Tíminn - 10.05.1941, Page 4
208
TÉMBVN, langardaginn 10. maí 1941
tfR BÆBÍinW
Messur á morgun:
í dómklrkjunnl kl. 11, séra Bjaml
Jónsson, fermlng, kl. 2, séra Garðar
Svavarsson, fermlng. í Mýrarhúsaskóla
kl. 2,30, séra Jón Thorarensen. í ka-
þólsku kirkjunnl, lágmessa kl. 6,30 ár-
degis, kl. 10 hámessa, kl. 6 síðdegis,
bœnahald og prédikun.
Meðferð íkveikjusprengja.
í dag klukkan fjögur verður hald-
in sýning á því, hversu fara beri með
íkveikjusprengjur, slökkva benzinbál og
velta hjálp fólkl, sem særst hefir eða
hálfkafnað af völdum loftárása. Sýn-
ing þessi fer fram við Austurbæjar-
skólann.
Umferðaslys
í gær bar það til, er strætisvagn kom
nlðui' Túngötu, að bifreiðarstjórinn
misstl vald á vagninum, þegar hjólin
skrikuðu I moldareðju, sem þar er úr
uppgreftri á götunni við hornið hjá
Herkastalanum. En þar er umferð
mikil og erfitt að mætast sökum um-
rótsins, sem þar er. Rann vagninn út
í skurð og losnuðu sum hjólanna af
honum við það. Stúlka, sem var á göt-
unni og leiddi hjól, varð fyrir vagn-
inum og lenti undir honum og munaði
minnstu, að hjólin færu yfir hana.
Mjaðmarbrotnaði hún. Stúlka þessi er
nítján ára gömul, Sigríður Jónsdóttir
að nafni, til heimilig á Klapparstíg 13.
Hjónaband.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band hjá lögmanni ungfrú Hólmfríður
Halldórsdóttir, Bergstaðastræti 83, og
Þorsteinn Löve, Kirkjustræti 4.
Ferðafélag íslands
eínir til gönguferðar um Heiðmörk,
sem nú er barizt fyrir að verði frið-
land Reykvíkinga og Hafnfirðinga, á
morgun. Verður lagt af stað kl. 1,30.
Ekið verður í bifreiðum að Silungapolli,
en gengið þaðan suður Elliðavatns-
heiði, um Hjalla og Vífilsstaðahlíð að
Vífilsstöðum. Leiðsögumaður frá Skóg-
ræktarfélagi íslands verður með í för-
inni. Þetta er þriggja stunda gangur.
Fjársðfnun S.LB.S.
Sambandi ísl. berklasjúkl-
inga hafa borizt eftirfarandi
fjárupphæðir (frá síðustu birt-
ingu):
Fyrir seld blöð og merki:
Jónína Hermannsdóttir kr. 33,40, Vil-
hjálmur Jónsson, Akranesi, kr. 215,50,
K. Júlíusson, Húsavík, kr. 40,00, Jón
Árnason, Kópaskeri, kr. 15,00, Þóra
Jónsdóttir, Bíldudal, kr. 80,00, Einar
Ástráðsson, Eskifirði, kr. 50,00, Aðalh.
Pétursdóttir, Bakkafirði, kr. 15,00, Örn-
ólfur Valdemarsson, Súgandafirði, kr.
42,50, Ben. G. Benediktsson, Sandi, kr.
50,00, Estífa BJömsdóttir, Þingeyri, kr.
30,00, E. E„ Hafnarfirði, kr. 2,00.
Safnað fé:
Safnað af: Sr. Guðm. Einarssyni,
Mosfelli, kr. 130,00, sr. Páli Sigurðssyni,
Bolungai-vík, kr. 800,00, U. M. P. Vestra,
Rauðasandi, kr. 105,65, Kvenfél. Geira-
dalshrepps, kr. 70,00, U. M. F. Austra,
Eskifirði, 282,00.
Gjafir og áheit:
Ó. Þ„ Vestmannaeyjum, kr. 10,00,
Sig. Jóhannesson, Rvík, kr. 10,00, Páll
Jónsson, Reykholti, kr. 5,00, Ásta Guð-
mundsdóttir, Kópavogi, kr. 10,00, Ó-
nefnd kona, kr. 50,00, Ónefnd kona, kr.
50,00, Ónefnd kona, kr. 2,00, N. N„ af-
hent af Árna Óla, kr. 25,00, Ónefnd
stúlka, kr. 10,00, Ónefnd kona, kr.
100,00, Ónefnd kona, afhent af sr. Á. S„
kr. 100,00, Ónefnd kona, Rvík, kr. 100,00,
Frú María Jónsson, Rvik, kr. 25,00, Frú
Þ. P„ kr. 100,00, Ónefnd kona, afh. af
Gísla Guðm., kr. 50,00, Sigurður Jóns-
son, Rvík, kr. 30,00, U. M. F. Reynir,
Mýrdal, kr. 15,00, Kvenfél. Hellusands,
kr. 100,00, Sjómaður, kr. 10,00, Tómas
Skúlason, kr. 5,00, Kvenfél. 19. júní,
Borgarfirði, kr. 100,00, Jón Jóhannes-
son, Siglufirði, kr. 100,00, Sigurbjörg
Benjamínsdóttir, kr. 5,00, Kvenfélagið
„Hringurinn", Stykkishólmi, kr. 500,00.
Samtals kr. 3473,05.
Miðstjórn S. I. B. S.
Moldin . . .
(Framh. af 1. aiOu.J
hefði byrjað landbúnaðarsókn
sína 1916, hefðu 37% af rækt-
anlegu landi verið í rækt, en
í lok ársins 1918 38%. Þegar
styrjöldin hófst nú, hefðu 28%
af ræktanlegu landi verið í rækt,
en nú myndu um 40% í ræktun.
Hudson sagði, að þótt mikil
áherzla hefði verið lögð á ný-
ræktina, hefði þó enn meiri á-
herzla verið lögð á aukna frjó-
semi þess lands, sem var í rækt-
un, og hefði náðst mikill árang-
ur i þeim efnum.
Hudson sagði, að ríkið hefði’
veitt fyllstu aðstoð sína við út-
vegun vinnuafls. Mikið af kven-
fólki hefði ráðizt í sveitavinnu,
vanir landbúnaðarverkamenn
hefðu ekki verið kvaddir til
herskyldustarfa o. s. frv. Ef
þessar ráðstafanir dygðu ekki
á komanda sumri myndi ríkið
gera sérstakar ráðstafanir til
að landbúnaðurinn fengi vinnu-
afl, ef til vill ítalska fanga.
Þá hjálpaði ríkið bændum til
að afla sér véla og hráefna.
Ráðstafanir væru undirbúnar
til stórra endurbóta á landbún-
aðarframleiðslunni. Siðast en
ekki sízt bæri að geta þess, að
bændum væri nú tryggt sóma-
samlegt verð fyrir afurðir sínar
og þeir hefðu öruggan markað
fyrir allt, sem þeir framleiddu.
Hudson sagði, að ekki mætti
eingöngu miða aukningu land-
búnaðarins við styrjaldará-
standið, heldur einnig við þarf-
ir framtíðarinnar. Það mætti
ekki hvetja bændurna til auk-
innar framleiðslu nú, ef þeim
yrði svo enginn aðstoð veitt eft-
ir styrjöldina, þegar aftur skap-
aðist samkeppni við aðfluttar
landbúnaðarvörur. Bændurnir
verða að finna, að hér er ekki
um bráðabirgðaráðstafanir að
ræða. Það verður að sanna
þeim, að ráðstöfunum ríkis-
valdsins sé ætluð lengri fram-
tíð.
Brottflutning ur
(Framh. af 1. siOu.)
embættismenn og undirróðurs-
ins gegn setuliðinu, enda hefði
það verið. gert í einu tilfelli,
dreifibréfsmálinu. En um þetta
hefði ekki náðst samkomulag í
ríklsstjórninni. Væri líklegt, að
ekki hefði komið til jafn alvar-
legra afskipta Breta af innan-
landsmálum okkar, ef það hefði
verið gert.
Forsætísráðherrann ■ sagði
ennfremur, að það myndi ekki
hafa borið neinn árangur, þótt
ríkisstjórnin hefði gefið blað-
inu áminningu. Hann kvaðst
eitt sinn- hafa beint þeirri ósk
til blaðanna, að skrifa varlega
um utanríkismál og ekki hlot-
ið annað fyrir en svívirðingar
hjá Þjóðviljanum og jafnvel
fleiri blöðum.
Þessar upplýsingar ráðherr-
ans virðast leiða það í ljós, að
ekki hefði komið til brottflutn-
ings kommúnistanna, ef for-
vígismenn Sjálfstæðisflokksins
hefðu ekki viljað lofa þeim óá-
reittum að halda þjóðskemmd-
arstarfsemi sinni áfram.
2. þln^
Sambands ungra Framsóknarmanna
verður haldið að Laugarvatni dagana 22.—25. mai n. k.
Þátttaka óskast tilkynnt undirbúningsnefndinni fyrir
10. maí. Þeir, sem hafa í hyggju að sækja þingið, eru
áminntir um að ganga sem fyrst frá kjörbréfum sínum.
Allar upplýsingar varðandi þingið fást á skrifstofu
Framsóknarflokksins, Lindarg. 9 A, sími 2323.
SAMBANDSSTJÓRNEV.
Muníð hína ágætu
Sjafnar blautsápu
í Vz kg, pökknm.
Sápuverksmíðjan Sjöfn.
Relldsölubirgðir bjá:
SAMBANDI ÍSL. SAMVIMUFÉLAGA.
Kennaraskólinn.
(Framh. af 1. síðu.)
Jónsdóttir, Másstöðum, Vatns-
dal, Guðmundur Einarsson,
Hamri, N.-ís. Guðmundur Löve,
Reykjavík. Guðmundur Páls-
son, Flateyri, Ön. Gunnar Sig-
urðsson, Auðshaugi, Barð. Har-
aldur Þórarinsson, Skeggja-
stöðum í Fellum. Hermann Ei-
ríksson, Reykjavík. Jón Guð-
jónsson, Reykjavík. Jónas Ey-
steinsson, Stórhóli, V.-Húnav.
Jónas Sölvason, Sauðárkróki.
Jónatan Jónsson, Bergþórshvoli.
Júlíus Guðmundsson, Reykja-
vik. Njáll Bjarnason, Flateyri
Önundarf. Njáll Guðmundsson,
Reykjavík. Óskar Helgason,
Skagaströnd. Ragnheiður Vigg-
ósdóttir, Broddanesi, Stranda-
sýslu. Sig. Jónsson, ísafirði.
Sig. Ólafsson, Flateyri, Önund-
arfirði. Sóley Tromberg,
Reykjavík. Sveinbjörn Markús-
son, Görðum, Kolbeinsstaðahr.
Vigdís Björnsdóttir, Stóru-
Gröf, Mýrasýslu, Þórunn Jóns-
dóttir, Keisbakka, Skógar-
strönd. Helga Jónsdóttir, stúd-
ent, Akureyri.
22
Victor Hugo:
Esmeralcia
23
mátti heyra hálfkæfða hlátra öðru
hvoru, þegar dyravörðurinn nefndi
nöfn og titla sendimannanna.
Hér kom Loys Roelof, þingmaður í
Louvain, þá Klaes d’Etuelda, þingmað-
ur Briissel, ennfremur Jóhann Coleg-
bens, borgarstjóri í Anvers. Það mátti
og heyra heiti eins og Gheldolf von der
Hage, Jóhann Dymaerzelle og önnur
slík.
Allir þessir menn voru feitir og sæl-
legir borgarstjórar og þingmenn, búnir
dýrum klæöum,skreyttum gullnum borð-
um og skúfum. Þeir minntu á mannver-
ur þær, sem getur að líta á málverkum
Rembrandts. Einn þeirra var þó hinum
næsta ólíkur. Andlit hans var smágert.
Maðurinn var í senn greindarlegur og
kankvíslegur á svip. Kardínálinn gekk
til móts við hann og laut honum djúpt.
Þó hafði maður þessi ekki neinn titil
annan en Vilhjálmur Rym, þingmaður í
Gent. Aðeins örfáum var þó kunnugt
um, hver Vilhjálmur Rym var í raun og
veru. Hann var óvenjulegur maður,
sjálfkjörinn foringi á umbrotatímum.
En á fimmtándu öld varð hann að lúta
því hlutskipti að starfa að tjaldbaki og
beita brögðum til þess að koma sínu
fram. Raunverulega var hann mjög
handgenginn Lúðvíki XI. og valdur að
mörgum atburðum og merkum. En
þetta var alþýðu manna engan veginn
kunnugt um. Það vakti því almenna
undrun, að kardínálinn skyldi sýna
honum slík virðingarmerki.
IV. KAFLI.
Vefarinn frá Gent.
Meðan borgarinn frá Gent og kardín-
álinn af Bourbon skiptust á kurteisis-
kveðjum, kom inn hár maður og herði-
breiður, harðlegur á svip. Það var. eins
og að sjá grimman hund við hliðina á
ref, þegar hann staðnæmdis t hjá Vil-
hjálmi Rym. Hann var í vaðmálsbrók-
um og skinnúlpu og stakk undarlega í
stúf við silkið og flosið, sem hvarvetna
var umhverfis hann. Dyravörðurinn
hélt, að hér væri á ferðinni einhver um-
renningur, er ætlaði að komast inn, og
stöðvaði hann.
— Hægan, vinur sæll, sagði hann. Hér
fer þú ekki inn!
Maðurinn 1 skinnúlpunni þreif í dyra-
vörðinn og þeytti honum frá sér.
— Hvern fjandann viltu? sagði hann
hárri röddu, svo að heyrðist um allan
salinn. Veiztu ekki, hver ég er?
— Hver eruð þér? spurði dyravörður-
inn.
— Jakob Coppenole. ,
— Hvað eruð þér?
— Vefari í „Festinni" í Gent.
-fii
Til anglýsendal
Tíminn er gefinn út 1
fleiri eintökum en nokk-
urt annað blaö á íslandl.
Gildi almennra auglýs-
inga er í hlutfalli við
þann fjölda manna er les
þær. Tíminn er öruggasta
boðleiðin til flestra neyt-
endanna í iandinu. —
Þeir, sem vilja kynna vör-
ur sínar sem flestum
auglýsa þær þessvegna i
Tímanum
Erlendar fréttir.
(Framh. af 1. siðu.)
ina, en hún er þeim lokuð enn.
Hins vegar gætu þeir flutt
þangað fluglið og flugvélar og
sent Irakmönnum. Þá búast þeir
nú fyrir á ýmsum grískum eyj
um við Tyrklandsstrendur og er
hægt að setja þaðan lið á land
með hægum móti. Veikir þetta
talsvert varnaraðstöðu Tyrkja.
í Abessiniu er enn um 30—40
þús. manna italskur her, sem
er ósigraður. En hann heldur
ekki uppi skipulögðum vörnum,
heldur er dreifður í nokkra
flokka í norðausturhluta lands-
ins. Telja Bretar, að þeir geti
fljótlega sigrað lið þetta.
Moyne lávarður upplýsti 1
efri málstofu brezka þingsins á
þriðjudaginn, að alríkisherinn
brezki hefði misst um 11.500
manns i Grikklandsstyrjöldinni
og eru þar taldir bæðl fallnir
og herteknir, hermenn. Hann
sagði, að Bretar hefðu tekið til
fanga í Afríku 200 þús. her
menn síðustu fimm mánuðina,
en alls hefði manntap ftala
numið 380 þús. manns, þegar
innfæddir menn væru með-
taldir.
Freyberg, yfirmaður hers Ný-
Sjálendinga utan heimalands-
ins, hefir verið skipaður yfir-
maður hers Bandamanna á
Krít. Freyberg gat sér mikið
frægðarorð í seinustu heims
styrjöld og hlaut þá m. a. Vikt-
oríukrossinn, sem er æðsta við-
urkenningarmerki brezka hers
ins. Churchill hefir tilkynnt,
að Krít verði varin til hins ítr
asta.
Bretavinnan
(Framh. af 1. slðu.)
lands, að tilhlutun rikisstjórn-
arinnar, annast hér sérstaka
ráðningaskrifstofu fyrir land
búnaðinn og mun Pálmi Ein-
arsson veita henni forstöðu. Er
mikil eftirspurn eftir verkafólki
í næstu héruðifm við Reykja-
vík, en minni í hinum fjarlæg-
ari héruðúm.
Á krossgötnm.
(Framh. af 1. siðu.)
í vetur, seint í marzmánuði, til HJalt-
lands og þaðan til Englands. Brezkir
setuliðsmenn í Eyjum fóru undir eins
í báta þessa, er þeir kom til lands og
eru litlar fregnir af ferðalagi bátanna,
né hvað skipverjar ætlazt fyrir.
Anglýsið í Tímanum!
~-----GAMLA BÍÓ------
MARX BROTHERS
I CIRKIJS.
Marx Bros. at the Circus)
Amerísk skopmynd með
hinum heimsfrægu
Marx Brothers.
Aukamynd:
Stríðsfréttamyndlr frá
Miðjarðarhafi og Libyu.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
52. blað
---------NÝJA BÍÓ----
HÆGAN NtJ,
DÓTTLR GÓÐ!
(Yes my darling daugther)
Aðalhlutv. leika:
PRISCILLA LANE,
JEFFREY LYNN,
ROLAND YOUNG Og
MAY ROBSON.
Aukamynd:
MERKISVIÐBURÐIR
ÁRIÐ 1940.
(Review of the Year 1940)
Sýnd kl. 7 og 9.
Loftvarnaæfing
Loftvarnanefnd hefir ákveðið að loft-
varnaæ-fiiig verði haldin sunnudaginn
11. maí n. k. Hættumerki verður gefið
kl. 6 fyrir hádegi og stendur æfingin yf-
ir í 2—3 klukkutíma.
Reykjavík, 9. maí 1941.
Loitva rnanefnd
Tilkynning:
til bifreiðastjóra
Að gefnu tilefni er athygli vakin á því, að samkvæmt
48. gr. lögreglusamþykktar Reykjavíkur er bifreiðastjór-
um óheimilt að gefa hljóðmerki, nema umferðin gefi
sérstakt tilefni til þess.
Brot gegn þessu varða sektum.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 8. mai 1941.
Agnar Kofoed Hansen.
Aðalfnndnr
LOÐDÝRARÆKTARFÉLAGS ÍSLAIVDS
verður haldinn í Baðstofu iðnaðarmanna i Reykjavík 7. og 8.
júní næstkomandi.
DAGSSKRÁ samkvæmt 15. gr. félagslaganna, einnig endur-
skoðun á lögum félagsins.
Fulltrúakosning fyrir félagsdeildir kemur ekki til greina i
þetta sinn.
Loðdýraræktarráðunautur flytur erindi um Fóðrun loðdýra
og annað um lífdýraval og sýningar.
Reykjavík, 9. maí 1941.
Félagsstjórnin.
Feikna úrval
af nýjum
eínum nýkomið
- Verksmídjuútsalan
Geljun - Iðunn
Aðalstræti
Tilkynnið ílutninga
vegna mæliálesturs á skrifstofu raf-
magsveitunnar, Tjarnargötu 12. Simi
1222.
Rafmagnsveíta Reykjavíkur