Tíminn - 05.11.1940, Síða 4
432
M, þriSjndagiiui 5. nóv. 1940
108. blað
ÚR BÆKfUM
Meinleg misritun
var í frásögninni um fundinn, sem
hafði mjólkurmálin til meðferðar og
birt var í síðasta tölublaði. Þar er sagt,
að tekizt hafi að laekka dreifingar-
kostnaðinn úr meira en 16 aurum á
lítra að meðaltali í 0,962 aura á lítra.
Á að vera: að lœkka drei/ingar- og
stöðvarkostnaöinn úr meira en 16 aur-
um í rúma 3 aura á lítra.
Hin nýja skáldsaga
Davíðs Stefánssonar, Sólon Islandus,
er komin út. Eins og áður hefir verið
sagt frá, er þetta mikið ritverk, tvö
bindi, hvort um 300 blaðsíður að stærð.
Er þetta ein hin stærsta skáldsaga, sem
skrifuð hefir verið á Islenzku Hún fjall-
ar um Sölva Helgason, flækinginn
landskunna.
Háskóli íslands
hefir ráðið þá Björn Ólafsson fiðlu-
leikara og Árna Kristjánsson píanó-
leikara til að halda hljómleika fyrir
stúdenta og háskólakennara í vetur.
Þessir hljómleikar verða 6, en hver og
einn verður endurtekinn fyrir almenn-
ing. Fyrstu hljómleikarnir verða 13.
nóvembermánaðar, en endurteknir 15.
nóvember fyrir almenning. Verður leik-
in frönsk tónlist. í desembermánuði
verður norræn tónlist, en þýzk í jan-
úar-mánuði. Hljómleikarnir fara fram
í hátíðasal háskólans, en þar eru sæti
fyrir 200 manns.
Leikfélag Reykjavíkur
sýndi leikritið Loginn helgi síðastlið-
inn sunnudag fyrir troðfullu húsi og
fékk leikurinn hinar beztu viðtökur. —
Aðsókn að þessu ágæta leikriti fer vax-
andi með hverri sýningu. — Athygli
skal vakin á því að næsta sýning verð-
ur annað kvöid, en ekki á fimmtudag
eins og venja er til, en í næstu viku
verður frumsýning á leikritinu „Öldur“
eftir séra Jakob Jónsson.
Hallbjörg Bjarnadóttir
heldur næturhljómleika í Gamla Bíó
annað kvöld. Hefjast þeir klukkan
11,30. Hljómsveit leikur undir við stjórn
Jóhanns Tryggvasonar.
Knattspyrnufélagið Fram
heldur aðalfund sinn á fimmtudags-
kvöldið í Varðarhúsinu. Fundurinn
hefst klukkan 8,30.
„Grímur á gráa frakkanum.“
Svargrein frá M. T. er væntanleg í
blaðinu á laugardaginn.
Þýzk flugvél flýgur
yfir Reykjavík
(Framh. a/ 1. síöu)
Engin loftvarnamerki voru
gefin, er flugvélina bar að, nema
á tveim eða þrem bækistöðvum
setuliðsins. Mun orsökin hafa
verið sú, að enginn vissi fyrr til
en flugvélin var komin yfir bæ-
inn, en þá var skothríð hafin á
hana í mesta skyndi frá varnar-
stöðvunum.
Það er talið, að í síðastliðinni
viku og um helgina síðustu hafi
Bretar haft venju fremur mikinn
skipakost hér við land. Má vera,
að ferðalag flugvélarinnar hafi
staðið í sambandi við þessar
skipakomur og erindi flugmann-
anna hafi meðal annars verið
það, að kynna sér ht^rsu mikill
þessi skipastóll væri, verkefni
hans og umsvif. Aðrir geta sér
þess til, að erindið hafi verið að
taka myndir af hinum helztu
bækistöðvum Breta hér.
Við þessa heimsókn hefir það
rifjast upp, að talið var að sézt
hefði til þýzkrar flugvélar í Lóni
og jafnvel víðar austan lands 28.
október.
F orsetakosningarnar
(Framh. a/ 1. síöu)
Milli þeirra hefir kosningabar-
áttan verið háð.
í kosningabaráttunni hefir
borið meira á utanríkismálum
en innanríkismálunum. Bæði
Roosevelt og Willkie hafa
keppzt við að lofa Bretum sem
mestri hjálp og sýnir það betur
en nokkuð annað, hvert vera
muni almenningsálitið í Banda-
ríkjunum um þessar mundir.
Willkie hefir gefið enn ákveðn-
ari loforð en Roosevelt, enda
hefir Roosevelt orðið að tala
gætilegar, þar sem hann gegndi
mestu ábyrgðarstöðu ríkisins.
Þó virðist svo, að almenningur
beri meira traust til Roosevelts
í þessum málum, þar sem menn
vita af verkum hans, hver
stefna hans er, en verða hins
vegar að dæma Willkie eftir lof-
orðunum einum. Það kann líka
að hafa spillr eitthvað fyrir
Willkie, að hann er af þýzkum
ættum og hefir hlotið mildari
dóma í blöðum öxulríkjanna en
Roosevelt.
Willkie hefir ferðazt meira og
flutt fleiri ræður en nokkurt
annað forsetaefni hefir áður
gert. Roosevelt hefir hins vegar
lítið getað ferðazt, sökum em-
bættisanna.
Starfsemí Framsókn-
arilokksíns
(Framh. a/ 1. síðu)
félagsstofnun í Álftaveri á fjöl-
mennum fundi og kosin þriggja
manna undirbúningsstjórn, þeir
Jón Gíslason, Norðurhjáleigu,
Bjarni Bárðarson, Holti, og Ein-
ar Jóhannesson, Herjólfsstöðum.
Gert er ráð fyrir að þetta félag
verði einnig fyrir Skaftártung-
una.
Þá kaus hver flokksdeild tvo
menn, sem sæti eiga, auk for-
manna, í fulltrúaráði Fram-
sóknarflokksins í sýslunni.
Skipa þá eftirtaldir menn full-
trúaráðið, auk formannanna:
Frá Dyrhólahreppi Sigurjón
Árnason, Pétursey, og Stefán
Hannesson, Litla-Hvammi;
Hvammshreppi, Gísli Skafta-
son, Lækjarbakka, og Magnús
Finnbogason, Reynisdal; Kirkju-
bæj ar- og Hörgslandshreppi
Helgi Jónsson, Seglbúðum, og
Siggeir Lárusson, Kirkjubæjar-
klaustri; Meðallandi Hávarður
Jónsson, Króki, og Markús
Bjarnason, Rofabæ. Framsókn-
arfélag Álftavers- og Skaftár-
tungu á óskipað í fulltrúaráðið.
Hinn mesti áhugi Tíkir með-
al flokksmanna í V-Skafta-
fellssýslu og glöggur skiln-
ingur fyrir því, að Fram-
sóknarflokkurinn er eina vígi
þeirra, sem landbúnað stunda.
Hin nýstofnuðu Framsóknarfé-
lög í þessu sveitakjördæmi eiga
því áreiðanlega eftir að vaxa
mikið. Barátta Framsóknar-
flokksins fyrir málefnum dreif-
býlisins verðskuldar skilning og
áhuga allra, sem þar búa. Um
frábæran áhuga er t. d. vert að
geta þess, að Guðlaugur Ólafs-
son bóndi á Blómsturvöllum í
Fljótshverfi sótti flokksfund að
Bókaútgpáfa Menníngarsjóðs
og Þjóðvmafélagsíns
Skrifstofa: Austurstræti 9, Reykjavík.
Opið kl. 10—12 og 2—4. Sími 3652. Pósthólf 313
Sókn öxulríkjanna
(Framh. a/ 1. síðu)
stjórnir í hlutlausum löndum
eins og Búlgaríu ganga í lið með
Þjóðverjum, eftir að hafa'1 gert
mat á sigurmöguleikum styrj-
aldaraðilanna. Öll smáríkin eru
dáleidd af sigurfrægð og full-
komleika hins þýzka hers. Þau
sjá hárrétt hina glæsilegu sigra,
en þau gera sér ekki grein fyrir
getu hinna gömlu, voldugu
þjóða, sem Þjóðverjar eiga í
höggi við, til að þola mótlæti,
vonbrigði og lélega stjórnendur,
til að endurreisa og endurnýja
styrk sinn og til að halda styrj-
öldinni áfram með óbilandi
stööuglyndi, unz hinu fyrir-
heitna marki er náð.“
Hólmi í Landbroti, sem er yfir
30 km. vegalengd, í hinu versta
veðri.
Sunnudaginn 3. nóv. var al-
mennur flokksfundur Fram-
sóknarmanna haldinn í Vík.
Sóttu hann um 70 manns, flest-
ir úr Mýrdalnum en þó nokkr-
ir austan yfir Mýrdalssand.
Fundarstjóri var Þórarinn
Helgason, Þykkvabæ, en fundar-
ritari Einar Erlendsson, Vík.
Aðalræðuna flutti Eysteinn
Jónsson viðskiptamálaráðherra,
og var mikill rómur gerður að
henni. Auk hans fluttu ræður:
Sveinn Einarsson, Reyni, Dan-
íel Ágústínusson, erindreki
Framsóknarflokksirus, Benedikt
Guðjónsson, kennari, Fossi,
Stefán Hannesson, kennari,
Litla Hvammi, Hannes Pálsson
frá Undirfelli, Gunnar Magnús-
son, Reynisdal, Óskar Jónsson,
Vík, Einar Erlendsson, Vík, Ein-
ar Einarsson, Skammadalshól
og Þórarinn Helgason, Þykkva-
bæ.
Þá var stofnað á fundinum
Framsóknarfélag Vestur-
Skaftafellssýslu og kosin stjórn
þess, sem jafnframt er stjórn
fulltrúaráðsins. Skipa hana:
Helgi Jónsson, Seglbúðum, for-
maður* Jón Gíslason, Norðir
hjáleigu, ritari, Sveinn Einars-
son, Reyni, gjaldkeri. Með-
stjórnendur Sigurjón Pálsson,
Söndum og Þorsteinn Jónsson,
Sólheimum. Endurskoðendur
Sigurjón Árnason, Pétursey, og
Stefán Hannesson, Litla-
Hvammi. Varaformaður Þórar-
inn Helgason, Þykkvabæ.
Fundurinn stóð á sjötta
klukkutíma og ríkti mikill
áhugi og eindrægni á honum,
fyrir málefnum Framsóknar-
flokksins og héraðsins.
Aðrar fréttir.
(Framh. af 1. slðu)
hernaðarlega mikilvægasti
staðurinn í austanverðu Mið-
jarðarhafi. Þá er staðfest, að
brezkur flugher og brezk flota-
deild séu komin til Grikklands.
Brezkar flugvélar hafa gert árás
á Bari oð Brindisi, aðalhafnir
ítala við Adriahaf.
94
Robert C. Oliver:
Æfintýri blaðamannsins
95
um hjartveikum manneskjum að
dæma, er mjög umrædd hér í London
um þessar mundir.
— Með því að stafa og kveða að,
svaraði Bob hiklaust.
— Þér getið þá máske fundið út hver
ég er og hvað ég vil, með þessari aðferð?
— Nei, það er meira en mínir hæfi-
leikar hrökkva til, svaraði Bob Holman,
með ögrandi háðshreim í röddinni.
— Ég vil halda mér við efnið, svaraði
röddin kuldalega, við það, sem mesta
þýðingu hefir fyrir yður, — og ekki er
eins þýðingarmikið fyrir okkur. Þér
hafið verið okkur til óþæginda í starfi
okkar. Þér eruð stöðugt með ógnanir
gegn atvinnu okkar. Og við viljum fá
að vinna óáreittir.
Ekkert var auðveldara fyrir okkur en
að gjöra yður að eilífu óskaðlegan, og
það vakti fyrir okkur fyrst. — Við vit-
um allt um yður og þegar ég spyr yður
einhvers, þá er það ekki vegna þess, að
ég þurfi þess. En þér eruð hættulegur
fyrir okkur, og þéT vitið sennilega á
hvern hátt við fáum þá til að þegja,
sem við álítum að séu okkur til trafala
--------svolítið slys í Cherbourg-----
við vitum, að þér kölluðuð það morð.
Og það var það líka. Það var morð, Mr.
Hollman! Þér létuð ekki hræða yður þá,
og ég skal segja yður, að sú staðreynd
-----ásamt hæfileikum yðar til þess að
útvega yður upplýsingar um hluti, sem
Scotland Yard ennþá er í algjörri ó-
vissu um, og lögreglan mun aldrei
komast til botns í, ef við sjálfir — eða
þér — hjálpum henni ekki á sporið —,
hefir vakið sérstaka athygli okkar á
yður. Hvaðan fenguð þér peningana
handa Kid Roberts?
Bob Hollman hrökk við. Ljósið hvíldi
stöðugt á honum.
— Þessi spurning er svolítil hliðar-
álma frá aðalefninu, sagði röddin. En
hún var eins og svipuhögg, og Bob Holl-
man, sem daginn áður hafði greitt
manni einum 100 pund án þess að
fá nokkra viðurkenníngu, fór nú að
gruna, hvernig í í öllu lá.
Bob ætlaði að segja eitthvað. — Þér
þurfið ekki að svara. Ég veit — hm —
hvernig þér fenguð þá. Spurningin er
aðeins, hvernig þér hefðuð farið að
næst. Kid Roberts hefir komizt á bragð-
ið, og næst þarf hann efalaust 500 pund.
En til þess að halda áfram með efnið,
þá hafið þér satt að segja vakið sér-
staka athygli okkar. Þér hafið flækzt
inn i hættuleg viðfangsefni, og ef þér
haldið áfram, verða þau enn hættulegri.
Þér óskið að lifa ríkulega og í munaði,
og það er vissulega slæmt fyrir mann
eins og yður að þurfa að lifa af litlu
Lelkíélag Reykjavíkor
„L0GINN HELGI“
eftir W. Somerset Maugham.
SÝNING ANNAÐ KVÖLD KL. 8
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag.
Dugleg
matrelðslustúlka
getur fengið stöðu nú þegar
eða 1. desember. Sé hún fær
í sinni grein, fær hún hátt
kaup.
Nánari upplýsingar í Sænska
sendiráðinu. — Sími 5266.
Brélkaili úr Þing*
eyjarsýslu
(Framh. af 3. síðu)
er veitt fram yfir ákveðin laun,
er ekkert annað en styrkur. —
Ég er ekki að minnast þessara
styrkja hér, í því skyni að telja
þá eftir. Það er fráleitt. En ég
minnist þeirra aðeins vegna
þess, að Einar Magnússon geng-
ur þegjandi fram hjá þeim, í
áðurnefndu útvarpserindi sínu,
og ræðst eingöngu að bændun-
um og nefnir þá ölmusumenn,
þó að vitað sé, að aðrar stéttir
séu þeim, í það minnsta, jafn
sekar, í þessum hlutum og engu
siður ölmusumenn en bændur,
að E. M. meðtöldum.
Ef til vill er kjötverðið til
bændanna skuldauppgjafir og
styrkir til þeirra, í svo hæfilegri
fjarlægð frá eigih persónu Ein-
ars, að hann fær þá hluti eina
séð. En „styrkir" og „uppgjaf-
ir“ til annara stétta en bænd-
anna svo samrunnar hans eig-
in sál, að hann fær þar ekki
greint á milli. Ég veit það ekki.
En víst er um það, að við bænd-
ur erum sammála um, að eigi sé
mælt af vinarhug í okkar garð.
Ekki eru þeir tímar með öllu
gleymdir, að bankarnir gáfu
eftir tugi og hundruð þúsunda,
sínum viðskiptamönnum. Ekki
eftir landslögum, heldur þvert á
móti. í þeim eftirgjöfum áttu ís-
lenzkir bændur sára-lítinn þátt.
Alls þessa vegna geta þeir kinn-
roðalaust tekið á móti skeytum
Einars Magnússonar í hvaða
mynd sem þau birtast.
Heyrt hefi ég, að dagblöðin í
Reykjavík hafi rækilega gripið
í sama streng og E. M., að því
er snertir kjötverðið til bænd-
anna og mátti vænta slíks frá
herbúðum þeirra, þegar bændur
voru annars vegar. En muna
ættu bændur það, almennt, þeg-
ar erindrekar reykvískra blaða
koma í sveitirnar með angur-
væru brosi, til að leita ásjár í
baráttu kosninganna — þeir
ættu að muna það þá, að gjalda
einum og sérhverjum eftir því,
sem hann verðskuldar, svo þeir
fínu menn megi muna, að enn
standa stöðug hin gömlu orðin,
að eftir því, sem maðurinn sáir,
mun hann og einnig uppskera.
B. B.
Á víðavangt.
(Framh. af 1. siðu)
minnkað til muna af þessum á-
stæðum. Hér er vitanlega um
lögbrot að ræða og þarf stjórn
löggæzlunnar að taka til nán-
ari athugunar, hvort ekki sé
hægt að koma í veg fyrir þau.
Hinir íslenzku kaupendur munu
gera þetta í þeim tilgangi að fá
ódýrari vindlinga, en þeir gæta
þess ekki, að þeir þyrftu að
borga margfaldan toll, ef hin
ólöglega verzlun yrði uppvís.
Þá leiða þessi viðskipti líka til
nánari umgengni við setuliðið
en samrýmanleg er heilbrigðri
sjálfstæðiskennd og þjóðar-
metnaði. Mætti gjarnan gefa
því nánari athygli, hverjir séu
svo lítilsigldir að vinna það til
fyrir nokkra aura, að brjóta þær
nauðsynlegu umgengnisreglur,
sem reynt hefir verið að setja í
þessum efnum. Þótt tollsvikin
séu að visu alvarlegt atriði, er
þetta síðastnefnda þó langtum
skaðlegra. Það er ekki sízt þess
vegna, sem það er nauðsynlegt,
að reyna að uppræta þessa ólög-
legu tóbaksverzlun sem fyrst.
.—o. qamla Btó-——
Tvífarí
dýrlingsíns
Afar spennandi og dular-
full leynilögreglumynd,
eftir Leslie Carteries.
Aðalhlutv. leika:
GEORFESANDERS
og
BELA LUGOSI.
Sýnd kl. 7 og 9.
Börn fá ekki affgang.
NÝJA BÍÓ°—
Hetjur strand-
gæzlunnar
Amerísk kvikmynd frá
Columbia film um hreysti
og hetjudáðir amerískra
björgunarliðsmanna.
Aðalhlutv. leikur
RALPH BELLAMY.
Sýnd kl. 7 og 9.
Börn fá ekki aðgang.
^ ácCag!
Það þykir ekki mikið, og kostnaðinn
telja menn ekki eftir sér.
En vitið þér, að fyrir þá peninga, sem
5 cigarettur á dag ^osta, getið þér
eignast og átt 5—10 þúsund króna líf-
tryggingu.
Þér hafið ráð á að vera líftryggður. —
Sjóvátryqqi
aq íslands!
Bókaútgáfa
Menningarsjóðs og Þjóðvínaíélagsíns
Andvari og Almanakiff eru komin út og hafa þegar
verið send áleiffis til umboðsmanna úti um land.
Áskrifendur í Reykjavík vitji bókanna í anddyri
Landsbókasafnsins og í Hafnarfirffi í verzlun Valdi-
I mars Long. Menn eru beðnir aff sýna viffurkenn-
ingu fyrir greiffslu árgjaldsins, um leiff og bókanna
er vitjaff.
Nokkrir áskrifendur hafa enn eigi sótt fyrstu bæk-
urnar. Eru þeir beffnir aff vitja bókanna fyrir lok
nóvembermánaffar. Annars verffa þær afhentar
öffrum, sem eru á bifflista.
Tílkynníng frá loftvarnarnefndínní í R.vík
Aff gefnu tilefni skal þess getiff, aff allar rafflautur bæjarins
voru í lagi síffastliffinn sunnudag, en voru ekki settar i gang, þar
sem loftvarnanefnd ekki barst nein tilkynning um yfirvofandi
hættu. Þaff skal ennfremur tekiff fram, aff Ioftvarnanefndin hefir
ekki umráff yfir athugunarstöffvum þeim, sem til eru víffsvegar
um landiff og hefir ekki heldur affstöðu til aff dæma um hvort
um æfingar effa árásarflugvélar er aff ræffa, hefir það því veriff
ákveffiff, aff setja rafflautur bæjarins tafarlaust í gang er tilkynn-
ing berst frá brezka setuliffinu um yfirvofandi hættu.
LOFTVARNANEFND.