Morgunblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JUNI 1977 17 Úlfur Ragnarsson, læknir: Hvítasunna Ef þið hafið ekki lesið frásögn- ina um eldtungurnar, sem komu yfir lærisveinana, skuluð þið gera það. Frásögnin er í öðrum kapi- tula Postulasögunnar í Nýja Testamentinu. Þar greinir frá stórmerkilegu fyrirbrigði, sem ekki er nægileg- ur gaumur gefinn, þvi að það skiptir okkur miklu máli. Það er háttur skynsams fólks að láta þau verk ganga fyrir, sem mikilvægust eru. Hvað telst mikil- vægast á timum mikillrar sundr- ungar, sem gæti eytt öllu lifi á Jörð? — Að bjarga lifinu, vitan- lega! Einmitt þessvegna er nauð- synlegt að snúa sér að aimanna- vörnum. Almannavarnir eru með ýmsu móti, en miða ávallt að þvi að hindra, að líf eyðist, sem mögu- legt er að bjarga. Slíkt er lofsvert. Hvítasunnufrásögnin bendir til stórvirkustu varna, sem um er að ræða, vörnum, sem byggjast á þvi, að lúta leiðsögn Lífsandans sjálfs. Það er vegna óhlýðni við þann anda, sem svo margt gengur al- varlega úrskeiðis á þessum hnetti okkar. Það er timabært, að við hættum að líta á fyrirbrigði trúarlífsins ýmist sem eitthvað hálfpartinn til að skopast að eða sem einkenni um geðbilun. Það má gera sér nokkra grein fyrir mikilvægustu þróuninni með því að fylgja eftir frásögnum Nýja Testamentisins. Samtímis þeim sögulegu at- burðum urðu innri breytingar með fyrstu lærisveinum Jesú. Fyrst hrifust þeir af persónu hans og boðskap, en ortu jafnframt drauma sína og þjóðarinnar um hinn fyrirheitna Messias inn í hann. En þess verður að gæta, að þeir draumar voru samkvæmt takmörkuðum skilningi þeirra sjálfra. Svo var hann krossfestur, og þessir draumar urðu þá að engu, eða svo sýndist þeim þá. Og þeir voru ráðvilltir og ringlaðir af ör- væntingu eins og allir, sem glata dýrustu draumum sinum, einnig nú á okkar dögum. En svo gerðist það, sem þeir höfðu ekki trúað að gæti gerst. Reyndar sagði hann þeim það fyr- ir, en þeim fannst það víst ekki raunhæft. Hann sigraði sjálfan dauðann. Þarna gerðist algerlega óvænt- ur atburður. Engin vanabundin viðbrögð dugðu lengur. Þetta var nýtt. Þeir voru sem ölvaðir af ósegjanlegri undrun og ham- ingju, en vissu ekki, hvernig þeir áttu að bregðast við. Það varð upprisa innra með þeim sjálfum, fyrirbrigði, sem enn í dag gerist með þeim mönnum, sem lifa þetta sem trúarlegan veruleika. Hvað svo? Það getið þið líka lesið um í sömu bók. Þar greinir frá því, að krossfesting og upprisa nægðu ekki til að gera þá að virk- um og sönnum boðberum Kær- leikans. Ritninguna höfðu þeir og upprisuna með. Samt hefðu þeir verið álíka ráðviiltir og kristnir menn, sem deila sín á milli um heim allan einnig f dálkum ís- lenskra blaða ef þeim hefði ekki verið gefið fyrirheit um að þeir mundu iklæðast krafti af hæðum. En þetta fyrirheit er raunveru- lega í fullu gildi einnig nú. Þess- vegna ættu þeir, sem eignast hafa trú á veruleika upprisunnar, að fara sér hægt að því er varðar deilur við aðra kristna menn og horfa fram til þess, sem á eftir að gerast i þeim sjálfum, svo að þeir geti íklæðst kraftinum að ofan og orðið þannig sannir boðberar þess Guðs, sem er Kærleikurinn. Allur hinn svonefndi kristni heimur er þjakaður af þeirri áráttu kristinna manna, sem ekki hafa íklæðst kraftinum frá hæð- um, að deila á meðbræður sina fremur en sameinast þeim i anda Krists. Það er eins og myrkra- höfðingjanum bjóðist á þessu stigi þróunar enn eitt tækifæri til að villa um fyrir þeim, sem vilja þó i djúpi hjartans ganga Kristi Framhald á bls. 34 Reisugilli! Áfangi sem allir húsbyggjendur fagna. Einkum þó ef allt gengur samkvæmt áætlun. Am.k. leggjum viö mikiö upp úr því. Bjóöum hús- byggjendum hagkvæmar rafteikningar þegar viö önnumst raflagnir. Eins og allir sem skipta viö Rafafl njóta þeir einnig 10% afsláttar af öllu því raflagnaefni sem unniö er úr. Gerum sérstök föst tilboö ef óskaö er. RAFAFL Barmahlíö 4 Reykjavík Símar 21700 2 8022 Leggjum nýtt - lögum gamalt Surform, hefilraspurinn frá Stanley, er án nokkurs vafa fjölhaefasta verkfærið, sem Stanley verk- smiðjurnar framleiða, — enda hefur hefilraspurinn orðió vinsælasta Stanley verkfærið á ótrúlega skömmum tíma. Hefilraspurinn er sannkaliað undratól, sem hægt er að nota betur en hefil, rasp og þjöl í flestum tilvikum. En Surform blaðiö hefur 450 beittar stáltennur, sem vinna hver um sig eins og lítiö sporjárn. Surform hefilraspurinn er því verkfærið, sem oftast þarf að grípa til, t.d. þegar þarf að raspa ryö, hefla af gluggabrún, ná af gamalli málningu, snikka til borðs- enda, liðka eldhússkúffuna eða jafna plastfyliingu á bílbrettinu. Segðu Surform við járnvörukaupmanninn og vittu hvað hann segir! STANLEY JL—^ ir L li / . r ^ * . - ■ ’i * •[ '-dÆ )r~ 'if T f ( jí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.