Tíminn - 15.02.1941, Qupperneq 2
74
19. blað
TÍMKyrc, laagardagmn 15. febr. 1941
^ímirm
Luufiurdafiinn 15. febr.
Síldarverksmiðjurn-
ar og frystihúsin
Um leið og Framsóknarflokk-
urinn hefir haft forustu í þeim
framfaramálum, sem sérstak-
lega snerta landbúnaðinn, hef-
ir hann beitt sér fyrir hags-
munamálum framleiðendanna
við sjóinn, og átt frumkvæði að
eða stutt helztu nýmælin í ís-
lenzkri löggjöf til hagsbóta fyr-
ir sjávarútveginn. Til sönnun-
ar því nægir að benda á, að
Framsóknarflokkurinn hafði
forgöngu um byggingu síldar-
verksmiðja rikisins, kæliskips-
ins og frystihúsanna, sem hafa
reynst einhverjar happadrýgstu
framkvæmdir fyrir sjávarút-
veginn, og þjóðina í heild, á
liðnum árum.
Samkvæmt ályktun Alþingis
árið 1924 var skipuð fimm
manna nefnd til að rannsaka
verkefni fyrir kæliskip hér viö
land og undirbúa áætlanir um
stærð þess, byggingarkostnað,
rekstrarkostnað og annað, er
máli skipti í því efni. Nefndar-
menn urðu ekki sammála um
tillögur í málinu. Meirihluti
nefndarinnar, formaðurinn og
fulltrúar verzlunarráðsins og
Fiskifélagsins, vildi fresta mál-
inu. Kom fram sú skoðun í áliti
þeirra, að kæli- og frystiskip
myndi ekki koma að gagni fyrir
sjávarútveginn. Framsóknar-
mennirnir í nefndinni, Jón
Árnason og Tryggvi Þórhalls-
son, skiluðu itarlegu áliti og
tillögum um málið. Eftir þeirra
tillögum voru sett lög um fram-
lag til kæliskipskaupa og sam-
ið við Eimskipafélagið um
byggingu „Brúarfoss."
Fyrsta síldarverksmiðja rík-
isins tók til starfa árið 1930.
Framsóknarflokkurinn beitti sér
fyrir stofnun hennar, og var
Magnús Kristjánsson ráðherra
upphafsmaður málsins. Síðar
keypti ríkið Raufarhafnarverk-
smiðjuna, einnig eftir tillögum
Framsóknarmanna. Ríkisverk-
smiðjurnar hafa oft verið
stækkaðar á undanförnum ár-
um, og afköst þeirra margfald-
ast síðan 1930.
Lögin um fiskimálanefnd voru
'samþykkt á þinginu 1934, og
stóðu Framsóknar- og Alþýðu-
flokkurinn að þeirri lagasetn-
ingu. f þeim lögum var m. a.
ákveðið, að nefndin skyldi hlut-
ast til um, að gerðar yrðu til-
raunir með nýjar verkunarað-
ferðir sjávarafurða. Tilraunir
með hraðfrystingu á fiski og
sölu á þeirri vöru á erlendum
markaði hófust fyrst fyrir al-
vöru með starfsemi Fiskimála-
nefndar. Árið áður en nefndin
tók til starfa, var fluttur út
frystur fiskur fyrir affeins 79
þús. -kr., en síðastliðiff ár fyrir
11 miljónir króna.
í útvarpserindi atvinnumála-
ráðherrans 6. þ. m., er greini-
lega lýst árangrinum af þeim
framkvæmdum, sem hér hafa
verið nefndar. Um það sagði
ráðherrann m. a.:
„Það er lán, að úr því hægt
er að selja síldarmjöl og jafn-
vel líka síldarlýsi, skuli vera
til í landinu margar og stór-
ar síldarverksmiðjur, og það
er lán, að úr því hægt er að
selja frystan fisk, þá skulum
við bæði eiga frystihúsin og
kæliskipakost, er nægir þörf-
unum.“
Og atvinnumálaráðherrann
sagði meira um þýðingu þess-
ara framkvæmda. Eftir því sem
frá er skýrt í ísafold, fórust
honum orð á þessa leið:
„Það er engum vafa undir-
orpið, að mikill þorri manna
bæði á sjó og landi myndi
með engu móti hafa getað
tryggt sér svipaða afkomu og
raun varð á, ef eigi hefðu
þeir notið starfsemi frysti-
húsanna. Þarf og eigi fleiri
vitni en þær 11 miljónir, er
fengust fyrir frysta fiskinn,
til að sanna hverja þýðingu
hraðfrysti fiskurinn nú þeg-
ar hefir í öllum þjóðarbú-
skapnum."
Það er enginn vafi á því, að
þessi ummæli Ólafs Thors at-
Jón Eyþórsson:
Opið brcf til f.vrirtækisins
..tlsils i>s mennin^arM
Bókasöfnín í Reykjavík
Virðulega félagsstjórn.
Mér hefir nýlega borizt 3.
hefti Tímarits máls og menn-
ingar. Efni þess hefir orðið mér,
og væntanlega fleirum áskrif-
endum að ársbókum yðar, til-
efni til eftirþanka, sem ég vil
ekki þegja yfir.
í fyrsta lagi er þarna skýrt
frá nýrri „stjórn“ í félaginu og
„fulltrúaráði." Þetta er þannig
til orðið, að stofnendur og eig-
endur útgáfunnar tilnefna 25
menn, sem þeir kalla „fulltrúa-
ráð.“ Fulltrúaráðið kemur svo
saman og kýs stjórn — án at-
kvæðagreiðslu.
Þetta mun vera sæmilega ná-
kvæm eftirlíking af kosningu í
einræðisríkjunum og nákvæm
eftirlíking af skjaldborg Bryn-
leifs á Akureyri, enda er „Mál
og menning" ekki félag í venju-
legri merkingu, heldur einka-
fyrirtæki. Stjórn þess er ekki
rétt kjörin félagsstjórn, heldur
einskonar „sóvétt“, sem virðist
stefna að því að beita sjálf-
teknu valdi yfir íslenzkum bók-
menntum — máli og menningu.
í öðru lagi er megnið af heft-
inu lærdómsríkt sýnishorn af
stefnu þessarar andlegu „sóv-
éttstjórnar", enda stendur þar
letrað:
„Mál og menning getur ekki
án þess verið að eiga tímarit
til sóknar og varnar þeim
menningarlegu áhugamálum,
sem félagið berst fyrir.“
Hvernig lýsa nú þessi „menn-
ingarlegu áhugamál“ sér í
tímaritinu?
vinnumálaráðherra eru á rök-
um byggð. Með byggingu síld-
arverksmiðjanna, hraðfrysti-
húsanna, sem nú eru 33 að tölu,
og kæliskipsins, var lögð und-
irstaða að viðreisn sjávarút-
vegsins. En viffskiptamálastefna
Framsóknarflokksins á undan-
förnum árum gerði þessar þýff-
ingarmiklu framkvæmdir mögu-
legar.
í stað þess að flytja inn
„kramvörur“ fyrir þann tak-
markaða gjaldeyri, sem þjóðin
hafði yfir að ráða á árunum
1935—1939, var keypt til lands-
ins efni og vélar til nýrra síld-
arverksmiðja og hraðfrysti-
húsa, i stærri stíl en nokkru
sinni áður.
Reynslan hefir sannað, að
stefna Framsóknarflokksins í
þessum málum var rétt.
Sk. G.
Fyrst og fremst í níði um tvo
menn, þá Jónas Jónsson og
Guðmund Hagalín. Þeir eru
taldir sérstaklega fjandsamleg-
ir menningunni, annar sem
stj.órnmálamaður, hinn sem rit-
höfundur. Enn fremur eru allir
trúnaðarmenn þjóðfélagsins
bannsungnir fyrir heimsku, lít-
ilmennsku og rangsleitni. Þeir
vinna að því ráðnum hug að ala
þjóðina upp „til auðsveipni og
hlýðni, til sleikjuskapar og
flærðar, til aðdáunar á heimsku
og fláttskap, til lítilsvirðingar á
gáfum og hæfileikum“ (bls.
204) — — „Allur skáldskapur á
að vera sauðfrómt andleysi,
gyllandi lífslygi og helzt af öllu
eitthvert taugastyrkjandi lyf
fyrir sjúklinga.“ — — — ís-
lenzkum ritdómurum er hald-
ið í myrkrastofu andlegrar
vesalmennsku. „Þeir eiga að
skrifa,---------þegar tign þeirra
nær hæst, áróðursdóma um
eitthvert skáldverkið, sem
þeirra æðstu yfirboðarar álíta
nógu lélegt til þess að megi
gylla það fyrir þjóðinni.“ En
upp úr öllu þessu svaði gnæfa
svo aðéins „Ijós heimsins“, H. K.
Laxness, Þorbergur Þórðarson
og ritstjóri Tímaritsins, Krist-
inn Andrésson!
Uppmjóir gerast þeir nú for-
verðir íslenzkrar menningar.
* * *
Það getur varla hjá því farið,
að útgáfa slíks rits, sem þessa,
veki fólk til umhugsunar um
skipulag, menningarleg áhuga-
mál og starfsemi fyrirtækis
yðar.
Á það hefir verið bent, að Mál
og menning væri fyrst og
fremst til þess stofnað, að
dreifa áróðursritum kommún-
ista út um landið, og fá almenn-
ing til að kaupa, með því að láta
fljóta með nokkuð af bókum
almenns efnis, stundum sæmi-
legum, eins og t. d. rit Jóhanns
Sigurjónssonar, stundum stór-
lega misheppnuðum eins og
„Efnisheiminn“ eftir B. Franz-
son.
Útgáfustjóri og stjórn félags-
ins hefir jafnoft lýst yfir því,
að félagið væri aðeins saklaust
bókmenntafélag, sem vildi á
engan hátt vera bendlað við
stjórnmálalegar deilur. Til
sönnunar hefir á það verið
bent, að félagið hætti að gefa
út „Rauða penna“ og að í stjórn
þess væru meðfram „skikkan-
legir borgarar" — nú síðast
Sigurður Nordal, Sigurður
Thorlacius og Ragnar Ólafsson.
Margur mundi og freistast til
þess að ætla þessa menn svo
vanda að virðingu sinni, að þeir
gættu þess, að yfirlýsingar fé-
lagsins væru haldnar. En svo
kemur Tímaritið. Og með þvi er
grímunni svipt. Eingöngu er
það skrifað af kommúnistum,
þeim H. K. Laxness, Kristni
Andréssyni, Gunnari Bene-
diktssyni og Birni Franzsyni.
Meginefni þess er, eins og áð-
ur er vikið að, níð um allt og
alla í sama stíl og Þjóðviljinn
flytur daglega. Þar eru m. a. ó-
sannindi og rógmælgi um Ríkis-
útvarpið, og þykir kommúnist-
um að vonum hart að verða að
hlíta þar sömu reglum og aðrir
um auglýsingar; en þeir hafá
öðrum fremur reynzt ágengir til
misnotkunar í því efni.
Það skiptir e. t. v. ekki miklu
fyrir stjórn Máls og menningar,
þótt ég verði að ‘ lýsa Kristin
Andrésson vísvitandi ósann-
indamann að öllum dylgjum
sínum og firrum um störf mím
við Ríkisútvarpið. Má og vera,
að honum gefist kostur á að
standa fyrir máli sínu á öðrum
vettvangi.
Þetta hefti tímaritsins er allri
útgáfustj órninni og „fulltrúa-
ráðinu“ til ófrægðar, og þó rit-
stjóranum mest, ef hann gæti
nokkru við sig bætt.
H. K. Laxness, Skáldið, er til-
takanlega viðskotaillur í grein-
arstúfum sínum. Að vísu gerir
hann réttilega gys að vininum
Þórbergi fyrir átrúnað á séra
Láru. En svo verður hann sjá-
anlega miður sín af rætni og
geðvonzku. — Leikur mér að
vísu nokkur forvitni á því, hvort
margir verði til þess að finna
„skógarilm í gegnum svefninn“
af þessum síðustu sorpgreinum
Skáldsins.
Sigurður Thorlacius er vara-
maður minn í útvarpsráði. Hann
vil ég sérstaklega spyrja, hvort
rógmælgin um útvarpið sé fram
komin með hans vitund, hvort
hann sé henni samþykkur og á
hverju sú skoðun sé þá reist?
* * *
Mál og menning hefir mjög
haldið á lofti væntanlegri út-
gáfu á stórri bók, sem á að heita
„Arfur íslendinga“. Er krafist,
að félagsmenn greiði hana að
miklu leyti fyrir fram. Það er
nú heldur óvenjulegt að greiða
bækur, sem er ekki byrjað að
prenta, þegar engin trygging eða
Ein merkasta og þýðingar-
mesta menningarstofnun hér á
íslandi er Landsbókasafnið í
Reykjavík. Safnahúsið við
Hverfisgötu er ein myndarleg-
asta framkvæmdin frá stjórn-
artímabili hins ágæta fram-
faramanns, Hannesar Haf-
steins. í þessu safni munu nú
vera um 140 þúsundir binda,
innlendar og erlendar bækur og
íslenzk pappírshandrit. (Skinn-
handritin fornu eru, svo sem
kunnugt er, flestöll erlendis,
aðallega í Árnasafni og Kon-
unglega bókasafninu í Kaup-
mannahöfn). í Landsbókasafn-
inu fara fram bókaútlán, og þar
er lestrarsalur með sætum og
vinnuborðum fyrir nálega 40
manns. Þannig var frá þessari
góðu stofnun gengið fyrir 30
árum — en því fer fjarri, að
henni hafi verið hlutfallslega
jafn sómi sýndur á síðari ára-
tugum.
Mjög verulegur hluti af ár-
legri bókaviðbót safnsins berst
því ókeypis. Það er lagaskylda,
að afhenda safninu 2 eintök af
hverri bók eða blaði, sem prent-
að er hér á landi. Auk þess hafa
ýmsir erlendir útgefendur gef-
ið safninu útgáfubækur sínar.
Fjárframlag ríkisins er ekki
meira en svo, að mikið af því
fer til bókbands, og lítið verður
afgangs til bókakaupa. Af þess-
um ástæðum á safnið allt of
lítinn kost erlendra bóka, og
nýjar erlendar bækur eru þar
svo að segja aldrei fyrir hendi.
Hitt er þó enn hörmulegra, að
aðstaðan til að nota safnið er
svo slæm, að óviðunandi er.
fjárhagslegt aðhald kemur á
móti. Hin sjálfskipaða stjórn er
ekki trúnaðarmenn áskrifend-
anna eða gjaldendanna á nokk-
urn hátt, og „Mál og menning“
er ekki félag, heldur hreint
einkafyrirtæki nokkurra manna,
þar sem kommúnistar, með Kr.
Andrésson í fararbroddi, virðast
hafa tögl og halgdir.
Flestum áskrifendum er þetta
ljóst, og þess vegna hygg ég að
meginþorri þeirra hafi reynzt
tregur til þess að greiða fyrir
fram. Afdrif bókaforlags komm-
únista, Heimskringlu, er og
nokkur viðvörun í því efni.
Þér, virðulega stjórn og full-
trúaráð „Máls og menningar",
munuð komast að raun um, að
fyrirtæki ykkar er dæmt til
dauða, ef svo fer fram sem nú
horfir um starfsemi þess. fs-
lendingar munu ekki óska eftir
né styðja andlega „sóvjétt-
stjórn“ til valda í landinu,
fremur en veraldlega.
Virðingarfyllst.
Jón Eyþórsson.
Þegar þjóðleikhúsbáknið var
reist fyrir 10 árum, við austur-
enda safnahússins, var þar með
bægt öllu sólarljósi frá bóka-
sölunum. Bókageymsla er nú
orðið alveg ófullnægjandi og til
mestu tafar fyrir bókaverðina.
Lestrarsalurinn er ékki opinn
nema 6 stundir daglega frá kl.
1—7 e. h. og mun það vera fá-
títt'um slíka staði erlendis. En
jafnvel þennan stutta tíma er
óverandi í safninu sakir kulda.
Miðstöðvarhitun hússins er í ó-
lagi og þarf rækilegra endur-
bóta, ef líft á að vera í húsinu
fyrir gesti þess og starfsmenn.
Mér er sagt, að kennslumála-
ráðherrann sé nú i vetur að láta
gera við glugga hússins, og er
það góðra gjalda vert. En hér
þarf að g*era meira. Það sýnist
vera nokkuð mikil fjarstæða, að
verja of fjár til að reisa óþarf-
lega dýr opinber stórhýsi, en
vanrækja á sama tíma eina
nytsömustu menningarstofnun
höfuðstaðarins. Landsbóka-
safnið og lestrarsalur þess hefir
um langt skeið verið höfuðat-
hvarf fræðimanna, og fjöldi
námsmanna víðsvegar af land-
inu, sem búið hefir við þröngan
híbýlakost, hafa átt þar sama-
stað, þar sem þeir hafa getað
búið sig undir kennslustundir
og notað handbækur safnins.
Það þarf mikið skólahald til að
vega upp á móti þeirri menn-
ingarstarfsemi, sem þarna hefir
farið fram, eða gæti farið fram,
ef vel Væri fyrir séð.
í Reykjavík er annað bóka-
safn, sem er álíka herfilega
vanrækt. Það er Bæjarbóka-
safnið, eða Alþýðubókasafnið,
sem áður var nefnt. Reykvík-
ingar hafa sýnt mjög lofsverða
viðleitni til að nota sér þetta
safn, og þeir, sem bækurnar
lesa, greiða dálítið gjald fyrir
notkun þeirra. En um aðbúnað
þessa safns má sama segja og
aðbúnað Landsbókasafnsins, og
þó sýnu verra. Lestrarsalurinn
er allt of lítill og svo kaldur, að
menn verða að sitja þar inni í
ýfirhöfnum, enda engin fata-
geymsla til! Bókageymslan og
vinnuaðstaða bókavarða neðan
við allar hellur.
Það er eitt m. a. til marks um
rausn þeirra, er stóðu fyrir
byggingu hins nýja háskóla-
húss, að þar er húsrúm fyrir
bókasafn, sem telja má um 150
þúsundir binda, eða heldur
stærra en Landsbókasafnið allt.
í þetta húsrúm mun svo hinu
opinbera ætlað að kaupa bæk-
ur. Virðist þá, sem legið hefði
nær, að efla Landsbókasafnið
og bæta aðbúð þar, og að hæp-
ið sé fyrir hið opinbera að verja
miklu fé til að koma upp nýju
(Framh. á 4. slSu.) .
Giiðjón Teitsson:
Verð skipa síðustu 40 árin
Hvenær á að hofjast handa um endurnýjun
íslenzka skinastólsins?
Vegna legu íslands og þess,
að sjávarútvegur er og mun um
langa framtíð verða einn aðal
þátturinn í atvinnulífi lands-
manna, er íslendingum lífs-
nauðsyn að vera siglingaþjóð og
eiga góðan og fullkominn
skipastól.
Það er því hið mesta áhyggju-
efni, að svo að segja allur skipa-
floti landsmanna, einkanlega
hinna stærri skipa, er orðinn
gamall og úr sér genginn, og um
togarana er það að segja, að
ekki er annað sýnt en að taka
verði meirahluta þeirra til nið-
urrifs mjög bráðlega að styrj-
öldinni lokinni. Ástandið er
ekki eins slæmt, að því er kaup-
skipin snertir, en þó eru þau
flest orðin það gömul, að æski-
legt væri að geta endurnýjað
þau sem allra fyrst. Auk þess
eru þessi skip, eins og fiski-
skipin, allt of fá, þannig. að
bæta þarf við nýjum skipum.
En endurnýjun og aukning
skipaflotans kostar mikið fé, og
það er nauðsynlegt að athuga
gaumgæfilega, hvernig á að
haga framkvæmdum í þessu
efni og hvenær á að ráðast í
þær.
Ég geri ráð fyrir, að meðan
styrjöldin stendur, verði varla
um þáð að ræða að fá skip
byggð eða keypt erlendis, og að
styrjöldinni lokinni er ómögu-
legt að segja, hvernig ástandið
verður. Það er hugsanlegt, að
þær þjóðir, sem aöallega fást
við skipasmíðar, byggi fyrst um
sinn aðeins fyrir sig sjálfar. En
það er líka hugsanlegt, að þess-
ar þjóðir sumar hverjar verði
svo fátækar og illa staddar, að
þær taki heldur þann úrkost, a.
m. k. fyrst í stað, að byggja fyr-
ir aðra, sem hafa betri ástæður.
Eins og horfir, er ekki ólík-
legt, að íslendingar verði meðal
þeirra þjóða, sem hagnast pen-
ingalega meðan á styrjöldinni
stendur. Og verði svo, þá munu
þeir peningar aðallega safnast
í hendur þeirra manna, sem
eiga hin stærri skip, þau, er
sigla á milli landa til fisksölu
eða almennrá vöruflutninga.
Standi styrjöldin lengi, er útlit
fyrir að gróði þessara aðila
verði mikill, og mun slíkt sam-
kvæmt venju, skapa stórhug og
bjartsýni um áframhaldandi
velgengni, enda er samkvæmt
fyrri reynslu full ástæða til að
ætla, að skipaeigendur haldi á-
fram að græða verulega, a. m. k.
fyrst um nokkurt skeið eftir
að styrjöldinni lýkur. Kemur
þá til greina, hvort þeir eiga að
nota allra fyrstu tækifæri, sem
bjóðast til þess að auka og end-
urnýja skipastólinn, eins og
gert var í heímsstyrjöldinni
1914—18 og eftir hana.
Grein þessi er skrifuð í þeim
tilgangi, að ráða mönnum til
allrar varfærni í þessu efni,
enda þótt ekki sé dregið úr því,
að þörf sé á að auka og endur-
nýja skipastólinn.
í árlegu yfirliti enska viku-
ritsins Fairplay, sem aðallega
fjallar um skipaútgerð og sigl-
ingar, birtist hinn 9. janúar þ.
á. mjög"' fróðlegt yfirlit um
byggingarkostnað og markaðs-
verð skipa frá því um síöustu
aldamót. Og með því að mér
finnst, að þær upplýsingar, sem
í þessu yfirliti felast, séu mjög
athyglisverðar fyrir oss íslend-
inga, þá vil ég hérmeð skýra frá
aðalinnihaldi þeirra.
Blaðið hefir tekið fyrir að
fylgjast með byggingarkostn-
aði og markaðsverði 7500 smál.
vöruflutningaskipa með á-
kveðnu einíöldu byggingarlagi,
og telur sig með nánu sam-
starfi við hina færustu skip.a-
smiði og með hliðsjón af hag-
skýrslum um skipasölur, geta
sýnt fram á, hvað kostað hafi
að byggja skip af þeirri gerð,
sem um er að ræða og hvað slík
skip hafi á hverjum tíma selzt
fyrir nýsmíðuð frá því um alda-
mót. Hefir oft og tíðum orðið
töluverður mismunur á mark-
aðsverðinu og byggingarverð-
inu eða kostnaðarverðinu, eftir
því, hvort arðvænlega hefir
horft um vöruflutninga eða
ekki.
markaðsverð á nýju flutninga-
skipi, 7500 smál. deadweight,
Hér er þá skýrsla Fairplay um
tilbúnu til siglinga.
Ár Marz Júnl Sept. Des.
£ £ £ £
1900 51.500 54.000 52.000 60.750
1901 55.000 49.250 50.000 48.250
1902 46.250 43.000 48.500 47.750
1903 47.250 50.500 40.000 39.250
1904 39.000 38.750 38.500 39.000
1905 37.750 36.500 42.000 44.500
1906 40.000 43.000 42.000 40.750
1907 40.750 41.000 39.500 39.000
1908 37.500 36.000 36.000 36.250
1909 36.250 36.250 36.500 38.500
1910 37.500 36.500 37.000 39.750
1911 ^ooo 43.000 45.000 46.500
1912 48.500 50.500 52.000 58.000
1913 55.500 54.000 50.500 47.500
1914 45.500 42.500 55.000 60.000
1915 71.000 82.500 93.750 150.000
1916 160.000 180.000 184.000 187.500
1917 187.100 178.500 172.000 165.000
1918 172.000 180.500 174.000 169.000
1919 181.000 195.000 215.000 232.500
1920 258.750 180.000 141.000 105.000
1921 82.500 63.750 60.000 60.000
1922 66.000 62.000 63.750 65.650
1923 65.750 62.500 60.000 60.000
1924 62.750 60.000 63.000 61.500
1925 60.250 55.500 52.500 52.500
1926 52.500 52.500 63.000 61.000
1927 66.000 63.000 62.000 62.000
1928 60.000 57.000 57.000 62.000
1929 62.000 60.000 60.000 58.000
1930 56.000 52.500 48.750
1931 41.250 37.500
1932 32.000 32.000
1933 32.000 37.000
1934 46.250 52.000
1935 52.000 60.000
Ár Marz Júní Sept. Des.
£ £ £ £
1936 60.000 78.000
1937 105.000 125.000 90.000
1938 80.000 85.000
1939 ■ 85,000 121.500
1940 139.000 150.000
Þá gefur nefnt blað upp, að
raunverulegur byggingarkostn-
aður skips af ofangreindri stærð
og gerð hafi verið sem hér grein-
ir per deadweight tonn síðustu
26 árin eða síðan í byrjun heims-
styrjaldarinnar 1914.
per tonn deadw.
£ sh. D
31. desember, 1940 ......... 20 16 0
30. júní, 1940 ............. 17 12 0
31. desember, 1939 ......... 15 17 4
30. júní, 1939 ............. 13 6 8
31. desember, 1938 ......... 12 13 4
30. júní, 1938 ............. 14 8 0
31. desember, 1937 ......... 14 8 0
30. júní, 1937 ............. 13 6 8
31. desember, 1936 ......... 10 8 0
30. júní, 1936 .............. 9 12 0
31. desember, 1935 .......... 9 10 11
30. júní, 1935 .............. 8 14 11
31. desember, 1934 .......... 8 12 0
30. júní, 1934 .............. 8 10 3
31. desember, 1933 .......... 8 8 3
30. júní, 1933 .............. 8 6 3
31. desember, 1932 .......... 8 6 3
30. júní, 1932 .............. 8 8 3
31. desember, 1931 .......... 8 9 4
30. júní, 1931 .............. 8 18 6
31. desember, 1930 .......... 9 0 8
30. júní, 1930 .............. 9 0 8
31. desember, 1929 .......... 9 0 8
30. júní, 1929 .............. 8 19 4
30. júní, 1928 .............. 8 14 8
30. júní, 1927 .............. 8 16 0
31. desember, 1926 .......... 8 12 0
31. desember, 1925 .......... 8 0 0