Tíminn - 18.03.1941, Page 1
< RITSTJÓRI:
< ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
í FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
í JÓNAS JÓNSSON.
| ÚTGEFANDI:
PRAMSÓKN ARFLOKKURINN.
' RITSTJÓRNARSKRIFS TOF UR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
25. ár.
Reykjavik, þriðjudaginn 18. marz 1941
32. blatf
B.v. „Reykjaborg“ sökkt í
Englandsferð
Enn ekki iullvíst um afdrif skipshafnar
Rfttfrelslð í Nvíþjóð
Dómur Hæsiaréttar í
dreifibréfsmálinu
- Forsendur dómsins -
Hæstiréttur felldi í gærmorg-
un dóm í dreifibréfsmálinu svo-
nefnda. Staðfesti hann dóm
undirréttar í öllum aðalatrið-
um, að undanskildu því, að
refsing þeirra Eggerts Þor-
bjarnarsonar og Hallgríms
Hallgrímssonar var minnkuð úr
18 í 15 mánaða fengelsi.
Forsendur hæstaréttar fyrir
dóminum eru þessar:
„Þegar brezkur her steig hér
á land á íslandi þ. 10. maí s. 1.
ár, var lýst yfir því af hálfu
brezka ríkisins, að ekki mundi
verða hlutazt til um stjórn
landsins af hálfu Breta umfram
það, sem nauðsyn bæri til
vegna hernámsins. Þrátt fyrir
þessa yfirlýsingú var það ljóst,
að hætta á afskiptum erlends
valds af íslenzkum málefnum
jókst mjög vegna hernámsins.
Og var af þeim sökum þá þegar
og oft síðar af opinberri hálfu
brýnt fyrir íslenzkum þegnum
að gæta allrar varúðar í um-
gengni við hernámsliðið, svo að
íslendingar veittu engin efni til
frekari íhlutunar þess um ísl.
mál. Takmarkið með útgáfu
dreifibréfsins og útbýtingu
þess meðal brezkra hermanna
var það, að afstýra því, að her-
mennirnir ynnu þau verk í
þarfir herliðsins, er íslenzkir
verkamenn höfðu áður innt af
hendi. Til þess að ná þessu
markmiði er í drefibréfinu
skorað á brezku hermennina
að neita allir sem einn (refuse
in a body) að hlýða skipunum
yfirmanna sinna um fram-
kvæmd slíkra verka. Upphafs-
menn dreifibréfsins gáfu það út
fjölritað og nafnlaust og reyndu
að dylja eftir mætti, hvar það
var vélritað og fjölritað og
með hvaða tækjum, og kveðast
hinir ákærðu Eggert Halldór og
Hallgrímur Baldi, sem lengi
þrættu fyrir verknað sinn, hafa
gert það til þess að torvelda
rannsókn á uppruna bréfsins,
með því að þeir hafi talið, að
(Framh. á 4. síðu.)
Gærusalan
Hægt verður að selja
gærurnar til Englands
iyrlr svipað verð og
fáanlegt var í Svípjóð
Tíminn hefir spurt Jón Árna-
son framkvæmdastjóra um sölu-
horfur landbúnaðarvaranna.
Jón tjáði, að líkur væru fyr-
ir því, að takast mundi sala á
öllum gærum til Englands. Enn
er ekki búið að ganga frá samn-
ingum og þó svo verði, þá er
eftir að útvega skip til flutn-
inga. Verðið svarar til rúmlega
3 kr. fyrir kg komið á skips-
fjöl.
Það hefir verið unnið að
gærusölunni í Bandaríkjunum,
Kianada, Svíþjóð og Englandi
síðan í fyrrasumar. Hægt hefði
verið að selja gærurnar tií Sví-
þjóðar fyrir svipað verð og nú
fæst í Englandi, en málið
strandaði á flutningum. í
Bandaríkjunum og Kanada var
mjög lítil eftirspurn og verðið
miklu lægra en í Englandi.
Sigursteinn Magnússon hefir
unnið að sölunni til Englands í
allan vetur og gengur hann frá
samningum. Hefir hann undan-
farið notið aðstoðar Péturs
Benediktssonar sendifulltrúa í
London, þar eð væntanlegur
kaupandi er stjórnarstofnun.
Togarinn „Vörður“ frá
Patreksfirði kom hingað í
gærmorgun með björgunar-
fleka, sem hann hafði fund-
ið árdegis á laugardag 170
sjómílur norður af St. Kilda
á Hebridaeyjum. Flekinn
var merktur togaranum
„Reykjaborg“.
„Reykjaborg“ fór héðan fyrra
laugardagskvöld og hefði átt að
koma til Fleetwood síðastliðinn
fimmtudag. Umboðsmenn skips-
ins í Englandi hafa sent hing-
að skeyti um, að skipið hafi ekki
komið þangað.
Það má því telja næstum full-
víst, að skipinu muni hafa ver-
ið sökkt. Um afdrif skipshafn-
arinnar verður hins vegar ekki
sagt með fullri vissu, því að í
lengstu lög verður þess vænzt,
að henni hafi verið bjargað af
flekum eða björgunarbátum
skipsins.
Á flekanum, sem „Vörður“
fann, var ullarteppi, björgunar-
belti, vatnskútur og matvæla-
kassi. Teppið var sundurskotið
og skot hafði lent' í matvæla-
kassanum. Björgunarflekinn
ber þess greinileg merki, að
hann hafi orðið fyrir skotum.
Hefir verið skotið að öðrum
enda flekans.
Björgunarfleki þessi er sömu
tegundar og björgunarflekar
þeir, sem íslenzk skip hafa haft
undanfarið. Flekinn er eins og
kassi í laginu, rúmlega 2 metr-
ar á annan veg, en iy2 meter
á hinn veginn. Niðri í miðjum
flekanum er ferhyrnt hólf til
þess að hægt sé að skorða sig í
vondum sjó. Flekanum er hald-
ið uppi á 6 blikktunnum.
Á „Reykjaborg“ var í þessari
ferð 14 manna áhöfn og einn
farþegi, Runólfur Sigurðsson,
í ýmsum verstöðvum var orðið beitu-
lítið upp á síðkastið og tilfinnanlegur
beituskortur fyrirsjáanlegur, ef ekki
rættist úr. Vonuðust sjómenn eftir
loðnugöngu. Nú hefir loðnuganga kom-
ið á veiðislóðir sumra vertíðarbátanna,
einkum þær, er sóttar eru af Suður-
nesjum. Hafa aflabrögð glæðzt til
muna síðan loðna náðist til beitu og
var meðal annars ágætur afli hjá
Keflavíkurbátum um helgina.
t t r
Sigmundur Símonarson kaupfélags-
stjóri á Sandi á Snæfellsnesi hefir
skýrt Tímanum svo frá afkomu þorps-
búa, aflabrögðum og söluhorfum: —
Um tuttugu hreyfilbátar ganga til
fiskjar frá Sandi. Fiskafli hefir verið
fremur tregur, en þó báru sjómenn
góða hluti úr býtum á meðan hægt
var að selja aflann jafnóðum í ísfisk-
flutningaskip. En síðan um miðjan
janúarmánuð hafa skip til fiskflutn-
inga verið með öllu ófáanleg, hvaða
bragða sem hefir verið leitað. Er af
þessum sökum að skapast mjög alvar-
legt ástánd í þorpinu, ekki sízt vegna
þess, hve mikill hluti aflans er ýsa.
Á hverjum degi, er á sjó gefur, koma
sem næst 15 smálestir af ýsu á land.
Það borgar sig alls ekki að salta hana,
því hún myndi ekki einu sinni seljast
því verði, er þyrfti til þess að standast
kostnaðinn við saltkaup og vinnu, og
enginn möguleiki til þess að koma
henni í hraðfrystihús i Ólafsvík. Væri
Sandbúum það hin mesta nauðsyn,
skrifstofustj. Fiskimálanefndar.
Nöfn skipverja fara hér á
eftir:
Ásmundur Sigurffsson skip-
stjóri, fæddur 21. júní 1901.
Heimili: Víðimel 53. Kvæntur.
Ásmundur Sveinsson 1. stýri-
maður, f. 24. febr. 1905. Heimili:
Sveinsstaðir, Kaplaskjóli. Ó-
kvæntur.
Guffjón Jónsson 2. stýrimað-
ur, f. 29. jan. 1894. Barónsstíg
33. Kvæntur.
Óskar Þorsteinsson 1. vél-
stjóri, f. 24. marz 1902. Víðimel
53. Kvæntur.
Gunnlaugur Ketilsson, 2 vél-
stjóri, f. 3. maí 1912. Shellveg 2.
Kvæntur og á 1 barn.
Daníel Oddsson, lofskeyta-
maður, f. 21. júlí 1890. Hlíðar-
hús B. Kvæntur og á 8 börn.
Jón Lárusson matsveinn, f. 25.
sept. 1915. Grandaveg 37.
Kvæntur og á eitt barn.
Óskar Ingimundarson kynd-
ari, f. 5. nóv. 1909. Nýlendugötu
11. Ókvæntur.
Eyjólfur Jónsson háseti, f. 5.
maí 1904. Hverfisgötu 90.
Kvæntur og á börn.
Hávarffur Jónsson, háseti, f.
19. apríl 1901, Flókagötu 12.
Kvæntur.
Þorsteinn Karlsson, háseti, f.
29. sept. 1917, Tjarnargötu 10C.
Ókvæntur.
Árelíus Guffmundsson, háseti,
f. 4. maí 1913, Rauðarárstíg 42.
Kvæntur.
Óskar Vigfússon, kyndari, f.
12. okt. 1907. Hverfisgötu 100.
Kvæntur og á 3 börn.
Sigurður Hansson, kyndari, f.
28. okt. 1910. Framnesveg 16.
Kvæntur og á 2 börn.
Farþeginn, Runólfur Sigurðs-
son, var 32 ára gamall, kvænt-
ur og á börn.
„Reykjaborg“ var stærsta
skipið í íslenzka togaraflotan-
um.
að koma sér upp hraðfrystihúsi, til
þess að ráða bót á þessum vandræðum,
sem að þeim steðja, og hagnýta sér
sem bezt afla þann, er úr sjónum fæst.
t t t
Samkvæmt skýrslum keyptu ísfisk-
flutningaskip 8877 smálestir af báta-
fiski í • janúarmánuði, miðað við
slægðan fisk. Andvirði það, sem greitt
var fyrir þenna fisk, nam 4,210 þúsund
krónum. Meðalverð 47,4 aurar fyrir
hvert kílógramm. Afli togaranna í jan-
úarmánúði nam 3043 smálestum, mið-
að við slægðan fisk.
t t t
Stjóm stríðsvátryggingarfélagsins
hefir ákveðið að greiða fullar bætur
fyrir sjómenn þá, er fórust með tog-
aranum Braga við Englandsströnd, og
fjóra menn, er drukknað hafa í skipa-
kvíum erlendis í vetur, að telja má
meðfram af völdum stríðsráðstafana.
Bætumar, sem greiddar em fyrir þessa
fjórtán menn, nema 280 þús. kr. Á-
kvörðun þessi var gerð eftir að dómur
hæstaréttar hafði gengið í máli þess-
arar tegundar, eins og Tíminn hefir
skýrt frá.
t t r
Hárgreiðslustúlkur í Reykjavík hafa
átt í verkfalli síðan um áramót. Hafa
málamiðlunarumleitanir legið niðri að
undanfömu. Nú um helgina voru mál
þessi tekin upp að nýju. Gerðu eigend-
ur hárgreiðslustofa hárgi'eiðslumeyjum
sáttatilboð. En svo fór um sáttatilboð
þetta, að stúlkurnar höfnuðú að ganga
Tímanum hefir borizt all-
löng grein frá aðalræðismanni
Svía, er sjálfsagt hefir þótt að
birta, þar sem hún er svar við
grein, er nýlega birtist hér í
blaðinu, um sænsk málefni.
Eins og aðalræðismaðurinn tek-
ur fram, var í umræddri grein
stuðst við frásögn The Christi-
an Science Monitor, sem taliö
er eitt áreiðanlegast blað Ame-
ríku og vandar sérstaklega vel
til fréttaritara sinna. Tíminn
taldi þvi heimild sína góða, enda
hafði hann það til staðfesting-
ar hennar, að ensk blöð hafa
oft sagt frá því, að sum eintök
ýmsra sænskra blaða hafi verið
gerð upptæk, t. d. Göteborg Sjö-
farts- och Handelstidning, og
útgáfa ýmsra bóka, t. d. Hitler
talar, hafi verið bönnuð. Slíkt
viðgekkst tæpast í Svíþjóð fyrir
styrjöldina, þótt prentfrelsis-
lögn frá 1812 væru í gildi. Ann-
ars vildi Tíminn óska, að aðal-
ræðismaðurinn hefði réttar fyr-
ir sér en The Christian Science
Monitor, og að það fengi stað-
izt í frásögn hans, að „það sé
ekki rétt, að þýzka ríkisstjórnin
hafi reynt að hlutast til um
sænsk innanríkismál". Hefst
svo grein aðalræðismannsins:
Herra ritstjóri.
Þann 8. marz birtist í Tíman-
um grein með fyrirsögninni
„Skerðing ritfrelsis í Svíþjóð",
þar sem stuðst er við grein í The
Christian Science Monitor. í
grein þessari eru allt of marg-
ar skakkar og ósannar frásagn-
ir um Svíþjóð til þess, að ég
geti látið hjá líða að gera at-
hugasemdir við hana.
Þar er því t. d. haldið fram,
að sænsku blöðin séu ekki leng-
ur. frjáls. Að vísu sé ekki enn
um ritskoðun að ræða, þar eð
lögin um ritskoðun, er sett voru
í sumar og koma skyldu til
framkvæmdar, ef til styrjaldar
kæmi, hefðu ekki öðlast gildi,
en ríkisstjórnin hefði aðrar
leiðir til að takmarka ritfrelsið
eftir vild sinni. Ein leiðin væri
sú, að nota sér prentfrelsislög-
in frá 1809, önnur, að nota sér
lög, er samþykkt voru í fyrra
og heimila stjórninni að banna
flutning á blöðum og tímarit-
að því. Var þó atkvæSamunur ekki
mikill. Hins vegar sendu þær atvinnu-
rekendum gagntilboð um sættir í
vinnudeilunni, og munu atvinnurek-
endur skjótlega ráða ráðum sínum um
svör við því.
t t t
Aðalfundur Félags imgra Fram-
sóknarmanna í Hrútafirði var haldinn
nýlega. Formaður var kjörinn Þor-
steinn Ólafsson á Hlaðhamri, en gjald-
keri Þorsteinn Jónsson á Oddsstöðum
og Bjarni Pétursson á Borðeyri ritari.
Félag þetta á sjálft samkomuhús, sem
það hefir að vísu selt á leigu í ár. Sam-
komur hefir það haldið þrisvar í ár,
þar á meðal fjölsótt íþróttamót að
Reykjaskóla i júnímánuði í vor.
t r r
Frú Dýrfinna Gunnarsdóttir, ekkja
Páls Bjarnasonar, skólastjóra í Vest-
mannaeyjum, hefir nýlega afhent há-
skólanum sjóð, að upphæð rúmlega
1000 krónur, Sjóðurinn er stofnaður af
félögum og einstaklingum í Vest-
mannaeyjum, til minningar um far-
sælt starf Páls Bjamasonar þar í þágu
skóla- og menningarmála og heitir
Minningarsjóður Páls Bjarnasonar
skólastjóra í Vestmannaeyjum. Sjóð-
urinn skal vera undir stjóm háskól-
ans, og skal veita úr honum tíunda
hvert ár verðlaun fyrir vísindalegar
ritgerðir náttúrufræðilegs efnis um
Vestmannaeyjar, eða til vísindalegra
rannsókna þar um sama efni, í fyrsta
skipti árið 1950.
um með pósti og járnbrautum.
Að áliti greinarhöfundarins
notfærir stjórnin sér báðar
þessar leiðir til þess að neyða
blöðin til að skrifa virðulega
um Hitler og Mussolini, og
samtímis kúgar hún þau blöð,
sem gagnrýna nazismann og
taka málstað. Englands. Aðeins
tvö blöð, Göteborgs Handels-
och Sjöfartstidning og Eskil-
stunakuriren, höfðu ekki beygt
sig undir okið. Margir þekktustu
blaðamenn Svíþjóðar, sem ekki
höfðu viljað hlýðnast skipun-
um stjórnarinnar, höfðu jafn-
vel verið neyddir til að hætta
starfi sínu. Þeir ráðherrar, sem
bera aðalábyrgðina á þessu
hörmulega ástandi, eiga að
vera þeir Westman dómsmála-
ráðherra, Gúnther utanríkis-
málaráðherra og Per Albin
Hanson forsætisráðherra. Þetta
eru helztu staðhæfingarnar í
greininni.
Því miður tel ég mig neyddan
til þess að sýna fram á, hversu
rakalausar þessar staðhæfingar
eru.
Stokkhólmsfréttaritari The
Christian Science Monitor, ef
það er þá hún, sem er höfund-
ur greinarinnar, er nokkuð
öfgafengin, róttæk og friðar-
sinnuð sænsk kona, sem ber-
sýnilega notar aðstöðu sína sem
fréttaritari þessa merka amer-
íska blaðs til að láta í ljós per-
sónulega vanþóknun sína á
ýmsu í Svíþjóð — en slíkt getur
vart talizt heppilegt, einkum á
þessum alvörutímum.
Það ætti öllum að vera Ijóst
hér á íslandi, að Svíþjóð er það
land í Evrópu, næst á eftir
Englandi og íslandi, þar sem
þýzkra áhrifa gætir minnst og
þjóðin öll hefir einsett sér að
vernda sjálfstæði sitt og frelsi,
hvað sem það kostar. Þetta er
eitthvað annað en undanláts-
semi við erlend valdboð. Ráð-
stafanir þær, sem gerðar hafa
verið í þessu skyni, hafa þau,
ritstjóri Tímans og hin illgjarna
sænska kona, túlkað sem væru
þær runnar af þýzkum rótum,
(Framh. á 4. síðu.)
Erlendar fréttir
Roosevelt íorseti flutti ræðu
síðastl. laugardagskvöld og
hefir hún vakið heimsathygli.
í ræðu þessari lýsti Roosevelt
sig andvígari einræðisstefnun-
um en nokkru sinni fyrr og að
Bandaríkin myndu nota alla
sína orku til stuðnings lýðræð-
inu. Hann ræddi hina hreyst-
legu vörn Breta. Breta vantar
skip og hergögn, Bandarkin
munu sjá um, að þeir fái hvort-
tveggja, sagði hann. Ræða
Roosevelts hefir vakið geysileg-
an fögnuð í Bretlandi, Grikk-
landi og Tyrklandi, en í öxul-
ríkjunum hefir Roosevelt feng-
ið hina verstu dóma.
Bretar hafa aftur tekið borg-
ina Berbera, höfuðborgina í
brezka Somalilandi. Brezkt her-
lið var sett þar á land í fyrra-
dag og gáfust ítalir upp eftir
skamma viðureign. ítalir her-
tóku brezka Somaliland síðast-
liðið sumar.
Percy Nobel admirall hefir
verið skipaður foringi þeirrar
flotadeildar, sem á að verja
siglingaleiðir Breta um Atlants-
haf.
Manntjón Breta í Libyustyrj-
öldinni á tímabiinu 30. nóv. til
11. febr., var 431 fallnir, 87
horfnir og 1249 særðir. Er þetta
samkvæmt tilkynningu brezka
hermálaráðuneytisins. Á sama
tíma misstu ítalir um 150 þús.
hermenn, sem flestir voru tekn-
ir til fanga.
í febrúar fórust 789 manns,
en 1096 særðust af völdum loft-
árása á Bretland.
w
A víðavangi
SJÁVARÚTVEGSMÁL.
Reykjavíkurdeild Fiskifélags
íslands hefir nýlega haldið að-
alfund sinn. Á fundinn voru
kosnir fulltrúar á fiskiþing, sem
haldið verður næsta ár og sam-
þykktar allmargar tillögur.
Helztu tillögurnar voru þessar:
Áskorun til Alþingis um að
veita styrk til byggingar vél-
skipa til fiskveiða, þrátt fyrjr
mikinn byggingarkostnað, á-
skorun til verðuppbótarnefndar
útflutningsvara að uppbæta
verð sjávarafurða, sem illa hafa
selzt, eins og t. d. sundmaga,
áskorun til rkisstjórnar um að
íslenzkum skipum verði heim-
ilað að granda rektundur-
duflum, áskorun til Alþingis
um aukin framlög til Fisk-
veiðasjóðs, áskorun til ríkis-
stjórnarinnar um að koma upp
í Reykjavík stóru vélfrystihúsi,
er framleiði ís til skipa, áskorun
til Alþingis um aukin framlög
til Fiskifélags íslands, áskorun
til Alþingis um að byggingu
veglegs sjómannaskóla verði
lokið innan þriggja ára, á-
skorun til Alþingis og rlkis-
stjórnar um að greiða fyrir inn-
flutningi til landsins, einkum
innflutningi á efni og vélum til
verksmiðja, og áskorun til rík-
isstjórnar um að láta ekki fær-
eysk fiskflutningaskip nj óta
hér meiri hlunninda en íslenzk
skip. Þá var kosin þriggja
manna nefnd til að rannsaka
möguleika fyrir veiðarfæra-
verksmiðju.
LEIT AÐ ÁGREININGSEFNI.
Blöð Sjálfstæðisflokksins
þykjast mjög fylgjandi sam-
starfi flokkanna á þessum
vandasömu og viðsjárverðu
tímum. Hins vegar verja þau
miklu af rúmi sínu til að rifja
upp gömul ágreiningsefni, sem
ekki virðast eiga nú annað er-
indi inn á stjórnmálasviðið en
að vekja úlfúð og deilur milli
flokkanna. Þannig hefir Vísir
birt undanfarið allmargar
greinar um kjördæmamálið og
Mbl. er nú farið að skrifa dag-
lega um 17. grein jarðræktar-
laganna. Þetta virðist heldur
ósamrýmanlegt friðarskrafinu
En það er ekki í fyrsta sinn,
sem íhaldsblöðin breyta and-
stætt yfirlýsingum sínum.
SKATTAR HÉR OG í
BRETLANDI.
Hér í blaðinu var nýlega skýrt
frá því, að tekjuhæstu menn
Bretlands greiddu nú % hluta
af tekjum sínum í skatta til
ríkisins. Auk þess greiða þeir
ýmsa aðra opinbera skatta, m.
a. til sveita- og bæjarfélaga.
Bretar hafa fulla þörf fyrir
þessa skatta, vegna alþjóðar-
þarfa. Það er fróðlegt að at-
huga í þessu sambandi, hversu
háir eru þeir skattar, sem
tekjuhæstu menn þessa lands
greiða til ríkisins. Við höfum þó
(Framh. á 4. siðu.)
Flokksþingíð
Flokksþing Framsóknarmanna
stendur enn yfir og verður
sennilega ekki lokið fyr en á
fimmtudag. Hefir það þá staðið
í átta daga.
Fundir hafa verið haldnir alla
dagana frá kl. 9y2 árdegis til
kl. 6 síðdegis að frádregnu mat-
arhléi, nema á sunnudag; þá
stóð fundur aðeins frá kl. 9 y2—
12 árdegis. í gærkvöld var kvöld-
fundur. Annan tíma hafa
nefndir nota til sinna starfa.
Þegar hafa nokkur nefndar-
álit og tillögur einstakra full-
trúa verið afgreiddar.
Tíminn mun skýra nánar
frá störfum og ályktunum
flokksþingsins síðar. Einnig
verður birt skrá um fulltrúana.
A. KR O S S C3- 0 T TTIMI
Loðnuganga. — Frá Sandi. — ísfiskssalan í janúarmánuði. — Bætur fyrir
stríðsslys. — Verkfall hárgreiðslustúlknanna. — F. U. F. í Hrútafirði. — Nýr
sjóður við háskólann.