Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 48
Lyfjagjald og vitjanír lækna hækka um allt að 233 prósent HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ hefur með nýsettri reglugerð ákveðið miklar hækkanir á lyf jagjaldi og greiðslum til lækna vegna vitjana og aðgerða. Reglugerðin tckur gildi 20. apríl n.k. og samkvæmt henni er hækkunin á hilinu 40-233%. Það skal tekið fram að gjaldið hafði verið svo til óbreytt frá árinu 1975. Greiðsla sjúklinga fyrir lyf á lyfjaskrá nr. 1, þ.e. innlend lyf, hækkar úr 325 í 750 krónur eða um 130% og gjald sjúklinga fyrir lyf á lyfjaskrá nr. 2, þ.e. erlend sérlyf, hækkar úr 650 í 2000 krónur eða um 208%. Það, sem umfram er, greiðir síðan sjúkrasamlagið. Greiðsla vegna vitjunar til sér- Hrognkelsi á Lækjartorg BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur samþykkt fyrir sitt leyti að veita Kristni Ragnarssyni og fleirum leyfi til að selja hrogn- kelsi á Lækjartorgi. Samþykki borgarráðs er þó háð því skilyrði að heilbrigðiseftirlitið samþykki leyfisveitinguna. Mál þetta var tekið fyrir *á fundi borgarráðs hinn 10. apríl, og voru allir borgarráðsmenn sammála um að veita leyfið, þeir Albert Guðmundsson, Birgir Is- leifur Gunnarsson, Björgvin Guðmundsson, Kristján Bene- diktsson og Sigurjón Pétursson. fræðinga hækkar úr 600 í 2000 krónur eða um 233% og hver einstök rannsókn sérfræðings og hver einstök röntgengreining hækkar sömuleiðis úr 600 í 2000 krónur. Gjald heimilislækna hækkar úr 250 í 350 krónur eða um 40% en ef læknir vitjar sjúklings hækkar gjaldið úr 500 í 700 krónur eða um 40%. Það, sem umfram er af kostnaði, greiða sjúkrasamlög viðkomandi sjúklings. Nýfædd lömb í Sædýrasafninu minna okkur á sumarkomuna. iW1" /íOKomandi sjukiings. « 55 milljón kr. tap á benzín- og olíusölu á dag: Gasolía til fiskiskipa þarf að hækka um 53% Fiskveiðar stöðvast nema stjórnvöld grípi til aðgerða,” segir form. LÍÚ 99 OLÍUFÉLÖGIN telja nauðsyn- legt að gasolía til fiskiskipa- flotans og húsahitunar hækki nú þegar úr 68,50 í 105 krónur eða um 53%. Samkvæmt áætlunum oliufélaganna gengu eldri olíu- birgðir og benzins til þurrðar í fyrradag og er sala hafin á olíuvörum, sem keyptar voru á mun hærra verði. Oliufélögin áætla að oliuvörur séu nú seldar undir kostnaðarverði sem nemi 55 milljónum króna á dag og aukast skuldir olíufélaganna við innkaupajöfnunarreikning olfu- vara sem nemur þeirri upphæð daglega, en skuldin var 680 milljónir fyrir. Samkvæmt sér- stöku samkomulagi fjármagnar bankakerfið þessa skuld en olíu- félögin greiða fyrir háa vexti. Segja oliufélögin, að það sé aðeins að velta vandanum á undan sér þegar dregið sé af stjórnvöldum að ákveða rétt verð fyrir olíu- vörur, en það er að mati oliufélag- anna 105 krónur hver gasolfulítri án söluskatts og 258 krónur hver benzinlftri, en verð á benzfni er nú 205 krónur. „Við treystum því að stjórnvöld láti olíuhækkunina ekki koma fram fyrr en búið er að finna lausn Síðari hópur sovézku flugvélanna, sem hafði viðdvöl á Reykjavíkurflugvelli á sl. ári. Sex sovézkar herflug- vélar til Reykjavíkur þriðji hópurinn, sem hér hefur viðdvöl á leið til Havana SEX sovézkar herflugvélar af gerðinni Antonov AN 26 eru væntanlegar til Reykjavíkurflugvallar 26. apríl. Hér hafa vélarnar tveggja daga viðdvöl en halda síðan áfram til Gander, en ákvörðunarstaðurinn er Havana á Kúbu. Fimm manna áhöfn er f hvcrri vél. Á síðustu mánuðum ársins 1978 komu tveir slíkir hópar við á Reykjavíkurflugvelli, samtals 11 flugvélar, en sovétstjórnin hefur selt talsvert af slíkum flugvélum til Kúbu og Suð- ur-Ameríku. I fyrstunni óskuðu Sovétmenn eftir lendingarleyf- um fyrir þessar vélar á Reykja- víkurflugvelli, en breyttu svo til og óskuðu eftir því að fá að lenda á Keflavíkurflugvelli. Þeirri ósk höfnuðu íslenzk yfir- völd. Flugvélarnar eru tollafgreidd- ar sem herflugvélar, í þeim er ekki leitað og þær eru ekki innsiglaðar, á meðan þær hafa hér viðdvöl. Hins vegar hafði lögreglan auga með fyrri flug- vélunum meðan þær stóðu á Reykjavíkurflugvelli. Antanov AN 26 eru skrúfu- þotur og háþekjur, ekki ósvipað- ar Fokker Friendship vélum í útliti. Flugvélarnar sem komu í fyrra voru merktar sovézka flugfélaginu Aeroflot. gagnvart fiskiskipaflotanum. Þessar hækkanir eru svo ofboðs- legar að það getur ekkert skip farið á veiðar miðað við það gasolíuverð, sem boðað hefur verið,“ sagði Kristján Ragnarsson formaður LÍO í samtali við Mbl. í gær. Kristján sagði að það hefði verið reiknað út, að tekjuauki fiskiskipaflotans til að mæta hækkun úr 68,50 í 102 krónur yrði að vera 5650 milljónir króna á ári eða að meðaltali 8,5% af heildar- tekjum hans. Tekjuauki báta annarra en loðnubáta þarf að vera 1600 milljónir, tekjuauki loðnu- báta 900 milljónir, tekjuauki minni skuttogaranna 2300 milljón- ir og tekjuauki stærri skuttogar- anna 850 milljónir króna. Þessar upphæðir miðaðar við heildartekj- ur eru á bilinu 6—15,5% eftir einstökum gerðum skipa og er hlutfallið hæst hjá stærri skut- togurunum. Tölurnar eru miðaðar við það að tekjurnar komi til útgerðarinnar framhjá hlutaskipt- um sjómanna eins og 2,5% olíu- gjaldið gerði þannig að sjómenn fái ekki launahækkun vegna hækkaðs olíuverðs, að öðrum kosti breytast þær og verða mun hærri, svo skiptir milljörðum króna. „Það hefur komið fram,“ sagði Kristján," að við síðustu fiskverðs- hækkun var miðað við óbreytt olíuverð til 1. júní n.k. Það er forsenda áframhaldandi fiskveiða að stjórnvöld grípi til aðgerða vegna þessarar miklu hækkunar og að sjómenn afsali sér kauphækkunum vegna hennar. Á það treystum við, því að öðrum kosti leggst útgerð niður og menn geta sparað sér allt karp um friðunaraðgerðir. Þær yrðu þá sjálfkrafa.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.