Tíminn - 06.03.1941, Side 3
27. blað
TÍMIMJV, finMntuclagimi 6. mar/ 1941
A N N A L L
Afmæll.
Hallbera Jónsdóttir, ljós-
móðir á Blönduósi, átti 60 ára
afmæli þann 17. f. m. Hún er
fædd að Fróðholtshj áleigu á
Rangárvöllum 17. febrúar 1880.
Foreldrar hennar voru Jón Ól-
afsson bóndi og Hallbera Niku-
lásardóttir, er stundaði , 1 j ós-
móðurstörf, þótt ólærð væri og
heppnaðist •• vel. Hefir dóttir
hennar, Hallbera yngri, tekið
í arf handlægni og lipurð móð-
ur sinnar.
Af börnum þeirra hjóna í
Fróðholtshjáleigu komust tvö
til fullorðins ára: Hallbera ljós-
móðir á Blönduósi og Jón nú
kaupmaður í Reykjavík.
Hallbera missti ung föður
sinn. En móðir hennar hélt á-
fram búskap í Fróðholtshjá-
leigu og ólst Hallbera þar upp
með henni og hjálpaði móður
sinni við búskapinn, þegar
henni uxu kraftar til.
Þegar Hallbera Var 21 árs, fór
hún alfarið heiman. Næstu
fimm árin dvaldi hún 1 Reykja-
vík við nám. Lærði hún ljós-
móðurstörf undir handleiðslu
Guðm. Björnsonar landlæknis.
En jafnframt vann hún á
saumastofu. Að loknu námi
fluttist Hallbera norður að
Síðu á Refasveit í Húnavatns-
sýslu. Þar giftist hún árið 1907
Birni Einarssyni t-résmið frá
Síðu. Og árið eftir var hún skip-
uð ljósmóðir í Engihlíðarum-
dæmi.
Þau hjónin, Björn og Hall-
bera, byrjuðu búskap þetta
sama ár (1908) við lítil efni,
en bjartar vonir og mikla
starfsorku. Stunduöu þau bú-
skap í tuttugu og tvö ár, fyrst
í Neðrilækjardal á Refasveit,
en síðar í Svangrund í sömu
sveit, þar til þau fluttust til
Blönduóss árið 1930, og hafa
þau átt þar heima síðan.
Þau Hallbera og Björn eiga
Reykjavík eru margir eljusam-
ir og duglegir einstaklingar.
Híbýli margra af þessum ein-
staklingum eru furðu myndar-
leg og oft eytt til þeirra fram
yfir efni. En bæinn vantar
meginhlutann af þeim félags-
legu fyrirmyndum, sem mikið
er um í ýmsum borgum, sem
hafa metnað fyrir sameiginlegu
lífi borgaranna. Mótstaða í
Reykjavík gegn byggingu sund-
hallarinnar og þjóðleikhússins
stafaði eingöngu af því, að
margir borgarar, sem voru dug-
legir að afla fjár og lífsþæg-
inda fyrir heimili sín, gátu alls
ekki hugsað sér að gerð væru
sameiginleg átök til að lyfta
menningu bæjarins á hærra
stig.
Eitt af því, sem einkennir
höfuðstað íslands, er að borg-
arar hans mynda næsta fáa
sjóði til almannaþarfa með
dánargjöfum, eða við hátíðleg
tækifæri. Rausn af því tagi er
svo sjaldgæf, að menn hrökkva
bókstaflega við, þegar dönsk
kona, sem hefir starfrækt verzl-
un í Reykjavík í 25 ár gefur á
þessu afmæli 10 þús. krónur til
menningarfyrirtækis í bænum.
Danska konan er vaxin upp í
landi með gamalli félagsmenn-
ingu. Þess vegna man hún líka
eftir því bæjarfélagi, þar sem
hún starfar.
Það hefir verið ómetanlegt
tjón fyrir hinn vaxandi höfuð-
stað íslands, að forráðamenn
hans skyldu svo mjög gleyma
áhrifum hinna fögru tinda, sem
umlykja bæinn og fallast á
heimspeki flatneskjunnar að því
sjö uppkomin börn á lífi. Líkj-
ast þau foreldrum sínum mjög
að myndarskap og dugnaði.
Eru þrjár dætur þeirra giftar
konur í Reykjavík, ein er í
Kaupmannahöfn og tvær
heima hjá foreldrum sínum.
Sonur þeirra á heima í Reykja-
vík. Hallbera er búin að stunda
ljósmóðurstörf í 33 ár — 22 ár
var hún Ijósmóðir í Engihlíðar-
hreppsumdæmi og síðan 11 ár
á Blönduósi. Lætur hún nú af
störfum vegna heilsubrests.
Oft hefir verið erfitt fyrir
Hallberu að yfirgefa stóra
barnahópinn sinn, þegar eng-
inn var til að annast þau í fjar-
veru hennar, nema maður
hennar, sem var öðrum störfum
hlaðinn fyrir þetta stóra ó-
megðarheimili. En enginn, sem
leitaði hennar, varð þess var.
Hún var ætíð jafn glöð og
starfsfús og vildi ekki heyra
minnzt á erfiðleika sína. Þeg-
ar skyldan og hjálpfýsin köll-
uðu hana til starfs, varð að
setja eigin hagsmuni og þæg-
indi til hliðar.
Þegar Hallberu var vitjað til
sængurkvenna, var hún ætíð
fljót að ferðbúast. Hikaði hún
aldrei við að leggja út í tvísýnt
veður og ófærö, þegar svo stóð
á. Fór saman hjá henni óbil-
andi kjarkur, dugnaður og
traust á handleiðslu æðri mátt-
arvalda.
Hallberu lánuðust Ijósmóður-
störfin alveg sérstaklega vel og
var vinsæl og eftirsótt yfirsetu-
kona. Enda var hún oft sótt til
sængurkvenna utan umdæmis.
Meðan Hallbera var yfirsetu-
kona í Engihlíðarumdæmi, sem
er stórt og erfitt til ferðalaga
að vetrarlagi, vegna illviðra og
fannfergja, átti hún eins og áð-
ur segir, fyrir stóru heimili að
sjá — börn bæði ung Og mörg.
Þarf mikið þrek og dugnað til
að leysa af hendi bæði þessi
skyldustörf — ljósmóður- og
húsmóðurstarfið og hvoru-
tveggja með prýði, eins og hún
hefir gert.
Hallbera er greind kona og fé-
lagslynd. í kvenfélaginu á
Blönduósi hefir hún ætíð verið
tillögugóð, • og lagt drjúgan
skerf til þess að nauðstöddum
væri rétt hjálparhönd.
Konur í Engihlíðar- og
Blönduóssumdæmi sýndu Hall-
beru á sextugsafmæli hennar
nokkurn vott vinarhugs og
þakklætis fyrir vel unnin störf,
með því að færa henni að gjöf
fjögur hundruð krónur. Auk
þess bárust henni aðrar gjafir
og fjöldi heillaóska. Þetta allt,
að ótöldum hlýjum handtökum
og árnaðaróskum vina hennar,
er heimsóttu hana á afmælis-
daginn, bera störfum hennar og
kynningu bezt vitni.
Nú hafíð pér
skönmitcanarmiða lil f jögra máiiaða.
Vér höfum
miklar birgðir af flestum skömmtunarvörnm.
Gerið yðar til að dreifa birgðunum með því að kaupa í heilum sekkjum og
kössum. Auk öryggisins sem dreifing birgðanna skapar sparið þér hreint
ekki svo lítið á verðmismuninum. —
^Ökaupíélaqié
ant/i veii
Itvaci luzit-n Artýi'tcfrn'c !
HEIL'DSO.L'U'B 1R6é 1R: ARNi JONSS'O N , HAFNAR8L5,RE'r'líMVIK.
Aðalfundur
Fiskifélags Islands, sem frestaff var vegna samkomubanns-
ins, verffur haldinn laugardagínn 8. þ. m. í Kaupþingssalnum.
Fundurinn hefst kl. 2 e. h.
Reykjavík 4. marz 1941
Félagsstjórniir
8/2. 1941.
St. D.
VerOlaunakepimi
Samkvæmt skipulagsskrá minningarsjóðs Jóns Ólafssonar,
bankastjóra, verða á þessu ári veitt tvenn verðlaun úr sjóðnum,
að upphæð 50 krónur og 25 krónur, fyrir ritgerðir um dýravernd-
unarmálefni.
Þeir, sem keppa vilja um verðlaun þessi, sendi ritstjóra Dýra-
verndarans ritgerðir sínar fyrir lok maímánaðar n. k., einkennd-
ar með sérstöku merki og fylgi nafn höfundar ásamt einkennis-
merki greinarinnar í lokuðu umslagi. Stjórn Dýraverndunarfélags
íslands dæmir um ritgerðirnar og ákveður hverjir hljóta skuli
verðlaunin.
Ritgerðirnar verða birtar í Dýraverndaranum á þessu ári.
STJÓRN DÝRAVERNDUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Sendisveinar
óskast nú þegar
Mjólkursamsalan
Heílbrigt líf
tímarit Rauða kross íslands um heilsuvernd og líknarstarfsemi.
Ritstjóri Dr. Gunnlaugur Claessen.
Afgreiðsla á skrifstofu R. K. í., Hafnarstræti 5.
Afgreiðslusímar: 4658 og 2328.
Áskriftarverð kr. 7.00 árg., kr. 8.00 í lausasölu.
Áskriftarlistar hjá bóksölum og héraðslæknum og hjá af-
greiðslumanni tímaritsins, Ólafi lækni Thorlacius, Tjarnargötu 43
Tílkynníng
a irá gjaldeyrís- og ínnílutníngsneínd
■
Hér með tilkynnist, að gjaldeyris- og innflutningsleyfi fyrir
vörum frá öðrum löndum en Bretlandi verða fyrst um sinn, þar
til öðruvísi verður ákveðið, aðeins veitt þeim, sem raunverulega
annast innflutning varanna.
Jafnframt er vakin athygli innflytjenda á því, að með öllum
umsóknum um leyfi til að flytja inn vöru frá Ameríku, eða
öðrum löndum en Bretlandi, verða að fylgja sérstakar beiðnir
um yfirfærslu á þar til gerðum eyðiblöðum í tvíriti, sem útfylla
ber nákvæmlega eins og formið segir til um. Vanti yfirfærslu-
beiðnir, verða umsóknirnar ekki teknar til greina.
Eyðublöð undir þessar beiðnir fást á skrifstofu Gjaldeyris-
og innflutningsnefndar í Reykjavík og utan Reykjavíkur hjá
útibúum Landsbanka íslands og Útvegsbanka íslands h.f.
Innflytjendum og öðrum, sem framangreind atriði varða, er
bent á að geyma þessa auglýsingu til minnis og leiðbeiningar.
Reykjavík 3. marz 1941
er snertir metnað bæjarins. En
vel má vera, að sú stund sé nú
komin, þegar straumhvörf verða
í þessu efni. Höfuðborginni er
mikil nauðsyn að fá félagslegan
metnað og löngun til að geta,
eins og Norður-Þingeyingurinn
Skúli fógeti, sem kallaður er
faðir borgarinnar, klæðst skart-
klæðum, þegar það á við. Slík
ráðabreytni myndi endurfæða
bæinn. Ef mönnum þykir vænt
um átthaga sína, og vilja gera
þeim sæmd, þá leysir sá stór-
hugur fjötra deyfðar og dáð-
leysis. Skúli fógeti hefði ekki
stofnsett Reykjavík, ef hann
hefði verið íklæddur tötrum
andlegrar flatneskju.
XI.
Menn greinir á um gerð og
meðferð þjóðfánans. Saga hins
þjóðlega tákns er þó orðin
nokkuð löng. Um líkt leyti og
Danir lögðu á íslendinga bönd
einokunarinnar, byrjuðu þeir að
tákna ísland með mynd af
flöttum þorski. Þeir létu ís-
lenzku þjóðina lifa undir þessu
tákni í nálega þrjár aldir. Þeg-
ar þinghúsið var byggt um 1880,
lét danska stjórnin setja kon-
unglegan flattan þorsk úr
málmi yfir inngangi hússins.
Hannes Hafstein orti biturt
skopkvæði um þessa niðurlæg-
ingu þjóðarinnar. Hann naut
þeirrar ánægju að sjá þorskinn
fara af þinghúsinu og fálkann
koma í staðinn, um það leyti,
sem stjórn íslenzkra mála flutt-
ist frá Danmörku til íslands.
En jafnhliða því, að Danir
gáfu okkur flatta þorskinn sem
þjóðartákn, var fáni Danmerk-
ur löggiltur sem fáni íslands.
Hið fagra danska krossflagg,
sem fer svo vel við græna lit-
inn í dönskum skógarlundum,
blakti hér öld eftir öld á hverri
einokunarstöð, á húsum
danskra og dansk-islenzkra
embættismanna og á skipum
Dana, sem fluttu hungurs-
brauðið hingað til lands. Óbeit
íslendinga á danskri kúgun,
andlegri og fjárhagslegri, varð
ósjálfrátt tengd við danska
fánann. Hann varð í augum
þjóðarinnar hið opinbera og á-
þreifanlega innsigli íslenzkrar
niðurlægingar í sambandi við
hina margþættu dönsku kúg-
un á íslandi.
Um síðustu aldamót skapar
Einar Benediktsson, sem þá var
fremstur af hinum ungu skáld-
um landsins, íslenzkan fána, og
litlu síðar orti hann um fán-
ann ljóð, sem er fegurra og
skáldlegra en nokkurt fánaljóð
með vestrænum þjóðum. Fyrsti
nútíma málari landsins, Sig-
urður G.uðmundsson, hafði átt
mikinn þátt í að ákveða, út frá
listrænu sjónarmiði, að blátt og
hvítt væru þjóðlitir ísendinga.
Einar Benediktsson byggði á
þessari listrænu kenningu og
lagði til að íslenzki fáninn yrði
með sömu gerð og danski og
sænski fáninn, en litirnir tekn-
ir úr íslenzkri náttúru, hvítur
kross á bláum feldi. Hin þjóð-
lega og vaknandi æska í land-
inu fylkti sér um þennan fána,
stúdentar í bæjum, ungmenna-
félögin í sveitinni. Honum óx
(Framh. á .4. síðu.)
Hreinar
léreftstnsknr
kaupir
Prcntsmiðjan Edda
Lindargötu 9 A.
Gjaldcyris- og innflutningsnefnd
^ÚTBREIÐIÐ TÍMANN»
280 Robert C. Oliver:
— Hér er enginn sjáanlegur, nöldr-
aði einn sjóliðinn. Eruð þér vissir um,
að þetta sé rétt hús — eða hefir yður
dreymt þetta?
Bob svaraði ekki, en þaut eins og
óður maður um allt húsið. En allt var
autt og tómt. Brátt kom hann út aftur
þangað sem Braddock skipstjóri var að
reyna að þröngva Mustapha til að tala.
— Við erum of seinir, sagði Bob. Þau
eru öll á bak og burt. En hvaða bíll er
það, sem þarna stendur?
Mustapha glápti á bílinn, eins og
hann hefði aldrei séð hann áður.
— Það veit ég ekki.
Nú missti Bob þolinmæðina. Hann
rauk á Mustapha og þreif fyrir kverkar
honum, og hristi hann til eins og tusku.
— Segðu sannleikann, skepnan þín.
Ég hefi sjálfur verið hér í húsinu og
veit um allt. Þú leikur ekki á mig.
Ef þú villt ekki opna kjaftinn skal
ég lofa þér að kenna á nokkrum af
þínum éigin uppáhaldsaðferðum.
Skyndilega sleppti hann honum —
hann mundi eftir skríninu og Tayior.
Höfðu þeir líka farið með hann — og
skrínið?
Bob þaut inn og niður í kjallarann,
þar sem Taylor hafði verið í haldi.
Hurðin fyrir klefanum var læst.
Æfintýri blaðamannsins 277
skelfingar, að svipan, sem hann hafði
áður ógnað þeim með, var nú í hendi
hans.
— Við erum að fara héðan — en
hljóða- og hávaðalaust. Sú, sem vogar
sér að hvísla, hvað þá meira, verður
lamin í kjötkássu með þessum hérna.
Skiljið þið? Komið nú!
Stúlkurnar gengu út og þorðu varla
að amla. Þær skulfu af ótta og sumar
grétu í hljóði. Ein eftir aðra fóru þær
inn í vagnana, sem biðu þeirra. Síðan
var hurðunum vandlega læst. í hvorum
vagni sat stór, svartur jötunn, sem
góndi á þær steinþegjandi, eins og
hann ætlaði að dáleiða þær með augna-
ráðinu.
Nú skipaði Grabenhorst að lagt skfldi
af stað. Vagnarnir komust á hreyfingu,
^n ekki vissu stúlkurnar hvert haldið
var.
Grabenhorst og Cabera stóðu nú ein-
ir eftir hjá Mustapha, sem þurrkaði
svitann af enninu, sárfeginn að vera
laus við þessa hættulegu „gesti“ úr
„gistihúsi" sínu.
— Nú er aðeins eitt eftir ógert, sagði
Grabenhorst. Það er að gera upp reikn-
ingana viö John Taylor. Mustapha veit
hverju hann á að svara, ef óvænta gesti
ber að garði. Hvar er Taylor?
— í kjallaranum, svaraði Cabera.