Tíminn - 21.12.1940, Side 4

Tíminn - 21.12.1940, Side 4
212 TÍMIM, laugardaginn 21. des. 1940 128. blað 1 Odýr og góð mata | Folalda- og trypp x! ■■ n mm owxwn ■■ n ■■ o rkaup I lakjöt Verð: HANGIÐ KJÖT: Frampartur 2.50 kgr. Bógur 2.70 - Læri 2.90 - Bjúgu 2.25 - NÝTT KJÖT: Buff 3.00 kgr. Gullace 2.50 - I Okauf i ííélacjid | Ylir landamærín 1. Eftir að Skúli Guðmundsson hafði brugðið sér heim til Hvammstanga, gerist Mbl. herskátt og bregður honum um griðarof, fyrir stjórnmálagreinar sínar í Tímanum. Mbl. ætti að minnast þess, að systurblað þess, Vísir, hefir frá því stjómarsamvinnan hófst, flutt svo að segja daglega ósannindi og illindi um Pramsóknarflokkinn og störf hans. Skúli Guðmundsson hefir ritað um málefni þings og þjóðar með þungum rökum og mikilli kurteisi. Mbl. getur alls ekki búist við að Framsóknarmenn láti heildsölunum bæði haldast uppi óátalið að afflytja samvinnumenn og líka að fæla niður hóflega og rökstudda gagnrýni. Gjald kvíkmyndahúsa i Framh. af 1. síðu) Alþýðuflokknum um að gjaldið yrði 100 kr. Sigurður Jónasson mótmælti eindregið því, að háskólanum yrði veitt leyfi til að reka kvik- myndahús, einkum eftir að borgarstjóri hafði upplýst, að tekjunum ætti að verja á sama hátt og fé sáttmálasjóðs. Sigurður benti ennfremur á það, að ef hafa ætti opinberan kvikmyndarekstur hér í bænum á annað borð, þá væri réttara að Reykjavíkurbær gerði það sjálfur að einhverju eða öllu leyti. Það væri líka stórt atriði í þessum efnum, að kvikmynda- hús, sem háskólinn ræki, væri ekki útsvarsskylt og myndi bærinn því verða fyrir allveru- legum tekjumissi. Tillaga borgarstjóra, um að veita háskólanum leyfi, var samþykkt, en tillaga frá Sigurði og Jóni Axel Péturssyni, um að veita ekki slíkt leyfi til eins eða annars, sem ekki greiddi útsvar, var felld. Þessi mál munu verða nánar rædd hér í blaðinu síðar. CR BÆNIIM Framsóknarfélögin halda jólatrésskemmtun sína í Odd- fellowhúsinu á 3. í jólum. Allar nánari upplýsingar á afgreiðslu Tímans, sími 2323. Athygli skal vakin á auglýsingum frá Sund- höllinni og Baðhúsi Reykjavíkur hér í blaðinu, um lokunartíma þeirra yfir hátíðarnar. Háskólakennsla í ensku. Cyril Jackson, Ph. D., sem fyrir nokkrum árum var kennari í ensku við Menntaskóla Akureyrar, er nýkominn hingað og mun í vetur starfa við há- skólann sem sendikennari í ensku. Mun hann kenna stúdentum engilsaxnesku og enska bókmenntasögu Auk þess flyt- ur hann fyrirlestra fyrir almenning um enska menning, og verða þeir á hverj- um þriðjudegi kl. 8—9 og hefjast 4. febrúar Þá mun hann hafa talœfingar í ensku fyrir stúdenta og aðra, er svip- aða undirbúningsmenntun hafa í ensku. Hvert námskeið er 20 tímar og kostar 30 kr. fyrir aðra en stúdenta. Námskeiðin verða á miðvikudögum og föstudögum kl. 6—7 og hefjast 8. jan- úar. í hverju námskeiði verða 10 nem- endur, og verður bætt við öðrum tímum eftir þörfum. Þátttakendur gefi sig fram við háskólaritara. Atkvæðagreiðsla fer fram í dag í verkamannafélaginu Dagsbrún Fjallar hún um þrjú atriði í málum verkamanna í Reykjavík. Fyrst og fremst verða atkvæðh greidd um það, hvort stjórn félagsins skuli heimilað að hefja vinnustöðvun frá áramótum, ef ekki verður komið á sam- komulag 23. desember milli Dagsbrúnar og atvinnurekenda um kaup og kjör verkamanna. í öðru lagi eiga félags- menn að greiða atkvæði um það, hvort þejr vilji að félagið gangi í Alþýðusam- bandið eða verði utan þess enn um hríð. Loks á að greiða atkvæði um það, hvort gilda skuli ákvörðun trúnaðar- aðarráðs um að víkja Jóni Rafnssyni og Sveini Sveinssyni úr Dagsbrún. Sigurður Sigurðsson, starfsmaður Landsbankans, sá, er tekinn var höndum á dögunum fyrir víxilfölsun og stuldi, hefir nú játað að vera valdur að hvarfi meginhlutans af peningum þeim, er stolið var í Lands- í jólamatínn Dilkakjöt Hangikjöt Nautakjöt í Buff Gullace Steik Vínarsnitzel Alikálfakjöt Ungkálfakjöt Svið Lifur og hjörtu Kartöflur sérstaklega góðar Gulrófur Gulrætur Grænar baunir Þurkað hvítkál Þurkað rauðkál Aspargus Blómkál niðursoðið Sítrónur Rabarbari í sykurlegi Búðingsduft 8 tegundir Sveskjur Þurkuð epli Fjölbreytt úrval af áleggspylsum, salötum og ýmsu öðru ofan á brauð. Margskonar bragðbætir, svo sem Pickles í sinnepi og ediki, Sandwich Spread, Salad Crem, Mayonnaise, Wor- chestershiresósa, Asíur, Agúrkur og margt fleira. Gjörið svo vel að panta tímanlega ef þér getið. nfélaqiá (Kjötbúðirnar). :œmm朜«:»œ»n»æ«8mæææt»»mæœmœnœBmttmtmœœmœ« bankanum hér á árunum. Voru það 12 þúsund krónur, er hurfu úr tösku Landsbankaútibúsins á Klapparstíg og 2 þúsund krónur, er stolið var úr pen- ingahirzlum A. Johnson gjaldkera. Alls hefir Sigurður stolið og svikiö um 22 þúsund krónur frá bankanum. Leikfélag Reykjavíkur biður blaðið að vekja athygli fólks á auglýsingu félagsins um sölu aðgöngu- miða að jólaleiknum. Salan hefst á morgun. Preslskosnmgarnar (Framh. af 1. síðu) í Laugarnessókn var séra Garðar Svavarsson eini um- sækjandinn. Þarf voru greidd 410 atkvæði. Hlaut séra Garðar 402 atkvæði, en auðir voru 8 atkvæðaseðlar. í Laugarnessókn náðist eigi lögmæt kosning fremur en í hinum sóknunum, þar eð ekki greiddu atkvæði helmingur kjósenda, sem alls voru 1120. Lelkfélag Reykjavíknr »H ÁI ÞÓR« eftir MAXWELL ANDERSON. Friungýnmg á annait I jólum kl. 8. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 á morgun (sunnudag) og eftir kl. 1 á annan í jólum. ATH. Fastir frumsýningar- gestir eru hérmeð minntir á að sækja aðgöngumiða sína á morgun, því eftir kl. 1 á annan í jólum verða allir fráteknir miðar, sem ekki hafa verið sótt- ir, seldir öðrum. ISörn fá ekki aðgang. Um launagreiðslur kaupfélaga 170 Róbert C. Oliver: til staðar. Það eina, sem hér dugði, var kænska. Mody horfði hugsandi á ferðafélaga sinn, ungan prest, sem auðsjáanlega var mjög upptekinn við að lesa í bænabók sinni. Augu Mody’s dvöldu góða stund við hinn háa, harða flibba, sem var merki um stöðu hans. Án þess að gera sér það fyllilega ljóst, fannst honum að hægt væri að nota búning prestsins við björgun Bobs. Presturinn leit nú upp úr bænabók- inni og horfði á Mody. — Fyrirgefið, sagði hann, ég tók eftir því að þér fenguð símskeyti áðan og ég hélt fyrst að það væri til mín — vitið þér hvort tækifæri gefst til þess að senda skeyti áður en við komum til Marseille? Mody, sem var vel heima í áætlunum, svaraði að lestin stanzaði 5 mínútur í Croville. — Og þaðan er auðvitað hægt að senda símskeyti, sagði presturinn feg- * inn. — Já, svaraði Mody, sem nú hafði fengið nokkuð nýtt að hugsa um. Með vilja fór hann nú að tala meira við prestinn, án þess að gruna, að hér væri Pierri Duval, franskur lögreglumaður. Lestin rann nú inn á stöðina í Cro- ville. „Presturinn“ varð ekki vonsvik- Æfintýri blaðamannsins 171 inn. Á næsta augnabliki meðtók hann skeytið, sem hann hafði vonazt eftir. í því var heimilisfang John Taylors í Marseille. Pierre Duval varð að nota tímann. Með meiri hraða en hæfði kirkjunnar þjóni, stökk hann út og flýtti sér til símastöðvarinnar, og Mody, sem ekki var hættur að hugsa um gagn það, sem hann gæti haft af fötum prestsins, fór á eftir honum. Hann leit á stöðvarklukkuna — enn voru átta mínútúr þar til lestin átti að fara. Mody opnaði varlega dyrnar á síma- klefanum og leit inn. Fyrir utan prest- inn var þar aðeins afgreiðslumaðurinn, gamall maður með gleraugu. Prestur- inn var að skrifa skeytið, sem hann rétti svo til afgreiðslumannsins, sem las það yfir og taldi orðin. — Það verða 12 frankar, sagði hann — Taylor — John Taylor — er það ekki rétt lesið? Mordy hrökk við. Hann hafði heyrt nóg — og læddist til baka sömu leið og hann kom. — Andskotans hundaheppni, muldr- aði hann, um leið og hann hraðaði sér inn í klefann, og í sæti sitt, áður en „Presturinn" kæmi til baka. — Það er eins og ég hefi allt af sagt, hélt hann áfram við sjálfan sig, maður getur aldrei treyst á þessa prestabún- (Framh. af 3. síðu) háttar fyrirkomulag, að minnsta kosti hljóta þeir, sem með sann- girni vilja athuga málið, að við- urkenna að það væri réttlátara og fremur í anda samvinnu- stefnunnar en fastákveðið kaup. Ættu stjórnir kaupfélaganna og yfirleitt þeir menn, sem á- huga hafa fyrir kaupfélagsmál- um, að taka þessa uppástungu Skúla Guðmundssonar til ræki- legrar athugunar. Minitingarsjóðui* Höfðahjónaima (Framh. af 2. síðu) tveggja er vissulega mikilsvert: að framleiða eindæma bókleg afrek, við hin fátæklegustu kjör og við sömu lífskjör, að geta tendrað ljós í mannshjarta, sem lýsir æfiskeiðið á enda og aldrei bregzt. Bj. Guðmundsson Innheimtumenn! Nú er skammt til áramóta, og því nauðsynlegt að gerð verði gangskör að innheimtu blaðs- ins sem fyrst. Sendið innheimtu blaðsins skilagreinar fyrir ára- mót. Vinnið ötullega að innheimtu og útbreiðslu Tímans. . AMLA BÍÓ ‘ NÝJA BÍÓ St Louís Blues Bráðskemmtileg söngva- mynd frá Paramount Pic- tures. Aðalhlutverkin leika DOROTHY LAMOUR og LLOYD NOLAN Aukamynd: STRÍÐSFRÉTTAMYND Sýnd kl. 7 og 9. Charlie Chan á Broadway Amerísk leynilögreglu- mynd frá FOX. Aðalhlutv. leika: WARNER OLAND, KAY LUKE, JOHN MARSH o. fl. Aukamynd: CAFÉ BOHÉME. IAmerísk dans- og músik- mynd. Sýnd kl. 7 og 9. Börn fá ekki aðgang. Eítirtektarverðasta bókin, sem út hefír komíð árum saman. HITLER T A L.A R er komiu út Þessi heimsfræga bók hefir hvar- vetna selzt bóka mest. Hér verða að eins fá eintök seld í bókaverzl- unum. Þau verða uppseld fyrir jól. Hvort sem menn eru að- dáendur eða andstæð- iiijgar Hitlers, þurfa þeir — að lesa þessa bók. — Bók Hitlers „Mein iKampf“ er ekki til á Islenzku, og hœpið, að hún komi nokk- um tíma út hér, a. m. k. ekki í sinni upprunalegu mynd. Síðan hún var rit- uð, eru liðin 15 ár, og rrvjög vafasamt, að hún gefi nú rétta hugmynd um stefnu og fyrirætlanir þess manns, sem nú hefir mik- inn hluta Evrópu á valdi sínu. Bókin „Hitler talar“ er rituð af manni, sem frá upphafi var einn af mestu áhrifamönnum nazista- hreyfingarinnar og einn af nánustu trúnaðarmönnum Hitlers Hann þekkir Hit- ler eins vel og nokkur maður hefir þekkt hann. Hann lýsir honum í þess- ari bók, einkalífi hans, skoðunum og fyrirætlun- um. Sú lýsing hefir ekki verið rengd, enda ber hún það með sér, að hún er gerð af þekking og eftir beztu vitund.. Fjölbreytt og skemmtílegt heímílisbóka- sain fyrir að eíns 10 kr. að viðb. burðargj. Eins og lesendum Tímans er kunnugt, hefi ég áður auglýst heimilisbókasafn með góðum kjörum eða sama verði og nú. Býð ég nú enn svipuð kjör, og gefst mönnum því enn gott tækifæri að birgja sig upp að góðum bókum fyrir lítinn pening — eða sem svarar eitt meðal-bókarverð. Bækumar eru þessar: Eftir Steingrím Thorsteinsson: LjóðaþýSingar I—II m. myndum (266 bls.). Sawitri m. mynd, 2. útg. (64). Sagan af Kalaf og keisaradótturinni kínversku (64). Soþur frá Alhambra, 3. útg. (84). Þöglar ástir, eftir Musæus (58). — Eftir Axel Thorsteinsson: 7 leikslok, I—II (206). Heim er haustar (96). — Þýðingar: Feg- urst á jörðu og nokkrar smásögur aðrar. ítalskar smásögur, I—II (200). Ástar- þrá, eftir Margaret Pedler (354). — Greifinn frá Monte Christo. I—V (544 bls.) í stóru broti, með smáu letri). Æfintýri og smásögur með myndum (64). Fimm árgangar Rökkurs (samstæðir, um 800 bls.) og fylgirit Rökkurs 1940: Striðsfé- lagar, eftir Axel Thorsteinsson og Greifinn frá Monte Christo, VI (í prentun). Af bókunum ítalskar smásögur I, Heim er haustar og Þöglar ástir, er fremur lítið eftir og er áskilinn réttur til að senda aðrar bækur (ekki minna lesmál, í þeirra stað). Pantendur sendi 11 kr. með pöntun (ódýrast að senda póstávísun og skrifa á álíminginn „Sendið mér bækumar samvk. augl. Tímanum). — L'eimilisfang sé greinilegt. Virðingarfyllst, AXEL THORSTEINSON Félagsprentsmiðjuhúsinu (móti Gamla Bíó). Pósthólf 956. Við 11—12. JÖRÐ TIL SÖLU. Jörðin Mýrar í Álftaveri, fæst til kaups og ábúðar. Upplýsingar gefur VALDIMAR JÓNSSON, kennari, Vík Mýrdal. Nauðf | árbóðnn. Samkvæmt fyrirmælum laga nr. 58, 30. nóv. 1914, ber að framkvæma þrifaböðun á öllu sauðfé hér í lögsagnarumdæm- inu. Út af þessu ber öllum sauðfjáreigendum hér í bænum að snúa sér nú þegar til eftirlitsmanns með sauðfjárböðunum, herra lögregluþjóns Sigurðar Gíslasonar. Símar 3679 og 3944. Borgarstjórinn í Reykjavík, 20. desbr. 1940. BJARNI BENEDIKTSSON settur. Dvöl Afgreiðslan kaupir 1. hefti 1. árg., 18. h. 2. árg., og 1.—6. h. 4. árg. Þeir, sem kynnu að eiga eitthvað af þessum Dvalarheftum afgangs eru beðnir að láta afgreiðsluna hafa þau sem fyrst. LANGBEZTU FRAMTÍÐAR JÓLAGJAFIRNAR eru bækumar Vinakveðjur og Alheims friðarboðinn, hefti I—XII, heiðursdokt- ors Jóhannesar Kr. Jóhannssonar, Framnesvegi 14, væntanlegs forseta ís- lands, fást fyrir hálfvirði einungis hjá Jóhannesi. Trésmíðastofa Sólvallag. 20.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.