Tíminn - 23.05.1940, Qupperneq 2

Tíminn - 23.05.1940, Qupperneq 2
218 ‘gímirot Fitnmtudaginn 23. ntaí Furðuleg framkoma Á síðasta Alþingi var kosin með samkomulagi stjórnarflokk- anna, milliþinganefnd til þess að athuga gj aldeyrismálin. í þeirri nefnd á Björn Ólafsson stórkaupmaður sæti, ásamt við- skiptamálaráðherra og Kjartani Ólafssyni í Hafnarfirði. Milliþinganefndin fær ekki ráðrúm til þess að byrja störf sín áður en fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í nefndinni hefur að rita órökstuddar æsingagreinar um málið. Nýja nefndin er ekki heldur byrjuð, — ekki einu sinni búið að staðfesta lögin um skip- un hennar, áður en þessi maður, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í milliþinganefndinni segir að lausn sú er þjóðstjórnarflokk- arnir komu sér saman um, sé einskisvirði. Þá er af hálfu B. Ó. sunginn gamli söngurinn um innflutn- ingshöftin, um það að hlut- drægni hafi verið beitt, að ekki hafi alltaf verið fyrir hendi nægur gjaldeyrir og að gefin hafi verið út innflutningsleyfi, þótt ekki væri tryggt um greiðslu. Um hlutdrægnisáburðinn er ekkert að segja annað en það, að hér er gömul tugga, sem aldrei hefir verið rökstudd. Hitt er dálítið nýstárlegt aftur á móti, af kaupmönnum, að fár- ast yfir of miklum innflutningi. Þó tekur út yfir, þegar það er at- hugað, að sá, sem um þetta skrifar, Björn Ólafsson, hefir átt sæti í gjaldeyris- og innflutn- ingsnefnd undanfarin ár og tal- ið sig þar fulltrúa kaupmanna, þótt hann væri fulltrúi ríkis- stjórnarinnar. Og hann hefir allan þann tíma, er hann hefir í nefndinni starfað barizt með hnúum og hnefum fyrir sem mestum inn- flutningi í öllum greinum. Enginn einn maður á íslandi á meir þátt í því en einmitt hann, að innflutningur undan- farinna ára hefir ekki verið skorinn enn meir niður en gert hefir verið. Það hefir ætíð verið tekið nokkurt tillit til þess sjón- armiðs, sem hann hefir verið fulltrúi fyrir. Svo kemur þessi sami maður og deilir á viðskipta- málaráðherra og aðra, sem af alvöru hafa unnið að þessum málum, frá sjónarmiði heildar- innar, en stöðugt átt við að etja sérhagsmunasjónarmið hans og ádeilur á þá fyrir það að hér hafi ekki verið gengið nógu langt. Batnandi manni er bezt að lifa. Það er ánægjulegt að þessi maður hefir nú fengið nýjan og betri skilning á þessum málum og telur nú höfuðnauðsyn á að flytja ekki meira inn en hægt er að greiða. Óneitanlega hefði verið viðkunanlegra að þessari játningu hans hefði ekki fylgt skætingur um aðra. Honum finnst þetta mikil uppfynding, en hætt er við, að kveðið hefði við annan tón hjá stéttarbræðr- um hans undanfarin ár, ef aldrei hefði verið gefið út inn- flutningsleyfi, nema tryggt væri um yfirfærslu fyrirfram. í augum allra þeirra, sem til þekkja gerir B. Ó. sig hlægilegan með skrifum sínum um það, sem gert hefir verið í þessum efnum. B. Ó. þykist bera mikinn kvíð- boga fyrir því, að nú muni verða gefin út of mikil innflutnings- leyfi. Það er ánægjulegt, en nýstárslegt, að sjá fulltrúa kaupmanna tala þannig, og er þess að vænta, að það létti eigi lítið um hóflegan innflutning, sé þetta nú orðið þeirra aðal- áhyggjuefni. Nú er viðhorfið þannig, að auðveldara ætti að vera að koma við þeirri reglu en áður, að gefa út þau innflutningsleyfi ein, sem fyrirsjáanlega er hægt að inn- leysa, og er miðað að því af fullri festu að koma því við. Hinsvegar þýðir það vitanlega, að menn geta ekki búist við ríf- legum innflutningsleyfum eða innflutningsleyfum löngu fyrir- fram, eins og kaupsýslumenn hafa heimtað. En þá er sá munur nú, að vís flmmtndaglnii 23. mai 1940 Hirðisbréf forseta Fiskifélags íslands Eftir Krístján Bergsson í síðasta tölublaði Ægis birti ( hinn nýkosni forseti ávarp til íslenzku þjóðarinnar í tilefni af stjórnarskiptum þeim, er urðu í Fiskifélaginu þá rétt áður. Ég verð að viðurkenna það, að ég beið með nokkurri óþreyju eftir ávarpi þessu, því að ég bjóst við að það myndi marka allgreinilega þá stefnu, sem störfum félagsins er ætlað að beinast að í náinni framtíð, og þá auðvitað á öðrum og breið- ari sviðum en félagið hefir áð- ur starfað að og lagt undirstöð- una að, en hér varð ég fyrir allmiklum vonbrigðum, því auk þess að ávarp þetta er mjög ó- ljóst og markar hvergi nýjar leiðir, þá gætir víða mikillar vanþekkingar á störfum félags- ins og grundvallarbyggingu þess. Forsetinn byrjar á því að þakka Fiskiþingi fyrir það traust, sem það hafi sýnt sér með því að kjósa sig í jafn þýð- ingarmikið starf, og gætir hér strax allmikils misskilnings, sem ég tel mér skylt að leið- rétta, þar sem ég hefi hvergi orðið þess var, að breyting sú, sem gerð var á stjórn félagsins hafi verið rædd opinberlega, svo að fiskimenn og útgerðarmenn um allt landið geti gert sér mál- ið Ijóst, ekki eingöngu þeir, sem eru meðlimir í einhverri deild Fiskifélagsins, heldur og allir þeir, sem á einhvern hátt eiga afkomu sína og atvinnu undir framtíðarárangri fiskiveiðanna og þeirra atvinnugreina, sem standa í sambandi við þær. Fiskifélagið á ekki og má ekki marka sér svo þröngan bás, að það sé aðeins félagsskapra fá- mennra fiskifélagsdeilda og þeirra manna, sem þeim ráða, heldur er það landsfélag, sem á að vinna að alhliða vexti og viðgangi útvegsmálanna, og á að marka víðari og breiðari starfs- grundvöll, en búast má við að fámennar og afskekktar deildiT geri, enda snúast störf þeirra vanalega meira um staðlægu málin og þarfir hvers héraðs um sig, og eru því stjórn félagsins jafnan mikill leiðarvísir — og því meiri, sem þeir hafa sjálfir minni þekkingu á alhliða þörf- um og erfiðleikum útgerðar- innar. Orsökin og aðdragandinn að stjórnarskiptunum í Fiskifélag- inu var sú, að nokkur hluti Sj álfstæðisflokksins hafði hafið áróður og undirbúning um það áður en Fiskiþing kom saman, að gera Sigurð Kristjánsson al- þingismann að forseta félagsins, því að flokkurinn hefir í langan er liðsemd B. Ó. til þess að skýra fyrir kaupmönnum nauðsyn þess, sem gert er. B. Ó. þarf ekki að bera kvíðboga fyrir að inn- flutningsleyfi verði gefin fyrir öðru en því, sem bráðnauðsyn- legt er, og ennfremur er hægt að upplýsa það, að samvinna bank- anna og gjaldeyrisnefndar um þessi mál er nú nánari en nokkru sinni fyr. Þvættingur B. Ó. er væntan- leg vanskil í Bandaríkjunum og dylgjur um hverjum þau verði að kenna, er blátt áfram. við- bjóðslegur. Hann veit það vel, að vestra hafa ekki verið keyptar nema brýnar nauðsynjar og langmestur hluti þeirra eru frí- listavörur. Já, hverjum er það að kenna, ef við ekki getum viðstöðulaust borgað allt, sem við þurfum frá Ameríku — eftir að aðrir inn- kaupastaðir hafa lokast? Auð- vitað viðskiptamálaráðherra. Hann á að búa til dollara, ef ekki er hægt að selja afurðir fyrir dollara. Því nauðsynarnar verða að fást, ef ráðherrann á ekki að lenda í ónáð, þeirra hluta vegna. Hinsvegar verður nú að hrýggja b. Ó. með því, að senni- lega er hægt ar komast hjá van- skilum vestra, ef kaupmenn ekki hrúga pöntunum á frílistavör- um vestur svo að ekki verði við ráðið, og með því binda mjög mikið af innflutningsleyfum því skilyrði, að vörur séu ekki keypt- ar í Bandaríkjunum.- Hafa nú þegar verið gerðar margvíslegar ráðstafanir til þess að forðast vanskil í Bandaríkj- unum. En sennilega verður B. Ó. þá manna fyrstur til þess að skammast út af því, að út séu gefin innflutningsleyfi, sem ekki sé hægt að nota, menn þvingaðir til þess að kaupa annarsstaðar en þar sem hentugt er, nauðsyn- legustu vörur vanti o. s. frv. Hræsni þessa manns í skrifum sínum, er satt að segja alveg furðuleg og blekkingarnar eru fullkomlega ósæmilegar, ekki sízt nú á tímum eins og þessum, þegar allra krafta er þörf til þess að sjá hagsmunum þjóðarinnar borgið og öllu öðru er frekar þörf en lævislegum tilraunum til þess að gera tortryggilegar nauðsynlegar ráðstafnir. tíma verið í vandræðum með að finna handa honum lífvænlega stöðu, en eftir að Mosaskeggs- greinin margumtalaða kom út, þótti ekki heppilegt að tefla honum fram í sóknarlið sveita- kjördæmanna, eða annarra starfa í þágu landbúnaðarins, en þar sem Sigurður var bú- fræðingur að menntun og barnakennari að æfistarfi, þótti hann sérstaklega vel fallinn til þess að taka að sér forystu fiskimálanna. Þrátt fyrir allharðan áróður var þó ekki hægt að fá nægilegt fylgi fyrir Sigurð innan Fiski- þingsins og var þá leitað til ýmsra annara, sem ýmist feng- ust ekki til þess að taka starfið að sér, eins og það var í pottinn búið, eða þá að ekki fékkst sam- komulag um þá, þar sem ekkert atkvæði mátti fara forgörðum. í þessari togstreitu kom upp að lokum hlutur núverandi forseta og fékkst að lokum samkomu- lag um hann af hinum óánægðu og stuðningsmönnum Sigurðar, og má því ennþá frekar telja hann sem nokkurskonar happa- drættismiða, sem við allir vel- unnarar útgerðarinnar vonumst eftir að geti fært félaginu stóra vinninginn. En traustið á hann eftir að vinna sér sjálfur, og vonandi tekst honum það, en þá má hann að nokkru leyti þakka það stuðningsmönnum mínum, sem veittu aðstoð sina til að hann fékk þá meðstjórnendur með sér, sem bezt verður á kos- ið og hafa almennt traust og yfirgripsmikla þekkingu á þörf- um og erfiðleikum sjávarút- vegsmanna, en þurfti ekki að sitja uppi með þá meðstjórn- endur, sem stuðningsmenn hans höfðu ætlað honum. Ég er að eðlisfari mjög bjart- sýnn og hefi ótakmarkaða trú á framtíð og möguleikum ís- lenzkra fiskveiða, en á hverju forsetinn byggir þá skoðun sína, að við stöndum nú á enn þýð- ingarmeiri tímamótum en 1911, þegar Fiskifélagið var stofnað, og við vorum að taka upp véla- aflið í þjónustu fiskveiðanna á- samt öðrum vexti togaraútgerð- arinnar, síldveiðanna o. s. frv. get ég ekki séð, eða býst hann við að fiskframleiðsla okkar meira en fjórfaldist á næstu 24 árum eins og hún gerði á árun- um 1913—37. Ég er forsetanum alveg sam- mála um, að hin félagslegu samtök sjávarútvegsins þurfi að vera sem öflugust, en nú verður hann að fara varlega og leita ekki eftir félagslegum samtök- um við hina yngri uppvaxandi menn veiðistöðvanna, því að það þola stuðningsmenn hans ekki, og skal hann nú láta sér mitt víti að varnaði verða, ef hann ætlar ekki að hrinda frá sér hin- um íhaldssömu stuðningsmönn- um sínum, þvi að þeir óttuðust mjög, að ég ætlaði að verða of Tóttækur á þessu sviði, einkum var sá kaflinn í skýrslu minni 1939, þar sem ég ræddi um fundarhald nemanda á mótor- námskeiðunum hér I Reykjavík, sem raskaði mjög sálarró þeirra, en þar sem Fiskiþings- tíðindin eru í fáTra höndum, tek ég þennan kafla úr þeim hér upp orðréttan, en hann er þannig: „Af þeirri kynningu, sem ég fékk af þessum fundum nem- andanna, þegar ég mætti þar, fann ég, að fiskideildirnar úti um landið höfðu misst mikið, að hafa ekki þessa menn innan vébanda sinna. Það var auð- fundið, að margir nemandanna höfðu mikinn félagsmálalegan áhuga, sem með þroskun og undir handleiðslu eldri manna gæfu góðar vonir um meira fjör og líf í félagsmálum og um- bótamálum útgerðarinnar, þeg- ar þeir kæmu heim í verstöðv- aTnar aftur. Þessi áhugi ungu mannanna og kynnin við þá færðu mér heim sanninn um það, að jarðvegurinn er til, og hægt er að halda uppi fjörugra og þróttmeira lifi í fiskifélags- deildunum en nú er, ef leiðandi menn þeirra gerðu meira að því en gert er, að veita nýju blóði í þær, og leita eftir nánara sam- starfi við yngri kynslóðina, sem auðvitað leitar ekki upptöku 1 deildirnar, nema eitthvað sé gert til þess að laða hana þang- að, og að henni sé gefið tæki- færi til að reyna krafta sína, en ekki höfð til uppfyllingar.“ Óafsakanlegt þekkingarleysi er það hjá forsetanum, að „Fiskifélagið sé eina félagið, sem hefir innan vébanda sinna bæði fiskimanninn og útgerðar- manninn“. Þekkir hann þá ekk- ert til útgerðarsamvinnufélag- anna eða Slysavarnafélagsins, svo eitthvað sé nefnt, og öll hafa þessi félög einnig menn innan sinna vébanda, sem hvorki eru fiskimenn né útgerðarmenn, og vegna hlédrægni þeirra, troða sér oft fram í mestu virðingar- stöðurnar, og einmitt á atkvæð- um þessara manna, hefir núver- andi forseti flotið upp i það sæti, sem hann nú skipaT. Þá endar forseti hirðisbréf sitt með því að honum sé kunnugt „að kvartanir hafi komið frá ýmsum deildum, þess efnis að þær fengju ekki nógu mikla stoð í starfi sínu frá stjórn fé- lagsins.“ Þessi ummæli forsetans dreg ég mjög í efa, því óvanalegt er að mikil fundahöld hafi verið í deildunum, síðan hann tók við starfi sínu, því vanalega er ekki mikið um slíkt að ræða meðan vertíð stendur yfir, en engar slíkar kvartanir höfðu borizt til stjórnarinnar um það atriði til þess tíma, og ekki kom það fram Hernám Oslóborgar Eftirfarandi grein, er ein af fyrstu blaðagreinum, sem birt- ust í heimsblöðunum um þenn- an sorglega atburð, og er rituð af amerískum blaðamanni, sem var staddur í Osló og var sjón- arvottur að einu hörmulegasta svikræði, sem sagan greinir frá, að framið hafi verið á nokkurri þjóð. Fyrirskipun, sem eignuð var dr. Koht utanríkismálaráð- herra NoTðmanna, tjáðl flota landsins að veita herskipum á- rásarþjóðar enga virka mótstöðu á siglingu upp eftir Oslófirði, segulmögnuð tundurdufl, sem lögð höfðu verið í firðinum, voru gerð óvirk o. s. frv. — Þá segir höfundur frá „sigurgöngu“ 1500 þýzkra hermanna eftir að- algötum Oslóborgar og töku Þjóðverja á öllum samgöngum og síma höfuðborgarinnar til umheimsins, á örfáum klukku- stundum. Hér hefst saga 12 klukku- stunda hernáms Oslóborgar, er framkvæmd var þriðjudaginn 9. apríl síðastliðinn. Á milli kl. 12 á miðnætti og fram til há- degis féll höfuðborg Noregs, allar helztu hafnarborgir og öll hernaðarlega mikilsverð svæði í hendur Þjóðverjum. Norska þjóðin féll i stafi — eigi síður en Belgar höfðu gert 1914 — er land þeirra var í einni svipan gert að orustuvelli, og mikill hluti þjóðarinnar veit ekki enn þann dag í dag, hvern- ig harmsaga þessi gat gerzt með svo miklum hraða. Ég dvaldi í Osló þessa nótt, á- samt tveim öðrum ameriskum blaðamönnum, Warren Iwin og Edm. Steevens og sjálfir ætluö- um við ekki að geta glöggvað okkur á atburðunum i fyrstu. Sjálfur varð ég að dvelja 4 daga í viðbót í Osló, til þess að skilja til hlítar með hverjum hætti Þjóðverjum var gert mögulegt að framkvæma heTtökuna með jafn miklum hraða og öryggi, sem raun bar vitni um. En eftir þann tíma varð okk- ur Irvin ljóst, að við yrðum að fara með síðustu járnbrautar- lestinni, sem bauðst yfir um til Svíþjóðar. Eigi sigruð með vopnum. Einasta leiðin til þess að fá nákvæmar fregnir af þessum stórkostlegasta atburði, sem gerzt hefir síðan í síðustu heimsstyrjöld, var að dvelja í borginni þennan tíma. Osló og aðraT borgir Noregs voru eigi einvörðungu teknar með vopnavaldi. Þær voru sigr- aðar með einu stórkostlegasta vélabragði og landráðastarf- semi, sem veraldaTsagan greinir frá. Með sérstökum áhrifum á inn- lenda nazista og umboðsmenn Þýzkalands, svo og með fjár- mútum til einstakra háttsettra, norskra embættismanna, tryggði hinn þýzki einræðisherra valda- töku sína í Noregi. Og þegar hið rétta augnablik kom, af- vopnaði einræðið her landsins, eyðilagði varnarvirki þess, þaggaði niður í loftvarnarbyss- unum — allt í einni svipan, með aðstoð norskra manna. Fullkomin yfirráð yfir örfáum háttsettum embættismönnum voru nauðsynleg, og allt var vís- indalega undiTbúið löngu fyrir- fram. Landráðin voru svo að segja gerð eftiT nákvæmri áætlun. Aðeins á tveimur til þrem stöðum tóku atburð- irnir aðra stefnu en ákveðið var, en öll sund og firðir Noregs stóðu þegar óvininum opin. Til þess að allt mætti takast, varð þýzkaland eða nazistar að hafa þrjá „borgarlykla" í hönd- um sér — lyklana að Osló, Bergen og Narvik. Það er stað- fest, að yfirhershöfðingi Norð- manna í Narvik sveik þjóð sína í hendur óvinunum. Mér er ekki ljós atvikin, sem lágu að af- hendingu Bergenshafnar. En undraverðast vreður líka að telja hin afar skjótu aðeTðir nazista á Oslofirði, með ramm- gerðum vígjum og þrengslum fjarðarins við Dröbak, og svo taka Horten’s. — Aðeins með því að brjóta öll fyrnefnd vígi og hindranir á bak aftur, vaT taka Osloborgar möguleg og þar með eyðilegging norsks sjálf- stæðis og flótti stjórnarinnar. Gegn ráðleggingu hersins. Taka Osló og allra strand- virkja Oslófjarðar var öllum þjóðum ofurefli öðrum en naz- istastjórn Þýzkalands, og þýzka hernum þó aðeins kleift með því að nota til þess aðferðir, sem tóku öllum öðrum svika- brögðum fram, og jafnvel þeim, sem þeir sjálfir notuðu við her- töku og undirokun Austurríkis og Tékkóslovakiu. f fyrstu mun flestum hafa fundizt slík afrek fara fram úr því, sem almenn- ingur gat skilið í fljótu bragði. En blæjunni er nú svift burt og staðreyndirnar lýðum ijósar. Það verður að fara nokkuð aftur í tímann, og byrja þar, er orðrómur breiðist út um það í Osló, að aðfaranótt 4. apríl hafi þýzki flotinn lagt af stað úr höfn, eða fullum 3 sólarhring- um áður en Bretar lögðu tund- urduflum milli Bergen og Nar- vik. — Ég hefi einnig áreiðan- legar heimildir fyrir því, að her- inn var allur á móti Hitler í þessu hans nýja „æfintýri“, og benti á, að samgönguleiðir milli heimalandsins og hers þess, sem settur yrði á land 1 Noregi, myndi áreiðanlega verða rofnar af bandamönnum og orustu- svæði, sigurvænleg Bandamönn- um, skapazt þótt róttækari her- takan heppnaðist. Hinir róttækari meðlimir naz- istastjórnarinnar studdu „for- ingjann" gegn meirahluta her- ráðsins. — Á föstudagskvöld 5. apríl, á meðan þýzki flotinn var á leið til Noregs, gerðist ein- stæður, sögulegur viðburður, og fram til þessa hefir hann verið hulinn vitund umheimsins. Þýzka sendisveitin í Osló hélt veizlu eina mikla og bauð 200 55. blaS í fiskiþinginu frá fulltrúum þess, en þær sögur voru látnar ganga um bæinn, að kosningum'lokn- um til þess að afsaka stjórnar- skiptin, að stjórn félagsins hefði vanrækt þetta starf, og er því vert að ræða það nokkuð nánar, og forsögu þess frá byrjun. Bráðlega eftir að félagið tók til starfa, eða ársbyrjun 1914, réði það tvo erindreka í þjónustu sína. Var annar þeirra vélfræð- ingur og átti hann að hafa með höndum leiðbeiningar um hirð- ingu og meðferð mótorvéla, sem þá voru óðum að breiðast út, en þekkingu á meðferð þeirra auð- vitað mjög áfátt. Erindreki þessi hélt einnig nokkur mótornámskeið í ver- stöðvunum, en auðvitað var ekki hægt að hafa þessi námskeið eins fullkomin og þau, sem fé- lagið lætur nú halda, enda hefði einn maður ekki getað annast þau, enda aðstaða öll mjög erfið til starfa fyrir hann. Hafði fé- lagið þetta starf alltaf með höndum fram til 1919, en þá lagðist það niður í nokkur ár, en var nú fyrir nokkrum árum tek- ið upp aftur með breyttu fyrir- komulagi. Hinn erindrekinn átti að hafa félagsmálastarfsemina með höndum, ferðast um landið, stofna deildir og vinna að því, að kynna störf félagsins meðal þjóðarinnar, en þetta fyrir- komulag stóð ekki nema nokkur ár, því að þá kröfðust fulltrúar fjórðunganna, að skipaðir væru erindrekar fyrir hvern fjórðung, sem hefði þessi störf með hendi, og myndi þá erindreksturinn koma að meiri notkun, ef hver erindreki hefði ekki stærra um- ráðasvið en sem því næmi, og hefir svo verið síðan, en erind- reksturinn í Sunnlendingafjórð- ungi var þó að jafnaði í höndum félagsstjórnarinnar, þar til fyrir fáum árum, að Sveinbjörn Egilsson lét af störfum hjá fé- laginu, sem skrifstofustjóri þess og ritstjóri Ægis, þá ákvað Fiskiþingið, að hann skyldi taka að sér erindreksturinn í Sunn- lendingaf j órðungi, og veitti hon- um sömu laun og hinum erind- rekunum. Með þessu fyrirkomu- lagi tók því Fiskiþingið sjálft fé- lagsmálastarfsemina úr höndum stjórnarinnar og lagði hana í hendur fjórðungsþinganna og fjórðungserindrekanna, og á fjárhagsáætlun félagsins 1931 og jafnan síðan hefir Fiskiþing- ið veitt 1000 kr. árlega í hvern fjórðung til stuðnings þessu starfi samkvæmt ráðstöfun f j órðungsþinganna. Fjárhagsáætlun Fiskiþingsins ber þetta líka ljóslega með sér,að þessi hefir verið skilningur þingsins, þar sem ferðakostnað- ur stjórnar félagsins er áætlað- ur jafnhár og hvers erindrekans (Framh. á 4. sUfuJ háttsettum embættismönnum og áhrifamönnum innan hers, flota, þings og stjómar. Sér- stök áherzla var lögð á að ná þangað bankamönnum, siglinga- og iðnaðarforstjóra o. s. frv. Ytri tákn samkundunnar voru harðir flibbar, hvítar slaufur og einkennisbúningar og krossar. „Eldskímin“. Þrátt fyrir allt þetta umstang var veisla þessi ekki talin opin- bert boð. Norskur „aðall" var sem sé boðinn á kvikmyndasýn- ingu, þar sem „mjög einkennileg mynd“ skyldi sýnd. Þegar sýn- ingin hófst, sáu valdamenn Nor- egs, að hér var á ferðinni „Bap- tisen of Fire“, og er þar sýnd mjög nákvæm yfirlitsmynd af eyðilegging Póllands frá síðasta ári. í heilan klukkutíma sátu norskir valda- og stjórnmála- menn skelfingu lostnir og horfðu á viðurstyggð eyðileggingarinn- ar og kaldur sviti spratt út á höfði þeirra. Á eftir sýn- ingunni skýrði þýzki sendi- herrann svo frá, að þessi mynd, sem hér væri sýnd, væri ekki stríðsmynd — þetta væri „frið- armynd(!) — þar sem hún sýndi friðsömu fólki, hvað það hefði að varast, og hversu miklu ákjósanlegri hlýðni og friður væri börnum þess og mæðrum. Norðmennirnir héldu heim- leiðis það kvöld með undrun og skelfingu í huga eftir sýnir „boðsins". Major Quisling kallaði saman fund nazista í borginni um þess- ar mundir, en hann var nýkom-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.