Tíminn - 15.02.1941, Qupperneq 3
19. blaíf
SN, langardaginn 15. fchr. 1941
75
A N N A L L
Dánardægur.
Jón Jóhannsson, bóndi á
Bálkastöðum í Hrútafirði, veikt-
ist snögglega á heimleið frá
Borðeyri 14. janúar síðastlið-
inn, og andaðist þann sama
dag, aðeins rúmlega fimmtugur
að aldri. Lætur hann eftir sig
konu, Ólafíu Finnbogadóttur, og
tvö börn innan við tvítugt.
Jón heitinn byrjaði ungur
búskap á Bálkastöðum og bjó
þar ávallt síðan, en jafnframt
búskapnum annaðist hann
póstferðir milli Staðar og Búð-
ardals um allmörg undanfarin
ár og vetrarflutninga yfir
Holtavörðuheiði, þegar heiðin.
var ekki fær bifreiðum.
Jón á Bálkastöðum var dugn-
aðarmaður og góður bóndi,
greiðvikinn og glaður í lund,
enda mjög vinsæll. Jarðarför
hans fór fram að Stað í Hrúta-
firði 27. janúar, að viðstöddu
fjölmenni.
Kristrún Salbjörg Jóhanns-
dóttir á ■ Höllustöðum í Reyk-
hólasveit andaðist 15. f. m. eftir
þungan sjúkdóm. Hún var þar
fædd í apríl 1862 og ól þar allan
sinn aldur, að undanteknu
tímabili, er hún mun hafa dval-
ið í Flatey, sér til upplýsingar
og menningar.
Kristrún sáluga var af góðu
bergi brotin. Faðir hennar, Jó-
hann á Höllustöðum, var af
bændafólki, húnvetnskur, bú-
höldur góður, greindur vel,
stilltur og stefnufastur. En
móðir hennar, Anna Guð-
mundsdóttir úr Bjarneyjum,
breiðfirzkrar ættar. Var margt
af fólki hennar kynsælt, vel
gefið og skáldmælt í ættir fram.
Kristrún fékk gott uppeldi á
reglu- og myndarheimili. Hefir
það orðið henni dýrmætur fjár-
sjóður á lifsleiðinni, enda var
hún sjálf frá því fyrsta vel af
guði gefin. Bræður hennar, sem
ólust upp með henni, eru: Sig-
urður söðlasmiður á Þverfelli í
Saurbæ og Magnús búfræðing-
ur, fyr bóndi í Svefneyjum, nú
á Svarfhóli í Stafholtstungum.
Árið 1892 giftist Kristrún eft-
irlifandi manni sínum og jafn-
aldra, Þorgeiri Þorgeirssyni frá
Skáleyjum, búfræðingi, stórgáf-
uðum ágætismanni; hefir sam-
búð þeirra, nú þvínær í hálfa
öld, verið sem bezt má veröa.
Táp og skapfesta hjónanna,
stöðug árvekni og fyrirhyggja 1
hvívetna, reglusemi og guðs-
traust, varð þeim blessun í búi
og setti svip á heimili þeirra.
Og, þó mótlætið, barnamissir og
oft megn vanheilsa, berði að
dyrum, blessaðist heimilið fram-
ar vonum og var ætíð veitandi,
en aldrei þiggjandi.
Þau Höllustaðahjón eignuð-
ust 9 börn. Á lífi eru: Magnús
og Ingibjörg kennslukona,
standa þau nú fyrir búinu með
föður sínum, Þorgeir búfræð-
ingur og bóndi á Hrófá í Stein-
grímsfirði, Gunnar söðlasmið-
ur á Kletti i Geiradal, Anna
ljósmóðir, Jóhann og Salbjörg.
Kristrún sáluga var í mörgu
fyrirmyndar kona og húsmóð-
ir; prýðilega greind, nokkuð
geðrík, en ákaflega stillt í allri
framkomu, ákveðin, hreinskilin
og sanngjörn. Hún var vina-
vönd og trygg þeim, er unnu
hylli hennar og lét það aldrei
endasleppt. Táp og þrek henn-
ar var með afbrigðum, enda
heilsan oftast góð, — lagði hún
allt í sölurnar fyrir hag manns
síns, barna og heimilis, enda
innti hún þar af höndum frá-
bært starf, því skyldurækni og
trúmennska voru henni í blóð
borið. — Hún var glaðlynd og
skemmtin i tali og hafði þá æ-
tíð á reiðum höndum eitthvað
fyndið og athyglisvert: skrítlur,
smásögur og kviðlinga, því hún
var margfróð og stálminnug.
Hún fylgdist eftir ástæðum vel
með því, sem hún áleit að orðið
gæti til bóta í heimilisháttum
og klæðaburði, — því sjálf var
hún snyrtikona, — en gaf sig
ekkert að hinu, er hún taldi hé-
góma eða tildur.
Nú er hún horfin, þessi mikil-
hæfa kona. — Sárast verður
hvarf hennar — i bili — háöldr-
uðum, heilsutæpum og upp-
gefnum eiginmanni og öðrum
ástvinum hennar. — En ómet-
anlegur raunaléttir má öllum
viðkomendum vera, að hún
leystist frá ólæknandi þjáning-
um til betra lífs, aff hinar góðu
minningar um hana varðveitast
hjá þeim, er þekktu hana, og
loks hin dýrmæta von um end-
urfundi.
Greftrunin fór fram 25. jan-
úar að sóknarkirkju hennar á
Reykhólum við mikla hluttekn-
ingu. Kunnugur.
per tonn deadw.
£ sh. D
31. desember, 1924 .. 9 i 4
31. desember, 1923 .. 9 12 6
31. desember, 1922 .. 9 0 0
31. desember, 1921 .. ...... 13 0 0
31. desember, 1920 .. 39 0 0
30. júni, 1917 26 0 0
31. desember, 1916 .. 23 0 0
31. desember, 1915 .. 14 15 0
1. marz, 1915 9 5 0
7. febrúar, 1915 ... 8 5 0
14. janúar, 1915 .... 7 15 0
9. desember, 1914 .. 7 5 0
14. nóvember, 1914 . 7 1 0
Þeir, sem vilja bera saman
framangreindar tölur um mark-
aðsverðið og kostnaðarverðið á
þessum 26 árum, geta vitanlega
annaðhvort fundið markaðs-
verðið per tonn deadweight með
því að deila í heildarverðið með
7500 eða fundið heildarkostnað-
arverðið með því að margfalda
tonnverðið með 7500. Annars
fylgir hér með til nánari skýr-
ingar smækkað línurit, tekið upp
úr Fairplay, sem sýnir markaðs-
verðið frá því 1914 og byggingar-
kostnaðinn frá því á árinu 1921.
En blaðinu mun ekki hafa þótt
aðgengilegt að gera línurit yfir
kostnaðarverðið eða byggingar-
kostnaðinn á heimsstyrjaldarár-
unum 1914—18, þar sem tölu-
verðar eyður virðast þá hafa
komið fyrir, þannig að engin skip
af nefndri gerð væru smíðuð. Og
blaðið hefir þá sennilega ekki
verið farið að afla sér upplýsinga
um byggingarkostnaðinn, nema
þegar skip voru í smíðum.
Reynslan er sú, að mismunur
á tonnverði í skipum úr sams-
konar efni með samskonar bygg-
ingarlagi og gerð og tilsvarandi
vélarstyrkleika er ekki mikill, þó
skipin séu nokkuð misstór. Hins
vegar verður náttúrlega annað
verð á smálest í skipi,sem er allt
öðru vísi byggt. Það verður t. d.
miklu dýrari hver smál. í vönd-
uðu farþegaflutningaskipi en í
venjulega vöruflutningaskipi. Þá
hefir styrkleiki vélar mikla þýð-
ingu, að því er snertir verð skips.
Hér að framan hefir verið
skýrt frá því, hvað 7500 smálesta
vöruflutningaskip er talið að
hafa kostað á undanförnum allt
að 40 árum. Og sé sú skýrsla rétt,
mun einnig mega nota hana sem
mælikvarða á það, hvað skip
annarar tegundar úr járni eða
stáli myndu hafa kostað. Því gera
má ráð fyrir, að hlutfallið hafi
ekki verið ólíkt á hverjum tíma.
Sé litið á línuritið, og aðrar
upplýsingar um verð 7500 smál.
skipsins hér að framan, finnst
mér þetta vera eftirtektarverð-
ast:
1. Að verðbólga stríðsáranna
sjálfra í heimsstyrjöldinni 1914
—18 nær hámarki sínu þegar á
árinu 1916, en fer svo fremur
minnkandi þar til styrjöldinni
lýkur í nóvember 1918.
2. Þá eykst verðbólgan aftur
til mjög mikilla muna og nær
langsamlega hámarki fyrri hluta
árs 1920.
3. En hraðfellur úr því, þann-
ig að markaðsverðið á skipi til-
búnu til siglinga, er .komið nokk-
urnveginn í það jafnvægi, sem
náðist eftir styrjöldina á miðju
ári 1921, þó kostnaðarverð við
byggingu sé heldur lengur að
jafna sig, eða fram á árið 1922.
4. Þannig sést, að verðbólga
Fegurð I í I' s i ii s
Benedikt Sveinsson
Úr greininni um Einar Benediktsson, og
uppvöxt hans á Héðinshöfda. Um Benedikt
Sveinsson:
„Hann var ör 1 skapi, svo að hann minnti í þeim
efnum fremur á suðræna en norræna menn. Hann
var fram á elliár fullur af eldlegum áhuga og brenn-
andi hugsjónum um velferð lands og þjóðar. Hann átti
sæti á Alþingi í nálega 40 ár, og lengur en nokkur
annar íslendingur. En auk þess var hann langsamlega
mælskasti maður, sem sæti hefir átt á Alþingi. Þegar
honum svall móður um áhugamál sín var mælska hans
í eyrum áheyrenda líkt og þegar mikið fljót fellur nið-
ur hamrastalla."
Bókin kostar 5 kr. og fœst hjá umboðsmönnum Sambands
ungra Framsóknarmanna.
2000 bókamenn
úr öllum héruðum og kaupstöðum landsins eru fastir áskrif-
endur að tímaritinu Dvöl. Dvöl er höfð á hávegum hvarvetna
þar sem lestrarhneigt og menntafúst fólk er. Hún er ein
þeirra bóka, sem oftast eru lesnar á heimilunum, enda eru
sumar sögurnar, sem í henni birtast, perlur heimsbókmennt-
anna.
Eruð þér kaupandi Dvalar? Séuð þér það ekki, þá kynnið
yður efni það, er hún flytur, og hugleiðið síðan, hvort þeim
6 krónum sé ekki vel varið, sem lagðar eru í að kaupa Dvöl.
Tímaritið DVÖL,
Lindargötu 9 A, Reykjavík. Sími 2353.
Tilkynniná
frá loftvarnarneínd.
Að gefnu tilefni er hér ineð endurtekin
áður birt tilkynning um, að loftvarnanefnd
Reykjavíkur hefir, vegna framkominna til-
mæla frá stjórn brezka setuliðsins, ákveðið
að merki um yfirvofandi loftárásarhættu,
slitróttur sónn, skuli framvegis standa yfir
aðeins í 3 mínútur.
Rafflauturnar munu því næst þagna þar
til merki um að hættan sé liðin hjá verður
gefið, en það er stöðugur sónn í 5 mínútur.
Loftvarnarnefnd.
Tilboð óskast
í 500-600 hestafla dieselmótor í skip
í tilboðinu sé tilgreint verð, lengd mótorsins frá
fremsta punkti að aftari tengistétt þrýstiláss, dýpt
botnsskálar frá sæti að lægsta punkti skálar að framan
og aftan og hæðin sem þarf að vera frá undirstöðu að
þilfari, svo hægt sé að ná bullunum upp. Auk þess skal
tilgreina snúningshraða mótorsins, slaglengd bullu og
gildleika skrúfuáss.
Ennfremur óskast tilboð í hjálparvélasamstæðu: ca.
12 hestafla dieselmótor handræstur, sem knýr 110 volta
ca. 5 kw. jafnstraums rafal í beinu sambandi, ásamt
ræsiloftsþjöppu fyrir aðalmótor og austurdælu, báðar
tengdar með snúningstengslum, öllu komið fyrir á sömu
undirstöðu.
Tilboðin óskast afhent á skrifstofu Fiskimálanefnd-
ar í Reykjavík, eigi síðar en 24. þ. m.
Réttur til að taka hverju tilboðinu sem vera skal,
eða hafna öllum, er áskilinn.
síðustu heimsstyrjaldar, sem er
á 6. ár á uppsiglingu, þarf ekki
nema tiltölulega stuttan tíma til
þess að ná jafnvægi aftur.
5. Og loks sést, að þó að nú-
verandi heimsstyrjöld hafi haft
lengri aðdraganda, þá virðist þó
ekki stefna algerlega ólíkt um
verðlag á skipum eins og gerði í
hinni fyrri styrjöld.
Ég hefi nú í sambandi við
framangreint línurit farið að
aðgæta það, hvernig hafi verið
háttað skipakaupum íslendinga
á dýrtíðarárunum 1915—1921, og
kemst ég þá að raun um, að éft-
irgreind skip meðal hinna stærri
skipa, sem vér höfum eignazt,
eru keypt á þessum árum:
1915. Togararnir Earl Here-
ford, Rán, Ýmir (nú Þorfinnur),
Víðir (nú Sindri) og Snorri
Sturluson. Kaupskipin Rjukan,
Christian IX, Gullfoss og Goða-
foss.
1916. Togararnir Egill Skalla-
grímsson, Belgaum og Þorsteinn
Ingólfsson. Kaupskipin Mjölnir,
Skjöldur (flóabátur) og Venus
(skonnorta).
1917. Kaupskipin Villemoes
(nú Selfoss), Sterling, Lagarfoss,
Borg, Akureyrin, Rigmor, Hug-
inn, Muninn og Haukur (þrjú
hin síðastnefndu seglskip).
1919. Togarinn Gylfi og kaup-
skipin Suðurland og Svalan
(seglskip).
1920. Togararnir Geir, Njörð-
ur (nú Haukanes), Hilmir, Kári,
Maí, Skallagrímur, Þórólfur,
Skúli fógeti, Austri, Ari, Leifur
heppni, Walpole, Apríl, Draupn-
ir, Menja, Vínland, Þorsteinn
Ingólfsson (yngri, nú Tryggvi
gamli), Þór (eldri), Ingólfur
Arnarson (nú Júní) og kaup-
skipið Eos (seglskip).
1921. Togararnir Glaður,
Baldur, Otur (nú Óli Garða) og
Gulltoppur (nú Vörður). Kaup-
skipið Goðafoss.
Þó að skipin, sem komu i
eigu landsmanna árið 1915, séu
talin upp hér að framan, mun
samt ekki hafa komið mikil
verðhækkun nema þá á sum
þeirra. Um smíði Eimskipafé-
lagsskipanna mun t. d. hafa
verið samið miðað við verðlag
fyrir stríð, þannig, að ekki hafi
fallið á þau nein teljandi verð-
hækkun.
Mér hefir ekki tekizt að afla
ábyggilegra upplýsinga um út-
komuna af kaupum og rekstri
þeirra skipa, sem keypt voru á
árunum 1916—17. En skilst, að
þeir, sem keyptu togarana árið
1916, hafi sloppið sæmilega.
Aftur á móti mun útkoman af
kaupum eða rekstri flutninga-
(Framh. á 4. siðu.J
SHIPAUTCERÐ
i .11
M.s. Esja
Hraffferff vestur um til Akur-
eyrar mánudagskvöldiff 17. þ.
m. Viffkomustaðir Patreksfjörff-
ur, ísafjörffur og Siglufjörffur í
báffum leiffum. Vörumóttaka á
laugardag. Aff lokinni hraff-
ferffinni fer skipiff í strandferð
austur um land.
Afgreiðslu Tímans
vantar 2., 3., 4. og 7. tbl. þ. á.
Útsölumenn, sem eiga þessi blöff
óseld, sendi þau afgr. Tímans
sem fyrst.
Físklmálanefnd.
Athygli
almennings skal vakin á ákvæðum 2. mgr. 36.
gr. laga nr. 63 31. desember 1937, um toll-
heimtu og tolleftirlit, sbr. bráðabirgðalög frá
9. janúar 1941, er hljóðar svo:
„Það varðar sektum eða varðhaldi eða hvort-
tveggju að eiga kaup eða skipti um vörur, sem
hermenn, sem tilheyra herflokkum eða her-
skipum, sem hér eru, bjóða fram eða þeir hafa
undir höndum, og að taka við slíkum vörum
að gjöf frá þeim, svo og að taka að sér að
selja slíkar vörur fyrir þá, enda liggi ekki
fyrir, er viðskiptin fara fram eða gjöfin þegin,
fullar sannanir fyrir því, að aðflutningsgjöld
hafi verið greidd af vörunum og fullnægt hafi
verið öllum almennum innflutningsskilyrð-
um.“
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ 12. febrúar 1941.
Anglýsið í Tímannm!
Róndi — Kaupir þú búnaííarhlaðið FREY?
248 Róbert C. Oliver:
er að vera rólegar. Eftir því sem þið
hagið ykkur betur, eftir því fáið þið
betri meðferð. Spyrjið ungfrúna sem
þarna situr — ég hefi talað við hana
um þessa hluti — takið eftir hvað hún
er stillt — hún er hyggin. Hún hefir líka
heyrt um svipuna hans Mustapha. Ól-
arnar eru úr vatnahestaskinni og þær
eru sterkar og harðar.
Ógnanir hans virtust hafa tilætluð
áhrif. Það varð þögn.
Cabera hélt áfram. — Við notum
margar aðferðir til þess að gera mun
á þeim, sem haga sér vel eða illa. Til
dæmis getur Mustapha skyndilega
misst minnið — gleymt að færa ykkur
mat og drykk í einn eða tvo daga —
en við skulum ekki vera að tala um
þetta — vonandi þurfum við ekki að
grípa til slíkra ráða. Nú látum við ykk-
ur vera einar stutta stund — hér er nóg
svigrúm ef ykkur langar til að dansa,
sagði Cabera og glotti.
Bob varð glaður við að heyra þetta.
Nú fengi Doris tækifæri til þess að tala
við stúlkurnar og hughreysta þær. Svo
myndi Lucy verða henni til aðstoðar
við uppörvunina. En nú mátti ekki rasa
um ráð fram, en þó ekki draga allt á
langinn. Áður en Grabenhorst kæmi
til baka, varð hann að vera búinn að
ná sambandi við heiðarlegt fólk, ann-
Æfintýri blaðamannsins 245
heilsaði Mustapha stuttlega og brosti á
báðar hliðar.
Bob vissi, að Cabera hafði farið aðra
leið en þau — og að John Taylor og
Lucy voru nú í þessu húúsi.
Dansmeyjarnar urðu all undrandi
yfir að sjá fyrrverandi eiganda „Miru“
þarna. Hann hafði þó kvatt þær allar
fyrir stuttri stundu.
— Kæru ungfrúr, sagði Cabera. Þá
erum við nú komin á ákvörðunarstað-
inn. Ég vona, að ykkur líði öllum vel.
Það var eins og stúlkunum færi nú
fyrst að finnast þetta grunsamlegt.
Þær litu spyrjandi hver á aðra. Doris
sá, að Bob hafði ekki verið að gera að
gamni sínu.
Cabera gaf Mustapha merki. — Vill
hinn holdugi vinur okkar vísa leiðina?
Musapha hraðaði sér eins mikið og
líkamslögun hans leyfði og dró tjald frá
breiðum inngangi í hinum enda garðs-
ins.
— Þessa leið, sagði Cabera og benti
með hendinni. Stúlkurnar gengu inn en
Bob hikaði.
— Þér skuluð bara koma með, sagði
Cabera, sem nú brosti ekki lengur.
Hér þurfti hann ekki að leika hlutverk
hins elskulega gestgjafa.
Þau fóru gegnum langan gang, og