Tíminn - 23.05.1940, Síða 3

Tíminn - 23.05.1940, Síða 3
55. blað T\ mh VN, fimmtndaglnn 23. maí 1940 219 HEIMILIÐ Breyttir lifnaðSarhættir. Margir ræða nú um það sín á milli, að nauðsynlegt væri fjrrir þjóðina að breyta lifnaðarhátt- um sínum allverulega, þegar aðfluttar vörur hækka eins stór- kostlega í verði, eins og nú er, og sumar vörutegundir verða ó- fáanlegar, hvað sem í boði er. Ríkisstjórnin hefir orðið að taka í taumana og skammta út- lenda matvöru, en hvort sá skammtur getur orðið til lang- frama eða við höfum gjaldþol til þess að kaupa hann, er vafa- mál, og megum við því búast við að þurfa stórkostlega að breyta til með daglegt matarhæfi í náinni framtíð. Nú er ennþá komið svo, sem ávallt er, undirbúningur ársins, hvað allan jarðargróður snertir. Er þá nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, hverjar auðlind- ir landsins eru ónotaðar og hvernig vér getum hagnýtt þær betur á komandi sumri en áður hefir verið gert. Með þvi að auka íramleiðslu ínnlendrar matvöru, aukum við matarforða heimilanna og þjóð- arbúsins í heild sinni. Við þurf- um líka að nota betur en tíðk- azt hefir á síðari árum ýmislegt, sem allt of lítið hefir verið not- að til matar, t. d. ýms grös, þar á meðal fjallagrös o. fl. Þessara góðu fanga þarf að afla sér á réttum tíma, láta enga tilviljun eða happdrætti ráða því, hvort nokkuð verði til, t. d. af fjalla- grösum og berjum til næsta vetrar. Okkar þjóð er mjög vel sett, hvað fæði snertir. Við getum framleitt svo mikið af ágætum og nærandi fæðutegundum. Má þar nefna mjólk og allar mjólk- urafurðir, kjöt, fisk, kartöflur og nokkuð af grænmeti. Eitt er þó áreiðanleg vissa fyrir: Séu í landinu matarupp- sprettur, sem ekki hafa verið notaðar fyrr, verðum við loks- ins að læra að nota þær. Og það er full vissa fyrir því að þær uppsprettur eru til, en flestar munu þær þannig, að helzt verður að notfæra sér þær að sumrinu. Því úr jurtaríkinu fáum við mest af kolvetni og einnig mikið af vitaminefnum, sem við getum ekki án verið. Samvizkusemi í því, hvernig varið er verðmætum heimilisins og rétt samsetning fæðunnar, hefir þýðingu fyrir afkomu þjóðarinnar og heilsufar okkar sjálfra og afkomendanna. J. S. L. inn frá Berlín, og stóð fyrir skipulagningu herleiðingarinn- ar, en kom til Osló laugardaginn 6. apríl. Á sunnudagsnóttnia lögðu Bretar tundurduflin við Narvik. — Á mánudaginn gerðu blöðin í Berlin veður mikið út af atburð- unum. Á þriðjudagsmorguninn eru virki og meginfloti Norðmanna svikin í hendur Þjóðverjum og fyrstu þýzku hersveitirnar voru þá settar á land hjá Fornebo, sem er flughöfn Oslo, stuttu eft- ir dagmál. — Hér er skýrt frá þeim aðferðum, sem hafðar voru við hetnám Osló snemma morg- uns þann 9. apríl. Þýzki herinn gat ekki komizt inn í Oslo, nema hafa vald á Hortens, sem er utarlega í Oslo- firði. Kl. 1,30 um morguninn, hálfum fjórða klukkutíma áður en kröfur Þjóðverja voru lagðar fyrir dr. Koht utanríkismálaráð- herra Noregs, meðtóku þrír for- ingjar á norskum herskipum, sem voru við Hortens, hrað- skeyti. Skeytið var undirritað með nafni dr. Kohts, og skildist foringjum herskipanna og yf- irmönnum flotans, að það væri frá ríkisstjórn Noregs, sent gegn um utanríkismálaráðuneytið. í skeytunum var fyrirskipað, að engin mótspyrna skyldi veitt þýzkum herskipum, sem voru á siglingu upp Oslofjörð, og her- lið skipanna skyldi sett vopn- laust á land, í einu vetfangi. Án þess að athuga frekar um eðli skeytisins og uppruna, hlýðnuðust yfirmennirnir fyrir- A N IV A L L Dánardægor. Vilborg- Hálfdánardóttir, Holt- um, andaðist að heimili sínu 3. marz þ. á. og var jarðsungin 11. s. m. að viðstöddu miklu fjöl- menni. Hún var fædd að Odda á Mýrum 25. marz 1853. Hún var systir Ara hreppstjóra Hálf- dánarsonar að Fagurhólsmýri og þeirra mörgu og mannkostaríku Oddasystkina. Vilborg sáluga dvaldi allan sinn aldur í Mýrasveit og það aðeins á tveimur heimilum. Hún fluttist frá Odda fjórtán ára gömul að Holtum og giftist þar Páli Bjarnasyni frá Við- borðsseli, og síðan eða i fullan hálfan sjötta tug ára hefir hún dvalið á því sama heimili, er ungu hjónin höfðu þá stofnað til af allri þeirri ást og um- önnun, er ungum elskendum er svo tamt að leggja fram til myndunar nýs heimilis. Vilborg sáluga missti mann sinn eftir 6 ára sambúð frá þremur ungum börnum, þar sem elzta barnið var á fjórða ári. Hún bjó áfram með fyrirvinn- um í full tíu ár, eða þar til elzti sonur þeirra hjóna, Bjarni, tók við búsforráðum með móður sinni skömmu eftir fermingu. Systkinin þrjú önnuðust svo bú- ið með móðir sinni um tíu ára skeið. Ég man það, að heimilið var ekki -efnað á þeim árum, er Bjarni tók við búsforráðum með móður sinni, en fyrir ráðsnilld og atorku og samtakamátt þeirra allra auðnaðist Vilborgu sálugu að sjá heimilið blómgast ár frá ári upp í það, að verða sem nú er kallað bezta heim- ilið í sveitinni og ekki eru þó efnin mikil ennþá en öllu vel fyrir komið, og það virðist svo, að sá ylur og sú birta, er ávalt hvíldi yfir allri framkomu Vil- borgar sálugu, hafi sett merki sitt á heimilið og gengið að erfð- um til niðjanna. Jafnframt því, að Vilborg sáluga sá heimílið sitt aukast að efnum sá hún fjölskylduna stækka. Eldri syst- kinin tvö, börn Vilborgar, stað- festu ráð sitt um líkt leyti og hafa alltaf búið í nábýli hvort við annað síðan, svo að túnin á býlunum liggja saman. Vilborgu sálugu veittist því sá unaður, að sjá hinn mannvænlega barna- hóp frá báðum þessum heimil- um alast upp og leika saman og vinna saman til gleði og gagns fyrir ömmuna og alla aðstand- endur. Og er Vilborg var farin að heilsu og stofninn gamli var orðinn feyskinn, var hún umvaf- in að maklegleikum hinni ást- úðlegustu umhyggju allrar fjöl- skyldunnar, er gerði allt, sem hún gat til að gera Vilborgu skipuninni og settu herlið sitt á land og alla áhöfn, vopnlausa, en eftir í skipunum voru aðeins léttadrengir og kyndarar. En hér vildi til heppni fyrir Norðmenn, en óhapp mikið þýzka hernum, og varð þess valdandi lítið atvik. Norski tundurlagnabáturinn Ólafur Tryggvason hafði án þess vítað var, skroppið inn í höfn kvöldið áður til smáviðgerðar. Landráðamenn Osloborgar vissu heldur eigi um þetta. En þessi litli tundurskeytabátur Norð- manna fékk aldrei skeytið, og bjóst því strax til atlögu við hin þýzku herskip, er þau nálguðust. Eftir á sögðu kunnugir, að Þjóð- verjar hefðu notað bæði mútur og hótanir til þess, að ryðja flot- anum braut inn í Oslófjörð. Eins og fyrr er getið, höfðu öll segulmögnuðu tundurduflin í mjóstu sundunum utan við Dröbak verið gerð óvirk. Hvernig það var gert, eða hverjir gáfu þá fyrirskipun, en ennþá öll- um hulið í Oslo. En einmitt þess vegna komust þýzku herskipin inn úr sundunum fyrir dagmál. „Öll sund lokuð“. Kl. 4,30 árd eða réttum hálf- tíma áður en sendiherra Þjóð- verja afhendir norsku stjórninni kröfur Þýzkalands, þá hafði bæði orustuskipið Emden og tveir kafbátar í fylgd með því náð til Hortens. Hin þrjú fyr- nefndu herskip Norðmanna voru nálega mannlaus, og hreyfðu sig ekki af legu samkvæmt fyrri skipun. En tundurlagn- Kálplöntur í moldarpottum Blómaplöntur í míklu úrvali Trjáplöntur - Pottamold selt í gróðrarstöðinni Laugardal við Engjaveg allan daginn. — Einnig verður útsala á Grettisgötu milli Veghúsastígs og Klapp- arstígs daglega kl. 1—7. Nauðsynlegt að hafa með sér umbúðir. Upplýsingar í síma 5690. Eiríkur Hjartarson. Verðlagsnefnd hefir ákveðið að lítsöln- verð á eplum í smásölu megi ekki vera hærra í Reykjavík en kr. 2.50 hvert kílógram, eu annars staðar á landinu má verðið vera þcim itiun hærra, sem nemur flutningsgjöldum frá Reykjavík. Þetta tilkynnist hér með. VIÐSKIPTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ 21. maí 1940. Tilkynning. AUir reikningar vegna þess setuliðs, sem var hér frá 10. til 17. maí, fyrir flutninga á sjó, bíluin o. fl., aðrir en húsaleigureikningar, verða greiddir í Edinborgarhúsinu, Hafnarstræti 10, herbergi nr. 5 á efstu hæð, milli kl. 3 og 5 e. h. föstudaginn 24. maí. ATIl. Ekki má koma með neina reikn- inga fyrir húsnæði, sem verða greiddir sérstaklega, né heldur reikninga vegna hins nýja liðs. Ylirforiiiginii. sálugu æfikvöldið eins unaðs- ríkt og á varð kosið. Vilborg sáluga varð fyrir þeirri stóru sorg, er sárust er talin, að missa ástkæran eigin- mann eftir aðeins fárra ára sambúð frá ungum bömum, og það er ekki erfitt að gera sér í hugarlund þá mörgu erfiðleika, sem mæddu á öll þau ár, er ástrík móðir varð að leggja fram alla sína orku, andlega og líkamlega, til að sjá barnahópn- um borgið. En launin, sigurgleð- in við hvern unninn sigur, við hvert árið, sem vinnst, eykur þrekið og gefur lífinu ómetan- legt gildi. ingabáturinn Ólafur Tryggva- son setti sig strax í varnarstöðu, þar sem þrengslin voru mest. þýzki flotinn hins vegar trúði því, að öllu væri óhætt og hélt hiklaust áfram. En þegar þau nálguðust þar, er Ólafur Tryggvason var, hóf hann tafar- laust skothríð, sem lauk með því, að talið er að hann hafi sökkt bæði Emden, að stærð 5.400 smál., og stóra beitiskipinu Gneisenau 26,000 smál., sem var með fullkomnustu herskipum Þjóðverja. Sagt var að virkið i Oskarsborg hafi einnig sökkt herskipinu Bliicher á sama tíma. Herskip Norðmanna voru mannlaus, eins og fyr segir, við Hortens. Við rismál höfðu Þjóð- verjar sett á land herlið í Hor- tens. Sundin voru opin og Oslo varnarlaus með öllu frá sjó. Þennan morgun talaði ég við Norðmann, sem verið haíði á herstöðvunum í Hortens um nóttina, og staðfesti hann frá- sögn þessa, nema hann bætti við, að enn einu þýzku herskipi hefði verið sökkt í firðinum um morguninn, og mun hér vera átt við Karlsruhe.„Stuttu síðar settu Þjóðverjar um 100 manns á land í Hortens“, sagði Norð- maðurinn við míg, „það var eiginlega ekki neitt, sem við gátum gert. Við börðumst um stund, en skyndilega settu liðs- foringjarnir upp hvítt flagg. Við vissum ekki í fyrstu hvað það átti að þýða, en héldum þó, að þetta væri skipun frá yfir- völdunum og hættum strax að berjast. Ennþá hefir ekki upp- (Framh. á 4. síOu) Vilborg sáluga var ein af þeim mörgu konum, sem lítið ber á, sem vinna sitt ómetanlega starf í kyrrþey, en afkasta miklu eigi að síður, sem eru sólin á heim- ilinu eins nauðsynleg til vaxtar gróanda heimilisins eins og sól himínsins er nauðsynleg til vaxtar gróður jarðar. Æfistarf Vilborgar sálugu hefir fært oss heim sanninn um það, að lánið skapast ekki nema að litlu leyti af þeim atvikum, er lífið réttir að oss, heldur skapast það af því, hvernig atvikunum, hinum blíðu og hinum stríðu, er mætt. Það færir okkur heim sanninn um það, að „vort lán býr í sjálf- um oss.“ K. B. Dvöl Gerist áskrifendur aB þessu vinsæla og sér- staka timariti. 8. árg. er að byrja aS koma út og kostar að- eins 6 krónur. Engin hækkun þótt allt hafi hækkað i verði. Ard. Dvöl, Rvík. Stjórn Sláturfél. Suðurlands í Reykjavík GJÖRIR KUNNUGT: Að samkv. heimild í lögum nr. 13, 12. febr. 1940, hefir verið ákveðið að innkalla stofn- bréf þau, sem gefin hafa verið út til félagsmanna í Slát- urfélagi Suðurlands og afhenda þeim, samtímis og bréf- unum er skilað, stofnfjárbækur fyrir innstæðu þeirra í stofnsjóði. Fyrir því er hér með skorað á alla þá, sem hafa í hönd- um stofnbréf frá Sláturfélagi Suðurlands að skila bréf- um á skrifstofu félagsins hér í Reykjavík í síðasta lagi 15. sept. næstk. og er sérstaklega á það bent, að samkv. 2. gr. fyrrnefndra laga, eru þau bréf ógild með öllu og réttlaus, sem eigi hefir verið skilað innan hins tiltekna frests og hefir félagið enga skyldu til að innleysa bréfin síðar, enda verður stofnfjáreignin færð inn í viðskipta- bækur þegar að frestinum liðnum, án tillits til þess, hvort bréfin hafa verið afhent eða eigi. Reykjavík, 29. apríl 1940. F. h. stjórnar Sláturfélags Suðurlands, H. Bergs e. u. 9fenn greinir á um gildi og tilverurétt einstakra greina hins innlenda iðnaðar. Um eitt hljóta þó allir að vera á einu máli: að sú iðjustarfsemi, sem notar innlend hráefni til framleiðslu sinnar, sé ÞJÓÐÞRIFA FYRIRTÆKI. Verksmiðjur vorar á Akureyri Gefjtm og löuun. eru einna stærsta skrefið, sem stigið hefir verið í þá átt. að gera framleiðsluvörur landsmanna nothæfar fyrir almenning. GeSjun vinnur úr ull fjölmargar tegundir af bandi og dúkum til fata á karla, konur og börn og strafrækir sauma- stofu á Akureyri og í Reykjavík. I ð u n n er skinnaverksmiðja. Hún framleiðir úr húðum, skinn- um og gærum margskonar leðurvörur, s. s. leður til skógerðar, fataskinn, hanskaskinn, töskuskinn, loð- sútaðar gærur o. m. fl. Starfrækir f jölbreytta skógerð og hanskagerð. f Reykjavík hafa verksmiðjurn- ar verzlun og saumastofu víð Aðalstrætí. Samband ísl samvinnuiélaga. 292 Margaret Pedler: Laun þess liðna 289 að þetta er allt Blair að kenna. Ef hann hefði borið nægilegt traust til mín í upphafi og sagt mér allt af létta, þá held ég að við hefðum ekki orðið ó- hamingjusöm. Ég hefði getað fyrirgefið honum það, sem hann gerði. Þeim, sem maður elskar, getur maður fyrirgefið flest. Ég veit, að ég hefði getað komið Candy til að líta þetta allt öðrum aug- um en hann gerír núna. En, eins og þú veizt, þá bar Blair ekki nógu mikið traust til mín.“ Hún talaði af einfaldri en djúpri hryggð. Sutherland gat ekki annað en dáðst að því, hvað sumar konur geta elskað mikið, skilið mikið og fyrirgefið mikið. Hann fékk ákafa löng- un til að taka i lurginn á mörgum fyrir framkomu þeirra, þar á meðal voru þeir allir, hann sjálfur, Blair og Candy. Colin tók þessu á sinn sérkennilega hátt. Örlögin höfðu sært hann svo djúpt, að hann hafði allt að því óeðlilega trú á mætti þeirra til að særa aðra. Honum sveið sárt, að þurfa að horfa á konuna, sem hann elskáði, þjást af sömu eða svipuðum kvölum og hann hafði liðið sjálfur. Einu sinni gat hann ekki stað- izt mátið, er hann sá hið föla og þreytu- lega andlit hennar. Hún var tekin og svipurinn steingerður, eins og hún ætti við stöðugar sálarkvalir að etja. „Ég vildi óska, að þú vildir leyfa mér kosti haldið þessu öllu leyndu.“ Hann kinnkaði kolli. „Ég er þar alveg á sama máli. Enginn hefir vitað um þessa trúlifun nema við, Jack og Wentworth-systkinin, og héð- an af er óþarfi að fleiri viti um hana.“ * . * * Jack Sutherland hryllti við afleið- ingunum, sem það hafði haft, að segja Frayne frá fortíð Maitlands. Honum þótti vænt um Elizabet og fannst ávalt, er hann sá hvað hún syrgði mikið, að hann hefði með eigin hendi, ef svo mætti segja, kæft hamingju hennar. „Og samt gat ég ekki annað en sagt honum það,“ sagðí hann einu sinni við Jane og Colin, er þau sátu þrjú og ræddu um þetta. „Þú sást það sjálf, Jane, þegar ég lagði málið dulbúið fyrir þig. Mannstu ekki eftir þvi?“ „Jú, ég man eftir því, svaraði hún. „Og ég myndi enn svara spurningunni eins, þrátt fyrir alla óhamingjuna, sem þetta hefir valdið. Þú hafðir ekki um annað að velja en segja Candy sann- leikann.“ Colin hreyfði sig óþolinmóður. „Ég veit það ekki,“ sagði hann með þeim sterka óánægjuhreim í röddinni, sem stafar af niðurbældum þjáningum. „Ef til vill hefði verið betra að láta satt

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.