Tíminn - 11.04.1940, Side 1

Tíminn - 11.04.1940, Side 1
RITSTJÓRAR: GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.) ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. FORMADVR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON. ÚTGEFANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. RITSTJÓRNARSKRIFSTOFVR: EDDUHÚSI, Llndargötu 1 D. SÍMAR: 4373 Og 2353. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AVGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D. Síml 2323. PRENT8MIÐJAN EDDA hí. Sfmar SS48 og 8720. 24. árg. Reykjavík, fimmtudagmn 11. apríl 1940 40. blað Alþingi felnr ríkisstjérumiii medferð kon nn $>svsil<lsins íslenzka ríkið tekur utanríkismálin og landhelgis- gæzluna að fullu í sínar hendur Hreystileg vörn Norðmanna Bretum virðíst veíta stórum betur í víð- ureígnínuí á sjónum Sameinað Alþingi sam- þykkti í fyrrinótt þings- ályktunartillögur um æðsta vald í málefnum ríkisins og um meðferð utanríkismála og landhelgisgæslu. Báðar þessar tillögur voru fluttar af ríkisstjórninni í tilefni af þeim breytingum, er innrás Þjóðverja í Danmörku hefir gert á þessum málum. Tillögur þessar eru svohljóð- andi: Með því að ástand það, sem nú hefir skapazt, hefir gert kon- ungi íslands ókleift að fara með vald það, sem honum er fengið f stjórnarskránni, lýsir Alþingi yfir því, að það felur ráðuneyti íslands að svo stöddu meðferð þessa valds. Vegna þess ástands, er nú hefir skapazt, getur Danmörk ekki rækt umboð til meðferðar utanríkismála íslands, sam- kvæmt 7. grein dansk-íslenzkra sambandslaga né landhelgis- gæzlu samkvæmt 8. grein téðra laga, og lýsir Alþingi þess vegna yfir því, að ísland tekur að svo stöddu meðferð mála þessara að öllu leyti í sínar hendur. Báðar þessar tillögur voru samþykktar að viðhöfðu nafna- kalli með 46 atkv., en þrír þing- menn voru fjarverandi: Gísli Guðmundsson og Pétur Hall- dórsson, sem eru veikir, og Finn- ur Jónsson, sem er erlendis. Strax og það var kunnugt í fyrramorgun, að þýzkur her var að leggja undir sig Danmörku, var ákveðið að fresta fundum Alþingis. Hélt ríkisstjórnin fund fyrir hádegi og ræddi um það nýja ástand, sem þessir atburðir höfðu skapað. Stóðu síðan stöðugt fundir. Kl. 2 um daginn var haldinn sameiginlegur fundur þeirra þingmanna, sem styðja stjórn- ina. Einnig mætti þar Héðinn Valdimarsson. Kl. 4 hófst aftur ráðherrafundur og mættu á honum nokkrir sérfróðir trún- aðarmenn. Kl. 6!/2 var aftur haldinn fundur sömu þing- manna og mætt höfðu á fund- inum kl. 2. Kl. 8y2 var haldinn frmdur I utanríkismálanefnd. Kl. 10 var haldinn sameigin- legur fundur allra þingmanna, nema fulltrúa kommúnista, og miðstj órnarmanna stjórnar- flokkanna. Stóð þessi fundur til kl. 1 eftir miðnætti. Á fund- um þessum var fullkomið sam- komulag um framangreindar tillögur. Kl. rúmlega tvö um nóttina hófst fundur í sameinuðu þingi. Þegar forseti sameinaðs þings hafði sett fundinn, kvaddi for- sætisráðherra sér hljóðs og sagði: Vegna þess ástands, sem skapazt hefir í Danmörku og ríkir þar, hefir rikisstjórnin á- kveðið, eftir að hafa haft ítar- lega ráðagerð með utanríkis- málanefnd og þingmönnum þeim, sem styðja ríkisstjórn- ina, að bera fram tvær tillögur, sem útbýtt hefir verið varð- andi æðsta vald í málefnum ríkisins og meðferð utanríkis- mála og landhelgisgæzlu. Telur hún óhjákvæmilega nauðsyn, að Alþingi samþykki þessar tillög- ur án tafar. Þegar forsætisráðherra hafði lokið máli sínu kvaddi Einar Olgeirsson sér hljóðs. Kvartaði hann yfir því, að kommúnistar hefðu ekki verið hafðir með í ráðum, og bað um að atkvæða- greiðslunni yrði frestað til morguns. Forseti taldi það ekki fært, en veitti 10 mínútna fundarhlé. Þegar fundur hófst aftur, lýsti Einar Olgeirsson yfir því, að kommúnistar myndu greiða at- kvæði með báðum tillögunum. Voru þær síðan samþykktar að viðhöfðu nafnakalli, með 46 samhljóða atkvæðum. Ávarp forsætís- ráðherra Forsætisráðherra flutti í há- degistíma útvarpsins í gær eftirfarandi ávarp til þjóðar- innar: íslendingar! Það var haldinn fundur í sam- einuðu Alþingi milli kl. 2 og 3 í nótt. Á þessum fundi voru sam- þykktar tvær mjög mikilsvarð- andi þingsályktunartillögur, sem ríkisstjórnin bar fram. Tildrög þess, að þessar þingsályktanir, sem ég kem síðar að og les þá upp, voru bornar fram og sam- þykktar, eru þeir atburðir, sem gerzt hafa í Danmörku síðasta sólarhring, og það ástand, sem þar hefir skapazt. Eins og ykkur, tilheyrendur mínir, er kunnugt, er svo fyrir mælt í íslenzk-dönsku sam- bandslögunum, að Danmörk fari með utanríkismál íslands í um- boði þess, með landhelgisgæzl- una við ísland að nokkru leyti og ennfremur hafa bæði löndin einn og sama konung. Allt eru þetta mikilvægir þættir i ís- lenzku stjórnskipunarkerfi. En tilheyrendum mínum er kunnugt af fréttum þeim, sem íslenzka ríkisútvarpið hefir birt frá Danmörku, hvers konar á- Um þriggja ára skeið hefir sam- vinnuútgerðarfélag verið starfandi í Hólmavík. Var það stofnað vorið 1937. í félagið gengu nær allir sjómenn og verkamenn í Hólmavík, og nokkrir aðr- ir. Atvinnuþörf í þorpinu hleypti fé- laginu af stokkunum. Ábyrgð félags- manna á starfsfé þess er bundin við 500 króna upphæð. Stofnhöfuðstóll var enginn, nema 15 króna inngöngueyrir hvers félaga. Félagið fékk þegar í upp- hafi lán til að greiða stofnkostnað og reksturskostnað, og gengu allmargir fé- lagsmenn í sjálfsskuldarábyrgð vegna lánsfjársins. Félagið festi kaup á göml- um báti, er nefndur var Gulltoppur, og var hann gerður út á sfldveiðar tvær síldveiðivertíðir. Aflaði hann afburða- vel og gat félagið efnt allar skuldbind- ingar sínar, bæði vegna bátskaupanna og útgerðarinnar, en lítilsháttar lausa- skuldir söfnuðust. Eftir þessar tvær vertíðir var báturinn seldur og hafði hann þó reynzt mesta happafleyta. Ný- legur bátur, Gloría, sem verið hafði hér við land um skeið, var keyptur frá Danmörku. Er það gott og glæsilegt skip, búið nýjum tækjum. Báturinn var gerður út á samvinnugrundvelli á síld- veiðar síðastliðið sumar, en varð dýrari rekstri en hinn eldri, og aflinn minni. Varð því útborgaður aflahlutur áhafn- ar minni en verið hafði áður, og nokkru minni, en ef hún hefði verið skráð á bátinn gegn sama hundraðs- hluta og fyrr. Af hlut skipverja var 15 af hundraði látið renna upp í kaupverð stand er þar í landi, og er því ekki ástæða til að tala um það nánar. En vegna þessa ástands og þeirra afleiðinga, sem það kann að valda, verður ekki séð, að konungi sé kleift að svo komnu að fara hér með það vald, sem ákveðið er í stjórnar- skrá íslands, né að Danmörk geti farið með utanríkismál okkar íslendinga og landhelgis- gæzlu. En þegar svo er komið, verður Alþingi íslendinga, sam- kvæmt skyldu sinni og þeim rétti, sem einskonar neyðarvörn skapar, að gera ráðstafanir til þess, að áðurnefndar greinar stjórnskipunarkerfisins verði starfræktar — því að öðrum kosti er stjórnskipunarkerfið í heild ekki starfhæft. Ríkisstjórnin tók þetta mál til íhugunar þegar í gærmorg- un, er fyrstu fréttirnar bárust frá Danmörku, og eftir að hafa kynnt sér viðhorfið svo sem unnt var í gærdag og rætt mál- lð ítarlega í utanríkismála- nefnd við stuðningsmenn ríkis- stjórnarinnar á Alþingi, og trúnaðarmenn, aðallega í flokksstjórnum, var það yfirlýst sameiginlegt álit allra þessara aðila, að óhjákvæmilegt væri að ríkisstjórnin bæri fram þær til- lögur, sem þannig hljóða: (Tillögurnar eru birtar á öðr- um stað). Af hálfu ríkisstjórnarinnar var um tillögur þessar örstutt framsaga og engar frekari um- ræður af hendi þeirra þing- manna, er tillögurnar voru bornar fram í samráði við, sam- kvæmt því, er ég hefi áður greint, — og að öðru leyti urðu um tillögurnar mjög litlar um- ræður. Þær voru síðan að við- höfðu nafnakalli samþykktar af öllum viðstöddum alþingis- mönnum, 46 að tölu, — en þrír voru fjarverandi, — 2 vegna veikinda, en einn þingmaður er staddur erlendis. Frh. á 4. s. bátsins, því að ákveðið hafði verið, að þeir greiddu þannig beint hluta af því. Hefir því myndazt talsverð eign hjá þessum mönmun í félaginu. Yfirmenn bátanna, sem félagið hefir átt, hafa alltaf verið þeir sömu, en þá varð að fá utan þorpsins. Hafa þeir reynzt ágætir sjómenn og aflamenn. Bátur félagsins hefir enn ekki öðlazt aðstöðu til þess að leggja afla sinn á land í Hólmavík og hafa því heyrzt raddir um að út- gerðin hafi eigi orðið til þeirrar at- vinnuaukningar í þorpinu, sem vænta hefði mátt. En allmiklar fjárfúlgur hafa þó runnið í þorpið frá bátum fé- lagsins. Nú hefir Gloría verið lelgð til þorskveiða við Suðurland og er áhöfn hennar úr hópi félagsmanna. Stjóm félagsins skipa, auk skipstjórans, Páls Þorlákssonar, Hjálmar Halldórsson og Guðbjörn Bjarnason. Endurskoðendur eru Jón Kristgeirsson og Björn Björns- son. I t t Skýrslur héraðslækna um skólaskoð- anir sýna að alls hafa verið skoðuð 12961 skólabörn árið 1937. Vantar þó greinargerð um þenna þátt heilbrigðis- eftirlitsins úr tveim læknishéruðum. Af börnum þessum reyndust 172 berkla- veik, þar af 4 sýkilberar. Lúsug voru talin vera 1524 börn og 50 höfðu kláða. Hefir því meira en tíunda hvert skóla- barn á landinu verið lúsugt við læknis- skoðun, og sennilega hefir verið tals- vert meira um lús heldur en ljóst verð- ur af þessum skýrslum, því sumstaðar Eins og sakir standa er mjög erfitt að gera sér fulla grein fyrir þvi, sem gerzt hefir í Nor- egi seinustu dagana, ellegar við strendur landsins. Það, sem telja má þó nokkurnveginn víst og ekki hefir áður verið sagt frá hér í blaðinu, er í stuttu máli þetta: Þýzkt herlið náði Oslo á vald sitt síðdegis á þriðjudaginn. Þjóðverjar höfðu þá náð á vald sitt Bergen, Þrándheimi, Sta- vanger, Kristiansand, Narvik, Mandal, Arendal og sennilega fleiri hafnarbæjum, er minni þýðingu hafa. Fyrsta verk Þjóð- verja var að loka innsiglingum til þessara staða með tundur- duflum. Jafnframt lögðu þeir tundurduflum yfir Skagerak til að hindra það, að brezki flotinn kæmist þangað inn og gæti stöðvað áframhaldandi her- flutninga Þjóðverja til Noregs. Næsta verk Þjóðverja var að setja á laggirnar í Oslo norska leppstjórn og er nazistaforing- inn Quisling forsætis- og utan- ríkisráðherra hennar. Quisling hefir fram til þessa verið nær gersamlega fylgislaus í Noregi og flokkur hans aldrei getað unnið þingsæti. Norska stjórnin fór strax frá Oslo aðfaranótt þriðjudagsins og settist þá að í Hamri, sem er inni í landi, 100 km. frá Oslo. Gaf stjórnin þegar út þá yfir- lýsingu, að hún hefði neitað að fallast á þá kröfu Þjóðverja, að Noregur biði um vernd þeirra, og væri Noregur nú í stríði við Þýzkaland. í samræmi við þetta fyrirskipaði stjórnin almenna hervæðingu og hvatti herinn til að sýna Þjóðverjum ítrustu mót- stöðu. Aðfaranótt miðvikudagsins hélt norska þingið fund í smá- bæ skammt frá Hamri. Var framangreind stefna stjórnar- innar samþykkt einróma og á- kveðið að halda áfram styrjöld- inni við Þjóðverja. í gær byrjaði þýzki herinn að sækja inn í landið frá þeim hafnarbæjum, er hann hafði má gera ráð fyrir slælegri skoðun. í tveim læknishéruðum hefir helmingur skólabarna eða meir reynzt lúsug og í nokkrum við þriðjungur barnanna og allt að því helmingur. Börn með skemmdar tennur eru alls talin 9384, eða sem næst þrír fjórðu þeirra barna sem skoðuð voru. í sumum læknisdæm- um er því nær hvert barn með skemmdar tennur, til að mynda 121 af 133, er skoðuð voru á Seyðisfirði 587 af 622 skoðuðum í Hafnarfirði, 229 af 235 í Neskaupstað og 572 af 608 í Vestmannaeyjum. í aðeins örfáum læknishéruðum eru fleiri böm, sem hafa heilar tennur en skemmdar. Eru það Öxarfjarðarhérað, Höfðahverfis- umdæmi, Sauðárkróksumdæmi og Ög- urlæknishérað. • t t Menntaskólinn á Akureyri hélt minn- ingarhátíð dagana 20. og 21. marzmán- aðar síðastliðins til að minnast aldar- afmælis hins fyrsta forstöðumanns Möðruvallaskóla, Jóns A. Hjaltalín. En þar gegndi hann skólastjórn frá því haustið 1880 til dauðadags 1908. Minn- ingarhátíðin hófst með samkomu í samkomuhúsinu á Akureyri miðviku- dagskvöldið 20. marz, þar sem Sigurð- ur Guðmundsson skólameistari, Ingi- mar Eydal ritstjóri og Steindór Stein- dórsson kennari fluttu ræður um Möðruvallaskóla og Hjaltalín, en úr Reykjavík töluðu alþingismennimir Jónas Jónsson og Páll Hermannsson. (Framh. á 4. síðuj lagt undir sig, aðallega frá Oslo. Mætti hann engri mótspyrnu fyrst í stað og mun hann hafa náð Hamri síðdegis í gær. Var norska stjórnin þá farin þaðan. Hinsvegar hefir þýzki herinn mætt harðri mótspyrnu norska hersins við Elverum og Kongs- vinger, sem eru nær landmær- um Svíþjóðar. Hafa þar verið háðar blóðugar orustur og héldu Norðmenn velli, þegar seinast fréttist. Er vörn þeirra sögð hin aðdáunarverðasta, þar sem þeir eru yfirleitt ver vopnum búnir. Sókn Þjóðverja frá öðrum borgum en Oslo virðist lítið miða áfram, sökum öflugrar mót- spyrnu norska hersins. Hervæðingin virðist alls staðar ganga að óskum á þeim stöðum, sem Þjóðverjar hafa ekki á valdi sínu. Virðist ríkjandi mikill sam- hugur hjá norsku þjóðinni um að falla heldur með sæmd en að gefast upp fyrir innrásarhern- um að óreyndu. Treysta Norð- menn líka á hjálp Bandamanna. Hákon Noregskonungur fór stráx frá Oslo með stjórninni og hefir fylgzt með henni síðan. Þjóðverjar sendu fulltrúa á fund hans í gær og óskuðu eftir að hann viðurkenndi leppstjórn- ina i Oslo. Konungur veitti á- kveðið afsvar. Þjóðverjar viðurkenna, að strandvirki Norðmanna hafi eyðilagt tvö beitiskip: „Blucher", sem var 10 þús. smál. og nýsmíð- að, og „Karlsruhe“, sem var 6 þús. smál. Þá er talið fullvíst, að norska herskipið „Olav Tryggvason", sem er 1600 smál., hafi í sjóorustu sökkt þýzka herskipinu „Emden“, sem var um 6 þús. smál. og mörgum (Framh. á 4. síðu.) HERTAKA DANMERKUR Atburðirnir, sem gerzt hafa í Danmörku seinustu dagana, virðast í aðalatriðum þessir: Síðari hluta mánudagsins var Dönum orðið ljóst, að alvarlegir atburðir voru í aðsigi. Voru borgarbúar víða gripnir mikilli skelfingu og var hvarvetna um kvöldið mikill mannfjöldi á veitingastöðum og fjölförnustu götum. Ákvað stjórnin, að út- varpa fréttum alla nóttina til að reyna að sefa fólkið. Aðfaranótt þriðjudagsins fór þýzkur sendiboði á fund dönsku stjórnarinnar og tilkynnti henni, að þýzka ríkisstjórnin hefði á- kveðið að taka Danmörku og Noreg undir vernd sína. Öll mót- staða væri þýðingarlaus og myndi verða bæld niður með harðri hendi. Dönsku stjórninni væri því hyggilegast að þiggja vernd Þjóðverja. Um likt leyti byrjuðu þýzkar hersveitir að fara yfir dönsku landamærin og þýzkur her var settur á land í Norður-Jótlandi. Danska stjórnin þóttist sjá, að öll mótstaða væri þýðingar- laus og féllst því á, að þiggja vernd Þjóðverja. Fyrirskipaði hún því danska hernum að sýna enga mótstöðu. í ávarpi frá stjórninni og konungi, sem les- ið var upp í útvarpið síðar um daginn, var sagt, að Danir höfðu orðið að ganga nauðugir að kostum Þjóðverja. Um kl. 8 um morguninn byrj- uðu þýzkar hersveitir að ganga á land í Kaupmannahöfn. Var borgin þegar látin af hendi við þær. Um líkt leyti gekk þýzkur her á land í hafnarbæjunum við Litlabelti og Stórabelti. Þýzku hersveitirnar dreifðust síðan með járnbrautum og öðr- um farartækjum um allt landið (Framh. á 4. síðu.) Á víðavangi Þótt merkilegt kunni að virð- ast, hefir hér orðið vart minni samúðar í garð Dana, sem hafa misst mikilvægustu þjóðrétt- indi sín, en Finnar hafa notið hér, sökum árásar Rússa á þá. Veldur þar vafalaust nokkru hversu óvænt og snögglega þess- ir atburðir gerðust í Danmörku og að ekki kom þar til veru- legra vopnaviðskipta. Dönsku ijóðinni gafst þess ekki kostur að votta frelsi sínu neinar mannfórnir og frelsistap henn- ar vekur því minni athygli heimsins. En engum getur þó dulizt, að danska þjóðin hefir alveg ómaklega verið svipt rétti sínum og að hún muni á næst- unni þola miklar raunir, vegna þess, að hún nýtur ekki frelsis. Hinir nýju húsbændur munu láta hana kenna meira á valdi sínu, þegar fram líða stundir, og Bandamenn munu láta hana sæta svipuðum kostum í við- skíptamálum og Þjóðverja. * * * Ef til vill gætir samúðarinnar við Dani minna sökum þess, að menn telja það hlutleysisbrot gagnvart Þjóðverjum. En slíkt er vitanlega fyllsti misskiln- ingur. Hlutleysið leggur ekki nein bönd á skoðanir manna. Það gerir ekki kröfu til annars en hernaðarlegs hlutleysis. Þess vegna var okkur og öðrum hlut- lausum þjóðum fullkomlega leyfilegt að fordæma árás Rússa á Finna og sýna finnsku þjóð- inni samúð með samskota- starfsemi. Alveg á sama hátt er okkur leyfilegt að gagnrýna Þjóðverja fyrir atferli þeirra í Danmörku og sýna dönsku þjóðinni samúð. Það gilda vit- anlega sömu hlutleysisreglur um viðhorfið til Rússa og Þjóð- verja eða hverrar annarrar þjóðar, sem á hlut að máli. Ef einhver þjóð fremur verknað, sem er vítaverður að okkar dómi, þá ber að dæma hana fyrir hann, án tillits til þess á- lits, sem við að öðru leyti kunn- um að hafa á henni. Ef hlut- leysið þýddi það, að hlutlausu þjóðirnar mættu ekki leggja dóm sinn á atburðina, væri það i raun og veru afsal skoðana- frelsisins, sem er hyrningar- steinn alls frelsis. Ef hlutlausu þjóðirnar viðurkenndu þessa reglu, afsöluðu þær raunveru- lega frelsinu sjálfviljuglega. Slíkt getur ekki gert nein sú þjóð, sem vill vera frjáls. Þess vegna hafa hlutlausu þjóðirn- ar aldrei viðurkennt það, að hlutleysið ætti að ná til skoð- anafrelsisins. Hitt er náttúrlega sjálfsagt, að gæta hóflegs orð- bragðs um erlenda atburði. * * * í ýmsum blöðum hlutlausra landa hefir undanfarið verið vikið að þeirri hættu, sem væri fólgin i því, að hlutlausu þjóð- irnar afsöluðu sér sjálfviljug- lega skoðanafrelsinu og hættu að gagnrýna það, sem væri þeim á móti skapi og gæti orðið frelsi þeirra hættulegt. Slík framkoma væri til einskis betur fallin en að lama smásaman kjark þjóð- arinnar og gera hana andvara- lausa og viðbúnaðarlausa um að varast hætturnar. Það væri uppgjöf hinnar andlegu og sið- ferðislegu mótstöðu, sem til langframa reynist þó jafnan sigursælli en líkamlegt ofbeldi. * * * Hin danska þjóð hefir löng- um hlotið þann vitnisburð, að hún væri meðal menntuðustu og þrekmestu þjóða heimsins. í náinni framtíð mun hún ganga í gegnum eldraun, sem allir íslendingar vænta að staðfesti þessa skoðun. íslendingar trúa því, að hin erlenda stjórn í Danmörku fái ekki á neinn hátt bugað andlegt þrek og frelsis- vilja dönsku þjóðarinnar. Þeir óska þess af heilum huga, að þótt óviðráðanleg atvik skilji leiðirnar um stund, þá eigi (Framh. á 4. síðuj A. KROSSGÖTTJM Samvinnuútgerðarfélagið í Hólmavík. — Heilbrigðisástand meðal skólabarna. Minningarhátíð Menntaskólans á Akureyri um Jón A. Hjaltalín.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.