita sumaTfrí, með fullu kaupi, svo dögum skipti. Á flestum heimilum er því einyrkjabúskapur. Búið berst í bökkum eða lakar en það. Bóndinn verður því að taka þann kostinn að vinna, ekki ein- ungis sína 10—11 tíma á dag, heldur svo lengi, sem orkan 1 það ýtrasta leyfir, að heita má, alla 365 daga ársins. íslenzkir bændur eru enn svo sinnaðir, að þeir gefa sig ekki upp, sem ósjálfbjarga, fyrri en í fulla hnefana. Bændur, sem ekki hafa stálpuð börn, eða aldrað fólk, sem þó er liðtækt í viðlögum, eiga erfitt með að víkja frá heimilinu, s. s. til kaupstaðar- ferða eða annara nauðsynja. Þeir geta tæpast. sótt almenna fundi eða tekið þátt í almennu félagslífi eða trúnaðarstörfum fyrir sveit sína. Slík einangrun er fljót að lama, bæði aridlega og líkamlega. Hún á sinn hlut í því að gera einstaklingana — og þá jafnframt bændastéttina í heild — ófrjálsmannlega og vondaufa, þungbúna og þröng- sýna. Ekki er hlutskipti húsmóður- innar betra. Hún verður að annast matreiðsluna, þjónustu- brögðin, hreingerningar og börnin og eigi ósjaldan kallar þörfin svo eftir, að hún reynir að sinna útiverkum meira eða minna að auk. Mörg hjón leggja þetta og þvi- líkt á sig með glöðu geði meðan bezta aldursskeiðið og fullur þróttur varir. En heilsan er dutlungasöm og iætur ógjarnan ofbjóða sér til lengdar. Bresti hana, má heita að fyrir þessum heimilum séu öll sund iokuð og þótt nágrannar vilji hlaupa undir bagga, þá hafa flestir nóg á sinni ,könnu. Mannsterku heimilin, sem áður vóru oft bjargvættir hinna minnimáttar, eru nú flest úr sögunni. Eigi verulegar misfellur sér stað, s. s. sjúkdómar eða sérstök óhöpp, er naumast í annað hús að venda, en til sveitastjórnanna. En þar reynast oft góð i;áð dýr, því Ifteildarmáttur sveitarfélags hlýtur jafnan að vera samskon- ar útgáfa og máttur einstakl- inganna, er það skapa. Getur þetta máske gefið ofurlitla skýr- ingu á vaxandi sveitarþyngsl- um og skuldum sveitafélaga. Frh. Kr. Guölaugsson. Einar Benediktsson (Framh. af 3. siðu) En þegar Einar Benediktsson hafði ráðið skipi sínu tll hlunns, varð löndum hans tamara að fjölyrða um það sem orðið hafði honum mótdrægt, heldur en listamannsfrægð hans. — Nú fann hann það, sem hann hafði löngu áður sagt vel og spámannlega um Gretti Ás- mundsson: Og reyndi það nokkur glöggvar en hann að sekur er s& einn — sem tapar? Framh. J. J. ’—.QAMLA BÍÓ~“~~“ Borgarvírkí Metro Goldwyn Mayer- stórmynd, gerð eftir hinni frægu samnefndu skáld- sögu enska læknisins og rithöfundarins A. J. Cron- ins. Aðalhlutv. leika: ROBERT DONAT og ROSALIND RUSSELL. Happdrætti Háskola lslau«ls í DAG er síðasti dagur, sem menn eiga rétt á sömu núm- erum sem í fyrra. Tryggið yður námer yðar. Yerðhækkan. Smásöluverð á bökunardropum verður fyrst um súm sem hér segir: 15 g'r. glös kr. 0.55 30 - - 0.90 50 - - 1.55 Er þar með úr gildi gengið það verð sem undanfarið hefir verið tílgreint á einkennis- miðum hinna ýmsu tegunda bökunardropa. AFENGISVERZLUN RÍKISEVS. Tollskráín 1940 er komín út og fæst hjá bóksölum. Aðaláfsala í Ríkisprentsm. Gutenberg. HÁVNEM0LLEN KAUPMAMAHÖFN mælir með sínu viðurkennda RÉGMJÖLI OG HVEITI. Meiri vörugæði ófáanleg. NÝJA BÍÓ ■——— Pygmalíon Sýnd í kvöld kl. 7 og kl. 9 i allra síðasta sinn, því að senda þarf myndina til út- landa. S. t. S. skiptír eingöngu við okknr. 142 Margaret Pedler: Laun þess liðna Þingmálafundir í Mýrasýslu asta dagsins, sem hún dvaldi á Ítalíu, þegar hún hafði fundið til ákveðins ótta við Englandsferðina, skilnaðinn við Can- dy, rétt áður en stormurinn skall á. Þessi napri óhugur var það, sem hún mundi síðast eftir í huga sér, áður en sjálft óveðrið skall á, svo að hún þurfti að hafa hugann allan við að halda bátnum á floti. Veðrið var ágætt núna, glaða- sólskin og blár, skýlaus himinn og logn- slétt hafið runnu saman í eitt út við sjóndeildarhringinn. Þrátt fyrir þetta lagðist þessi þungi uggur eins og farg á hug hennar. Hún bylti sér óþolinmóð á legubekknum og leit fagnandi til dyr- anna, þegar barið var og hún mátti eiga von á einhverjum, sem myndi tala við hana, svo að hún losnaði við þenna kveljandi óhug. Ef til vill væri það Jane eða Colin, já, sennilega, þar eð Suther- land var búinn að koma þenna dag. En það var hvorki Jane né Colin, sem opnaði hurðina. Elízabet fann hjartað taka kipp í brjósti sér er hún sá Söru standa í dyrunum, og hún heyrðl ekki greinilega hvað hún sagði: „Annar gestur að heimsækja yður, ungfrú. Núna er það herra Maitland.“ X. KAFLI. Heimsóknin. „Ó, hvað það er gaman að sjá yður,“ hrópaði Elízabet upp yfir sig um leið og Maitland tók í hönd hennar. En þá mundi hún allt i einu eftir því, hvernig hann hafði tekið því, þegar hún, fyrir skömmu siðan og með svipuðum orðum, lét i ljós ánægju sína yfir þvi að þau höfðu hitzt aftur. Hún stokkroðnaði og óskaði þess innilega með sjálfri sér, að hún hefði ekki sagt þetta. Hún snerl sér að Söru, til þess að dylja fátið, sem á hana kom. „Komið með teið, Sara. Ég ætla ekki að bíða eftir Jane, enda sagðist hún ekki koma fyrr en seint í kvöld.“ Svo sneri hún sér aftur að Maitland, en var ofurlítið óstyrk. „Því miður eru þau ekki helma, Jane og Colin. Þau fóru tll Starranbridge. Þar er markaður í dag, eins og þér efalaust vitið, og Jane fór þangað með smjör og egg.“ Maitland horði á hana og hún varð undrandi yfir því, hvað augu hans sýnd- ust mikið blá i brúnu andlitinu, eins og þegar hún hafði fyrst séð hann. Hún hlaut að hafa verið búin að gleyma því, hvað þau voru mikið blá. „Ég kom nú til þess að hitta yður, svo ég mun ekki sakna þess, að þau eru ekki heima, Jane og Colin,“ svaraði hann og brosti í senn, vingjarnlega og glettnis- lega. Elizabet náði sér alveg aftur við (Framh. af 1. síðu.) fyrir það yrðu af einum hinna löngu og fjörugu funda, sem Borgarnes er alþekkt fyrir. Má llka segja, að það sé jafnan hæpið að meina mönnum máls á opinberum fundum og er það slzt að geði Borgnesinga, undir venjulegum kringumstæðum. Eftir að fundinum var lokið, hélt Einar Olgeirsson fund með félögum sinum í Borgarnesi, og slæddust á hann nokkrar for- vitnar sálir, sem ekki höfðu áður átt þess kost að sjá þenna um- talaða mann. — Hvað getur þú sagt frétta úr héraðinu að öðru leyti? — Það, sem mönnum var tíð- ræddast um, var hinn óvenju- lega mildi vetur, er virðist ætla að yfirganga alla þá mildu vet- ur, sem núlifandi menn muna. Var umhorfs í héraðinu svipað og komið væri fram í maí, heldur að á miðþorra væri. Fénaður, bæði sauðfé og hross, hefir verið mjög léttur á fóðrum, og hey- birgðir því í mesta lagi. Þó er sauðfé gefið miklu meira heldur en gert mundi, ef það væri heil- brigt. Má staðhæfa, að árgæzka hin mesta hefði verið i Borgarnesi undanfarin ár, ef fjárpesttn hefði ekki geisað þar, svo sem verið hefir. En það er ennþá hið mesta alvöru- og áhyggjumál hinna borgfirzku bænda. Er svo að sjá, að ekkert þrot verði á fjárfelli af völdum veikinnar. í fyrra var nokkur bjartsýni ríkj- andi um það, að fénaðurinn værl að yfirvinna veikina og takast mætti að ala upp nýjan fjár- stofn, ónæmari þeim eldri. Nú eru þessar vonir að dvlna, þar eð féð er byrjað að hrynja niður að nýju, bæði hið eldra, sem áður stóð af sér veikina, og hið yngra, sem alið hefir verið upp slðustu árin. Eru nú þær skoðanir, sem ríktu fyrir nokkru, að eina úr- ræði til að losna við veikina muni vera niðurskurður og fjár- skiptir, að koma upp að nýju. — Varst þú á leið til þessara fundarhalda, þegar flugslysið varð á Skerjafirði? Var ekki mjórra muna vant að manntjón yrði? — Svo má segja. Sennilega er nú alltaf álíka skammt á milli Leíhiélag tleykjavíhur „Fjalla-Eyvíiidur“ Sýning í kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1 í dag. Ath. Vegna mikillar aðsóknar, verffur ekki svarað í sima fyrsta kiukkutimann eftir að sala hefst. lífs og dauða, þótt við tökum ekki eftir því, nema stöku sinn- um. í þetta skipti sást það betur en endranær hve skammt það er. Ég tel, að það sé eingöngu að þakka snarræði og öryggi flugmannsins, Arnars John- sen, að ekki fór ver en á horfðist. Hann gerði, að mlnu viti, nákvæmlega það, sem gera þurfti, og nákvæmlega á því augnabliki, sem það þurfti að gerast, til þess að bjarga þvi sem bjargað varð.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.