Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1979 3 Kristján Ragnarsson um takmarkanir á þorskveiðum: „Afstaðan mótast um of af sérhagsmunum’ ’ PERSÓNULEGA sagðist Kristján Ragnarsson íormaður Land- ssambands íslenzkra útvegsmanna vera meðmæltur þeim ráð- stiifunum. sem sjávarútvegsráðuneytið hefði boðað að gripið yrði til á næstunni varðandi takmarkanir á þorskveiðum er Morgun- blaðið ræddi við hann í gærkvöldi. Kristján sagðist mjög harma að afstaða til þessara mála hefði um of mótast af sérhagsmunum einstakra aðila þessa máls. — Viðvaranir fiskifræðinga um of mikla sókn í þorskstofninn hafa verið tvíþættar, sagði Kristján. — I fyrsta lagi um að ekki sé veitt um of af millifiski og smáfiski til þess að nægilega stór hluti stofnsins fái að vaxa til að verða kynþroska. I öðru lagi að sóknin í kynþroska hluta stofnsins sé takmörkuð til þess að viðhalda stofninum. — Ákvörðun Sjávarútvegs- ráðuneytisins um takmörkun á sumarafla togaranna var gerð i þeim tilgangi að hindra of mikla sókn í ókynþroska hluta stofns- ins. Ákvörðun ráðuneytisin’s um að stöðva netaveiðar fyrir Suður- og Vesturlandi frá 1. maí er gerð í þeim tilgangi að hindra of mikla sókn í kynþroska hluta stofnsins. — Mér virðist fullt samræmi vera hér á og er því persónulega meðmæltur þessum ráðstöfun- um. Ljóst er að veiðin úr kyn- þroska hluta stofnsins fer veru- lega fram úr því sem fiski- fræðingar hafa mælt með en það eru um 150 þúsund lestir ef 6 ára fiskur er talinn með. Gildir þá einu þótt því sé bætt við veiðina úr kynþroska hlutastofnsins, sem veitt verður umfram þær 250 þúsund • lestir, sem fiski- fræðingar mæltu með, en allt bendir til þess að veiddar verði yfir 300 þúsund lestir á árinu. — Af umsögnum skipstjóra má ætla að hinn aukni vertíðar- afli stafi að mestu af góðu tíðarfari og notkun blýteins í neðri tein þorskaneta, en ekki af auknu þorskmagni í sjónum. Þessar fréttir renna því stoðum undir þær ákvarðanir, sem tekn- ar hafa verið. — Mjög ber að harma, að afstaða til þessa máls mótast um of af sérhagsmunum, en endur- reisn þorskstofnsins tekst aldrei nema með tímabundinni fórn. Meini menn eitthvað með sam- þykktum um takmörkun þorsk- veiða mega menn ekki móta afstöðu sína til þessa máls út frá efnalegum möguleikum hvers einstaklings. Það getur ekki ver- ið málefni þeirra einna, sem við sjávarútveg starfa, að færa þær tímabundnu fórnir, sem færa þarf tii þess að unnt verði að endurreisa þorskstofninn. Þröng rekstrarskilyrði sj ávarútvegsins valda meðal annars þeirri tog- streitu, sem fram hefur komið síðustu daga og vikur, sagði Kristján Ragnarsson að lokum. 11. maí 23. júlí 27. ágúst 30. maí 1. ágúst 3. september 20. júní 13. ágúst 15. september 11. júlí 22. ágúst 30. september Ferðamiðstöðin hf. AÐALSTRÆTI 9 — SÍMI 28133 auðvitað! Pantið ferðina sem fyrst, því á síðastliðnu ári seldist upp, í flestar ferðir til Benidorm Brottfarardagar 1979: Kaup höfn Húsgagnasýning Brottför 2. maí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.