Tíminn - 19.04.1941, Page 2

Tíminn - 19.04.1941, Page 2
178 TtMlNN, laiigartlagiim 19. apríl 1941 44. blað Skipulag iólksílutnínga og samgöngumál Borgiirðinga EStir VigSús Guðmundsson Eitt lítið sjónarspil ‘gímimt iMugardaginn 19. apr. Skattamálm í síðasta blaði var skýrt frá efni þeirra frumvarpa um skattamál, sem stjórnarflokk- arnir hafa lagt fyrir Alþingi. Þar var þess einnig getið, að eins og áður væri töluverður á- greiningur milli flokkanna um skattamálin, þótt samkomulag hefði náðst um afgreiðslu þeirra á þessu þingi, í aðalatriðum eins og frumvörpin gera ráð fyrir. Þess hefir áður verið getið hér í blaðinu, að Framsóknarflokk- urinn vill gera þá breytingu á skattalögunum, að hætt verði að draga útsvör og skatta frá skattskylúum tekjum, en skatt- stigarnir verði lækkaðir sem því nemur. Með því er komið.í veg fyrir, að þeim, sem hafa ó- vissar og ójafnar tekjur, sé í- þyngt í skattgreiðslum umfram aðra, sem hafa jafnar og trygg- ar tekjur. Fulltrúar Framsókn- arflokksins í milliþinganefnd- inni í skatta- og tollamálum lögðu fram tillögur i nefndinni um þetta, en fulltrúar hinna flokkanna vildu ekki fallast á breytinguna. Á flokksþingi Framsóknarmanna 1 vetur var samþykkt ályktun um það, að flokkurinn beitti sér fyrir þess- ari breytingu á skattalöggjöf- inni, og mun hann halda á- fram að vinna að málinu unz það verður samþykkt. Það gegnir furðu, að þeir menn, sem telja sig bera hags- muni útgerðarmanna fyrir brjósti, skuli ekki vilja fallast á þessa breytingu á skattalög- unum. Sjávarútvegurinn er áhættu- samur atvinnuvegur, og sú regla, sem nú gildir í þessu efni, er því sérstaklega óhagstæð út- gerðarmönnum, sem hafa óviss- ari og ójafnari tekjur en margir aðrir. Var því lýst greinilega hér í blaðinu í síðastliðnum mánuði, hvernig þeir, sem hafa ójafnar tekjur, sæta lakari kjörum en aðrir, með þeirri reglu, sem nú gildir, og er ekki þörf að endurtaka það. Getur það alls ekki talizt vottur um mikla umhyggju fyrir þeim, sem hafa áhættusaman at- vínnurekstur, að standa á móti þeim tillögum um þetta efni, sem Guðbrandur Magnússon lagði fram, af hálfu Framsókn- arflokksins, í milliþinganefnd- inni í skattamálum. Nokkur ágreiningur er einnig um varasjóðshlunnindi félaga. Samkvæmt gildandi lögum er helmingur af varasjóðstillagi þeirra undanþeginn skatt- greiðslu. í samningum um skattamálin hafa Framsóknar- menn flutt tillögur um það, að varasjóðshlunnindi félaga, sem ekki hafa aðallega sjávarútveg, yrðu nokkuð takmörkuð frá því sem verið hefir. Er það tillaga þeirra, að í stað helmings verði framvegis þriðjungur af vara- sjóðstillögunum skattfrjáls, en þau félög, er stunda sjávarút- veg sem aðalatvinnurekstur, megi eftir sem áður draga frá skattskyldum tekjum helming þeirra fjárhæða, er þau leggja í varasjóði af árstekjunum. Telja Framsóknarmenn sann- gjarnt, að varasjóðshlunnindi útgerðarfélaga séu meiri en annara félaga, sem hafa á- hættuminni rekstur. Um þetta náðist ekki samkomulag, en sett var í frumvarpið bráða- birgðaákvæði um það, að þau félög, sem ekki stunda sjávar- útveg, fái skattfrjálst aðeins % þeirra fjárhæða, er þau leggja í varasjóði af tekjum ársins 1940. Þá hefir ekki enn náðst sam- komulag milli flokkanna um það, að gera ráðstafanir til tryggingar því, að skattur verði greiddur af verðbréfaeign og sparifé. Frumvörp um það hafa verið flutt á síðustu þingum, en ekki hlotið samþykki. Verð- ur haldið áfram athugun á þ'ví máli í sambandi við afgreiðslu skattamálanna á þinginu. Sk. G. Þegar komið var á skipulagi fólksflutninga með bifreiðum, mun einkum tvennt hafa vakað fyrir mönnum: að skipulagið tryggði ‘Vissar áætlunarferðir á sem flestum vegum landsins og að sem minnst tapaðist af verð- mætum fyrir brjálæðiskenndan samkeppnisakstur bifreiða, eins og mjög oft hafði átt sér stað. Skipulagið hefir orðið til bóta í þessum efnum. Það hefir einnig talsvert greitt fyrir póst- flutningi. En það er öðru nær en að skipulagið hafi reynzt gallalaust. Liggja til þess ýms- ar orsakir, m. a. er mjög erfitt að varna því, að ýmsir ein- staklingar verði fyrir órétti. Ný- græðingar i atvinnugreininni eiga mjög erfitt uppdráttar. Sérleyfisbifreiðarnar eru allar í einkaeign einstaklinga og þeirra hagsmunir hljóta mjög oft að rekast hver á annan. En einhver mestu mistökin stafa af því, hvernig hin ráðgefandi nefnd, sem fjallar um skipu- lagið, er skipuð og að úrslita- valdið um sérleyfisveitingar heyrir jafnan undir ýmsa flokkspólitíska ráðherra. Skipu- lagsnefndin er þannig skipuð, að sérleyfishafarnir kjósa þrjá menn í hana, atvinnumálaráð- herra skipar tvo menn og Al- þýðusambandið einn mann. Sj ónarmið sérleyfishaf anna hlýtur því að verða mjög sterkt í nefndinni, ekki sízt ef verða kynni stundum, að fjársterkir og duglegir sérleyfishafar gætu haft nokkuð mikil áhrif um hvaða menn séu skipaðir í nefndina, auk þeirra þriggja, sém kosnir eru beint af sér- leyfishöfum. Mistökin á skipulagningunni virðast allvíða bitna ómaklega á almenningi. Hér skal aðeins minnst á Borgfirðinga. Um það leyti og skipulagningin byrjaði, létu Borgfirðingar, með nokk- urri þátttöku ríkissjóðs (hluta- eign hans), byggja nýjan flóa- bát. Og þótt ýmislegt megi að „Laxfossi" finna, þá er hann þó óumdeilt fullkomnasti flóa- bátur, sem' íslendingar hafa nokkurntíma eignazt. Þegar hann var byggður, var Borg- firðingum ljóst, að flutningur til og frá héraði þeirra nægði ekki til þess að láta flóabátinn bera sig. En þeim fannst mikil skynsemi i því að treysta á mannflutninga til Norður- og Vesturlandsins og að þeir myndu létta undir með rekstr- inum. Borgarnes hafði að Þegar saltfiskmarkaðurinn spilltist um og eftir 1930 og um líkt leyti hófst margra ára afla- leysi,‘fór að bera verulega á at- vinnuleysi í kaupstöðum og kauptúnum landsins. Til þess að bæta nokkuð úr þessu, var tekin upp á fjárlög ríkisins fyr- ir árið 1933, fjárveiting til at- vinnubóta, þá að upphæð 350 þús. kr. Skyldi fé þessu varið til þess að stofna til vinnu í þeim kaupstöðum og kauptúnum landsins, sem mest höfðu af at- vinnuleysinu að • segj a, og var ráðgert að þeir staðir, er fjár- ins nytu, legðu fram tvöfalda upphæð úr eigin sjóði á móti ríkisframlaginu. Þessi fjárveit- ing hefir árlega verið á fjárlög- um ríkisins síðan 1933, og að jafnaði verið um 500 þús. kr. á ári, en mun hafa farið nokk- uð fram úr áætlun sum árin. Alls mun ríkissjóður hafa ver- ið til atvinnubóta síðastliðin 8 ár, nálega 4 milj. kr. Af upp- hæð þessari mun Reykjavík hafa hlotið 2.260 milj., hinir kaup- staðirnir, 7 að tölu, til saman 1.079 milj., og kauptún ,sjóþorp og hreppar, um 50 talsins, 468 þús. kr. Eigi verður fullyrt, að tölur þessar séu nákvæmlega réttar, en væntanlega munar þar eigi miklu. f sambandl við mestu byggzt upp vegna við- skipta, sem þar höfðu farið fram, og þar af nokkur hluti vegna mannflutninga norður og vestur. Borgfirðingum fannst það vera framtíðar- og menn- ingarmál, bæði fyrir héraðið og þá, er þyrftu aö fara um Borg- arnes, að vanda sem bezt til skipsins, sem átti að flytja fjölda farþega milli Borgarness og Reykjavíkur og oft að af- kasta erfiðu hlutverki í alls- konar veðrum. Það var vist leitun á Borgfirðingum, sem trúðu því, þegar þeir réðust í að sihíða „Laxfoss“, að stjórn- arvöld landsins færu eftir fá ár að draga að óþörfu flutninga í stórum stíl frá skipinu. Einnig er flestum athugulum mönnum ljóst, að tæplega er forsvaran- legt að hafa mikið minna skip en „Laxfoss" til þess að flytja oft 1—200 farþega í einu sjó- leiðina, jafnvel þó að hún væri aðeins milli Akraness og Reykjavíkur. Laxfossfélaginu og Bifreiða- stöð Akureyrar tókst að koma á í sameiningu ferðum milli Ak- ureyrar og Reykjavíkur á ein- um degi, strax eftir að Laxfoss var smíðaður. Hafa þær ferðir verið mjög vinsælar. B. S. A. hefir jafnan síðan haldið uppi vetrarferðum tíl Norðurlands- ins í sambandi við Laxfoss og hlotið miklar og maklegar vin- sældir fyrir meðal almenn- ings. En þegar vegir batna um mitt sumarið og fólksfjöldi eykst, svo að eitthvað er upp úr akstri til Norðurlandsins að hafa, þá hefir önnur sterk og stór bifreiðastöð jafnan komið inn á þessa sérleyfisleið og orð- ið þess valdandi, að fiutning- arnir hafa dregizt frá flóabátn- um og Borgarnesi. Hefir sam- keppni sú oft orðið til skaða og skammar skipulaginu. Ríkis- valdið hefir þarna komið til liðs við önnur öfl, sem hér skulu ekki dæmd. En þetta hefir gengið svo langt, að flóabátur- inn hefir orðið að leita sér at- vinnu við að sigla á aðrar fjar- lægari hafnir. Reyndar má e. t. v. segja, að slíkt sé eins gróða- vænlegt fyrir bátinn. En hann er nú smíðaður fyrst og fremst til þess að annast ferðir til Borgarfjarðarhéraðs og til þess að flytja farþega, sem fara um það á leið til Norður- og Vest- urlandsins. Og að taka hann út af þeirri leið, er til mjög mik- illa óþæginda og tjóns fyrir samgöngur Borgfirðinga o. fl. Reykjavík er ástæða til að geta þess ,að nokkur hluti þeirrar fjárhæðar, er henni er hér tal- in, mun hafa runnið til vega- gerða í rikisins þarfir i grennd við Reykjavík, en reykvískir verkamenn notið vinnunnar, og mun hún hafa verið framkvæmd á þeim tíma, sem atvinnuþörf- in var mest. Eigi verður með neinnl vissu sagt, hve mikið fé þeir staðir, er ríkisframlagsins nutu, hafa á móti því lagt. Þó mun eigi íjarri, að áætla, að sú upphæð hafi á þessum 8 árum numið 6—7 milljónum króna. Sam- kvæmt því hefir þjóðfélagið þá alls varið um 10 milljónum króna til atvinnubóta á s. 1. 8 árum, eða að meðaltali 1.25 milljón á ári. Þegar þessi fjárveiting var fyrst sett á fjárlög ríkisins, mun hafa verið ætlazt til, að svo yrði skipað verkefnum, að sem mest af fénu gengi í bein- ar vinnulaunagreiðslur til þeirra verkamanna, 'er vinn- unnar nutu. Ennfremur, að fyr- ir féð skyldu helzt framkvæmd verk, sem ella yrðu óunnin, og mun síðara skilyrðið hafa ver-' ið sett, til þess að reyna að tryggja, að féð skapaði sem mesta atvinnuviðbót. Nú er svo komið, að helzt er útlit fyrir að mestallir fólks- flutningar, bæði í Borgar- fjörð og norður og vestur á land, verði skipulagðir af ríkis- valdinu fram hjá Borgarnesi. Rekur þá sennilega að því, að Borgfirðingar verði að selja flóabátinn eða að láta hann að mestu annast flutninga á fjar- lægari hafnir. Og er hvort- tveggja illt, m. a. missa þá Borgfirðingar að miklu leyti samgöngur við höfuðstað hér- aðs síns, Borgarnes. Sérleyfishöfunum er vorkunn, þótt þeir vilji aka sem lengstan veg með farþegana, en leik- mönnum í fjármálum finnst heldur lítil hagsýni fyrir þjóð- arheildina, að sjá fjölda bif- reiða akandi eftir ströndinni, eyðandl aðkeyptum, erlendum verðvætum — en rétt við hlið- ina á bílalestinni brunar hálf- tómur bezti flóabátur íslend- inga, milli bezta héraðs lands- ins og höfuðstaðar þess. En þeg- ar haustar að og veður versna, þá er „Laxfoss“ góður! Þannig var það t. d. s. 1. haust, að þá ætlaði hann að nota þriðjudag- ana til Vestmannaeyjaferða yf- ir veturinn. En af því hve illa stóð þá á fyrir póststjórninni að koma pósti norður í land, þá lét báturinn tilleiðast, þótt það kostaði mikil óþægindi fyrir hann, að fara til Borgarness á þriðjudögum. Og þannig er jafnan ennþá, að þegar í harð- bakkann slær á vetrum, þá þykir mönnum víðsvegar að notalegt — og ómetanlegt — að geta komizt um Borgarnes og með Laxfossi til Reykjavíkur. En allan ársins tíma er þetta mjög þægilegt fyrir Borgfirð- inga. Þeir hafa nú m. a. reist mjólkursamlag sitt í Borgar- nesi, sem hefir orðið regluleg- ur bjargvættur héraðsins sein- ustu árin, þeir hafa reist þar sláturhús sitt, frystihús o. s. frv. Hagsmunir Borgarfjarðar- héraðs, innan Skarðsheiðar o. fl. eru svo mikið bundnir við Borgarnes og greiðar og góðar samgöngur þaðan, annars veg- ar við héraðið og hins vegar við höfuðstaðinn, að ég held að þeir, sem vinna að því að eyði- leggja þær, viti alls ekki hvað þeir eru að gera. Það getur vel verið að í fram- tíðinni verði haganlegast að fólksflutningar norður og vest- ur á land og í Borgarfjörðinn verði um Akranes, yfir Hval- fjörð, inn fyrir Hvalfjörð eða yfir Uxahryggi. En á meðan að aðal vetrarvegurinn liggur um Borgarnes og þangað, er brýn þörf að hafa gott skip I förum á vetrum, ekki eingöngu fyrir Borgarfjörð, heldur líka Norð- ur- og Vesturland, þá er lítið vit í því að vera að skipuleggja Eigi verður séð að neinar breytingar verði á þessum opin- beru fyrirmælum um meðferð fjárins, fyr en á árinu 1939, að núverandi félagsmálaráðherra, Stefán Jóh. Stefánsson, skrifar bréf til hreppsnefnda og bæjar- stjórna, dags. 19. maí það ár, og mælir svo fyrir, að helzt skuli vinna þau verk í atvinnubóta- vinnu, sem stutt geti að auk- inni framleiðslu eða lífsbjörg, því sem reynt sé að láta fram- kvæmdirnar skapa sem mesta vinnu, og nefnir í því sambandi að greiða fyrir aukinni útgerð, garðrækt o. fl. Þegar Alþingi 1939 setur upphæðina á fjárlög, er svo fyr- ir mælt, að fénu skuli varið til styrktar atvinnulífinu og til hagnýtra framkvæmda, og eru í því sambandi ýms verkefni talin upp. Jafnframt þessu fær fjárveit- ingin nýtt nafn og heitir nú á fjárlögunum: til framleiðslu- bóta og atvinnuaukningar. Á þessu sama þingi er einnig samþykkt að skipa þriggja manna nefnd úr stærstu stjórnmálaflokkunum, sem meðal annars er ætlað það hlutverk, að gera tillögur til fé- lagsmálaráðherra um skipt- ingu fjárins á þeim grundvelli, er nýjar úthlutunarreglur mæltu fyrir. Þessi nefnd var síðan skipuð í febrúarmánuði 1940 og hlaut nafnið fram- færslumálanefnd ríkisins. Aðal- forgöngumenn þessa máls á Al- þingi, munu hafa verið þeir Jónas Jónsson, Pétur Ottesen og Jón Pálmason, ef að ég veit rétt. [Tímanum hefir borizt þetta litla leikrit, sem fjallar um hina miklu og nokkuð vafasömu útþenslustarfsemi Alexanders Jóhannessonar við að fylla hina nýju háskólabyggingu með stúd- entum. Höf. biður að geta þess, að hann hafi enn ekki samið leikrit fyrir útvarpið, og muni ekki sækja um skáldalaun, fyrr en Alexander Jóhann- esson sækir um að fá viðurkenningu fyrir ljóðagerð sína og Halldór Kiljan Laxness byrjar að nýju að telja sig hæfan til að móttaka fjármunalega viðurkenningu frá íslenzka ríkinu.l Persónur: Þrír menn, nýútskrifaðir úr hag- fræðideild háskólans. Stórkaupmaður. Atvinnumálaráðherra. Formaður S. í. S. Formaður bankaráðs Landsb. ísl. Formaður utanríkismálanefndar. > Samtölin fara fram daginn eftir að Alexander Jóhannesson rektor háskól- ans hefir afhent fyrstu hagfræðikandi- dötunum prófvottorð háskólans. Þrír ungir og' vörpulegir kandidatar leggja af stað með prófvottorð sín út í bæinn til að leita fyrir sér um atvinnuskil- yrði. Kandidatarnir eru nefndir sendi- boðar Alexanders. Fyrsta atriði. Kandidatamir heimsækja einn af helztu stórkaupmönnum í bænum. Senáib. A. Við komum með bréf frá Alexander. Stórkaupm. Hafið þið pappíra frá Alexander í smjörlíkiseftirlitinu? Sendib. A. Nei, við höfum prófvott- orð úr hinni nýju hagfræðideild há- skólans, undirskrifað af dr. Alexander Jóhannessyni rektor þeirrar stofnunar. Vinir okkar við háskólann hafa gefið okkur í skyn, að kaupmannastéttin, bæði smákaupmenn og stórkaupmenn, muni hafa mikla þörf fyrir menn með okkar prófi og að okkur ættu að bíða þar margar stöður með ríflegum laun- um. Stórkaupm. Á hverju byggið þið þá skoðun, að verzlunarstéttin hafi til handa ykkur margar háar og vellaun- aðar stöður. alla fólksflutninga fram hjá flóabátnum yfir sumarið, með'- an veðrið er bezt og blíðast. En hvað skal þá til bragðs taka? Það er ekki svo að skilja, að þótt hér hafi aðallega verið minnst á samgöngurnar við Borgarnes, að það sé ekki víðar, sem skipulagið hefir farið út á villigötur. Það hefir liér að framan verið minnst á eina höfuð ástæðuna fyrir mistök- unum í skipulagningunni, þ. e. í hvers höndum hún er. Mér finnst að ýmsu leyti eðlilegast og heilbrigðast, að skipulagið væri í höndum hlutlauss emb- ættismanns, t. d. póstmála- stjóra. Undanfarið hafa sérleyf- isbifreiðarnar verið skyldaðar til þess að flytj a póst, ýmist fyr- ir ekkert gjald eða aðeins brot (Framh. á 4. siðu.) Þannig eru í fáum orðum hin sögulegu atriði þessa máls. Á fyrstu 5—6 árunum mun víðast hvar hafa verið alltrú- lega fylgt þeim reglum, er upp- haflega voru settar um verk- efni atvinnubótafjárins. Verk- efnin munu víðast hafa verið valin svo, að sem mest af fénu gengi í beinar vinnulauna- greiðslur. Þá mun og hafa verið forðast að snerta á aðkallandi framkvæmdum og var það í beinu framhaldi af hinum opin- beru fyrirmælum. Allvíða var hin svokallaða atvinnubóta- vinna unnin að vetrarlagi, þeg- ar frost og snjór gerði eðlileg vinnuafköst óframkvæmanleg. Grjótvlnna, vega- og gatna- gerðin, voru tíðum þau verkefni er fyrir vali urðu. Verið hefi ég sjónarvottur að þvi, að flokkur manna var um hávetur í frosti og snjó, látinn vinna að grjót- upptöku í allbrattri fjallshlíð, og veit ég eigi betur en grjót- hrúgurnar standi þar ennþá til minja, og er líklegt, að svo verði enn um hríð, þar sem að- staða til að ílytja grjótið að vegi, er lítt'fær nema mikið sé um hana bætt. Þessi frásögn — sem hér er ekki sögð í ásök- unarskyni — mun tæplega vera einsdæmi um framkvæmd at- vinnubótavinnunnar. Verkefn- in, sem voru valin og vinnuað- staða öll, var yfirleitt þannig, að um arðgæfa verðmætasköp- un gat tæpast orðið að ræða. Þó munu frá þessu einstöku undantekningar, einkum í nokkrum hinna smærri kaup- túna, sem snemma byrjuðu á að Sendib. A. Við byggjum það einmitt á háskólaprófi okkar, og meðfylgjandi prófvottorði rektors. St&rkaupm. Þið farið fram á mikla nýjung. Þið búizt við að geta tekið for- ustu í málum kaupmannastéttarinnar, af því að þið hafið háskólapróf. En í sjötíu ár er íslenzk kaupmannastétt búin að færa sinn hluta verzlunarinnar inn í landið, bæði smásöluna og heild- söluna, og þó mun vart nokkur af öll- um þessum mörgu kaupmönnum hafa stúdents- eða háskólapróf. Mér sýnist það veik sönnun hjá ykkur, ungu kandidatar, að þið eigið nú, sökum prófvottorðs frá dr. Alexander Jóhann- essyni, að vera óhjákvæmilega nauð- synlegir til að viðhalda innlendri kaup- mannaverzlun, úr því að menn með allt öðrum undirbúningi hafa tekið hana úr höndum Dana undir hinum erfiðustu kringumstæðum, og gert hana að alíslenzkum og sjálfstæðum at- vinnuvegi. Sendib. A. Okkur hefir verið talln trú um af vinum okkar í háskólanum, að það sé mjög óviðkunnanlegt, að menn með sárlitla skólagöngu og engin fín próf, t. d. Ólafur Johnson og Garð- ar Gíslason, skuli vera í fremstu röð í stórkaupmannastéttinni. Við skiljum ekki hvers vegna þessir og margir aðrir kaupmenn hafa getað fengið sína nú- verandi aðstöðu. Stórkaupm. Sú gáta er auðráðin. Duglegir menn, áhugasamir og vilja- sterkir, nota þá menntun, sem þeir geta fengið, en læra fyrst og fremst af starfinu og lífsbaráttunni. Sigrar ís- lenzku kaupmaimastéttarinnar á und- angengnum áratugum hafa verið unnir með hörkudugnaði og einbeitni, og þeir, sem taka við verzluninni úr höndum okkar, verða fyrst og fremst að hafa til að bera þessa eiginleika. Svo er auðvitað gott að hafa skólagöngu og fín próf i ofanálag. Þegar kaupmenn vantar starfslið, þá munu þeir vafa- laust líta með velviljaðri athygli á bréf ykkar frá Alexander Jóhannessyni. Ep þið munuð verða að byrja á neðsta þrepi, eins og aðrir viðvaningar. Ef þið hafið meirl dugnað og starfsþrótt, heldur en gömlu kaupmennirnir, þá komizt þið ef til vill lengra. En til þess þarf strit heillar æfi. Sendib. A. Okkur eru nokkur von- brigði að yðar harðlyndu bölsýni. Við höfum verið látnir skilja af vinum okkar í háskólanum, að vel útilátið prófvottorð. frá æðstu menntastofnun landsins væri eins konar hengibrú yfir erfiðleika starfsins inn i hið fyrir- heitna land, þar sem hægt væri að fá miklar tekjur fyrir létta vinnu. Nú munum við leita til útgerðarmanna og vita hvort viðtökur þar verða betri. Höfum við þar augastað á þeim út- gerðarmanni, sem nú er atvinnumála- ráðherra. Viljum við vænta, að undir- skrift háskólarektors megi sln þar meira en hjá yður. Stórkaupm. Farið heilir og sælir, ungu menn. Reynið að finna hengi- brúna inn í fyrirheitna landið. verja fénu til jarðræktar. Á árunum 1938 og 1939 fer talsvert að votta fyrir breyting- um á notkun atvinnubótafjár- ins. Þeim stöðum fer fjölgandi, sem leggja féð i jarðrækt, og á einstöku stöðum er það notað til styrktar nýjum atvinnu- tækjum, svo sem til smíði nýrra fiskibáta o. fl. Á árinu 1940, er þessi notkun fjárins beinlínis fyrirskipuð af löggjafanum, þótt sú stefna hafi í fram- kvæmd ekki tekizt eins vel og skyldi, enn sem komið er. Aðal- ástæðan fyrir því, var sú, að flest eða öll bæjar- og sveitar- félög höfðu gert ráð fyrir at- vinnubótastyrk á sínum fjár- hagsáætlunum árið 1940, líkt og undanfarið, og þótti þá ekki fært að gera þar á snögga breytingu á einu ári. Mestu munaði þó, að vegna hins hörmulega atvinnuástands í Reykjavík og Hafnarfirði á fyrstu mánuðum ársins 1940, var ekki talið hægt hjá því að komast, að bæta þar nokkuð úr, með atvinnubótavinnu að hin- um eldri sið, enda þótt brotin væri með því hin nýja regla, um notkun fjárins. Erfitt mun að benda á mikið af arðgæfum verðmætum, sem myndazt hafi fyrir atvinnu- bótaféð. Ég hefi ástæðu til að ætla, að mestur hluti þeirra 10 miljón króna, sem þjóðfélagið hefir varið til atvinnubóta á síðastliðnum átta árum, hafi farið í grjótvinnu, lítt aðkall- andi gatna- og vegagerðir og aðrar slíkar óarðgæfar fram- kvæmdir, sem að vísu voru góð- Framh. Jens Hólmgeirssoii: Atvinnubætur og framleíðslubætur

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.