Tíminn - 25.01.1941, Page 4
40
TÍMIM, laiigardaginn 25. jaimar 1941
10. bla3S
tÍR BÆNUM
Messur á morgun:
í dómkirkjunnl kl. 11, séra Bjarni
Jónsson, kl. 2, barnaguðsþjónusta, séra
Friðrik Hallgrímsson. 1 fríkirkjunni
kl. 2, séra Árni Sigurðsson. í Laugar-
nesskóla kl. 10, barnaguðsþjónusta;
engin síðdegismessa. í háskólakapell-
imni kl. 5, séra Bjarni Jónsson. í há-
þólsku kirkjunni kl. 6Y2 árdegis lág-
messa, kl. 10 árdegis hámessa, kl. 6 síð-
degis bœnahald og prédikim.
Skákþing Reykjavíkur.
Skákþingið hófst í fyrradag og hafa
verið tefldar tvær umferðir. Síðar
verður skýrt frá vinningum keppend-
anna.
Faust-leikurinn,
sem Stúdentafélagið efndi til sýn-
ingar á í hátíðasal háskólans, verður
sýndur í Varðarhúsinu á sunnudags-
kvöldið.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Háa Þór annað kvöld og hefst
sala aðgöngumiða kl. 4 í dag.
Sex söngvar
nefndist nýútkomin sönglagabók eft-
ir Sigvalda Kaldalóns Lögin eru við
eftirfarandi kvæði: Huldur eftir Grím
Thomsen, Hamraborgin eftir Davíð
Stefánsson, Heiðin há og Tjaldið eina
eftir Grétar Fells, Með sólskinsfána
eftir Jakob Thorarensen og Ég syng
um þig eftir Kjartan Ólafsson
Finnskt skip,
Wista að heiti, 7000 smálestir að
stærð strandaði i Skerjafirði í gær á
mjög svipuðum slóðum og enski tog-
arinn á dögunum. Togaranum hefir
verið náð út.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síSu.)
stjórn Rauða Kross íslands nú veitt
henni viöurkenningu á þann hátt, sem
lög félagsskaparins mæla fyrir. Stjórn
deildarinnar skipa: Kristján Arin-
bjarnar héraðslæknir form. Kjartan Jó-
hannsson læknir varaformaður, Gunn-
ar Andrew ritari, Sigurður Þorkelsson
gjaldkeri, Guðmundur Jónsson frá
Mosdal, Sigurður Dalmann, Jóij A. Jó-
hannsson, meðstjórnendur.
t t r
Á miðvikudaginn nú í vikunni rak
tundurdufl í grennd við Dranga á
Ströndum og sprakk þar í fjörunni.
Var sprengingin gífurleg og mátti gerla
heyra dunurnar og hávaðann langa
vegu. Tjón varð eigi að sprengingunni.
Bandamenn
Breta
(Framh. af 1. síðu)
inn í Eritreu, ber mikið á Ind-
verjum. í hernum, sem er í
Kenya og sækir þaðan inn í A-
bessiniu, eru aðallega Suður-
Afríkumenn.
Hergögn og vistir, sem þessir
herir nota, eru að mjög litlu
leyti frá Bretlandi. Þau eru að
langmestu leyti frá löndum
brezka heimsveldisins austan
Suez-skurðar. í haust héldu
fulltrúar þessara ríkja og ný-
lendna fjölmenna ráðstefnu,
þar sem markað var í aðal-
dráttum, hvernig þau gætu
veitt Bretlandi mesta aðstoð i
styrjöldinni. Hergagnafram-
leiðsla þessara landa, eins og
t. d. Ástralíu, Nýja-Sjálands,
Suður-Afríku og Indlands, fer
stórum vaxandi og mun nú
sennilega meira en fullnægja
þörfum þess hers, sem Bretar
hafa i Afríku og Asíu. Mörg
þessara landa eru auðug af
ýmsum hráefnum, sem þarf til
hergagnaframleiðslu, og um
flest þeirra má segja, að þau
séu sannkölluð vistabúr. Með
fullkominni og markvissri
skipulagningu eíga þau auð-
velt með að búa miljóna her
eins vel úr garði og frekast er
auðið. Mannfjölda skortir þau
heldur ekki, því að samanlögð
íbúatala þeirra er milli 400—
500 miljónir.
Við þau bætast svo hinar auð-
ugu og fjölmennu nýlendur
Hollendinga og Belgíumanna.
Skerfur Indlands er ekki sízt
merkilegur í þessum efnum.
Þar rís nú upp hver vopnaverk-
smiðjan eftir aðra og einnig er
verið að koma þar upp flug-
vélaverksmiðjum. Rösklega hálf
miljón Indverja er nú í her-
þjónustu hjá Bretum og hefir
mikill hluti þeirra hlotið fulla
þjálfun. M.iklu fleiri Indverjar
reyna þó að komast í herinn en
fengið hafa það til þessa. Er
unnið kappsamlega að því að
koma upp nýjum æfingastöðv-
um.
Bretland heyir þvi ekki styrj-
öldina einsamalt. Það hefir öt-
ula og auðuga bandamenn. Það
eru þeir, sem hafa gert mögu-
lega sigrana í Libyu. Ef þeirra
hefði ekki notið við, myndi ít-
alir, en ekki Bretar, hafa hrós-
að sigri í þessari viðureign.
En því er ekki að neita, að
það er ómetanlegur sigur fyrir
Breta, að þjóðir, eins og Ástra-
líumenn, Nýja-Sjálendingar,
Suður-Afríkumenn og Indverj-
ar skuli af frjálsum og fúsum
vilja veita þeim stuðning 1
styrjöldinni. Þessar þjóðir hafa
reynt Breta sem húsbændur. í
stað þess að halda þeim undir-
okuðum og ófrjálsum, hafa
Bretar stöðugt verið að veita
þeim aukið frelsi og sumar
þeirra eru nú orðnar fullfrjáls-
ar. Vegna þessarar reynslu af
sambýlinu við Breta fylgja
þessar þjóðir þeim í styrjöld-
inni og óska þeim sigurs. Sá
sigur, sem Bretar hafa þannig
unnið, er þeim áreiðanlega
meira virði en Þjóðverjum
þeir blóðugu sigrar, er þeir
hafa unnið á meginlandinu
undanfarið iy2 ár.
Þess ber ennfremur að geta,
að tveir bandamenn Breta,
Grikkir og Tyrkir, hafa mjög
auðveldað þeim sóknína í Li-
byu. Ef þessar þjóðir hefðu ekki
fylgt Bretum, myndu þeir hafa
þurft að binda meiri herafla
austan Suez-skurðarins, til að
vera viðbúnir að mæta árás,
sem Þjóðverjar kynnu að gera
um Balkanskagann og Tyrk-
land á lönd Breta við Suez-
skurðinn.
Leikfélag Reykjavíkur
»H ÁI Þ Ó R« LTM I lT.TíWH 4'n
ni'iTu'H
eftir MAXWELL ANDERSON.
Sýning annað kvöld JBsJaP
kl. 8. vestur um land í strandferð n.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 k. fimmtudagskvöld 30. þ. m. Tekur flutning á allar venju- legar áætlunarhafnir til Akur-
til 7 í dag. eyrar. Vörumóttaka á þriðju-
dag á meðan rúm leyfir. Pant-
Börn fá ekki aðgang. aðir farseðlar óskast sóttir á miðvikudag.
Erlendar fréttlr.
(Framh. af 1. síðu.)
Antonescu hefir ákveðið að
skipa nýja borgarstjóra og lög-
reglustjóra í öllum borgum
Rúmeníu.
-GAMLA BÍÓ-
VINSTtLKM
HANS PABBA
(FIFTH AVENUE GIRL)
Amerísk gamanmynd frá
R.K.O. Radio Pictures.
Aðalhlutverkin leika:
GINGER ROGERS,
WALTER CONNOLLY,
VERREE TEASDALE
0. fl.
Aukamynd:
UMSÁTRIÐ UM VARSJÁ.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
(Lækkað verð kl. 5)
-NÝJA BÍÓ-
LMDNEMAR
VESTUBSEYS
(WESTERN CARAVANS)
Æfintýrarík og spennandi
mynd. Aðalhlutverkið leik-
ur Cowboy-kappinn
CHARLES STARRETT
Aukamynd:
,‘SWING SANATORIUM"
Skemmtileg dans- og
músíkmynd.
Börn fá ekki aðgang.
— Sýnd kl. 7 og 9. —
W.VAV.V.V.V.V.V.'.V.'.’.VAV.V.V.V.VAV.'.VAVAV.V^VAV.'^^SV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V/.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V
( Happdrætti Háskóla íslands
;! Vcrð hlutamiða og’ upphæð vinninga hækkar um þriðjung.
Ainningar verða 6000, auk 30 aukavinninga, en voru áður 5000
Vhmingafúlgan verður 1 miljjón 400 þús. í stað 1 miljjón 50 þús.
Vinningar verða sem hér segir:
Vinningar áður
Vinningar nú
Þar af aukavinningar
1. fl.
2. —-
3. —
4. —
5. —
6. —
7. —
8. —
9. —
10. —
200 36200 kr. 357 85000 kr. 7 9400 kr.
250 47000 — 353 86300 — 3 4400 —
250 48800 — 402 87700 — 2 400 —
300 56600 — 402 90600 — 2 400 —
300 68400 — 402 91900 — 2 400 —
350 71600 — 452 ÍOOIOO — 2 400 —
400 83400*— 502 110500 — 2 400 —
450 90200 — 552 117300 — 2 400 —
500 103900 — 602 130600 — 2 400 —
2000 448900 — 2006 500000 — 6 3000 —
Athugið ákvæðið um skafttfrelsi
Sala taefst i <lag
vmninganna
.v.
tVWUWU
'•■.W.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.'.W.'.V.W.VW.V.V.V.VVVAVAW.'.VÍAW.WW
Kristindómsstundir
í skólum
(Framh. af 3. síðu)
sér skapgerö hans og líf, en með
hinum „helgu“ stundum skól-
anna, ef við á annað borð vilj-
um það og okkur er það hjart-
ans alvörumál.
Höfum við ekki nokkra
reynslu af gildi kristindóms-
stunda í skólum hér á landi?
í gamla Latínuskólanum
munu slíkar stundir hafa verið
daglegt brauð. Gamall prestur
tjáði mér eitt sinn, að svo hefði
verið. Hann kvaðst einnig hafa
fylgzt með æfiferli þeirra
214
Robert C. Oliver:
Æfíntýri blaðamannsins
215
ur, Cabera, sagði Grabenhorst glott-
andi.
— Hann hefir unnið sín verk mjög
vel, svo að ég hefi enga ástæðu til að
halda, að ég hafi keypt köttinn 1
sekknum, svaraði Cabera.
— En nú er eitt enn. Hollman er
blaðamaður, og það getur hugsast, að
hann hafi þekkt eitthvað til Sir Reg-
inalds. Það var mjög mikið rætt um
fjölskylduna eftir slysið. Haldið þér að
hann viti ekki hver Lucy Spencer er?
— Kvöldið, sem við létum hann
byrja að vinna fyrir okkur, gerðum við
öflugar varúðarráðstafanir. Hefði hann
reynt að svíkja okkur, var hann sam-
stundis dauður. Ungfrú Spencer hafði
gert sig mjög torkennilega áður en hún
fór út í sína mjög svo undarlegu kvöld-
heimsókn til Cina Charleys. Hún hefir
áreiðanlega einnig skipt um nafn. Ég
er viss um, að þau þekkjast ekki. Að
minnsta kosti hefir hann starfað mjög
vel. Aftur á móti veit ég, eftir því sem
Mody segir, að þeir John Taylor þekkj-
ast. Einu sinni kom það greinilega í
ljós, að Hollman vildi forðast að hitta
hann — og það er góðs viti.
— O-ja-já, sagði Grabenhorst. Ég
ég vil ganga úr skugga um þetta sjálf-
ur. Ég vil vera fullviss um það, hvort
ég má treysta þessum nýja meðlim eða
ekki. Viljið þér senda Hollman hingað
— ég ætla að tala við hann.
Cabera gekk niður í salinn, þar sem
allt var eins og áður. Bob var nú kom-
inn þangað. Cabera gekk til hans og sló
á herðarnar á honum.
— Jæja, Hollman, við skulum tala
ofurlítið saman.
Bob sneri sér við, og reyndi aö lesa
út úr svip Cabera, hvað nú væri í
vændum.
— Komið með til foringjans. Þér
hafið lengi óskað eftir að kynnast
honum.
— Það vil ég mjög gjarnan, svaraði
Bob. Hann grunaði ekki, að neitt sér-
stakt byggi undir þessu, og hlakkaði
til þess að sjá þennan dularfulla mann,
sem réttvísin hafði svo oft og árang-
urslaust leitað að.
Þeir gengu saman út úr salnum og
upp að dyrunum á íbúð Grabenhorst.
Cabera bankaði varlega á hurðina.
— Kom inn, heyrðist sagt innan frá.
Þeir opnuðu og gengu inn.
Grabenhorst stóð á miðju gólfi og
horfði á þá.
Bob stóð nú augliti til auglitis við
þessa risakönguló, sem var svo tryggi-
lega falin í hinu volduga neti sínu.
Hann brenndi mynd hans .inn í meðvit-
und sína, og vissi að hann mundi
manna, sem skráðir voru út úr
Latínuskólanum á meðan hann
stundaði þar nám og nokkru
lengur, eða alls um 10 ára skeið.
Honum taldist svo til, að nær
y4 hluti þessara manna hefði
gjörsamlega farið í hundana,
eins og það er kallað, flestir
vegna drykkjuskapar. Gat á-
rangurinn orðið lakari?
Ég held einnig, að náttúru-
fræðin sé sú námsgrein, sem
nota má til að glæöa trúhneigð
og trúarvissu ungmennanna, ef
hún er réttilega kennd, eða
réttara sagt: kennd að nokkru
leyti með hliðsjón af því.
Það væri athugandi fyrir guð-
fræðideild háskólans, hvort
prestaefnin yrðu ekki fremur
vaxin þeim störfum, að við-
halda guðstrú með þjóðinni, ef
þau væru látin leggja meiri
stund á náttúruvísindi í námi
sínu, en minni stund t. d. á he-
bresk fræði. Það er svo margt í
náttúrunnar ríki, sem almenn-
ingi er algjörlega hulið, en
vekur auðveldlega aðdáun og
lotningu hjá flestum þeim, er
því kynnast, og má sannfæra
hvern og einn hjigsandi mann
um
„Guð í alheimsgeimi
og guð í sjálfum þér.“
Að lokum þetta:
Við skyldum varast að leggja
áherzlu á að sannfæra barnið
um sannleiksgildi þeirra krist-
indómskenninga, sem auðveld-
lega hrynja í rústir í huga ung-
mennisins, þegar það vitkast
og öðlast meiri þekkingu. Þeir
tímar eru hræðilegir í lífi ung-
mennisins, þegar það sannfær-
ist um það, að kennarinn eða
foreldrarnir hafa sagt því sögur
úr kristnum fræðum, og lagt á-
herzlu á sannleiksgildi þeirra,
— sögur, sem að efni til stang-
ast t. d. við staðreyndir nátt-
úruvísindanna.
Þorsteinn Þ. Víglundsson.
skólastjóri, Vestmannaeyj um
Útbreiðið Tímaim!
asiiij
er frá og með
deginum í dag
kr. 29S2 pr. k^.
H.f. Smjörlíkisgerðin Smári.
H.f. Ásgarður.
H.f. Svanur.
Smjörlíkisgerðin Ejómi.
Verkamannafélagið Hajgsbrun.
Kosning
stjórnar, varastjórnar, stjórnar Vinnudeilusjóðs, endurskoðenda
og Trúnaðarráðs, fer fram í
Hafnarstræti 21
Kosningin stendur yfir:
Laugardaginn 25. janúar frá kl. 17 til kl. 23
Sunnudaginn 26. — — 13 — — 23
Mánudaginn 27. — — — 17 — — 22
Þriðjudaginn 28. — — — 17 — — 22
Miðvikudaginn .... 29. — — — 17 23
og er þá lokið
Félagsmenn eru beðnir að athuga, að þeir einir hafa kosn-
ingarrétt, sem eru skuldlausir fyrir árið 1939.
Kjörstjórn Verkamannafélagsins Hagsbrnn
J'.W.W/.WV.V.W.MV.W.VW.W.VSW.V.VA^W.V.V.V.W.'.V.WAWW.W.V.W.'.W.Vi