Tíminn - 19.03.1940, Síða 4
TVN, |»rU8|wdagiim 19. marz 1940
Þökkum samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
Sigríðar Jónsdóttur, Klausturhólum.
Magnús lónsson, sonier og tengdadóttir.
íikídafólk!
Tryggið yður gegn misheppnuðu skíðafríi.
Það gerið þér með því að nota
CHEMIA-skíðaáburð
Og
C H E MI A-Uitra-sólar olíu.
CHEMIA-skíðaáburður:
í dósum
I túbum
No. 1, fyrir nýjan snjó.
No. 2, fyrir breytilegt færi.
No. 3, klísturvax.
Klístur, fyrir blautan snjó.
Skaraklístur, fyrir harðfenni.
Skíðasápa, losar skíðaáburð
og allskonar óhreinindi.
— Leiðbeiningar í öllum umbúðum. —
CHEMIAUltra'Sólarolía verndar húðina gegn hinum
hættulegu bruna-geislum háfjallasólarinnar, og gerir húð-
ina eðlilega brúna og fallega.
CHEmiA 11. V.
Sími 1977. Kirkjustræti 8 B, Reykjavík.
AKUREYRI: ÍSAFIRÐI:
Umboðsm. Valg. Stefánsson Umb.m. Gunnar Andrew
128
Yiir landamærm
1. Kommúnlstar kvarta undan því, að
Tíminn telji þá veika í samvinnuíræð-
unum. Stefna þeirra er andvíg sam-
vinnu, en undirbýr byltingu. Einar Ol-
geirsson hefir í Rétti margsinnis full-
yrt, að Kaupfélag Eyfirðinga væri meir
til skaða en gagns fyrir Akureyri og
Eyjafjörð. í Rússlandi voru samvinnu-
félögin svift frelsi sínu, og lögð undir
ríkisvaldið.
2. Samvinnufélögin íslenzku hafa
ekki getað treyst á einlægan stuðning
frá neinum stjórnmálaflokki, nema
Framsóknarflokknum. Að vísu eru
margir Sjálfstæðismenn, nokkrir Al-
þýðuflokksmenn og fáeinir kommún-
istar i samvinnufélögum landsins. En
í baráttunni um tilverurétt samvinnu-
félaganna hafa allir félagsmenn fengið
þá pólitísku vernd, sem um munaði frá
Framsóknarmönnum. Að því leyti, sem
kommúnistar eru í samvinnufélögum,
eru þeir þar þiggjendur í skjóli við
borgaraflokkana.
3. Fyrir skömmu réðist geðveikur
maður frá Kleppi á Hermann Jónasson
á götu, en ráðherrann hratt honum frá
sér og slapp frá tilræðinu. Skömmu
síðar ræðst Brynjólfur Bjarnason á
ráðherrann í hans eigin herbergi í
þinghúsinu, með óbotnandi brigslum
og fúkyrðum, og byrjar að fálma í
hann. Ráðherrann hratt þessari árás
með því að gefa kommúnistanum mild-
an snoppung. Blað kommúnista telur
þetta mjög ranga breytni frá hálfu
ráðherrans.
4. Kommúnistar hafa frá upphafi
predikað, að þeir hefðu árásarréttinn.
Þeir vildu nota handaflið, láta hnefa
skipta og blóð fljóta úr andstæðingum
sínum. En þeir hafa gert ráð fyrir, að
ekki væri til sjálfsvarnarréttur. Komm-
únlsti telur sig mega vaða að æðsta
starfsmanni þjóðfélagsins í hans eigin
húsum með botnlausum illyrðum, og
handayfirleggingum, án þess að for-
sætisráðherra landsins megi beita
sjálfsvörn.
5. Kommúnlstum bregst hér boga-
listin. Einstakir menn og hið íslenzka
þjóðfélag byrja að beita sjálfsvörn.
Einar Olgeirsson og lið hans mun ekki
lengur geta haldið uppi sókn undan-
farinna ára tim að brjóta niður þjóð-
félagið, láta blóð fljóta o. s. frv.
6. Kommúnistar bera harðlega á
móti þeirri kenningu Héðins Valdi-
marssonar, að þeir fái fjárstuðning
frá nazistum. Ætla þeir að láta borg-
aralega dámstóla verja sig í þessu efni.
En öðru atriði láta kommúnistar ósvar-
að. Fyrir réttu ári var Einar Olgeirsson
svo hræddur við nazista, að hann bað
Hermann Jónasson að síma til Cham-
berlain og Roosevelts og biðja þá um
herskipavernd íslandi til handa. Þá var
væntanlegt til landslns þýzkt skóla-
skip, með nokkra afar kurteisa og
prýðilega menntaða yfirmenn og sjó-
foringjaefni. Þjóðverjar eru nákvæm-
lega sama þjóð með sömu stjórn og í
fyrra. En nú gerir blað kommúnista
engan mun á vináttu sinni við móður-
landið rússneska, og bandaþjóð Rússa,
Þjóðverja. Jafnhliða skoðanaskiptum á
Þjóðverjum, er Einar Olgeirsson nú af-
arfjandsamlegur Bretum og Chamber-
lain. Hvað veldur?
Reikningsskil
mjólkursamsölunnar
(Framh. af 1. slðu.J
vinsælda, ekki aðeins í Borgar-
borgaða verðinu fyrir árin 1930
og 1931, vegna samanburðarins,
það, sem útsöluverð mjólkur-
innar til néytenda var hærra
þau tvö ár, en það hefir verið,
síðan að mjólkursamsalan hóf
starfsemi sína. — En þessi tvö
ár, 1930 og 1931, var útsöluverð
mjólkurinnar í lausu máli 44
aurar líterinn. Hins vegar var
það, á sama hátt, aðeins 38 aur-
ar fyrstu þrjú starfsár samsöl-
unnar, 1935, 1936 og 1937, og
síðastliðið ár, 1939, var það 40
aurar fyrir hvern lítra.“
ÚR BÆXUM
Gestir í bænum.
Björn Kristjánsson kaupfélagsstjóri
á Kópaskeri, Þórhallur Sigtryggsson
kaupfélagsstjóri á Húsavík, Þorsteinn
Jónsson kaupfélagsstjóri á Reyðarfirði,
Markús Jensen kaupfélagsstjóri á Eski-
firði, Þórður Pálmason kaupfélagsstjóri
í Borgarnesi og Bjöm Stefánsson
kaupfélagsstjóri í Fáskrúðsfirði.
Förumenn,
síðara bindið af ritverki Elinborgar
Lárusdóttur, er komið út fyrir fáum
dögum.
Höiðíngleg gjöf
(Framh. af 1. siðu.J
firði, heldur einnig meðal ferða-
manna víðsvegar að af landinu.
Vigfús er borinn og barnfædd-
ur í héraðinu, að Eyri í Flókadal,
efsta bæ í Andakílshreppi, sonur
Guðmundar bónda þar, Eggerts-
sonar. Hann er tvígiftur, og var
fyrri kona hans Guðrún Björns-
dóttir frá Bæ í Andakílshreppi.
Þau eignuðust eina dóttur, Guð-
rúnu, er dó á 11. ári. En dóttir
Sigrúnar og Vigfúsar, Ásdís, and-
aðist á 5. ári. Liðu aðeins fáir
mánuðir milli andláts þeirra.
Báðar voru þessar stúlkur mjög
greindar og efnilegar. Er það til
minningar um þær, svo sem áður
er sagt, sem þau hjónin gefa
hina rausnarlegu gjöf til fagurr-
ar umbótastarfsemi í Borgar-
firði, héraðinu, sem þær voru
báðar fæddar í.
Sigrún er frá Eyjardalsá í
Bárðardal, dóttir Stefáns bónda
þar Jónssonar, en hann og
Stephan G. Stephansson voru
systkinasynir.
Tíðindamaður Tímans hafði
tal af þeim hjónum, er hann
fékk vitneskju um hina myndar-
legu gjöf. Lét þá Sigrún um
mælt á þessa leið:
„Ég óska einskis hróss mér til
handa vegna þessarar sjóð-
myndunar. En ég vona, að sjóð-
urinn verði Borgarfjarðarhéraði
til blessunar. Ég vona einnig, að
hann verði einhverjum þeim til
uppörvunar, sem fús er til að
leggja á sig erfiði og verja tíma
og fé til að rækta og hlynna að
skógi, enda þótt það fólk, sem
slíkt leggur á sig, geri það venju-
lega sízt af öllu í gróðaskyni,
heldur til að fegra og bæta land-
ið. Fátt prýðir meira umhverfið
en fagur skógur.“
Vigfús sagði:
„Ég er ungmennafélagi og
Borgfirðingur. Þegar ég hefi
komið heim frá öðrum löndum,
hefir mér fátt fundizt vanta hér
eins tilfinnanlega og skóginn, —
ifundizt landið svo víða bert og
kalið. En hins vegar hefir það
margsýnt sig, að það má miklu
JÖRÐIN
Narfastaðir í Víðvíkursveit í
Skagafirði er til sölu, og laus
til ábúðar á næstu fardögum.
Jörðin er vel í sveit sett og bíl-
fært heim í hlað. Túnið girt og
töðufall 180—200 h„ útheyskap-
ur um 300 h. — Semja ber við
eiganda jarðarinnar, Jósep J.
Björnsson, Vatnsleysu, Skag.
Upplýsingar hér í Reykjavík
sími 2911.
áorka með aðhlynningu og rækt-
un trjágróðursins. Fyrst að mig
langaði til að minnast héraðs
míns og hinna litlu dætra minna,
sem þar fæddust og ólu mest af
sínum stutta aldri, þá er ég glað-
ur yfir að hafa tækifæri til að
sýna hug minn í verki.
Ég held, að mennirnir, sem
stjórna sjóðnum, séu heppilega
valdir. Ég vona, að þeir reyni að
auka sjóðinn og sjá um, að hann
verði Borgfirðingum framtíðar-
innar sem mest til styrktar og
örvunar til góðra verka, Borgar-
fjarðarhéraði til gagns og prýði.“
Borgfirðingum er þessi gjöf
Sigrúnar og Vigfúsar mikið
fagnaðarefni. Hún mun verða
þegin af jafn hlýjum hug og ein-
lægum og hún er gefin. Hún er
talandi vottur um hlýtt hjarta-
þel, sem ekki lætur nægja orðin
tóm, héraðinu til handa. Hún er
einnig öllum þeim íslendingum
öðrum, hérlendis og erlendis, er
sýna vilja héruðum sínum sóma,
hin fegursta fyrirmynd. Og loks
er hún líkleg til að verða upphaf
þýðingarmikilla umbóta í hér-
aðinu, ekki sízt, ef aðrir Borg-
firðingar, sem vilja prýða og
auðga byggðir sínar, yku við
sjóðinn í framtíðinni á líkan
hátt og vikið er að í gjafabréf-
inu.
J. H.
Páska-
kaup
Páskaegg
í miklu
úrvali. Svipað
verð «s’ í
fyrra.
198 Margaret Pedler:
bætti hún við og bar ótt á, — „að hún
hafi ekki neitað þér ennþá, ha?“
Colin hrissti höfuðið.
„Nei, hún hefir ekki neitað mér.“
„Nei, auðvitað ekki. Ég þóttist líka
vita, að þú hefðir ekki einu sinni gefið
henni tækifæri til þess,“ sagði Elizabet
með vanþóknan.
„Það er alveg rétt, ég hefi ekki gert
það.“
„En hversvegna gerir þú það ekki,
Colin?“ Elizabet laut áfram og studdi
höndunum, með opnum greipum, á hnén.
„Ætlar þú ekki að gera það? Ég er
næstum því viss um, að hún hryggbrýt-
ur þig ekki, og — og mig langar svo
innilega til að þú verðir eins hamingju-
samur og ég er núna.“
. Colin brosti er hann virti fyrir sér hið
laglega andlit hennar og einlæg og biðj-
andi augun.
„Nei,“ sagði hann lágt. „Ég læt hana
ekkert um þetta vita, — ekki héðanaf.“
„Hversvegna?“ hélt hún áfram í
biðjandi ásökunarróm. „Manstu ekki
eftir því, að þú sagðist einu sinni ætla,
— og næstum lofaðir mér, — að biðja
hennar einhverntíma? Colin, ég er
sannfærð um, að heltin, sem þú gerir
svo mikið úr sjálfur, gerir engan mis-
mun í hennar augum. Ég sagði þér það
um daginn, og núna — — “ Hér lækk-
Laun þess liðna 199
aði rödd Elizabetar og varð svo mild
en hljómdjúp, eins og raddir fuglanna
á vorin, þegar þeir eru að byggja hreið-
ur sín. — „Og núna veit ég, — eins og
þú hlýtur að skilja, Colin, svo miklu
betur hvað það er að vera ástfangin.
Heldurðu að það skipti nokkru máli, í
mínum augum, þó að Blair væri haltur?
Ég myndi elska hann ennþá meira fyrir
það, — ef það væri bara hægt.“
„Nei,“ svaraði hann lágt. „Þér væri
það áreiðanlega sama."
„Jæja, hversvegna þegir þú þá?“
Rödd Elizabetar var í senn sigri hrósandi
og biðjandi, er hún sagði þetta.
Colin hreyfði sig óþreyjulega. Elizabet
kvaldi hann með þessu.
„Getur þú ekki skilið þetta?“ sagði
hann hatðneskjulega. „Ég bið hennar
aldrei héðan af, af því að — að þú ert
konan, sem ég átti við.“
„Ó! — “ Upphrópunin var gersam-
lega ósjálfráð og Elizabet starði á hann
skelfdum og galopnum augum. „Ó,
Colin!“ Sannleikurinn kom henni svo
algerlega á óvart, að hún gat alls engu
svarað í bráð.
Colin stóð upp með óþreyju, gekk út
að glugganum og horfði út yfir hafið.
Elizabet reyndi ekki að rjúfa þögnina.
Hún var svo gersamlega lömuð, að hún
vissi ekkert hvað hún ætti að segja.
Hátíðamatur
fjölbrcytt úrval.
Munið 4 helgi*
dagar.
Nestivörur
fyrir skíða-
ferðirnar.
1 búðum KROIV
eru neytendurnir
húsbsendur.
GAMLA BÍÓ
31. Mað
~ NÝJA BÍÓ —
Óbetranlegur
Tvíbura-
systurnar
Tilkomumikil og fögur ensk
kvikmynd. Aðalhlutverkin
tvö, tvíburasysturnar, leik-
ur einhver mesta leikkona
heimsins,
ELIZABETH BERGNER.
syndari.
í Frumlega fyndin skemmti-
) mynd gerð eftir frægri
sögu enska skáldsins N.
Sommerset Maugham og
gerist á einni af hinum
fögru Suðurhafseyjum. Að-
alhlutverkið leikur enski
leiksnillingurinn.
CHARLES LAUGHTON og
kona hans ELSA LAN-
1 CHESTER.
Hér með tilkynnist að vér höfum selt
Verzlunína Liverpool
og
Verzl. Blóm &
Avextir
samnefndum hlutafélögum. Um leið og vér þökkum fyrir við-
skiptin á liðnum árum óskum vér að hinir nýju eigendur megi
verða aðnjótandi þeirra viðskipta og vinsælda, er vér höfum notið.
Virðingarfyllst
Mjólkurfélag Reykjavíkur.
Samkvæmt ofanrituðu höfum vér keypt
Verzl. Lirerpool
af MjólkuTfélagi Reykjavíkur.
Oss væri kært að mega njóta þeirra viðskipta og vinsælda, sem
verzlunin hefir notið hjá fyrri eigendum. Þá væri oss einnig kært
að eignast sem flesta nýja viðskiptamenn. Vér munum gera allt,
sem í voru valdi stendur, og telja það enda vora ríkustu skyldu,
að gera viðskiptavini vora ánægða.
Virðingarfyllst
VERZLUNIN LIVERPOOL H.F.
Eyjólfur Jóhannsson.
Samkvæmt ofanrituðu höfum vér keypt
Verzl. Blóm & Ávexlir
af Mjólkurfélagi Reykjavíkur.
Oss væri kært að mega njóta þeirra viðskipta og vinsælda, sem
verzlunin hefir notið hjá fyrri eigendum. Þá væri oss einnig
kært að eignast sem flesta nýja viðskiptamenn. Vér munum gera
allt, sem í voru valdi stendur, og telja það enda vora ríkustu
skyldu, að gera viðskiptamenn vora ánægða. ✓
Virðingarfyllst
VERZL. BLÓM & ÁVEXTIR H.F.
Eyjólfur Jóbannsson.
Lögtak.
Eftir kröfu útvarpsstjórans í Reykjavík og að undan-
gengnum úrskurði í dag, verða lögtök látin fram fara
fyrir ógreiddum afnotagjöldum af útvarpi frá 1939,
að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar.
Lögmaðurinn í Reykjavík, 18. marz 1940.
Rjörn Þórðarson.
Um sjálfslæðismálið
(Framh. af 3. síðu.)
Nú hefir þjóðin flestar eða
allar þær stofnanir, sem henni
eru nauðsynlegar sem sjálf-
stæðri þjóð. Hún hefir tvöfald-
azt að fólksfjölda síðan 1874.
Geta hennar til að standa á eig-
in fótum er ekkert sambærileg
við það, sem áður var, og mögu-
leikarnir til bjargar hafa marg-
faldazt.
Áður fyrr voru til menn, sem
töldu að þjóðin hefði ekki efni
á því, að vera ósjálfstæð. Nú eru
menn uppi, sem telja að hún
hafi ekki efni á því, að vera
sjálfstæð. — Ég held, að íslend-
ingar ættu ekki að hlaupast frá
sögu sinni og sjálfstæðisbaráttu
heillar aldar. Ég held, að íslend-
ingar ættu fremur að taka sér
í munn orð Árna Auðunarsonar,
er hann mælti í Örlygsstaða-
SMIPAUTCERO
i;ir.i\4La3
fer hraffferff til Akureyrar miff-
vikudaginn 20. þ. m. kl. 6 síff-
degis.
Flutningi óskast skilaff og
pantaffir farsefflar sóttir í síff-
asta lagi á morgun.
bardaga, og segja: „Ek ætla mér
eigi á braut.“
E, S.