Tíminn - 05.06.1941, Side 1

Tíminn - 05.06.1941, Side 1
RITSTJÖRNARSKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Llndargötu 8 A. SÍMAR: 4373 og 2353. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9A. Simi 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA hl. Simar 3948 og 3720. í. 61. blað 4 Tilraun Alþbl. til að spilla lansn dýrtíðarmálanna Blaðið íullyrdir, að ráðstafanir til að hindra hrun krónunnar séu aðeins í þágu bændanna! Viðtal við viðskiptamálaráðherra Sókn Þjóðverja í austurátt Verður Sýrland næsti áfanginn? Aðalfundur Kaup- félags Borgfirðínga Mjólkursamlagið greiddi bændum 27,6 au. fyrir hvern mjólk- urlítra siðastl. ár Kaupfélag Borgfirðinga hélt aðalfund sinn að Hvanneyri dagana 2. og 3. maí síðastliðinn. Fundinn sátu 38 fulltrúar auk stjórnar, framkvæmdastjóra, endurskoðenda og nokkurra gesta. Öll vörusala félagsins, þó ekki útibúanna, nam á síðastliðnu ári 2,6 milj. króna. Innstæður viðskiptamanna í reikningum og innlánsdeild höfðu aukizt allverulega á árinu, eða um 211 þús. krónur og ástæður við- skiptamanna gagnvart félag- inu því batnað um 333 þús. kr. Fundurinn samþ'ykkti að greiða af tekjuafgangi félags- ins 4% í stofnsjóð félagsmanna og 5% í reikninga af ágóða- skyldri úttekt þeirra. Mjólkursamlag félagsins tók á móti 2,1 miljón lítra af mjólk. Framleiðsla þess á árinu varð: 8233 kassar af niðursoðinni mjólk 155 smál. af skyri 52 — — rjóma 48 — — smjöri 43 — — ostum. Endanlegt verð til bænda varð 27,64 aurar fyrir hvern lítra af meðalfeitri mjólk. (Framh. & 4. síöu). Skípasmíðastöð K. E. A. Skipasmíðastöð K.E.A. á Odd- eyrartanga, sem tók til starfa síðastliðið haust, hefir starfað í allan vetur og lokið smíði tveggja 5 smálesta opinna vélbáta og eins 12 smálesta þil- farsbáts. Þá er langt komið smíði tveggja 15 smálesta vél- báta og fyrir skömmu var kjöl- ur lagður að 150 smálesta fiski- skipi fyrir Útgerðarfélag K.E.A. Auk þess hefir stöðin fram- kvæmt ýmsar viðgerðir og breyt- ingar á bátum og skipum, m. a. hefir uppmoksturskip frá Siglu- firði verið lengt og fleira af því tagi unnið. Eins og sjá má af þessu, er hér um allstórvægilegar fram- kvæmdir að ræða. Undanfarin ár hefir margt verið ritað og rætt um þörfina á því að endur- nýja fiskiskipaflotann. Tilgang- urinn með stofnun skipastöðv- arinnar er að gera útvegsmönn- um á félagssvæði K.E.A. og ná- grenni auðveldara að útvega sér nýja fiskibáta af ýmsum stærðum, enda þess mikil þörf þar, ekki síður en annars stað- ar. Hér er því um að ræða stór- merkilegan þátt 1 starfsemi K. E.A., sem enn þá einu sinni hefir sýnt það, að það er vel á verði um hagsmunamál héraðs- ins og skjótt til framkvæmda. Hið nýja fiskiskip, sem út- gerðarfélag K.E.A. er að láta byggja, verður útbúið til þess að geta stundað allar fiskveið- ar svo og annast fiskflutninga. Verður það hið vandaðasta á allan hátt og knúið diesel-vél. Allmikil atvinnuaukning er að þessum framkvæmdum fyrir bæinn. Um 30 manns hafa unn- ið við smiðarnar. Yfirsmiður er Gunnar Jónsson. í Alþýðublaðinu síðastl. þriðjudag birtist grein um dýrtíðarmálin, sem er auð- sjáanlega ætlað að koma af stað illdeilum og að vekja andúð gegn farsælli lausn málsins í þinginu. Virðist blaðið enn gera sér vonir um, að unnt verði að end- urheimta hið tapaða fylgi Alþýðuflokksins með því að keppa við kommúnista í ábyrgðarleysi og æsinga- glamri. í þessari grein Alþýðublaðs- ins segir m. a.: „Að sjálfsögðu var það þá hlutverk viðskiptamálaráðu- neytisins, annars ráðuneytisins, sem Framsóknarflokkurinn fer með, að undirbúa lausn þeirra (þ.e.dýrtíðarmálanna) og leggja þau fyrir þingið. En tveir og hálfur mánuður liðu af þing- tímanum, án þess að nokkuð væri á þau minnzt. Það var ekki fyrr en í apríllok, eða um það leyti, sem venjulega líður að þinglokum, að Framsóknar- flokknum þóknaðist að hreyfa dýrtíðarmálunum við hina stj órnarf lokkana." Þá segir blaðið, að „þegar bú- ið var að samþykkja kosninga- frestunina“ hafi Framsóknar- flokkurinn fyrst komið með til- lögu ,,um launaskatt, seto værl notaður til verðuppbótar handa landbúnaðinum. Þá segir Alþbl. loks um hinar fyrirhuguðu dýrtíðarráðstafan- ir: „Hér er ekki um það að ræða að taka miljónir króna af kjós- endum hans (þ. e. Framsókn- arflokksins) og úthluta þeim á meðal kjósenda í bæjunum, heldur þvert á móti, að taka miljónir af bæjunum til að Föstudaginn í síöastliðinni viku rert vélbáturlnn Hólmsteinn frá Þingeyri I Dýrafirði. Hefir hans elgi orðið vart síðan, þrátt fyrir allmikla leit skipa og flugvéla. Veður var gott við Vest- firði um hvitasunnuhelgina og eiga menn erfitt með að geta sér til um hvarf bátsins. Þykir nú örvænt um, að báturinn komi fram. Hann var 14 smá- lestir að stærð með fjögurra manna á- höfn. Formaður var Ásgeir Sigurðsson frá Bolungarvfk, en aðrir bátverjar allir frá Þingeyri, Niels Guðmimdsson, Helgi Jóhannsson og Guðm. Kristjáns- son. Hið eina. er fundizt hefir frá bátn- um, eru nokkur bjóð af lóðum hans, er vélbátur frá önundarflrðl fann á sunnudag. t t t Alþýðuskólinn að Laugum í Reykja- dal i Þingeyjarsýslu var fullskipaður í vetur, nemendur 70—80. í smíðadeild voru 12 nemendur og var hún rekin með sama fyrirkomulagi og undanfar- in ár. Kennaralið skólans var hið sama og fyrra ár. Bryti skólans var Jóhannes Hjálmarsson frá Siglufirði, en veturinn 1939—1940 gegndi Áskell Jónsson frá Mýri þvi starfi. Skíðakennslan var nokkur, líkt og næstliðinn vetur, en snjóalög voru lítil. Skíðakennari var Ásgrimur Kristjánsson. í vor var íþróttanámskeið haldið að Laugaskóla. Hófst það 1. maí og stóð í einn mánuð. Veitti Þorgelr Sveinbjarnarson, í- þróttakenndri skólans því forstöðu. — Sóttu það 98 nemendur, karlar og konur, langflestir úr héraðinu; voru greiða kjósendum Framsóknar- flokksins í verðuppbót á af- urðir þeirra.“ Vegna þess að framangreind ummæli Alþýðublaðsins snerta að verulegu leyti störf við- skiptamálaráðherra, hefir Tím- inn snúið sér til hans og spurt hann um undirbúning málsins af hálfu hans og ríkisstjórnar- innar. — Frásögn Alþýðublaðsins, segir viðskiptamálaráðherra, er bæði ósvífin og ósönn og virð- ist erfitt að sjá, hvað hefir getað komið blaðinu til þess að bera fram slík ósannindi. Að minni tilhlutan hafa dýr- tíðarmálin, eða réttara sagt ráð- stafanir til þess að stöðva hækk- un vísitölunnar, verið til með- ferðar hjá ríkisstjórninni í allan vetur. Nokkru áður en þing kom saman,' hafði viðskipta- málaráðuneytið látið semja ít- arlega skýrslu um þessi mál. Var hún lögð fyrir ríkisstjórn- ina og hefir síðan verið grund- völlur að umræðum um málið. Ég ætla ekki að lýsa þvi hér, hvernig einstakir ráðherrar hafa tekið í málið á hverjum tíma. Það tel ég ekki viðeig- andi. En það vil ég taka fram, að kynlegt þykir mér, ef sam- starfsmenn mínir í ríkisstjórn- inni kvarta undan því, að ég hafi látið þessl mál liggja í þagnargildi. Eétt er að taka það fram, að umræður um dýrtíðarmálin, eða m. ö. o. það, hvernig bezt væri að draga úr verðrýrnun íslezkr- ar krónu, hafa verið meira ein- hliða en ella, vegna þess, að í samningum þeim um fjárhags- mál og viðskipti, er gerðir hafa verið við brezku stjórnina, er svo ákveðið, að núverandi gengi íslenzkrar krónu, miðað við (Framh. á 4. síöu.) þeir nokkuð mislengi á námskeiðinu eftir því, sem þeir höfðu ástæður til. Yngstu nemendurnir voru tólf ára gamlir. Á námskeiðinu voru kenndar íþróttir alls konar og sund. Kenndi Þorgeir Sveinbjarnarson, lþrótta kennari skólans, sundið, en Jens Magn- ússon, fimleikakennari úr Reykjavík, og Jóhannes Hjálmarsson frá Siglu- firði, útiíþróttlrnar. Geirfinnur Þor- láksson á Skútustöðum kenndi glímu. Einnig var tólf manna sveit leiðbeint i lögreglustörfum, hafði Kjartan Bjarna- son lögregluþjónn úr Reykjavík þá kennslu með höndum. Eiga menn þess- ir, er allir eru ungir og vaskir, að hafa með höndum löggæzlustörf í héraðinu, þegar sliks þykir sérstök þörf. t t t Örn Johnson flugmaður sá i fyrri- nótt allmikinn hafís út af Vestfjörð- um, er hann var að leita vélbátsins Hólmsteins. Var ísbreiða mikil um 100 kílómetra undan landi, en nær landi voru ísspangir 1000—2000 metrar á breidd. ísinn virtist nær landi er dró norður undir ísafjarðardjúp. Fyrir nokki-u síðan gaus upp kvittur um að hafís væri hér við land, en síðan hefir hans eigi orðið vart fyr en nú, að þessi fregn barst af flugferð Arnar. t t r Bæjarráð Reykjavíkur samþykkti það á fundi í síðastliðinni viku, að leggja til að hækkuð yrðu útsvör á bæjarbú- um um 900 þúsund krónur frá þvi sem gert var ráðifyrir í fjárhagsáætlun bæj- arins. Þar voru þau áætluð 7345 þús. kr. Slðastliðlnn laugardag sluppu seinustu brezku hersveitirnar frá Krít. Þjóðverjar eru nú orðnir herrar eyjarinnar og undirbúa þaðan sókn á hend- ur Bretum í Egiptalandi og við Súezskurðinn. Enn er ekki fullvíst, hversu mikið lið Bandamenn hafi haft til varnar á Krít, en líkur benda til, að það hafi verið um tvö herfyiki. Bretar segjast hafa flutt þaðan um 15 þús. hermenn, en Þjóðverjar segjast hafa tek- ið 12 þús. til fanga og að 5 þús. muni hafa fallið. Bretar telja þessar tölur Þjóðverja ýkt- ar, en hafa þó ekki enn birt tölur um samanlagt mann- tjón sitt og Grikkja á Krít, en all-fjölmennar grískar her- sveitir börðust með Bretum á Krít. Þjóðverjum virðist hafa tek- izt að flytja öllu meira lið loft- leiðis til Krítar en Bretar höfðu þar fyrir, eða um 30—40 þús. manns. Lið þetta var búið létt- um hergögnum og vistum og má telja þetta glæsilegt lofthern- aðarlegt afrek. Það eitt reið þó ekki baggamuninn, heldur hitt, að Þjóðverjar gátu beitt flug- vélum næstum ótakmarkað gegn liði Bandamanna, en þeir höfðu sama og engum flugher á að skipa, því, að þeir treystu sér ekki til að verja flugvélar á flugvöllum á Krít og fluttu þær því burtu í byrjun viðureignar- innar. Flugvélar Þjóðverja munu einnig hafa unnið mikið tjón á herskipum Breta við Krit með- an viðureignin stóð yfir. Þótt Þjóðverjum hafi heppn- ast að taka Krít, er það engin sönnun fyrir því, að þeim muni heppnast innrás í Bretland. Þar þurfa þeir að mæta flug- her, sem reyndist flugher þeirra sterkari síðastl. haust og hefir honum þó aukizt bolmagn síð- an. Þjóðverjar virðast líka hugsa nú um sókn í austur, en ekki í vestur. Undanfarið hefir dregið |bæði úr loftárásum á Bretland og skipatjóni Breta á Atlants- í fyrra námu útsvörin á bæjarbúum alls 5900 þús. kr. Samkvæmt venju verða lögð á 5—10 af hundraði hærri útsvör heldur en gert er ráð fyrir í fjárhagsáætluninni, og verði tillögur bæjarráðs teknar til greina, munu.út- svörin í Reykjavík að þessu sinni nema 8650—9000 þús. kr. og þvi verða þrem milljónum króna hærri en í fyrra. r r t Á laugardagsmorguninn fyrir hvíta- sunnu ók brezk herflutningabifreið á konu á Suðurlandsbraut. Lézt hún að stuttri stundu llðinni af meiðslum þeim er hún hlaut. Kona þessi var á fimm- tugsaldri, Pálina Sigrún Jóhannesdótt- ir að nafni, til heimilis á Snælandi. t t t Nýlega fór fram kosning þriggja presta, tveggja í Skagafirði og eins í Rangárþingi. Voru atkvæði talin í skrifstofu biskups í gær. í Mælifells- prestakalli var kjörinn séra Halldór Kolbeins, þrófastur að Stað i Súganda- firði. Var hann eini umsækjandinn og hlaut 121 atkvæði. Enginn atkvæða- seðill var auður. Á kjörskrá voru 221, og var kosning því lögmæt. í Viðvíkur- prestakalli var kosinn lögmætri kosn- ingu séra Björn Björnsson, eini um- sækjandinn. Hlaut hann 192 atkvæði. Á kjörskrá voru 338. Tveir atkvæða- seðlar auðir. í Landprestakalli var og einn umsækjandi, séra Ragnar Ófeigs- son, og var kosning hans og lögmæt. Á kjörskrá voru 255, og hlaut hann 167 atkvæði, en enginn atkvæðaseðill var auður. hafi. Það síðarnefnda vegur fullkomlega móti ósigrum Breta eystra, því að siglingaleiðin til Bandaríkj anna er Bretum nú dýrmætari en allt annað. Enn er ekki séð, hvar Þjóð- verjar ætla að bera niður næst. Sumir spá því, að það verði á eyni Cypern, sem er engu þýð- ingarminni staður en Krit, aðrir telja, að þeir muni herða sókn- ina frá Libyu og reyna að taka Egiptaland með aðstoð fall- hlífarmanna. Loks er því haldið fram, að þeir muni flytja herlið til Sýrlands og brjóta sér þaðan leið til olíulindanna í Irak og Suezskurðarins. Seinustu daga hefir mest ver- ið rætt um síðastnefndu mögu- leikana. Þykir margt benda til, að Þjóðverjar séu vel á veg komnir með að fá Frakka í lið með sér. Víst er það, að Vichy- stjórnin hefir haldið marga fundi í byrjun vikunnar og var Weygand, yfirhershöfðingi frönsku nýlendnanna, viðstadd- ur. Að loknum þessum fundum var lýst yfir því, að Frakkar myndu verja nýlendur sinar með oddi og egg. Jafnframt var ákveðið, að Weygand færi til Sýrlands, og óstaðfestar fregnir herma, að Frakkar hafi sent þangað mikið af flugflota sín- um, en til þess hafa þeir þurft leyfi Þjóðverja samkvæmt vopnahléssáttmálanum. Bretar telja, að þessum yfir- lýsingum Frakka um varnir ný- lendnanna sé beint gegn sér, en sá orðrómur hefir kvisast, að Bretar og frjálsir Frakkar ætl- uðu að hernema Sýrland, en de Gaulle á orðið marga fylgis- menn í Sýrlandl. Hefir það styrkt þessar fregnir, að de Gaulle er kominn til Palestinu. Bretar telja hins vegar, að Frakkar ætli að leyfa Þjóðverj- (Framh. á 4. slöu). Aðrar fréttlr. Vilhjálmur fyrv. Þýzkalands- keisari andaðist í gærmorgun í Doorn í Hollandi, en þar hefir hann dvalið landflótta seinustu 22 árin. Vilhjálmur var 82 ára. Hann varð keisari 29 ára gam- all, 1888, og sat að ríkjum í 30 ár. Hann stjórnaði Þýzkalandi í seinustu heimsstyrjöld, en varð að leggja niður völd, þegar ljóst var að Þjóðverjar myndu bíða ósigur. Vilhjálmur var að ýmsu leyti dugandi stjórnandi, en ráðríkur og óspar á stórar yfirlýsingar. Hafa ensku blöðin notað fráfall hans til að rifja upp ýms ummæli hans í sein- ustu styrjöld og borið þau sam- an við svipuð ummæli Hitlers nú. Þýzkar flugvélar gerðu loft- árás á Dublin í Eire aðfaranótt laugardagsins. Um 30 manns fórust, en 80 særðust. Bandaríkjaþing hefir nýlega veitt 15.000 milj. kr. til smíði nýrra hernaðarflugvéla, og er áætlað að fyrir þessa upphæð verði smíðaðar 30 þús. flugvél- ar. Bretar tilkynna stöðugt nýja sigra í Abessiniu. Þeir segja, að enn verjist um 40 þús. manna ítalskt llð í landinu. Sé það skipt í tvennt, annar hópurinn er 1 Gondarhéraðinu, en hinn á vatnasvæðinu svonefnda. 140 manns björguðust af Bis- marck, en 3 menn af Hood, seg- ir í brezkum tilkynningum. Hvort skipið um sig hafði um 1300 manna áhöfn. Sænska landvarnarlánið nem- unr nú orðið 1.600 milj. kr. Byrjað var að taka þetta lán fyrir 1 y2 ári. Einstaklingar og stofnanir lána fé sitt af frjáls- um vilja og ber þetta glöggt vitni um frelsisvilja sænsku 'þjóðarinnar. w A víðavangi N ORÐURLANDABLÖÐIN OG SJÁLFSTÆÐISMÁLIÐ. Nýlega hafa borizt hingað ummæli allmargra danskra og sænskra blaða' um ákvarðanir Alþingis í sjálfstæðismálinu. Virðist þar yfirleitt gæta ann- ara skoðana en íslendingar áttu von á. Flest blöðin halda þvi t. d. fram, að tíminn til slíkrar yfirlýsingar hafi verið. illa val- inn. Við munum hins vegar hafa búizt við, að það myndi vekja fögnuð á Norðurlöndum, að minnsta norræna þjóðin skyldi hafa dirfsku til að lýsa yfir frelsisvilja sínum á þessum óvissu og uggvænlegu tímum. Sum blöðin óttast, að ályktanir Alþingis kunni að fjarlægja okkur hinum norrænu þjóðun- um. Eitt blaðið bendir á, að Al- þingi hefði jafnframt átt að lýsa yfir ósk um áframhald- andi samvinnu við Norðurlönd til að sýna að stefnan væri ó- breytt í þessum efnum. En að það var ekki gert stafar af því, að þingi og þjóð finnst að sam- vinnan við Norðurlönd byggist á óskrifuðum lögum, en þau eiga jafnan dýpri rætur í þjóð- arvitundinni en hin skráðu lög. Annars er viðhorf okkar til Norðurlanda mjög réttilega túlkað í ummælum þess sænska blaðsins, er gleggst virðist hafa skilið afstöðu okk- ar. Þetta blað, Stockholms- tidningen, segir svo: „Síðustu tengslin, sem hingað til hafa bundið saman tvö af hinum norrænu löndum, hafa verið rofin. Eftir að það er bú- ið, standa Norðurlöndin fimm hlið við hlið, án nokkurra ann- arra tengsla en þeirra, sem við köllum norrænt bræðralag. Vissulega mun ísland ekki hugsa til þess að bindast brezka rlk- inu neinum nánari böndum. Vissulega mun það ekki hafa í hyggju að skilja við Norður- lönd. Gg vlssulega munu sam- bandsslitin ekki vekja neina beiskju né óvináttu í garð ís- lendinga hjá Dönum, sem alltaf taka svo mikið tillit til réttinda annarra þjóða.“ EIGA BÆNDURNIR AÐ VERA RÉTTMINNI EN AÐRAR STÉTTIR? í dálkum Alþýðublaðsins andar nú jafnan köldu í garð bændastéttarinnar. Þannig leggur Jónas Guðmundsson til í grein, sem hann birtir þar ný- lega, að ríkisvaldinu verði heimilað að takmarka verð á landbúnaðarvörum, þ. e. kaupi bændanna, en hins vegar verði ekki settar neinar skorður við kauphækkunum hjá launa- fólki við sjávarsíðuna. Það á m. ö. o. að láta bændur búa við annað og minna frelsi en aðrar stéttir þjóðfélagsins. Ríkið á að geta skammtað þeim kaup eftir vild sinni meðan aðrar stéttir fá að verðleggja vinnu sína. Þeir menn, er vilja lögleiða tvenns konar rétt í þjóðfélaginu, ættu ekki að kenna sig við jafnaðarmennsku. K JÓ SEND ADEKRIÐ. Tíminn hélt þvl fram nýlega, að lausn dýrtíðarmálsins hefði hingað til strandað á kosninga- dekri vissra þingmanna. Al- þýðublaðið hefir nú sannað þetta með því að túlka fyrir- hugaðar ráðstafanir til að tryggja verðgildi krónunnar, sem árás á launastéttir bæj- anna. Greinilegar verður það ekki sýnt, að hagsmunir heild- arinnar eru látnir víkja fyrir augnablikshagsmunum flokks- ins. Og „flokkur allra stétta“ getur ekki látið Alþýðuflokkinn einan um, að reyna að koma sér í mjúkinn hjá launastéttum bæjanna með þessum móti. Hann verður að senda bæjar- dáta sína af örkinni og láta Vísi skrifa á svipaða leið og (Framh. á 4. siöu.) A. KROSSaÖTTTM Vélbátur talinn af. — Frá Laugaskóla. — Hafís við Vestfirði. — Útsvörin í Reykjavík. — Umferðarslys. — Prestakosningar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.