Morgunblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JUNl 1977 Umsjón: Pétur J. Eiríksson VIÐSKIPTI Comecon-ríkin vilja auka fram- leiðslu kjarnorku ÁRLEGUR fundur forsætisráð- herra aðildarrfkja Comecon, efnahagsbandalags kommúnista- ríkjanna, var haldinn f Varsjá í sfðustu viku. Aðild að bandaiag- inu eiga Varsjárbandalagsrfkin sjö, auk Kúbu og Mongólfu. Á fundinum var einkum fjallað um orkumál og segir f yfirlýsingu fundarins að samvinna hafi tekist um langtfma áætlun um þróun og byggingu kjarnorkuvera f aðildarlöndunum. Einn ieiðtog- anna á fundinum sagði f ræðu að ætlunin væri að auka svo fram- leiðslu kjarnorku að hún tvöfald- aðist á hverjum fimm árum. Ekki er að sjá, að fundarmenn hafi haft áhyggjur af þeirri áhættu sem fylgir rekstri kjarnorkuvera og er nú mjög til umræðu vfða á Vesturlöndum. Nikolai Faddeyev sem er hæst- setti embættismaður Comecon lýsti því yfir á fundi með vestræn- um blaðamönnum að lánadrottn- ar á Vesturlöndum þyrftu ekki að hafa áhyggjur af þvi að fá lán sin ekki endurgreidd. Þau yrðu endurgreidd stundvíslega eins og um hefði verið samið, en eins og kunnugt er, hafa ríki Austur- Evrópu tekið geysihá ián í lönd- um Vestur-Evrópu og Norður- Ameríku á undanförnum árum til að fjármagna stóraukinn inn- flutning frá þessum löndum. Norræni Fjárfest- ingabankinn tekur lán NORRÆNI fjárfestingabankinn hefur tekið sitt fyrsta lán með sölu skuldabréfa á eruodollarmarkaði. Nemur lánið 40 milljón dollurum og verður sú upphæð aðallega notuð til að greiða út lán, sem bankinn hefur þegar veitt. Stærsta lán bankans er 200 miiljónir norskra króna til íslenzka járnblendifélagsins h.f. Hlutur verzlunar í heildarlánum viðskiptabankanna hefur minnkað verulega sfðan 1971. Heildverzlun: Aukin fjármagnsþörf en minna um langtímalán JtJLÍUS Sæberg Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags fs- lenzkra stórkaupmanna, ritar grein um fjármagnsþörf og f jármagnsútvegun heildverzl- ana f sfðustu fréttabréf F.Í.S. í greininni kemur m.a. fram að fjármagnsþörf heildverzlana hefur farið stórvaxandi það sem af er þessum áratug með aukinni veltu og fjárfestingu fyrirtækja f þessari grein. Á sama tfma hafi hlutur dýrra skammtfma lána farið vaxandi og hafi á árinu 1974 verið orð- inn 60% allra fjármögnunar, en langtfmaskuldir numið tæp- lega 7% fjármögnunar. Eigið fé fyrirtækja hafi verið um þriðjungur fjármagnsþarfar undanfarin ár. Til samanburð- ar er bent á að f Noregi hafi hlutur langra lána f fjármögn- um heildarverzlunar numið rúmlcga 30 af hundraði árið 1973 og farið vaxandi. Eigið fé f fslenzkri heildverzlun sé á hinn bóginn meira en vfðast gerist. t sömu grein Júlfusar er einnig sagt nokkuð frá erindi Jónasar Haralz bankastjóra á fundi F.Í.S. fyrir nokkru, um hlut verzlunar f útlánum út- lánsstofnana. Kemur þar m.a. fram að hlutur verzlunar f heildarútlánum viðskiptabank- anna hefur minnkað á árabil- inu 1971—’76 úr 19% f 12,9%. Á sama tfmabili minnkaði hlut- ur iðnaðar f heildarútlánum lft- ils háttar en hlutdeild landbún- aðar og sjávarútvegs jókst. Hlutur verzlunar I útlánum fjárfestingarlánasjóða hefur haldist óbreyttur í tfmabilinu 1970—’76 og verið 1,6% af heildarútlánum þessara aðila. Segir f greininni að svo virðist sem meginþungi samdráttar í útlánum innlánsstofnana til verzlunar hafi lent á einka- verzluninni f landinu, þvf útlán til samvinnufélaga hafi minnk- að mun minna en lán til kaup- manna. Islenzkur húsgagnaiðnaður: Heldur markaðshlutdeild sinni þrátt fyrir harðnandi samkeppni ÞRÁTT fyrir að aðflutningstollar á húsgögnum hafi farið lækkandi ár frá ári og að innflutningur húsgagna hafi verið gefinn frjáls 1975, þá hefur markaðhlutdeíld fslenzka húsgagnaiðnaðarins haldist um og yfir 90% af heildar- markaðnum, frá þvf að tsland gerðist aðili að Efta árið 1969. Er markaðshlutdeild fslenzks hús- gagnaiðnaðar hæst allra inn- lendra samkeppnisgreina iðnaðar á tslandi. Kom þetta fram í sam- tali, sem Morgunbiaðið áttí við þrjá húsgagnaframleiðendur, þá Eyjólf Áxelsson, hjá Húsgagna- verzlun Áxels Eyjólfssonar, Ás- geir J. Guðmundsson hjá Á. Guðmundsson h.f. og Ilauk Arna- son hjállaga h.f. Talsverðar umræður hafa orðið að undanförnu um húsgagnaiðn- aðinn i kjölfar útkomu tveggja skýrslna, annars vegar frá Hag- Asgeir J. Guðmundsson, Haukur Árnason og Eyjólfur Áxelsson. vangi og hins vegar frá dönsku rekstrarráðgjafafyrirtæki, um stöðu hans á íslandi. Telja hús- gagnaframleiðendur að þessar umræður hafi'á margan hátt verið neikvæðar gagnvart húsgagnaiðn- aðinum og óverðskuldaðar þegar hafðar eru í huga þær miklu framfarir, sem orðið hafa í grein- inni á skömmum tíma. „Á síðustu 8 til 10 árum hafa orðið gifurlegar breytingar á hús- gagna- og innréttingasmíði á ís- landi," sögðu þeir Eyjólfur, Ásgeir og Haukur. „Við smiðuð- um áður, en nú framleiðum við. Áður var húsgagnagerð handiðn en nú er hún verksmiðjuiðnaður. Sérhæfing fyrirtækja hefur auk- ist verulega, stærri fyrirtækin hafa vaxið mikið en mörg hinna minni hætt framleiðslu þannig að framleiðslueiningarnar hafa orð- ið hagkvæmari. Mikið hefur verið fjárfest i stórvirkum og mann- aflasparandi vélum, áhersla á vöruþróun hefur aukist mjög og mörg stærri fyrirtækin hafa gert mikið átak i hagræðingu. Með þessu móti hefur íslenzkum húsgagnaiðnaði tekist að mæta vaxandi erlendri samkeppni án þess að missa markaðshlutdeild sína.“ MIKIL FRAMLEIÐNIAUKNING Það kemur fram í ofangreind um skýrslum að danskir húsgagnaframleiðendur standa þeim íslenzku töluvert framar hvað snertir framleiðni. Hér er auðvitað átt við meðaltal fyrir- tækja og kemur það fram að veru- leg framleiðniaukning hefur átt sér stað hjá mörgum islenzkum húsgagnaframleiðslufyrir- tækjum, en að þau séu einnig mörg, sem ekki hafa iðnvæðzt og starfi enn með úreltum hand- verksaðferðum. Ein meginástæðan fyrir því að mörgum íslenzkum fyrirtækjum hefur tekist að auka framleiðni sfna og hagkvæmni, er stuðningur fjárfestingalánasjóða iðnaðarins, Iðnþróunarsjóðs og Iðnlánasjóðs, að sögn þeirra þremenninga. „Skömmu eftir aðildina að Efta. ákvað Iðnþróunarsjóður að styrkja þau fyrírtæki í husgagna- iðnaði, sem höfðu hug á að vinna að hagræðingu og sá styrkur hef- ur haft verulega þýðingu. Jafn- framt hafa Iðnþróunarsjóður og Iðnlánasjóður staðið við bakið á okkur með lánveitingum til fjár- festinga f hagkvæmari vélum og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.