Tíminn - 05.03.1940, Qupperneq 4
104
TÍMIM, þrigjndaginn 5. marz 1040
26. blað
tR B Æ IV U M
Styrjöldín í Fínnlandi
Bœ j ar skógurinn
Yfiir tandamærin
1. Mbl. heldur áíram hinum rök-
semdalausa þvættingi um verzlunar-
málin. Síðastl. sunnudag segir blaðið
t. d. að verzlunarhöftin „hafi að heita
má eingöngu verið látin bitna á verzl-
unarstéttinni". Þá talar blaðið um
„hina pólitísku herra, sem í óþökk
þjóðarinnar haldi dauðahaldi í rang-
lætið". Vill ekki blaðið nefna einhverj-
ar sannanir fyrir þessum fullyrðingum
sínum? Vill það ekki reyna að sýna
fram á hvert „ranglætið" er? Vill það
ekki reyna að leiða rök að því, að höft-
in hafi nær eingöngu bitnað á kaup-
mönnunum? Því ætti að skiljast, að
enginn óvitlaus maður getur tekið
mark á þessum fuliyrðingum þess, án
einhverra röksemda þeim til stuðnings.
2. Það væri elnnig óneitanlega
skemmtilegt, ef Mbl. vildi til frekara
rökstuðnings máli sínu lýsa kjörum
stórkaupmanna i Reykjavík, en þau
hljóta að vera hin hörmulegustu, ef
frásögn blaðsins um „ranglætið", sem
þeir séu beittir, er rétt. Það er víst
eitthvað annað, sem vesalings stór-
kaupmennirnir verða að búa við, en
sældarkjör bænda og verkamanna!
3. Kommúnistablaðið reynir enn að
æsa Þjóðverja gegn íslenzku þjóðinni.
Siðastl. simnudag kallar það t. d. nú-
verandi valdhafa „brezka erindreka".
Sjómenn okkar myndu fljótlega íá að
kenna á því, ef þýzkir valdamenn
tækju þessa landráðastarfsemi komm-
únista alvarlega.
4. Kommúnistar á Akureyri hafa
undaníama vetur reynt að koma
nokkrum fulltrúum á aðalfund Kaup-
félags Eyfirðinga og hafa haft tU þess
nægan mannafla. En nú er gengi þeirra
og kjarkur svo á þrotum, að þeir
reyndu að fá meðmælendur með sér-
stökum lista, en fengu engan stuðning.
Talið er, að fylgið hafi hrunið mest
af kommúnistum í Finnlandsmálunum.
Þar sást að forkólfamir voru ættjarð-
arlausir.
5. Sigurður Eggerz vissi ekki, er
hann lagði út í að nota Jón Sigurðsson
sem barefli á samvinnumenn, að for-
setinn hafði átt mikinn þátt í að hvetja
föður Sigurðar til að gerast kaupfé-
lagsstjóri, og studdi Pétur Eggerz í bar-
áttu við kaupmannavaldið. Norskt skip,
sem flutti vömr til Péturs Eggerz til
Borðeyrar og fleiri staða, hét Jón Sig-
urðsson. Svo náið var þar nef augum.
6. Árni Jónsson frá Múla er engu
betur að sér um samvinnumál þeirrar
sýslu, þar sem hann er fæddur og
alinn upp. Hann veit ekki, að nálega
helmingur af bændum í Suður-Þing-
eyjarsýslu em félagsmenn í kaupfélagi
á Akureyri. Þetta gerir útreikninga
Vísis um vömþörf K. E. A. mjög vill-
andi. Það mun reynast erfitt að gera úr
Jóni Sigurðssyni f jandmann samvinnu-
félaga, nema helzt með þeirri tegund
af þekkingu á verzlunarsögu, sem Sig-
urður Eggerz og Árni Jónsson hafa
til að bera.
7. Héðinn Valdimarsson hefir marg-
reynt að stofna nýjan flokk. Eftir
margar atrennur fékk hann saman 43
menn, mestallt starfsfólk Olíuverzlun-
arinnar. Mestir virðingarmenn auk
Héðins voru þeir Þorsteinn Pétursson
og Amór Sigurjónsson. Félagið heitir
Jafnaðarmannafélag Reykjavikur, eftir
félagi því, sem Héðinn lagði við skurð-
artrogið, er hann gekk yfir til komm-
únista. Arnór flutti aðalræðuna á
fundinum. Sagði hann frá pólitískum
hrakningum sinum, og gat þess, að
bæði Framsóknarflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn hafi verið mjög góðir
flokkar, þar til hann yfirgaf þá.
x+v■
Aðrar fréttlr.
(Framh. af 1. síðu)
Hess og fleiri forvígismenn naz-
ista. Ekkert hefir verið uppskátt
látið um viðræðurnar. Hann er
nú á leið til Frakklands.
Þýzk flugvél réðist á enskt
farþegaskip, sem var nýfarið frá
Antwerpen, síðastliðinn laugar-
Glímufélagið Ármann
efnir til skiðanámskeiða við skála
sinn í Jósefsdal og mun fyrra nám-
skeiðið hefjast n. k. mánudag, 11. þ. m.
Kennari verður Guðm. Hallgrímsson.
Skákmeistari Reykjavíkur
er nú 'Ásmundur Ásgeirsson. Hefir
einvígi staðið yfir milli hans og Egg-
erts Gilfer um titil þenna, og lauk því
svo, að Ásmundur vann þrjár fyrstu
skákir einvígisins og bar þar með sigur
úr býtum.
Skaftfellingamót
er að Hótel Borg annað kvöld. Hefst
það kl. 7.30.
Borgfirðinga- og
Mýramannamót
verður haldið að Hótel Borg á föstu-
daginn kemur, og hefst það með borð-
haldi kl. 8. Skemmtiskrá verður fjöl-
breytt og munu Borgfirðingar skemmta.
Aðgöngumiðar að hófinu verða seldir
í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar
og að Hótel Borg á morgun og fimmtu-
dag.
Skíðamót Reykjavíkur
fór fram við Kolviðarhól um helgina.
Veðurskilyrði voru slæm. Keppt var í
þrem aldursflokkum . í skíðagöngu, og
áttu vegalengdir að vera 18 km., 10 km.
og 5 km., en voru styttar um fimmtung.
Úrslit voru þau, að Gunnar Johnson
var fyrstur í 1. aldursflokki, á 64.24
mín., Bjöm Blöndal annar á 67.04 mín.
og Georg Lúðvíksson þriðji á 67.07 mín.
í öðrum flokki var fyrstur Guðbjörn
Jónsson á 46.21 mín., en í þriðja flokki
Lárus Guðmundsson á 25.25 mín. Þess-
ir eru allir úr K. R. í svigi varð hlut-
skarpastur Björn Blöndal, annar Stef-
án Stefánsson úr Ármanni og þriðji
Georg Lúðvíksson. í drengjakeppni í
svigi sigraði Haraldur Bjömsson úr
K. R. Skíðastökkin fóru eigi fram
vegna veðurs.
Thule-skíðamótið
verður háð í Hveradölum 9. og 10.
marzmánaðar. Þangað eru meðal ann-
arra væntanlegir allmargir Siglfirðing-
ar. —
Útburður símaskrárinnar
fyrir 1940 mun nú geta hafizt að hér
um bil viku liðinni, en hann hefir taf-
izt nokkuð vegna efnisskorts til nauð-
synlegra breytinga, sem gera verður um
leið og hin nýja skrá er tekin til notk-
unar. Um það, hvort eða hvenær nýir
notendur geta fengið síma, verður að
svo stöddu ekkert sagt, enda er nú að
verða línulaust sums staðar I bænum,
t. d. 1 vesturbænum. Sjálfsagt verður
þó reynt smátt og smátt að koma upp
einstöku símum, þar sem línur eru
til.
dag. Varpaði hún á það nokkr-
um sprengjum, sem ollu stór-
felldu tjóni. Skipið komst þó
aftur nauðulega til hafnar. Tal-
ið er að um 100 manns hafi
farizt.
Þýzk flugvél skaut niður tvær
belgiskar flugvélar í loftorustu
á laugardaginn. Flaug hún yfir
belgiskt land og fóru þá þrjár
belgiskar flugvélar til móts við
hana. Þjóðverjar hafa beðið af-
sökunar á þessum atburði, sem
vakið hefir mikla gremju í
Belgíu.
Sænski utanríkismálaráðherr-
ann hefir lýst yfir því, að um
helmingur þeirra skipa, sem
hafa farizt af völdum styrjald-
arinnar, hafi verið í siglingum
milli hlutlausra landa.
Carol Rúmeníukonungur hefir
ákveðið að fara í opinbera heim-
sókn til Ítalíu í byrjun næsta
mánaðar. Vekur þetta mikla
athygli.
og „norræn samvinna"
(Framh. af 1. siðu)
vinnu“. Þvi hefir verið óspart
flaggað undanfarin ár, að hin
svokallaða „norræna samvinna“
væri aukin trygging fyrir sjálf-
stæði og hlutleysi þessara þjóða,
og margir höfðu vænzt þess, að
hún myndi reynast bezt, þegar
til alvörunnar kæmi. Finnlands-
styrjöldin hefir kollvarpað þess-
um glæstu vonum. Hin „nor-
ræna samvinna“ hefir ekki
reynzt sjálfstæði þessara þjóða
nein vörn. Þegar til alvörunnar
kom hugsaði hvert ríkið fyrst og
fremst um sig og valdi þá leið,
sem það taldi sér vænlegasta til
bjargar, án tillits til afdrifa ná-
búans. Það er svipuð saga og
1864, þegar Danir hugðust að
bjarga Suður-Jótlandi með því
að láta Þjóðverja fá ísland. Sú
framkoma Dana var rétt, þegar
litið var á málið frá sjónarhæð
sérhagsmuna þeirra, og það get-
ur meira en vel verið, að Norð-
menn og Svíar hafi valið hina
réttu afstöðu, þegar málin eru
mæld með slíkum mælikvarða.
En fyrirætlun Dana 1864 var
vissulega ósamrýmanleg „nor-
rænni samvinnu".
Nokkrir meðhaldsmenn „nor-
rænnar samvinnu" reyna að
halda því fram, að hinar Norð-
urlandaþjóðirnar hafi ekki get-
að veitt Finnum meiri hjálp eða
á annan hátt en gert hefir verið.
Þessir menn þykjast vita betur
en Tanner og Sandler, sem tald-
ir hafa verið með glöggskyggn-
ustu og raunsæjustu stjórn-
málamönnum á Norðurlöndum
og haft hafa betri aðstöðu en
flestir aðrir til að fylgjast vel
með í þessum málum.
Annars hefðu menn ekki
þurft að verða fyrir stórum von-
brigðum af „norrænni sam-
vinnu“, ef þeir hefðu kynnt sér
hana til hlítar eins og hún hefir
í raun og sannleika verið til
þessa dags. Þvi miður hefir hún
ekki verið mikið meira en fögur
orð. Hennar hefir hvergi gætt
í hinum þýðingarmeiri málum.
Hún hefir yfirleitt ekki snúizt
um annað en lítilsverða smá-
muni. Eitt gleggsta dæmi um
innihald hennar fengu íslenU-
ingar siðastliðið sumar. Góður
tugur auðmanna og mikilsmeg-
andi valdamanna á Norður-
löndum kom hingað til lands,
sátu hér „norræna" ráðstefnu
og sögðu falleg orð um ísland
og „norræna samvinnu". Um
líkt leyti voru auðkýfingar
Norðurlanda að semja við okkur
um lán til brýnnár og arðvæn-
legrar framkvæmdar. Þá var
hjartaþel „norrænnar sam-
vinnu“ ekki til staðar. Auðkýf-
ingarnir norrænu létu okkur
sæta þeim mestu afarkostum,
sem við höfum orðið að þola
síðan sjálfstæðið var endur-
heimt.
Þetta kunna að þykja beizk
orð. En við íslendingar gerum
sjálfum okkur mestan greiða
með því að meta hina „norrænu
samvinnu“ eins og hún er, en
Jsjá hana ekki stöðugt í róman-
I tískri ofbirtu. Þ. Þ.
174 Margaret PecLler:
af öllu gera sem mest af þessu sjálf.“
„Já, það veit ég. Ég vildi að guð gæfi
að þú gætir losnað við þá hugsun og
leyfðir öðrum, sem langar til að hjálpa
þér og--------.“
„Það er harðbannað,“ svaraði Jane
og hristi höfuðið. „Góði „spekingurinn“
minn! Lofaðu mér nú að vera heimskri,
einþykkri og þreytandi eftir mínu eig-
ln höfði. Ég er hvort sem er orðin af
gömul til þess að fara eftir öðrum.“
„Of gömul, þó, þó! Ef það er eina
ástæðan-----------“.
Jane tók fast um handlegg honum
og horfði alvarlega á hann brúnum og
einlægum augunum.
„En þú veizt það sjálfur, Jack, að það
er ekkl eina ástæðan, — og við skulum
heldur tala um eitthvað annað............
Finnst þér ekki allt fallegt hérna hjá
honum Maitland," hélt hún áfram í allt
öðrum tón. „Ég gæti trúað, að þarna
ofan að,“ — bætti hún við og benti á
turn, sem gnæfði yfir eitt horn húss-
ins, — „sjáist um alla ströndina og
langt út á haf. Ennþá höfum við ekki
séð nema lítinn hluta af allri dýrðinni.
Hvers vegna viljið þið ekki staldra dá-
lítið lengur við, þú og Elízabet? Ekki
hafið þið neina hungraða hesta á sam-
vizkunni."
„Nei, en ég þarf að gera sjúklingi til
Laun þess liSna 175
góða klukkan sex,“ svaraði Sutherland
þungbúinn. „Auk þess ætla ég að fylgja
þér heim. Mér þætti fróðlegt að vita
hvort Frayne leggur blessun sína orða-
laust yfir þessa vináttu,“ hélt hann á-
fram og kinkaði kolli í áttina til þeirra
Maitlands og Elízabetar, sem voru orð-
in góðan spöl á undan.
Augu Jane fylgdu bendingu hans og
urðu alvarleg og ofurlítið angurvær.
Augu Colins höfðu oftar en einu sinni
ljóstrað leyndarmáli hans upp fyrir
henni. Hún hugsaði til þess, með
nokkrum sársauka, hvort þessi vin-
skapur, sem Sutherland átti við, myndi
eyðileggja fyrir bróður hennar eina
möguleikann til sannrar hamingju, —
hamingju, sem ein gæti bætt honum
upp allt það, er hann hafði farið á mis
við.
„Ég sé enga ástæðu til þess fyrir
Candy að setja sig upp á móti þessu,“
svaraði hún athugasemd læknisins.
„Þú sérð það ekki, nei?“
Jane stanzaði allt í einu og leit á
lækninn óttaslegin. Þessi stutta og
skýra spurning hafði ómað sem aðvör-
un í eyrum hennar.
„Sérð þú það? Hefir hann nokkra
raunverulega ástæðu til þess!“
Sutherland sparkaði steinvölu af göt-
unni með dálítilli óþolinmæði.
(Framh. a) 3. siðu)
hindrunar, má benda á, að draga
má að mun úr stofnkostnaðin-
um og haga ræktunaraðferðum
í samræmi við það.
Framangreind áætlun um
kostnaðinn var byggð á þvi, að
V« hluti hins fyrirhugaða skóg-
lendis á hverjum stað yrði tek-
inn fyrir árlega. Stofnkostnaður
á ári yrði þá á hverju býli Vis
af kr. 7300.00 = kr. 486.00. Þegar
að því kæmi, eftir 75—80 ár, að
yngja skóginn upp, yrði farið
eins að, og Vib hlutar skógarins
felldir og yngdir upp árlega.
Byrjað væri á elztu árgöngunum
og ræktunarumferðin tæki þá
90—95 ár. En ef menn kysu að
skógurinn gæfi ^töðugan af-
rakstur, er um tvennt að velja,
að hafa árgangana í samræmi
við stærð skógarins, eða að láta
ræktunarumferðina ná yfir
styttra árabil.
En ræktunaraðferðin þarf
ekki að vera svo mjög kerfis-
bundin, sem nefnt var. Hinir
dýrmætu eðliskostir okkar inn-
lenda skógargróðurs bjarga mál-
inu, þegar það virðist ætla að
stranda á fjárskorti, eða því, að
erfitt væri að afla fræs og planta
til bæjarskóganna. Skógurinn
eða náttúran getur fullgert
ræktun hins fyrirhugaða skóg-
lendis, þegar búið er að koma
upp skógargróðri á nokkrum
hluta landsins.
En skógurinn þarf tíma til að
vinna verk sitt. Hitt er vist, að
þau öfl, er þar vinna, ná sama
marki og mannshöndin. Náttúr-
an heimtar aðeins frið og tíma.
Ef við höfum efni á að láta þetta
hvort tveggja í té, eftir að búið
er að græða dálítinn skógarblett
nálægt bænum, kemur skógur-
inn af sjálfu sér. Á hinn bóginn
má segja, að tíminn sé peningar
og friðun landsins kostar vissu-
lega alltaf sitt, eins og til hagar
hér á landi, svo allt ber raunar
að sama brunni um kostnaðinn.
Þó er vafalaust rétt að gera sér
það ljóst í upphafi, að margt
getur orðið þess valdandi, að
slá verði af kröfunum um rækt-
un bæjarskógarins á tilsettum
tíma. Hinu má þá heldur ekki
gleyma, að markið næst eigi að
síður og að landið verður skógi
vaxið fyrr en nokkurn grunar.
Meðan styrjöld sú geysar, sem
nú er háð, verða ýmsar fram-
kvæmdir að bíða um nokkur ár,
ef til vill. En íslendingar hafa
aðstöðu til að undirbúa þær. Svo
er og um skógræktina, eða fram-
kvæmd þeirra mála. Skógrækt-
arfélögin, sem stofnuð hafa ver-
ið, geta búið í haginn á ýmsa
lund. Þau geta unnið að því að
fjölga þátttakendum og gert
margskonar athuganir og áætl-
anir um verkefni, sem fyrir
liggja og hugsað er að fram-
kvæma þegar batnar í árí.
Þeir landshlutar, þar sem enn
eTu ekki stofnuð skógræktarfé-
lög, ættu að nota stríðstímann
til þess að berjast fyrir gott
málefni, meðan almenningur í
nágrannalöndunum berst á víg-
vellinum, þó það kunni að vera
vegna málefnanna. Sem eðli-
legt er þarf tíma til að almenn-
ingur í landinu átti sig á við-
fangsefnum skógræktarinnar.
Áhugi manna víða, seinustu
áratugina, sem lýsir sér í trjá-
rækt við bæi og hús, er mikils-
vert atriði, sem fyrsta stig trjá-
ræktar og skógræktar. Sá áhugi
er sönnun þess, að ekki verður
látið þar við lenda. Næsta stig-
ið er bæjarskógurinn. Út frá
trjágarðinum á bæjarskógurinn
að spretta. Ekki eingöngu með
sjónarmið skjóls og fegurðar,
sem þó munu fylgja honum,
heldur fyrst og fremst sem
hagsmuna- og menningarmál
fyrir einstaklinginn og þjóðar-
heildina. Þessi sjónarmið eru nú
að skýrast og ná tökum á fólk-
inu allvíða. Stríðstímarnir eru
hentugir til þess að glæða þann
hugsunarhátt, ef menn ekki
freistast til að gefa fjárgróðan-
um of mikið rúm,og bæjarskóg-
urinn getur þá þróazt og stað-
ið af sér storma allra stríðs-
tíma.
Guttormur Pálsson.
KONA UM FERTUGT
óskar eftir ráðskonustöðu á góðu
sveitaheimili. Vön sveitavinnu.
Tilboð, ásamt góðum upplýsing-
um, leggist inn á afgreiðslu
blaðsins fyrir 20. þ. m., merkt
100.
..QAMLA BÍÓ”‘~*‘~**"
Inga 16 ára
Áhrifamikil þýzk kvik-
mynd, gerð samkvæmt
skáldsögunni „Sextanerin“
eftir V. Neubauer.
Aðalhlutv. leika:
ROLF WANKA
og
ELLEN SCHWANNEKE.
NÝJA BtÓ ■ ——
ÞAU GIFTU
SIG AFTUR
Amerísk skemmtimynd frá
Fox um ástir, rómantík,
hjúskap og skilnaði.
Aðalhlutv. leika:
LOURETTA YOUNG Og
TYRONE POWER.
Aukamynd:
Pólski píanósnillingurinn
PADEREWSKI
spilar Adagio úr tunglskins
sónötu Beethoven o. fl.
HAPPDRÆTTI
Háskóla íslands
Á hverju ári sendir HAPPDRÆTTI HÁSKÓLANS
allt að 5000 vinninga út um landið. Þetta skiptir
nú mörgum milljónum síðan Happdrættið hófst.
Það hefir fært birtu í margan bæinn, eins og
Steindár Sigurösson kveður svo hnittilega:
Eg hef alltaf síðan séð
sólskin allan daginn,
að Happdrættið kom hingað með
hamingjuna í bæinn.
Eða þá ónefnda skáldið, sem kveður:
♦
Eg er ekki flatur né fátækur lengur,
fimmtíu þúsundin tryggja minn veg.
Spilaðu í Happdrætti Háskólans, drengur,
þá hlýturðu eflaust það sama og ég.
Og hér er eitt orð frá sama skáldi til þeirra, sem
eru að velta því fyrir sér, hvað þeir eigi að kaupa
mikið af happdrættismiðum á þessu ári:
1940 er eflaust happaár,
þá enginn skyldi tækifærum sleppa.
Og gaman er að lifa með fullar hendur fjár,
sem fjórðungsmiði lætur okkur hreppa.
Jörðín Höskuldsstaðir
í Dalasýslu er til sölu með eða án áhafnar. Laus til ábúðar næst-
komandi vor. — Upplýsingar gefur
Kristján Kristjánsson,
Ránargötu 18. Sími 3282 eða 4857.
Verðhækkun mjólkur
(Framh. af 1. síðu)
til búanna berst. Er allt mjólk-
urmagnið áætlað um 16 millj.
lítrar, en neyzlumjólkin um 5,5
milj. lítra. Eru þessar tölur mið-
aðar við reynslu fyrri ára. Geta
ber þess að fyrstu þrjár vikur
ársins var mjólkin seld án nokk-
urrar verðhækkunar, og um
nokkurn tima með 4 aura hækk-
un á lítra.
Þessar upplýsingar — ná-
kvæmlega sundurliðaðar —
hafði formaður mjólkurverð-
lagsnefndar, Páll Zóphóníasson,
sent Mbl. fyrir nokkrum dög-
um síðan og var blaðinu því
mæta vel kunnugt um þær.
Engu að síður fullyrðir það sið-
astliðinn sunnudag, að bænd-
ur fái aðeins einn eyrir af
mjólkurhækkuninni. Er þetta
gott dæmi um hinn óvandaða
málflutning blaðsins.
Blaðið fullyrðir, að megin-
hlutinn af mjólkurhækkuninni
fari í óþarfan milliliðakostnað.
Vill ekki blaðið fá sér skýrslu
hinna löggiltu endurskoðenda
og benda á þá liði kostnaðar-
aukningarinnar, sem eru óþarf-
ir?
Meðan blaðið geTir það ekki,
getur það ekki ætlazt til að
mikið mark verði tekið á vaðli
þess.
Auglýsið í Timannm!
A krossgötum.
(Framh. af 1. síðu.)
til að undirbúa löggjöf um almenna
þegnskylduvinnu. Munu Húnvetningar
fúsir til að fylgja fram hugsjón Her-
manns Jónassonar frá Þingeyrum.
Laxfoss
fer til Stykkishólms á morgun
síðdegis. Flutningi veitt móttaka
í dag.
AFGREIÐSLA LAXFOSS.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
i Reykjavík
er á Lindargötu 1D
Framsóknarmenn utan af
landi, sem koma til Reykja-
víkur, ættu alltaf að koma
á skrifstofuna, þegar þelr
geta komið þvl við. Það er
nauðsynlegt fyrir flokks-
starfsemina, og skrifstof-
unni er mjög mlkils viröi
að hafa samband við sem
flesta flokksmenn utan af
landi.
Framsóknarmenn! Munið að
koma á flokksskrifstofuna á
Lindargötu 1 D.