Tíminn - 15.02.1941, Blaðsíða 1
S RITSTJÓRI:
\ ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
' FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
| JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 0 A.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Simi 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ.
Símar 3948 og 3720.
25. ár.
Reykjavík, laugardaglnn 15. febr. 1941
19. blað
Rekstur landhelgisgæzl-
unnar síðastliðið ár
Kostnaðurinn varð um 250 þús. kr. minni
en venjulega
Viðsjár í Austurálfu
Tíminn hefir átt viðtal
við Pálma Loftsson forstjóra
um rekstur landhelgisgæsl-
unnar á síðastl. ári. Fara
upplýsingar hans hér á
eftir:
— Halli á rekstri landhelgis-
gæzlunnar varð á árinu sam-
kvæmt bráðabirgðayfirliti 460
þús. kr. Á fjárlögunum voru
veittar úr ríkissjóði 400 þús.
kr. til landhelgisgæzlunnar og
var ætlazt til að landhelgissjóð-
ur legði fram það, sem á vant-
aði, og var áætlað, að það yrði
um 150 þús. kr. Kostnaðurinn
af landhelgisgæzlunni hefir því
orðið 100 þús. kr. minni en gert
var ráð fyrir.
Undanfarin ár hefir árlegur
kostnaður við landhelgisgæzl-
una verið um og yfir 700 þús.
kr. Þessi mikla lækkun á kostn-
aði við landhelgisgæzluna staf-
ar af því, að engin útgjöld voru
við v. s. Þór, heldur nokkrar
tekjur, og að vélbátar voru
látnir annast landhelgisgæzl-
una að miklu leyti, en þeir eru,
eins og kunnugt er, mun ódýr-
ari í rekstri en hin stærri skip.
Einnig fengust nokkrar tekjur
af flutningum Ægis fyrir olíu-
félögin og síldarverksmiðjur
ríkisins.
Varðskipið Ægir.
Ægir var hafður við Vest-
mannaeyjar á vetrarvertíðinni
og annaðist þar venjulega
hjálparstarfsemi við bátana og
eftirlit með veiðarfærum
þeirra. Hafði Ægir jafnframt
landhelgisgæzlu kringum Eyj-
arnar og með suðurströndinni
eftir því, sem ástæður leyfðu. í
júnímánuði strandaði skipið og
var viðgerð á þvi ekki lokið fyrr
en í októbermánuði. Tók við-
gerðin svo langan tíma, vegna
erfiðleika á því að ná í efni frá
útlöndum. Ægir hjálpaði að
landi 12 bátum, sem voru hjálp-
arþurfar, og bjargaði einum út-
lendum togara, sem var að reka
á land við Vestmannaeyjar með
vír í skrúfunni. Þá flutti skipið
til Raufarhafnar fyrir síldar-
verksmiðjur ríkisins ýmsa stóra
vélahluta, sem ekki voru tök á
að flytja með öðrum skipum.
Einnig dró hann þangað gufu-
ketil verksmiðjunnar og graf-
vél, ásamt tilheyrandi prömm-
um, til að dýpka með höfnina.
Fyrir olíufélögin flutti skipið
860 smál. af lausri olíu á ýmsar
hafnir úti á landi, til að rýma
fyrir nýjum olíubirgðum í
Reykj avík.
Dómur í dreifibréís-
málínu
í morgun kvað sakadómari
upp dóm í dreifibréfsmálinu.
Var dómsniðurstaðan þessi:
Eggert Þorbjarnarson og Hall-
grímur Hallgrímsson voru
dæmdir í 18 mánaða fangelsi
hvor fyrir brot á 88. gr. hegn-
ingarlaganna.
Ásgeir Pétursson og Eðvarð
Sigurðsson voru dæmdir í 4
mánaða fangelsi hvor fyrir brot
á sömu grein.
Einar Olgeirsson og Sigfús
Sigurhjartarson voru dæmdir
í þriggja mánaða varðhald fyr-
ir brot á 2. málsgrein 121. gr.
hegningarlaganna.
Aðrir hinna ákærðu voru
sýknaðir, þar sem ekki upplýst-
ist, að þeim hefði verið kunnugt
um efni bréfsins.
Varðbáturinn Óðinn.
Óðinn annaðist landhelgis-
gæzlu á Faxaflóa og Breiðafirði
á vetrarvertíðinni og þá einnig
veiðarfæraeftirlit og björgun-
arstarfsemi. Eftir vertíðina var
gæzlusvæðið hér og þar eftir
því, sem þörf krafði. Óðinn
veitti 18 bátum ýmiskonar að-
stoð, dró þá að landi eða að-
stoðaði á annan hátt. Þá tók
hann upp tvo netahnúta fyrir
báta og fylgdi 5 trillubátum til
Norðurlands. Óðinn tók tvo út-
lenda togara og eitt íslenzkt
vélskip að landhelgisveiðum,
einnig þrjá dragnótabáta. Um
tíma var skipið við síldarrann-
sóknir við Norðurland, einnig
nokkuð við sjómælingar við
Austurland.
Varðskipið Þór.
Þegar stríðið brauzt út, þótti
það sýnt, að ekki myndi verða
mjög mikill ágangur af út-
lendum togurum hér við land og
ar því ákveðið að leigja v. s. Þór
til fiskflutninga til Bretlands.
Var litið svo á, að með því að
hafa skipið í fiskflutningum
væri það í samræmi við það
hlutverk, sem því var ætlað —
það er að styðja að bættri af-
komu bátaútvegsins — en' þá
var vitað, að mikil vöntun
myndi verða á skipum til að
koma fiskinum á erlendan
markað. Skipið var leigt til
fiskflutninga gegn föstu dag-
gjaldi og hluta af söluverði
fiskjarins í Bretlandi og feng-
ust af því nokkrar tekjur.
Varðbáturinn Faxi.
Vélbáturinn Faxi var leigð-
ur til landhelgisgæzlu frá júní
til -áramóta og var hann hafð-
ur fyrst í Faxaflóa og síðan
við Vesturland.' Faxi tók
einn íslenzkan togara að land-
helgisveiðum og eitt útlent
dragnótaskip. Hann hjálpaði
þremur vélbátum að landi.
Að undanfömu hefir hingað verið
von færeyskrar sendinefndar, sem
skyldi hafa það hlutverk að leita sam-
vinnu við íslenzk stjórnarvöld, ef til
úrlausnar mætti verða ýmsum vand-
kvæðum, sem færeyska þjóðin á við að
búa, einkum að því, er lýtur að örðug-
leikum um skipakost til aðflutninga á
amerískum vörum. Jafnframt var
sendinefnd þessari hugað það verkefni,
að kynna sér þær ráðstafanir, er gerð-
ar væru hér á landi, til þess að draga
úr erfiðleikum, sem styrjöldin hefði í
för með sér fyrir þjóðina. Þykir sýnt,
að svipaðar ráðstafanir og íslenzku
stjórnarvöldin gera til þess að tryggja
afkomu og velfarnað atvinnuveganna
hér, megi einnig að haldi koma, sum-
ar hverjar, í Færeyjum, þar sem að-
staðan er að mörgu leytl lík. Sendi-
nefnd þessi kom til Reykjavíkur 1
fyrradag á togaranum Thor II. Eru í
henni sjö menn, Ole Jakob Jensen,
fulltrúi Fölkaflokksins, P. M. Dam,
fulltrúi jafnaðarmanna og Sjálvstýri-
flokksins, Joen Rasmussen, fulltrúi
Sambandsflokksins, J. P. Eliassen, full-
trúi sjómanna, Michel Godtfred, full-
trúi útvegsmanna, Hjalmar Nielsen,
fulltrúi kaupmanna.og Djurhuus sýslu-
maður, fulltrúi amtmannsins. Munu
þegar vera hafnar viðræður hinna fær-
eysku sendimanna og stjómarvaldanna
hér.
t t t
Belgiskur togari, „George Edward",
strandaði á Bolhraunafjöru á Mýr-
Margt bendir nú til þess, að
Bretar og Bandaríkjamenn ótt-
ist, að Japanir fari á stúfana
um líkt leyti og Þjóðverjar
hefja sókn í Evrópu.
Það hefir löngum ýerið kunn-
ugt, að Japanir hafa augastað á
hinum auðugu nýlendum Hol-
lendinga (Sumatra, Borneo,
Celebes), Indo-Kína, (franskr-
ar nýlendu), Thailandi (Siam)
og Malajaskaganum, þar sem er
hin öfluga flotahöfn Breta,
Singapore.
Sérstaka athygli hefir það
vakið, að Japanir hafa tekið að
sér að miðla málum í landa-
dalssandi aðfaranótt föstudags síðastl.
Var svartamyrkur, stormur og rigning,
er skipið strandaði. Úr landi urðu
menn strandsins ekki varir. Tólf
menn munu hafa verið á togaranum.
Sjö þeirra komust að Höfðabrekku,
austasta bæ í Mýrdal, seint í gær, illa
til reika og aðfram komnir af þreytu.
Var strax hafin leit að þeim, sem
vantaði. Tveir þeirra mimu hafa far-
izt í lendingunni, en þrír dóu af vos-
búð og kulda eða örmögnuðust af
þreytu, er á land var komið. Lík þeirra
eru öll fundin. Strandmennimir voru
kyrrir á Höfðabrekku um hádegi í
dag og voru þá allir komnir á fætur,
nema einn.
t t t
Félagsdómur feldi þann úrskurð í
gær, að verkfall þjóna, matsveina og
hljóðfæraleikara á veitingahúsum
sé ólögmætt. Þegar starfsstúlkur á
veitlngahúsum hófu verkfall, fyrir-
skipaði Alþýðusamband íslands félagi
þjóna, matsveina og hljóðfæraleikara
að hefja samúðarverkfall á þessum
stöðum. Fyrirskipun þessari var hlýtt.
Vinnuveitendafélag íslands kærði
þetta til félagsdóms. Úrskurðaði hann
samúðarverkfall þetta ólögmætt, þar
sem það hefði verið hafið tafarlaust,
en ekki með hinum lögboðna sjö daga
fyrirvara.
t t t
Sigurður Jónsson, bóndi að Stafa-
felli í Lóni, sagði Tímanum þessi tíð-
indi úr eystri hluta Austur-Skaftafells-
mæradeilu, sem hefir risið milli
Indo-Kína og Thailand. í sum-
ar neyddu Japanir Frakka til
að afhenda sér flugvelli í Indo-
Kína og óttast Bretar, að Jap-
anir ætli nú að nota þetta tæki-
færi til að fá sömu hlunnindi
í Thailandi, en þaðan væri auð-
velt að gera flugárásir á Singa-
pore,
Þá hafa Japanir fært sig upp
á skaftið við nýlendustjórn
Hollendinga. Hafa þeir gert
kröfu um hagnýtingu auðlinda
þar, innflutning Japana til ný-
lendanna o. s. frv. Hollending-
(Framh. á 4. síðu.)
sýslu: — Síðastliðið ár var lítið um
verklegar framkvæmdir. Þó var tals-
vert unnið að jarðabótum, einkum
túnasléttum og framræslu. Byggingar
voru nokkrar, þó í smáum stíl, helzt
umbætur á útihúsum. Rafstöð var
byggð á Þorgeirsstöðum í Lóni, lítil
ljósastöð við bæjarlækinn. Tíð var
óvenjugóð allt haustið, og í vetur hefir
varla sést snjór. Heyfengur var góður,
en garðávextir spruttu illa yfirleitt,
þótt einstöku bændur fengju tífalda
uppskeru. Heilsufar hefir verið gott
hjá fólki og fénaði. Nokkrir bændur
tóku sauðfé á gjöf í nóvembermánuði,
en flestir með komu desembermánaðar,
og er það í fyrra lagi á svo góðum
vetri.
t t r
í haust komu 8 kindur í Stafafells-
rétt, er gengið höfðu úti í Kollumúla
veturinn 1939—40. Voru það þrjár full-
orðnar ær og fimm veturgamlar kind-
ur, þrjár gimbrar og tveir hrútar.
Kindur þessar voru flestar í tveimur
reifum, rúböggum, og vöktu athygli
manna sökum þess, hve sumar þeirra
báru af öllu öðru fé í réttinni að væn-
leika og þroska, því, sem hafði verið
hýst og gefið hey og síldarmjöl. Full-
orðnu ærnar þrjár og tvær veturgaml-
ar voru með lömbum, síðbæringum,
sem sennilega hafa fæðst í ágústmán-
uðl.
t t t
Rjúpur hafa varla sést í byggð eða
(Framh. á 4. siðu.)
Erlendar fréttir
Tveir atburðir hafa gerzt, er
þykja benda til, að Þjóðverjar
fari að hefja hina margum-
ræddu sókn sína á Balkan-
skaga. Annar er, að forsætis-
ráðherra og utanríkisráðherra
Jugóslavíu hefir verið boðið til
Þýzkalands til að ræða við
stjórnmálamenn þar. Eru þeir
nú í Þýzkalandi. Hinn er, að
búlgarska útvarpið skýrði i
fyrradag frá því, að Búlgarar
væru nú nær því en nokkuru
sinni fyrr, að fá aðgang að
Grikklandshafi, þ. e. land-
spildu, sem myndi aðskilja
Tyrkland og Grikkland. Hafa
Búlgarar heimtað þetta land
af Grikkjum, en haft hljótt um
þær kröfur síðan styrjöldin
hófst þangað til nú.
Þýzk herskip réðust nýlega á
stóra brezka skipalest á At-
lantzhafi, segir í þýzkum frétt-
um, og var 14 brezkum skipum
sökkt. Voru þau hlaðin her-
gögnum frá Bandaríkjunum.
Segja Þjóðverjar, að þetta sé
stórfelldasta árásin, er þeir
hafi gert til þessa. í London er
viðurkennt, að slík árás hafi átt
sér stað, en ekki sé enn full-
kunnugt um tjónið.
Utanríkismálanefnd öldunga-
deildar Bandaríkjaþingsins hef-
ir samþykkt frumvarp Roose-
velts um hjálp til Breta með
15:8 atkv. og eru nú byrjaðar
umræður um frumvarpið í
deildinni sjálfri. Fulltrúadeild-
in er búin að samþykkja það.
Grikkir telja sig hafa hafið
sókn á 125 km. breiðri víglínu
og hefir þeim þegar orðið vel á-
gengt á þremur þýðingarmikl-
um stöðum. Brezki flugherinn
styður sóknina með auknum
loftárásum á stöðvar óvinanna.
Leikarar í Noregi hafa reynst
norskum nazistum mjög óþjálir.
Hafa þeir m. a. neitað að
skemmta á hátíðum hjá nazist-
um. Hefir nazistastjórnin þvi
gripið til ýmsra þvingunarráð-
stafana gegn leikurum, sem
ekki verða við slíkum beiðnum.
Franco er nú kominn heim
úr för sinni til Ítalíu. Á heim-
leiðinni átti hann 1 y2 klst. við-
ræðu við Petain. Ókunnugt er
um viðræðuefni Franco og
I Mussolini.
A víðavangi
ANDLEGT FRELSI OG
KOMMÚNISTAR.
Blöð kommúnista halda því
fram, að enginn munur sé á
stjórn Breta og Þjóðverja í her-
teknum löndum. í þvi sambandi
er athyglisvert að bera saman
kjör skálda og andans manna
hér og i Noregi. í Noregi hafa
sum fremstu skáldin flúið land,
eins og t. d. Sigrid Undset, Nor-
dahl Grieg, Cora Sandel og
Helge Krogh. Þau, sem ekki hafa
komizt úr landi og ekki hafa
viljað beygja sig fyrir hinu er-
lenda ofríki, mega ekkert láta
til sín heyra. Sum þeirra hafa
verið fangelsuð eins og Ronald
Fangen, sem lét í ljós andúð
sína á harðstj órninni. Ritstjóri
hins þekkta tímarits „Sam-
tiden“, Worm-Miiller prófessor,
hefir orðið að flýja land, en öðr-
um mjög þekktum rithöfundi,
Johan Scharffenberg, hefir ver-
ið varpað í fangelsi. Margir
beztu og þekktustu blaðamenn
Noregs eru í fangabúðum naz-
ista. Verk sumra helztu skáld-
anna t. d. Sigridar Undset hafa
verið bönnuð. Hér á landi njóta
menn fulls skoðana- og ritfrels-
is og Bretar hafa engin afskipti
haft af þeim málum. Þeir einir,
sem einskis meta þessi réttindi,
geta lagt stjórn Breta og Þjóð-
verja að jöfnu, og það undrar
vafalaust engan, þótt komm-
únista sé að finna í þeim hópi.
TUNDURDUFLAHÆTTAN.
Daglega berast nú fréttir af
tundurduflum, sem eru á reki
við strendur landsins, sérstak-
lega úti fyrir Norðurlandi. Staf-
ar sjófarendum mikil hætta af
duflunum, og búast má við að
þau geti valdið tjóni á stöðum,
þar sem þau berast að landi.
Strandferðaskipin verða einnig
fyrir miklum töfum af þessum
orsökum. Verður að gera þær
kröfur til ríkisstjórnarinnar, að
hún geri nú þegar ráðstafanir
til að afstýra tundurduflahætt-
unni. M. a. munu strandferða-
skipin og varöskipin ekki hafa
leyfi til að granda tundurdufl-
um á siglingaleiðum, sem ekki
eru á hættusvæði. Slíkt leyfi
munu Færeyingar hafa og
sprengja þeir duflin með skot-
um úr hæfilegri fjarlægð. Verð-
ur að teljast sjálfsagt að slíkt
megi einnig gera hér.
ÍSLAND OG „VERND“
STÓRVELDANNA.
Kommúnistablaðið hefir und-
anfarið fullyrt að ýmsir menn
hér á landi muni vilja ,,vernd“
Bandaríkjanna. Hingað til er
ekki kunnugt um, að aðrir en
kommúnistar hafi hreyft því, að
ísland ætti að biðja um „vernd“
stórveldanna. Má í þeim efnum
minna á þá ósk Einars Olgeirs-
sonar á Alþingi, þegar „Emden“
kom til landsins, að brezk og
bandarísk herskip yrðu fengin
til að koma hingað. í „Tímariti
Máls og menningar“ í sumar
segir Kristinn Andrésson á þessa
leið: „Ef til vill gæti einhvern
tíma skapast það ástand hér á
landi, t. d. við það að fasista-
ríkin undirokuðu okkur, að ís-
lenzk alþýða eða jafnvel borg-
araleg ríkisstjórn óskaði í ein-
hverri mynd eftir stjórnmála-
legri aðstoð Sovétríkjanna“.
(Tímarit Máls og menningar
1940 2. hefti bls. 98—99). Kom-
múnistum ber því fyrst og
fremst að skamma sjálfa sig, ef
þeim finnst það einhver voða-
synd að óska eftir „vernd“ er-
lends stórveldis. Og alveg sér-
staklega ættu þeir að skamma
Kristinn Andrésson og aðra að-
standendur Máls og menningar,
sem hafa látið ritið flytja þá
skoðun athugasemdalaust, að
íslendingar ættu að biðja um
„vernd“ þess stórveldis, sem
gengur nú einna röggsamlegast
fram í því að undiroka smá-
þjóðir.
Á. KROSSGÖTUM
Færeysk samninganefnd. — Strandmenn á Mýrdalssandi. — Frá félagsdómi.
— Úr austursveitum Skaftafellssýslu. — Útigöngufé. — Rjúpum fjölgar. —
Minnkandi hlunnindi. —