Tíminn - 03.09.1940, Page 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐS TJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN.
RITSTJ ÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
24. árg.
Reykjavík, þrlðjudagimi 3. sept. 1940
85. Ma»
Brezku hernaðaryíírvöldin
neyta »réttar híns sterka«
Atburður, sem getur haft alvarleg áhrif á við-
horf fslendinga til brezka setuliðsins
Brezku hernaðaryfirvöld-
in hafa gegn mótmæl-
um ríkisstjórnarinnar látið
flytja tvo íslendinga sem
fanga til Englands og mun
það ætlun þeirra að hafa þá
í haldi þar til ófriðarloka.
Menn þessir eru Sigurður
Finnbogason rafvirkjanemi hér
í bænum og Þórhallur Pálsson
útvarpsvirki á Akureyri. Voru
þeir fyrir nokkru handteknir af
brezku yfirvöldunum, sem töldu
sig hafa fundið hjá þeim stutt-
bylgjustöðvar. Hafa þeir síðan
verið hafðir í haldi hjá brezka
hernum. Herstjórnin hér hefir
ekki viljað framselja þá ís-
lenzkum yfirvöldum og hefir
nú tekið þá ákvörðun að hafa
þá í haldi í öðru landi.
Það er beinlínis upplýst, að
þessir menn hafa alls ekki brot-
ið íslenzk lög, nema þá svo, að
varða kynni litlum sektum, ef
um nokkurt brot er að ræða.
Kornvoruskamturínn
aukínn
Viðskiptamálaráðuneytið hefir
ákveðið að láta úthluta fyrir 1.
okt. næstk. kornvöruseðlum til
fimm mánaða (okt.-febr.).
Jafnframt verður kornvöru-
skammturinn aukinn um ná-
lega 1 kg. á mann á mánuði.
Sú heimild verður látin gilda
áfram, að oddvitar megi láta
menn hafa vöruávísanir til
lengri tíma, ef nauðsyn ber til
vegna staðhátta. Aukaúthlut-
un á kornvörum í slátur verður
hin sama og í fyrra, 2 kg. á dilk,
3 kg. á fullorðna kind og 16 kg.
á stórgrip.
Þessar ráðstafanir, að auka
kornvöruskammtinn og úthluta
kornvöruseðlum til lengri tíma
en áður, eru gerðar til þess að
menn geti nú keypt þessar vör-
ur í stærri stíl • en hægt hefir
verið undanfarið. Eru þessar
ráðstafanir m. a. mögulegar
vegna þess, að nú er orðið hægt
að kaupa kornvörur gegn
greiðslu í sterlingspundum.
Ráðstafanir þessar sýna með
öðru fleiru, hversu fjarstætt
það er að halda því fram, að
ríkisstjórnin reyni að vinna
gegn því, að menn geti eignazt
eðlilegar birgðir nauðsynj avara.
Það mun og áreiðanlegt, að á
hvorugan hafa fengizt sann-
anir fyrir því, að hafa staðið í
sambandi við andstæðinga
Breta.
Það er áreiðanlegt, að þetta
framferði brezku hernaðaryfir-
valdanna mun mælast illa fyrir
hjá íslenzku þjóðinni.Það myndi
enginn íslendingur harma það,
þótt þessir menn fengju verð-
skuldaðan dóm fyrir afbrot, sem
væru sönnuð á þá. En hitt mun
hver góður íslendingur harma,
að erlend hernaðaryfirvöld
skuli taka íslenzka menn fasta,
hafa þá í haldi og flytja þá af
landi burt, án þess að íslenzk-
um yfirvöldum gefist minnsta
tækifæri til að athuga, hvort
þeir eru sekir eða saklausir. Og
hefði sekt þeirra sannazt, áttu
þeir að taka út refsingu sína
hér, en ekki í öðru landi.
Það. mun áreiðanlega ekki
dyljast neinum, að brezku hern-
aðaryfirvöldin hafa með þessu
framferði sínu skapað mjög
hættulegt fordæmi og einskis-
virt sjálfstæði og rétt íslenzku
þjóðarinnar.
Hin brezku hernaðaryfirvöld
geta vitanlega huggað sig við
það, að þau hafa rétt hins
sterka í þessu máli. En það
mega þau vita, að það er ekki
réttur, sem íslendingar munu
fúslega viðurkenna, og þess
vegna mun- þessi atburður hafa
alvarleg áhrif á viðhorf íslend-
inga til brezku hernaðaryfir-
valdanna, ef þau halda fast við
þessa ákvörðun sína. Það myndi
tvímælalaust verða heppilegast
fyrir alla hlutaðeigendur að
henni yrði breytt.
Tíminn mun kynna sér þetta
mál nánar og ræða það ítarleg-
ar innan skamms.
Léleg kartöllu-
spretta
Næturfrost haia valdid
stórskemmdum
Það þykir sýnt, að kartöflu-
spretta verði í allra lélegasta
lagi í ár. Valda því síðkomin
vorhlýindi, kuldatíð lengst af í
sumar og þrálát votviðri í stór-
um hlutum landsins og sér í
lagi þó næturfrostin í lok ágúst-
mánaðar. Sums staðar ollu
hvassviðri í júnímánuði einnig
skemmdum í görðum.
Hins vegar hefir minna orðið
vart við sýki í kartöflum en
flest undanfarin ár, en þó hefir
stöngulveiki gætt dálítið á
stöku stað.
Mestu tjóni ollu næturfrostin
norðan lands og austan. Var
víðast á Norðurlandi fremur
slæmt útlit um vöxtinn áður en
þau komu til sögunnar, þótt nú
sé fyrst vonlaust um að upp-
skera verði sæmileg. Á Austur-
landi var sprettuútlit í meðal-
lagi víða, en einnig þar gerðu
frostin mikinn skaða.
Á Vesturlandi og í uppsveit-
um sunnan lands gætti frosts-
ins sömuleiðis svo mikið, að
kartöflugras féll. í sumum sveit-
um kom kuldinn þó eigi að
sök. Hér í Reykjavík hafa garð-
ar lítil sem engin áföll beðið
sökum frostsins. Þó er víst, að
uppskeran nær eigi meðallagi.
í Vestmannaeyjum eru upp-
skeruhorfur slæmar og veldur
þar nokkru áburðarSkortur,
sem mikið kvað að í Eyjum í
vor, auk óhagstæðrar tíðar.
Fyrsta ár styrjaldarmnar
Frystíng sláturs
Tíminn hefir átt tal við Jón
Árnason framkvæmdastjóra um
erfiðleika þá, sem víða eru á
því til sveita, að hagnýta mikið
af slátri. Jón lét svo um mælt:
— Það veldur oft miklum
örðugleikum á sveitaheimilum,
að taka á móti miklu slátri í
sjálfri sláturtíðinni og verður
þá stundum sú raunin á, að
fólk birgir sig ekki nægilega að
slátri á haustin.
Það er hægt að ráða bót á
(Framh. á 4. síðu)
Síðastliðinn sunnudag var ár
síðan að styrjöldin byrjaði. Að
morgni þess 1. sept. 1939 réðust
þýzkar hersveitir yfir landa-
mæri Póllands og hófu með því
styrjöldina.
Það var orðið augljóst nokkr-
um dögum áður, að Evrópu-
styrjöld myndi ekki verða af-
stýrt. Undanfarna mánuði höfðu
Bandamenn og Þjóðverjar
keppt um liðveizlu Rússa.
Bandamenn buðu þeim upp á
bandalag til verndar friðnum í
Evrópu. Þjóðverjar buðu þeim
upp á helming Póllands og balt-
isku ríkin, ef þeir vildu leyfa
þeim að fara að öðru ieyti sínu
fram í Evrópu.
Hinn rússneski einvaldi tók sér
nokkurn umhugsunarfrest. Ann-
ars vegar var heiður hans og öll
hin fögru loforð um Sovét-Rúss-
land' sem verndara friðarins og
smáþjóðanna. Hins vegar voru
freistandi landvinningar og
draumórar um Evrópu, sem yrði
eftir margra ára styrjöld, þægi-
legt leikfang fyrir kommúnism-
ann.
Hinn 24. ágúst hafði hinn rúss-
neski einvaldi tekið ákvörðun
sína. Maðurinn, sem gat tryggt
Evrópu friðinn, kaus heldur
styrjöldina. Þennan dag var vin-
áttusáttmálinn milli Rússlands
og Þýzkalands undirritaður í
Kreml.
Eftir það gerðu fæstir sér von-
ir um að styrjöldinni yrði afstýrt.
Hinn maðurinn, sem gat afstýrt
styrjöld, — ríkisleiðtogi Þýzka-
lands
ið við Stalin í því augnamiði, að
hefja styrjöld gegn Póllandi.
Hin ægilega saga þessa eina
árs, sem styrjöld hefir staðið, er
enn í fersku minni. Undirokun
Póllands, Noregs, Danmerkur,
Luxemburg, Hollands, Belgíu,
Frakklands, Eistlands, Lettlands,
Lithauen og nokkurs hluta Rú-
meníu og Finnlands, eru atburð-
ir, sem ekki gleymast. Sjaldan
hafa þeir, sem unna frelsi og
rétti, búið við ömurlegri reynslu.
Hvað verður mönnum minnis-
stæðast frá fyrsta styrj aldarár-
inu?
Verður það hið „rómverska
hrun“ hins stolta franska her-
veldis, sem taldi sig hafa beztu
Síldveiðin.
frálags. —
- Sjóðþurrðin í Dagsbrún. — Úr Eyjum. — Dilkar allvænir til
Vinnustöðvun. — Maður drukknar. — Drengur verður undir
enskri bifreið. — Landhelgisbrot. ----------
Síldaraflinn nam 2345221 hektólítrum anum í morgun. Báðir mennirnir eru
Bæjarmálefni
Reyk j avíkur
í blaðinu í dag hefst
löng framhaldsgrein, sem
nefnist: Bæjarmálefni
RCTkjavíkur.
I þeim hluta greinar-
innar, sem birtist í blaðinu
í dag, er sýnt fram á, að
núverandi örðugleikar
bæjarins eiga ekki rætur
sínar að rekja til þess, að
Reykjavík búi við einhver
önnur og verri kjör af
hálfu löggjafans en aðrir
staðir á landinu, en sú
hefir jafnan verið skýring
stjórnenda bæjarins, þeg-
ar þeir hafa verið að rétt-
læta hina bágu afkomu
bæjarfélagsins.
í þeim kafla greinarinn-
ar, sem birtist í næsta
blaði, verður gerð grein
fyrir hinum raunverulegu
orsökum til þess ástands,
sem nú ríkir í atvinnumál-
um og fjármálum bæjar-
ins.
bræðslusíldar og 80323 tunnum salt-
síldar um síðustu helgi. Um svipað leyti
í fyrrasumar nam sildaraflinn 1145372
hektólítrum og 215410 tunnum. Skipið,
er mestan afla hefir fengið, er Tryggvi
gamli, alls 26416 mál bræðslusíldar og
207 tunnur söltunarsíldar. Af línuveið-
urunum er Ólafur Bjamason aflahæst-
ur enn sem fyrr, hefir fengið 22150 mál
af síld til bræðslu og 155 tunnur til
söltunar. Aflahæsti vélbáturinn er Dag-
ný með 16482 mál bræðslusíldar og 104
tunnur i salt.
t t t
í síðastliðinni viku handtók lög-
reglan formann verkamannafélagsins
Dagsbrún, Einar Björnsson, og ráðs-
mann þess, Martein Gíslason, eftir að
kæra hafði borizt frá meðstjómendum
um fjárdrátt af hálfu þess fyrrnefnda
og vanrækslu hins síðartalda. Hafði á
því gengið í sumar, að formaður var
tregur tíl að halda stjórnarfundi, þótt
meðstjómendur krefðust þess. Kom þar
að þeim þótti ekki allt með feldu og að
lokinni athugun og endurskoðun á fjár-
reiðum félagsins, sem allar voru í
höndum formanns og ráðsmanns,
ákváðu þeir að kæra athæfi þeirra.
Sakadómari hefir mál þetta til með-
ferðar og rannsókn enn eigi lokið. Ein-
ar mun vera sannur að því að hafa tek-
ið úr sjóðum félagsins nokkuð yfir 20
þúsund krónur. Rannsókn málsins
stendur enn yfir, en verður þó brátt
lokið, að því er sakadómari tjáði Tím-
enn í gæzlu. Ekkert hefir enn verið
látið uppskátt um það, er fram hefir
komið við réttarhöldin og verður eigi
gert fyr en þeim er lokið.
t r t
í Vestmannaeyjum hefir allgóður afli
í sumar, en gæftir slæmar. Allmikið
hefir veiðst af lýsu, en henni hefir
verið fleygt í sjóinn aftur að verulegu
leyti, því að enginn sölumarkaður er
fyrir hana. En nú hefir hraðfrysti-
stöðin í Eyjum byrjað að kaupa lýsu
og annan úrgangsfisk. Er gott til þess
að vita, að reynt sé að nýta allt, sem
úr sjónum kemur, sem eigi hefir áður
þótt verðmætt. Flatfisksveiði er að verða
lokið. Upp á síðkastið hafa bátar veitt
dálítið af ýsu.
t r r
Dilkar þeir, sem slátrað hefir verið
það sem af er sumrinu, hafa yfirleitt
reynzt dável til frálags. Þótt erfitt sé
að ráða vænleika og holdfar fénaðarins
almennt af því, hvernig lömb þau reyn-
ast, sem flutt eru eða rekin til slátrun-
ar að sumrinu, gefur þetta góðar von-
ir um að fé sé vel í meðallagi að væn-
leika að þessu sinni. Margir bændur
telja og, að lömbin séu bústin og fal-
leg að sjá í haganum, og hið sama hafa
ýmsir ferðamenn, sem nýkomnir eru
til bæjarins, tjáð Tímanum.
r r r
Til vinnustöðvunar kom á dögunum við
hitaveitugerðina. Voru tildrög vinnu-
Maðurinn, sem gat tryggt Evrópu
friðinn, en kaus heldur styrjöldina.
hermenn heimsins og fullkomn-
ustu varnarvirki og lifði á bak
við þau áhyggjulitlu og iðjulitlu
lífi þangað til allt var orðið um
seinan?
Verður það ekki frekar vörn
finnsku smáþjóðarinnar, sem
varðist margföldu ofurefli mán-
uðum saman og tókst — a. m.
k. í bili — að bjarga sér undan
geigvænlegri kúgun?
Maginotlínan — Mannerheim-
línan! Sennilega hafa ekki önnur
orð verið nefnd oftar fyrsta ár
styrjaldarinnar. Maginotlínan
var varnargarður auðugs stór-
veldis, þar hafði ekkert verið
sparað, — allt var þar saman
komið, er mannlegt hugvit hafði
ímyndað sér að til gagns gæti
orðið gegn árásarher. Manner-
heimlínan var varnarvirki fá-
,v , tækrar þjóðar, sem ekki gat leyft
hafði aiiösjaanlega sam- gér mikij hernaðarútgjöld, þótt
hún væri öll af vilja gerð, —
þar var notast við gamlar fall-
byssur, úrelt tæki, ófullkomin
vígi. Samt stóðst Mannerheim-
línan lengur en Maginotlínan,
vörn finnsku þjóðarinnar varð
sigursælli en vörn frönsku þjóð-
arinnar. Hvers vegna? Svörin
verða vafalaust ekki á eina leið.
En eitt er víst. Mannerheim-
línan var meira en byssurnar og
vígin. Hún var meira en það,
sem augu gátu séð og eyru
heyrt. Hún var i órjúfandi
tengslum við óbilandi frelsisþrá
samhentrar þjóðar, sem lét eng-
ar blekkingar villa sér sýn á
því, sem í húfi var. Það gerði
Mannerheimlínuna fyrst og
fremst sterka. Það gerði gæfu-
mun Finna og Frakka.
Fyrir smáþjóðirnar er ekki
ástæða til að minnast fyrsta
styrjaldarársins eingöngu með
hryggð og kvíða.Merkustu sigrar
ársins voru ekki unnir af stór
veldunum, heldur af fátækri
smáþjóð, sem var frelsi sínu trú.
Það ætti að veita smáþjóðum
aukna trú á lífsmátt þeirra og
kenna þeim að skipa sér fastar
saman um helgasta málefni
þeirra, frelsið.
Um hin endanlegu úrslit
eru menn ennþá jafn ó-
fróðir og fyrsta dag styrjaldar-
innar. Einræðisherrarnir geta
hrósað sigri til þessa. Þeim hefir
enn fylgt mikil gæfa við undir
okun hinna máttarminni þjóða.
En England er ósigrað enn. Eng-
land er nógu strekt til að þola
ósigra, sagði Palmerston. Eng-
land vinnur alltaf seinustu or-
ustuna, sagði Napoleon. í vestr
inu vígbýst hið annað mikla lýð-
ræðisríki af geysilegu kappi.
Lýðræðið hefir enn ekki verið
sigrað.
stöðvunarinnar þau, að danska fyrir-
tækið, sem tekið hefir að sér að koma
hitaveitunni á, Höjgaard og Schultz,
hafði brotið gerða samninga, að því er
verkamenn telja, um burtfarartíma úr
Reykjavík fyrir þá menn, sem vinna
upp í Mosfellssveit. Þegar verkamenn
neituðu að fara fyrr til vinnunnar en
tilskilið var, samkvæmt samkomulagi
milli fyrirtækisins danska og verka-
mannafélagsins, gripu fulltrúar Höj-
gaard og Schultz til þess bragðs að
stöðva vinnu. Þetta gerðist 27. ágúst-
mánaðar. Nú hefir samkomulag komizt
á að nýju.
t r t
Það slys henti fyrir röskri viku síðan,
að Gunnlaugur Baldvinsson frá Rauðu-
vík á Árskógsströnd féll útbyrðis af
síldveiðiskipi og drukknaði. Slysið bar
að undan Rauðanúpi.
r r r
Á föstudaginn var varð 7 ára gamall
drengur í Hafnarfirði, Vilhjálmur
Kjartan Jensson á Suðurgötu 56, undir
brezkri herbifreið. Brotnaði höfuðkúp-
an og dó barniö samstundis.
r r r
í síðastliðinni viku tók varðbáturinn
Faxi togarann Sindra, þar sem hann
var að veiðum í landhelgi í Arnarfirði.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði, Jóhann
Skaftason, dæmdi skipstjórann í 29.500
króna sekt og gerði upptækan afla og
veiðarfæri. Skipstjórinn hefir áfrýjað
dómi þessum.
Aðrar fréttir.
A Vínarfundinum, sem getið
var um í seinasta blaði, neyddu
öxulríkin Rúmeníu til aö af-
henda Ungverjum % hluta
Transylvaniu eða sem svarar 45
þús. km,- af landi. Eiga Rúm
enar að hafa afhent þessi hér-
uð innan 14 daga. í mörgum
þessum héruðum eru Rúmenar
í meirahluta og alls munu um
ein millj. Rúmena verða bú-
settir á þessu landsvæði. Ung-
verjar, sem búa þar, eru nokkru
A víðavangi
SLÁTRUNIN.
Sérstök ástæða þykir til þess
að vekja athygli á grein Páls
Zophóníassonar, sem birtist
neðanmáls í blaðinu í dag.
Vegna þess að saltkjötsmark-
aðurinn á Norðurlöndum hefir
lokast, en hins vegar mun fást
meiri markaður fyrir fryst kjöt
en venjulega, verður nú að
frysta megnið af því kjötmagni,
sem hefði verið saltað undir
venjulegum kringumstæðum.
Til þess að ná þessu marki,
þurfa að verða verulegar breyt-
ingar á slátruninni víða um
land. Er þetta nánar rakið í
grein Páls og eru þeir, sem
þetta mál varðar, hvattir til að
lesa hana.
SÍLDARMJÖLSVERÐIÐ.
Bændastétt landsins er yfir-
leitt mjög fylgjandi því, að hafa
sterka landsstjórn á erfiðum
tímum. Ríkisstjórnin hefir sýnt,
að hún á þetta traust skilið með
dví að ákveða, að síldarmjöl til
fóðurbætis verði ekki nema 25
kr. sekkurinn eða lítið eitt lægra
en í fyrra. Þetta er réttlátt, af
dví ekki er sýnilegt, að hærra
verð fáist fyrir þetta mjöl er-
lendis, og þetta er heppilegt af
oví, að eftir hið vonda sumar
er óvenjuleg þörf fyrir fóður-
bæti. Talið er að sumir for-
ráðamenn síldariðnaðarins hafi
verið á móti ríkisstjórninni í
oessu máli. Fulltrúar bænda á
Alþingi ættu að fá varnarskjöl
oeirra dánumanna til birtingar
fyrir vorið. Það er gott að þjóð-
in fái vitneskju um það, hverjir
af þessum forráðamönnum voru
fúsir að níðast á bændastétt
landsins í þessu máli.
TJARNARBRÚIN.
«
Talsverða athygli vekur það
í bænum, að verið er nú að rífa
Tjarnarbrúna og virðist eiga að
reisa miklu stærri brú í stað
hennar. Þykir flestum þetta hið
mesta óráð, þvi að það yrði
margfalt ódýrara að láta fylla
upp í skarðið, þar sem brúin er
nú. Fer ekki hjá því, að þessi
nýja brú verði mjög dýr, eins
og verðlagi er nú háttað. Er
þetta lítil spegilmynd af þeirri
óhagsýni og eyðslusemi, sem
einkennir stjórn bæjarins á
flestum sviöum. Ekki getur ver-
ið neinum fegurðarsmekk hér
til að dreifa, því að brúartildur
á þessum stað er ekki í neinu
samræmi við umhverfið.
dr. GUÐBRANDUR.
Þau tíðindi hafa gerzt, að
nokkrir sómamenn hafa undir-
skrifað skjal um að veita Guð-
brandi Jónssyni þularstarfið við
útvarpið, og eru um þetta grein-
ar í blaði kramvörukaupmann-
anna. Guðbrandur hefir annars
átt fremur erfitt uppdráttar um
æfina. Hann sagðist vera doktor
frá Greifswald, en það mun þó
álit fróðustu manna, að Guð-
brandur hafi búið sjálfur til
doktorshattinn.Síðar ritaði hann
harða ádeilu um dr. Björn Þór-
ólfsson fyrir útvarpsræðu, sem
dr. B. Þ. hafði aldrei haldið.
Var Guðbrandur þá um tima
útlægur ger frá Vísi, sem hafði
birt ádeiluna.Að lokum lét Guð-
brandur svo um mælt í frönsk-
um texta um ísland, eins og „ís-
lenzk stúlka“ væri sama og
léttúðardrós". Þessi maður á að
vera allsherj arrödd íslendinga,
samkvæmt beiðni hinna vitru
manna.
færri. Þeir Rúmenar, sem vilja
flytja þaðan til Rúmeníu, eiga
að hafa tilkynnt það innan
hálfs árs og vera fluttir burtu
eftir ár. í Rúmeníu hefir þess-
um úrskurði öxulríkjanna ver-
ið tekið mjög illa og hefir víða
komið til mikilla óeirða, bæði
þar og í Transylvaniu. Víða
(Framh. á 4. síðu)