Tíminn - 02.07.1940, Side 4

Tíminn - 02.07.1940, Side 4
268 TtmflN, frrigjndaginn 2. Jnlí 1940 67. blað §má§ólnverð á ensku neftóbaki má eigi vera hærra en hér segir: Kcndal Brown Snuff í 1 Ibs. dósum í Reykjavík og Hafnarfirði . kr. 14.40 dósin Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar . — 14.85 — Athygli skal vakin á því, að háar sektir geta legið við að brjóta ákvæði tóbakseinkasölulaganna um útsöluverð i smásölu. TOBAKSEINKASALA RlKlSDÍS. tlR BÆNUM Aðalfundi í. S. í. er nýlega lokið. Ný lög fyrir ‘í- þróttasambandlð lágu fyrir fundlnum, en samþykkt var eftir allmiklar um- ræður að vísa þeim til stjórnarinnar til frekari athugunar. Benedikt G. Waage var kjörinn forseti I 15. sinn, en hann hefir verið 26 ár í stjórn sambandsins. Endurkosnir voru elnnig í stjómina Sigurjón Pétursson og Frímann Helgason. Athugasemd. Til að koma í veg fyrir misskilning skal tekið fram, að Tíminn birti eigi fregnina um björgunarafrek skipverja á togaranum Skallagrími vegna laga- fyrirmæla, sem nýlega hafa í gildi gengið, þar sem bannað er að veita nokkrar þær upplýsingar, er gefa til kynna, hvar skip eru eða haía verið stödd á vissum tíma. Hefir verið eftir því gengið af yfirvöldunum, að þessum fyrirmælum sé hlýtt. Maður fellur átbyrð- is og drukknar Það slys varð á togaranum Þorfinni, að Halldór Guðmunds- son kyndari, til heimilis að Kárastíg 11, tók út og drukknaði. Halldór var maður kvæntur og átti fjögur börn. Hin nýju hafnar- mannvirki Síglu- fjarðar vígð Hin nýju hafnarmannvirki Siglufjarðarkaupstaðar voru vígð nú um helgina. Pór athöfn- in fram með þeim hætti, að Esja renndi upp að þeim, ræður voru fluttar og karlakórinn Vísir söng undir stjórn Þor- móðs Eyjólfssonar. Hafnarmannvirki þessi hafa verið i smiðum í tvö ár. Hafa þau kostað sem næst 750 þús- undir króna. Japanir ókyrrast (Framh. af 1. siöu) af því hagnaðar, og sökum upp- lausnar, sem núverandi ástand og sýnileg skerðing á valdi Ev- rópuþjóðanna þar austur frá leiðir af sér. Bretar hafa gert þær gagn- ráðstafanir þar eystra, að treysta hervarnir sínar á Mal- ayaskaganum og annars staðar þar sem mest þykir við þurfa. Jafnhliða hafa þeir flutt á brott konur og börn úr Hong- Kong-nýlendunni. Bandaríkjamenn hafa látið miklar flotaæfingar þar eystra fara fram, til að leiða í ljós með hversu miklum flýti hægt er að senda Kyrrahafsflotann til fjarlægra staða. Aðrar fréttir. Balbo, hershöfðingi ítala í Af- ríku, er dáinn. Tvennum sögn- um fer af fráfalli hans. ítalskar og þýzkar fréttastofnanir láta í veðri vaka, að hann hafi beðið Síldarvísnr. Þessa dagana er mikið hugsað og talað um síld. í alllöngu kvæði, sem Friðgeir H. Berg á Akureyri hefir ort, eru tvær vís- ur, sem hér birtast. Þær sýna manni inn í heim skipverjanna, er sigla fengsælu skipi til hafnar úr giftusamri veiðiför. Skáldið hugsar sér skipin sem persónur: Glatt var á Grimseyjarsundi. Glitrandi torfan óð. Um lágnættið kjölfarið lýsti af logandi maurildaglóð. Svo héldum við kát til hafnar af hafinu sneisafull. Við sigldum inn fjörðinn fagra með farminn vom — hreistrað gull. í gær komu fyrstu skipin til Siglufjarðar með síldarafla, sem þau höfðu einmitt veitt á Gríms- eyjarsundi. Starlsemi templara (Framh. af 1. siðu) 16. þing unglingareglunnar var einnig sett á sunnudaginn. Sitja þingið 19 gæzlumenn og fulltrúar frá ýmsum barnastúk- um hér og þar um landið. Innan unglingareglunnar voru í vetur 5064 meðlimar, þar af 497, er einnig voru í undirstúk- um. — Starfandi unglingastúkur eru 48. Sildarverksm. nýja (Framh. af 1. síöu) byggð, búin góðum löndunar- tækjum. Vinnsluafköst hinnar nýju síldarverksmiðju eiga að vera 5 þúsund mál síldar á sólarhring. Hversu mikilli fjárupphæð byggingarkostnaðurinn hefir numið, verður eigi sagt ná- kvæmlega að svo stöddu. Byggingarmeistari og yfir- verkstjóri við verksmiðjusmíðið var Magnús Vigfússon úr Reykjavík. bana i loftorrustu við enskar flugvélar síðastliðið föstudags- kvöld, en annars staðar hefir sá kvittur gosið upp, að Balbo haíi verið myrtur. Rússar hafa ákveðið að verja gífurlegum fjárupphæðum til vígbúnaðar, bæði á sjó og landi. Á að taka stórkostleg lán i þessu skyni. Ermarsundseyjamar Jersey og Guernsey eru fallnar í hendur Þjóðverjum. Skriðuföll og vatnavextir (Framh. af 1. siöu.) nóttina, og ollu skriðuföll og vatnsflóð gífurlegum skemmd- um í kauptúninu. Eyðilögðust fiskþurrkreitir kauptúnsins að mestu af völdum aurs og grjóts, er á þá barst, sumir fiskstakk- arnir sópuðust burtu, en aðrir eru hálfkafðir í eðju. Garðar og tún eru víða eyðilögð, vegir mjög skemmdir og sums staðar er ófært fyrir aurhlaupum. Brúin af Eskifjarðará sópaðist brott, en skarð kom í stíflugarð- inn við rafstöð þorpsins. Vatn flóði inn í nokkur hús, einkum hús bankaútibúsins og vélaverk- stæði þar skammt frá. Liggur aur og grjót að þeirri hlið bankahússins, er snýr mót hlíð- inni. Húsaþyrping innan til í þorpinu, er umkringd aurdyngj- um og grjóthröngli og djúpir vatnsfarvegir hvarvetna. Enn- fremur urðu skemmdir á engj- um og túni á bænum Eskifirði. Tjónið á fiskbirgðum einvörð- ungu nemur sennilega tugum þúsunda króna og tjónið, sem orðið hefir á ýmsum eignum og verðmætum, er gífurlegt, eins og lýst hefir verið, og úr sumum verður alls ekki bætt, þótt fjár- munir væru fyrir hendi. Sigurður Jónsson bóndi á Stafafelli sagði Tímanum eftir- farandi tíðindi úr Lóni: — Hér skall óveður á á laugar- dagsnóttina. Vorum við þá ell- efu saman frá Stafafelli og bæj- um . þar í grennd við rúningu sauðfjár í rétt við Eskifell. Var stormur mikill og rigning meiri en dæmi eru til. Urðum við að sleppa fénu úr réttinni og yfir- gefa tjald, er við höfðum með okkur, og leita athvarfs í gangnamannakofa, uppi í fell- inu. Á laugardagsmorgun, þeg- ar við komum aftur á vettvang, var skriða fallin úr fjallinu yf- ir réttina og tjaldið. Komumst við við svo búið til bæjar að Þórisdal, og var þó harðsótt, því að vatnavextir voru miklir, en yfir svokallaða Skyndidalsá að fara. Úr Öræfum hafa þær fregnir borizt, að nýrúið sauðfé hafi króknað úr kulda í veðri þessu. í Meðallandi króknaði fé og úr kulda og víðar í Vestur-Skafta- fellssýslu hefir orðið tjón af rigningunni, einkum i görðum. Á Fljótsdalshéraði urðu tals- verðir vatnavextir og i Norð- firði urðu einhverjar skemmdir af völdum regns og vatnavaxta. 338 Margaret Pedler: „Hvers vegna ertu þá kominn aftur? Hvað ertu að gera hérna?“ „Ég kom hingað til þess að flytja farangur minn héðan og ganga frá hús- inu. Ég ætla burtu fyrir fullt og allt, ef það er það, sem þú vilt fá að vita.“ „Ó, hó!“ Þetta var léttisandvarp. Poppy gat sér þess til, að samtalið væri senn á enda. Hún reis á fætur og hraðaði sér niður og út. Þegar hún var komin út lagði hún af stað heim, bein- ustu leið. Hún þaut gegn um búð ömmu sinnar eins og hvirfilbylur. „Hvar hefir þú verið að slæpast í allt kvöld?“ kallaði amma hennar önug. Þú lætur mig eina um búðina! Þú verður að gjöra svo vel og hjálpa til, fyrst þú ert hætt að vinna þér nokkuð inn hjá herra Maitland. Ég hefi engin efni á þvi að halda uppi fínni fröken, sem ekk- ert gagn gerir. Heyrirðu til mín?“ Poppy nam staðar, með hendina á handfangi hurðarinnar að hinni tötra- legu íbúð, inn af búðinni. „Já, ég heyrði til þín,“ sagði hún einbeitt. „En þú þarft ekki að undir- halda mig lengi héðan af. Ég ætla að fara að gifta mig.“ Að svo mæltu skauzt Poppy inn fyrir. Gamla konan stóð ein eftir og muldraði eitthvað óskiljanlegt í barm sinn. Poppy hljóp áfram upp í litla þak- Laun þess liðna 339 herbergið sitt, henti sér upp í rúm og fór að hugsa. Hún gat lagt saman tvo og tvo, rétt eins og hver annar, og nú var henni fyllilega ljóst hvers vegna trúlofun Maitlands hafði orðið að engu. Eitthvað hreint og heiðarlegt í sál hennar krafðist þess, að hún færi beint til ungfrú Frayne og segði henni allan sannleikann. Gegn þessu reis hin mikla ást hennar á BlaiT, og hélt aftur af henni. „Ég get ekki gefið hann eftir,“ tautaði hún við sjálfa sig, og starði á hvít- þvegna skarsúðina. „Ég get ekki gefið hann eftir.“ Hún þurfti aðeins að halda vitneskju sinni leyndri, ogþá gat hún átt Blair út af fyrir sig. Hann hafði lofað að giftast henni, og hún þekkti hann það vel, að hún var viss um að hann héldi orð sín, úr því að hann hafði einu sinni lofað því, hvað sem það kynni að kosta hann sjálfan. Hún ætlaði að þegja. „En ég skal gera hann hamingju- saman." Hún reyndi að réttlæta þögn- ina fyrir sjálfri sér. „Ég skal gera hann svo hamingjusaman, að hann gleymi ungfrú Frayne.“ XXVI. KAFLI. Hindranimar tvöfaldast. Líti maður aftur og ætli sér að kom- Leffef élag lleyUjavíhur jSttmdum ogstundum ekkí' 100. sýning á leikárinu Sýning annað kvöld kl. 8Vá- Allra síðasta siim. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 í dag. Góður trillubátur til sölu. Upplýsingar í síma 4373. Til auglýseuda! Tírainn ei ^efrnn út í fleiri eintökum en nokk- urt annað blaö á íslandi. Gildi nlmennm auglýs- inga er i hiutfaUi við þann fjölda manna er les þær. Timinn er öruggasta boðlelðin til flestra neyt- endatma í landlnu, — Þelr, sem vilja kynna vör- ur sínar sem flestmn auglýsa þær þessvegna í Tímanum Dvöl Af hverju halda menn að aðaUega mjög vand- látt fólk á lestrarefni kaupi Dvöl? Af því að hún er þekkt fyrir að flytja aðeins gott efni, sem greint og menntað fólk hefir ánægju af að lesa. Vinnið ötullega fyrir Tímunn. Sambandsping ungmennaléla gamna (Framh. á-4. siöu) ■ gjafi í Borgarnesi, var kjörinn heiðursfélagi U. M. F. í. Stjórnarkosningin. Að loknum aðalstörfum þings- ins var kosin stjórn U. M. F. í. Voru kjörnir sr. Eiríkur J. Ei- ríksson á Núpi, sambandsstjóri, Halldór Sigurðsson í Borgarnesi, gjaldkeri, og Daníel Ágústínus- son ritari. Rannveig Þorsteihs- dóttir, sem verið hefir gjaldkeri sambandsins baðst undan end- urkosningu. í varastjórn voru kosnir Gestur Andrésson á Hálsi i Kjós, Guðmundur Jónsson á Hvanneyri og Leifur Auðunsson í Dalseli. Sambandsþinginu var slitið um hádegisbilið á sunnudaginn af Birni Guðmundssyni, skóla- stjóra að Núpi, er var fundar- stjóri. »Ég bið að heilsa - -« (Framh. af 3. síðu) Fyrir mörgum mörgum árum var umkomulaus drengur í sum- arvist á Norðfirði. Hann átti illt atlæti og gat ekki flúið á náðir neins. í vonleysi sínu greip hann til þess örþrifaráðs, að fela sig í norsku flutningaskipi, er þang- að kom. Hann hélt kyrru fyrir í fylgsni sínu unz sulturinn dró hann fram í dagsljósið. Þá tók skipstjórinn hann, barði hann og atyrti fyrir uppátækið, en eftir þann hreinsunareld var honum fleygt inn í kokkhúsið, látinn þvo diska og skræla kartöflur og hafður til snúninga til næstu hafnar. En svo vel féll skipsmönnum við strokudreng- inn, að þeir höfðu hann lengi í förum með sér, og áratug eftir áratug fór hann um öll verald- arinnar höf með norskum, dönskum' og þýzkum skipum, en aldrei hefir hann síðan til ís- lands komið. Loks staðnæmdist hann í New York og er þar nú vélamaður á fljótaferju. En hvort sem maðurinn heitir Magnús eða Jón þá kannast enginn New York-íslendingur við hann, enda ber það heim við það, sem eftir honum er haft, að hann hafi aðeins einu sinni á volki sínu um veröldina komið að máli við íslenzkan sjómann síðan hann strauk frá Norðfirði. En íslenzkan fána vildi hann eiga og láta leggja i kistuna sína, þegar þar að kæmi. Hann mundi líka biðja að heilsa. S. B. GAMLA BÍÓ—”—°— LEYNILÖGREGLV- MAÐURIM. (Fast Company). Dularfull og framúrskar- andi spennandi leynilög- reglumynd, tekin af Metro Goldwyn Mayer. Aðalhlutv. leika: MELVYN DOUGLAS og FLORENCE RICE. Aukamynd: Brezk hernaSar- ffi'éttamynd. Börn fá ekki aðgang. j ”~~°~KÝJA BÍÓ°~D- SPILLT ÆSKA (Dead End). Amerísk stórmynd frá United Artists, sem talin var ein af eftirtektaTverð- ustu stórmyndum, er gerð- ar voru í Ameríku síðast- liðið ár. Aðalhlutv. leika: JOEL MCCREA, SYLVIA SIDNEY, HUMPHREY BOGART Og CLAIRE TREVOR. Aukamynd: Orsistan við Narvik Börn fá ekki aðgang. Sjúkrasamlag Reykjavíkur tllkynnir: Sökum vaxandi dýrtíðar hefir Sjúkrasamlag Reykjavíkur neyðst til að ákveða hœkkun á iðgjöldum til samlags- ins um krónur 0.5 0 á mánuði frá og með 1. júlí n. k. Verður hið almenna iðgjald því kr. 4.50 á mánuði, en kr. 9.00 fyrir þá er greiða tvöfalt iðgjald. SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR. V axtalækknn Forvextir af víxlum lækka úr 6Vz% í 6% frá 1. júlí að telja. SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS Húðir Og skinn. Ef bændur nota ekki til eigin þarfa allar HÚÐIR og SKINN, sem falla tii á heimilum þeirra, ættu þeir að biðja KAUPFÉLAG sitt að koma þessum vörum í vcrð. — SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA selur N AU TGRIP AHÚÐIR, HROSSHÚÐIR, KÁLFSKINN, LAMBSKINN og SELSKINN til útlanda OG KAUPIR ÞESSAR VÖRUR TIL SÚTUNAR. — NAUTGRIPA- HÚÐIR, HROSSHÚÐIR og KÁLFSKINN er bezt að salta, en gera verður það strax að lokinni slátrun. Fláningu verður að vanda sem bezt og þvo óhreinindi og blóð af skinnunum, bæði úr holdrosa og hári, áður en saltað er.. Góð og hreinleg meðferð, á þessum vörum sem öðrum, borgar sig. — tt*i<i>i>ilWi>i>i>i>i>i>i>i*i>i>i>i

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.