Tíminn - 03.09.1940, Qupperneq 4
340
TÍMIiyiy. þriSjndagiim 3. sept. 1940
85. Mað
Á leið til skjaJa-
pakkanna
Pyrir nokkru birtu tvö af dagblöðum
Reykjavíkur, Mbl. og Alþbl., greinar-
stúf eftir Vilm. Jónsson, um vissan þátt
af störfum landlæknis viðvíkjandi eftir-
liti með hegningarverðum læknisað-
gerðum. Landlæknir virðist síðan hafa
sent lögreglunni afrit af greininni, og
mun það plagg nú komið 1 rólega höfn
í skjalapökkum lögreglumálanna. Þar
sem landlæknir óskar eftir aðstoð minni
við embættisstörf sín, án þess að færa
fyrir því eðhlegar og lagalegar ástæður,
vU ég biðja Tímann fyrir eftirfarandi
athugasemd.
Sú meinloka hefir komizt inn í höfuð
landlæknis, að ég eigi að taka á mitt
bak eitthvað af skyldubyrði þeirri, sem
hvílir á embætti hans, svo sem það að
hafa hendur í hári lækna, sem fremja
hegningarvert athæfi í sambandi við
heUbrigðismál. Þessi meinloka stendur
vafalaust í sambandi við hugtakarugl-
ing út af nýyrðagerð hans á enskri
tungu. Þrátt fyrir ýtarlegar umræður,
er landlækni enn ekki ljós munurinn á
„private gentleman" og „public gentle-
man“. Vegna stöðu sinnar sem hálaun-
aður „public gentleman“, ber honum að
vera sífellt á verði og stöðuglega að
hafa eftirlit með daglegum athöfnum
þeirra lækna, sem hugsanlegt er að
framkvæmi fóstureyðingar á ólöglegan
hátt, og uppræta á þann hátt spilling-
una, með valdi og aga húsbóndans. Ég
er aftur á móti aðeins „private gentle-
man“, og ber mér ekki minnsta skylda
til að taka á mig þau störf, sem tilheyra
embætti Vilm. Jónssonar, og sem hon-
um er ríkulega borgað fyrir að vinna.
Aftur á móti er það mjög heppilegt, að
„private gentlemen" hafi almennan á-
huga fyrir heilbrigði borgaranna í land-
inu. Og að því er kemur til minna kasta,
vona ég að geta átt nokkurn þátt í að
fólk fái almenna fræðslu um skaðsemi
fóstureyðinga, vegna þess, hve illar afr
leiðingar þessar aðgerðir hafa fyrir lík-
amlegt og andlegt heilbrigði þjóðar-
innar.
Ég vildi mega óska þess, að Vilm.
Jónsson öðlist vaxandi áhuga og aukið
þrek við að bera þær byrðar sem hvíla
á honum sem „public gentleman".
En að því er snertir þetta mál, mun
ég senda lögreglunni í Reykjavík afrit
af þessu greinarkomi, með ósk um að
það megi fá samastað um ókomnar
aldir rétt ofan á hinni órólegu og ó-
tímabæru ósk Vilm. Jónssonar um til-
efnislausa og óframkvæmanlega aðstoð
mína við að létta af honum lögboðn-
um embættisskyldum.
J. J.
MáleSni Reykja-
víkurbæjar
(Framh. af 2. siðu)
að þessu varð að breyta. í
nefndaráliti allsherjarnefndar
neðri deildar segir: „Nefndar-
menn eru allir sammála um að
leggja til að frumvarpið verði
samþykkt, en hafa þó óbundnar
hendur um að flytja eða fylgja
breytingartillögum, sem. fram
kunna að koma við einstök at-
riði frumvarpsins.“ í nefndinni
voru: Héðinn Valdimarsson,
Bergur Jónsson, Stefán Jóhann
Stefánsson, Thor Thors og
Garðar Þorsteinsson. — Jón
Pálmason segir um framfærslu-
lögin: „ ... mjög er brýn þörfin
á þeim réttarbótum, sem hér er
um að ræða.“ Þorsteinn Þor-
steinsson segir: „Ég tel frum-
varp þetta til bóta og að mörgu
leyti til stórbóta." Af þessu, og
mörgu öðru, sem nefna mætti
úr umræðunum á Alþingi, verð-
ur ljóst, að það voru ekki Fram-
sóknarmenn einir, sem voru
þeirrar skoðunar, að þessi lög
tJR BÆNUM
Um daginn og veginn.
(Eftir lestur greinar J. J.: „A public
gentleman"):
Launin hirðir landlæknir
lítið störfum þjónar.
Heima stundar hannyrðir,
heklar, saumar, prjónar. Z.
Úrvalsljóð EinarsBenediktssonar
eru nýkomin út. Hefir Jónas Jónsson
alþm. valið ljóðin, en útgefandi er Már
Benediktsson. Bókin er hin vandaðasta
að öllum frágangi, í sama broti og ís-
lenzk úrvalsljóð. Bókaverzlun ísafold-
arprentsmiðju annast sölu bókarinnar.
Ásgeir Bjamþórsson
listmálari opnaði nýlega málverka-
sýningu í húsakynnum Útvegsbanka
við Lækjartorg. Er þar saman komið
allmikið og merkilegt safn gamalla og
nýrra málverka eftir Ásgeir.
Úlfar Þórðarson
læknir hefir nú opnað lækningastofu
í Kirkjuhvoli. Er Úlfar nýkominn heim
frá útlöndum, en þar hefir hann stund-
að nám í sérgrein sinni, augnsjúkdóm-
um.
Frystíng sláturs
(Framh. af 1. síðu)
þessu, með því að þau sveita-
heimili, sem eiga aðgang að
frystihúsum, láti frysta slátrið
á haustin, og fái það geymt
fram eftir vetri. Hafa nokkur
l^auþfélög fryst blóð, mör,
vambir og lifxar. Hefir þetta
reynst ágætlega og talsvert
verið selt af frosnu slátri til
Reykjavíkur undanfarna vet-
ur og fer sú sala vaxandi. Þá er
enganveginn betra að geyma
hausa til vetrarins, en að frysta
þá. En jafnan skal urysta þá
með ullinni. Sviðnir hausar
geymast illa í frosti.
Bændur þurfa að gera meira
að því, en hingað til hefir tíðk-
ast, að nota sín eigin frystihús
til matvælageymslu.“
væru nauðsynleg, þótt þeir
bentu hinsvegar á það, Jakob
Möller og Magnús Jónsson, að
lögin myndu valda Reykjavík-
urbæ auknum útgjöldum.
Atkvæðagreiðslan í efri deild
Alþingis, þegar frumvarpið varð
að lögum, sannar bezt, að það
var ekki „löggjafarvald and-
stöðuflokka Sjálfstæðismanna“,
sem hér var að verki, því að
frumvarpiff var samþykkt meff
fimmtán samhljóffa atkvæffum.
Framfærslulögin nýju voru því
ekki sett „af löggjafarvaldi and-
stöffuflokka Sjálfstæffismanna“.
Slíkt hefir ekki viff nein rök aff
styffjast. Eins og að framan seg-
ir var beinlínis mælt með lög-
unum af þingmönnum Sjálf-
stæðismanna, og meginhluti
þeirra greiddi atkvæði með
frumvarpinu, — vitanlega vegna
þess að þeir töldu breytinguna
réttláta og til bóta.
Þegar þessar staðreyndir hafa
verið dregnar fram í dagsljósið,
er ekki orðið mikið eftir af þeim
afsökunum, sem bornar hafa
verið fram fyrir því, hvernig
högum Reykj avíkurbæj ar er nú
háttað. Orsakirnar til fjárhags-
vandræðanna liggja í allt öðru,
og mun það rakið hér á eftir.
Frh. ***
UTS ALA
• r
a prjonayornm
í tlag', iniðvikudag' og’ ffmmtiidag.
VESTA, Laugaveg 40
(Útsalan er ekki í búðinni á Skólavörðustíg 2).
w
Utsvðr. -- Dráttarvextír.
Atvinnurekendur og aðrir útsvarsgjaldendur í
Reykjavík, sem greiða ekki útsvör af kaupi sínu viku-
eða mánaðarlega, eru minntir á, að nú um mánaðamót-
in falla dráttarvextir á annan hluta útsvaranna 1940.
Þessum gjaldendum ber að greiða útsvörin mán-
aðarlega í 5 jöfnum hlutum og var fyrsti gjalddagi
hinn 1. júní þ. á.
BORGARRITARINN.
» •
Hefl opnað
lækningastofu í Kirkjuhvoli við Kirkjutorg.
Viðtalstími kl. 10—11 f. hád. og 5V2—6V2 e. hád.
Sími 3020, heima 4411.
ÚLFAR ÞÓRÐARSON
læknir.
SÉRGREIN: AUGNSJÚKDÓMAR
Aðrar fréttir.
(Framh. af 1. síðu)
hafa óeirðirnar beinst gegn er-
indrekum Þjóðverja. í blöðum
hlutlausra landa er úrskurður-
inn talinn mjög óréttlátur.
Ungverjar og Rúmenar hafa
fallizt á að veita hinum þýzku
minnihlutum í Ungverj alandi
og Rúmeníu ýms aukin réttindi.
Þjóðverjar hafa aftur hafið
loftárásir á Bretland í stórum
stíl eða með svipuðum hætti og
dagana 8—18 ágúst. Hafa þeir
haldið uppi slíkum árásum síð-
an á föstudag. Segjast þeir að-
allega beina árásum sínum
gegn flugvöllum. Margar árásir
hafa verið gerðar á London.
Bretar telja tjón ekki mikið, og
hlutföllin milli flugvélatjóns
Breta og Þjóðverja haldist enn
óbreytt.
Brezki flugherinn færir í auk-
ana næturárásir sínar á hern-
aðarstöðvar Þjóðverja á megin-
landinu. Hefir hann þegar gert
nokkrar árásir á verksmiðjur
og flugvelli við Berlín og fyrir
skömmu gerði hann allmikla
árás á Múnchen. Þjóðverjar
telja eignatjónið lítið, en segja,
að nokkurt manntjón hafi
orðið Bretar telja árásirnar á
Berlín m. a. þýðingarmiklar
sökum þess, að Þjóðverjar
höfðu sagt loftvarnir borgar-
innar svo fullkomnar, að engin
brezk flugvél myndi geta gert á-
rás á hana.
Landið vort skal aldrei okað
undir nýjan hlekk.
Ekki úr spori aftur þokaö,
ef að fram þaö gekk.
Rétt ei foma Fróni helzi
fyrir sigurkrans.
Vörð um heill þess, hag og frelsi
heldur Guð vors lands.
Einar Benediktsson.
ÚRVALIÐ
er komið út
og er í sama formi og íslenzk
úrvalsljóð.
Aðalútsala:
Bókaverzlun
ísafoldarprentsmiffju.
I.
Það var eins og hjarta stórborgar-
innar hætti skyndilega að slá. Umferð-
in stanzaði, og við hornið á Picadilly
hvein í lögregluflautu. Bílstjórarnir
hemluðu. Rétt á eftir barst í gegnum
skvaldrið á götunni skerandi hljóð, ó-
heillavænlegt, nístandi hljóð, sem
allir Lundúnabúar þekktu. Bílstjór-
arnir óku bílunum út að gangstéttinni.
Fólkið hraðaði sér af götúnni, og nú fór
svartur bíll með rauðum krossi á hvít-
um grunni, framhjá með miklum
hraða.
Það fór hrollur um mannfjöldann:
Sjúkrabíllinn — — — ! Það hlýtur
eitthvað að hafa skeð — — — ! Tíu
sekundum seinna heyrðist flautað á
ný — frá sama stað. Bílstjórarnir biðu.
Fólksþröngin óx stöðugt og lögreglan
bandaði aðvarandi með höndunum —
nýr svartur vagn með rauðum krossi
þaut framhjá.
„Stórslys", heyrðist hvíslað víðsvegar
í mannþrönginni.
Fáum sekundum seinna kom enn
svartur vagn með rauðum krossi á hvít-
um grunni og rétt á eftir heyrðist hið
sterka hljóð fjórða sjúkrabílslúðursins.
Kandís 1.90 kg'r.
Vanillestengur,
Vanillesykur,
Marmelit,
Betamon,
Sultuglös,
Korktappar, 4 stærffir,
Flöskulakk,
Cellofanpappír.
ökaupfélaqió
•GAMLA BÍÓ"
Jamaíca-krám
Stórfengileg og spennandi
kvikmynd, gerð eftir skáld-
sögu Daphne du Maurier.
Aðalhlutverkið leikur einn
frægasti leikari heimsins,
CHARLES LAUGHTON.
Ennfremur leika
MAUREEN O’HARA Og
LESLIE BANKS.
Sýnd klukkan 7 og 9.
Börn fá ekki affgang.
~~~~~“NÝJA BÍÓ—
' í sátt
við dauðaim
(DARK VICTORY)
Amerísk afburðarkvik-
mynd frá Warner Bros., er
vakið hefir • heimsathygli
fyrir mikilfenglegt og al-
vöruþrungið efni og frá-
bæra leiksnilld aðalper-
| sónanna,
GEORGE BRENT og
BETTE DAVIS.
Sýnd í kvöld kl. 7 og 9.
Affgöngum. seldir frá kl. 1.
Eillilaun og
örorkubætur
Umsóknum um ellilaun og örorkubætur fyrir
árið 1941, skal skilað fyrir LQK ÞESSA MÁN-
AÐAR.
Umsóknareyðublöð fást í Góðtemplarahúsinu
alla virka daga kl. 10—12 og 2—5. Umsækj-
endur geta fengið aðstoð við að fylla út eyðu-
blöðin á sama stað og tíma. Þeir eru sérstak-
lega beðnir um, að vera við því búnir að gefa
upplýsingar um eignir sínar, tekjur frá 1. okt.
1939 og um framfærsluskylda ættingja sína,
(börn, kjörbörn, foreldra, kjörforeldra og
maka).
Athygli skal vakin á því, að í þetta sinn verða
notuð önnur umsóknareyðublöð en áður, og
verða umsóknirnar að vera ritaðar á þau.
Allir þeir, sem sækja um ÖRORKBÆTUR
(fólk á aldrinum 16—67 ára) verða að fá ör-
orkuvottorð hjá TRÚNAÐARLÆKNI TRYGG-
INGARSTOFNUNAR RÍKISINS. Trúnaðar-
læknirinn verður fyrst um sinn til viðtals í
lækningastofu sinni, VESTURGÖTU 3, alla
virka daga aðra en laugardaga, kl. 1—3 síð-
degis. Umsækjendur eru hvattir til þess að
afla sér vottorðanna sem fyrst, til þess að
forðast ös síðustu dagana.
Menn, sem sækja um ELLILAUN EÐA ÖR-
ORKUBÆTUR í FYRSTA SINN, láti fæð-
ingarvottorð fylgja umsókninni.
Umsækjendur sendi umsóknir sínar sem fyrst,
helzt fyrir 15. þ. m.
Borgarstjóriuii.
TIl brnóar^jafa
1. Ilokks handslípaður KRISTALL
og ekta KUN ST-KER AMIK.
K. Eínarsson & Björnsson.
Tilkynning
um einsteinuakstur.
Það tilkyimist hérmeð með tilvísun til
45. greinar lögreglusamþykktar fyrir
Hafnarf jörð, að frá klukkan 12 á há-
degi miðvikudagiim 4. september
næstkomandi má aðeins aka bifreið-
um og bifhjólum frá vestri til austurs
eftir Lækjarg'ötu á kaflanum frá
Strandgötu að Brekkugötu. Brot gegn
»
fyrirmælum þessum varða sektum allt
að 1000 krónuin, samkvæmt 91. grein
lögreglusamþykktarinnar.
Þetta tilkynnist hérmeð til eftir-
breytni.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, 2. sept. 1940.
Bergur Jónsson.