Morgunblaðið - 19.04.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1979
3
Kristján Ragnarsson um takmarkanir á þorskveiðum:
„Afstaðan mótast um
of af sérhagsmunum’ ’
PERSÓNULEGA sagðist Kristján Ragnarsson íormaður Land-
ssambands íslenzkra útvegsmanna vera meðmæltur þeim ráð-
stiifunum. sem sjávarútvegsráðuneytið hefði boðað að gripið yrði
til á næstunni varðandi takmarkanir á þorskveiðum er Morgun-
blaðið ræddi við hann í gærkvöldi. Kristján sagðist mjög harma
að afstaða til þessara mála hefði um of mótast af sérhagsmunum
einstakra aðila þessa máls.
— Viðvaranir fiskifræðinga
um of mikla sókn í þorskstofninn
hafa verið tvíþættar, sagði
Kristján. — I fyrsta lagi um að
ekki sé veitt um of af millifiski
og smáfiski til þess að nægilega
stór hluti stofnsins fái að vaxa til
að verða kynþroska. I öðru lagi
að sóknin í kynþroska hluta
stofnsins sé takmörkuð til þess
að viðhalda stofninum.
— Ákvörðun Sjávarútvegs-
ráðuneytisins um takmörkun á
sumarafla togaranna var gerð i
þeim tilgangi að hindra of mikla
sókn í ókynþroska hluta stofns-
ins. Ákvörðun ráðuneytisin’s um
að stöðva netaveiðar fyrir Suður-
og Vesturlandi frá 1. maí er gerð
í þeim tilgangi að hindra of
mikla sókn í kynþroska hluta
stofnsins.
— Mér virðist fullt samræmi
vera hér á og er því persónulega
meðmæltur þessum ráðstöfun-
um. Ljóst er að veiðin úr kyn-
þroska hluta stofnsins fer veru-
lega fram úr því sem fiski-
fræðingar hafa mælt með en það
eru um 150 þúsund lestir ef 6 ára
fiskur er talinn með. Gildir þá
einu þótt því sé bætt við veiðina
úr kynþroska hlutastofnsins,
sem veitt verður umfram þær
250 þúsund • lestir, sem fiski-
fræðingar mæltu með, en allt
bendir til þess að veiddar verði
yfir 300 þúsund lestir á árinu.
— Af umsögnum skipstjóra
má ætla að hinn aukni vertíðar-
afli stafi að mestu af góðu
tíðarfari og notkun blýteins í
neðri tein þorskaneta, en ekki af
auknu þorskmagni í sjónum.
Þessar fréttir renna því stoðum
undir þær ákvarðanir, sem tekn-
ar hafa verið.
— Mjög ber að harma, að
afstaða til þessa máls mótast um
of af sérhagsmunum, en endur-
reisn þorskstofnsins tekst aldrei
nema með tímabundinni fórn.
Meini menn eitthvað með sam-
þykktum um takmörkun þorsk-
veiða mega menn ekki móta
afstöðu sína til þessa máls út frá
efnalegum möguleikum hvers
einstaklings. Það getur ekki ver-
ið málefni þeirra einna, sem við
sjávarútveg starfa, að færa þær
tímabundnu fórnir, sem færa
þarf tii þess að unnt verði að
endurreisa þorskstofninn. Þröng
rekstrarskilyrði sj ávarútvegsins
valda meðal annars þeirri tog-
streitu, sem fram hefur komið
síðustu daga og vikur, sagði
Kristján Ragnarsson að lokum.
11. maí 23. júlí 27. ágúst
30. maí 1. ágúst 3. september
20. júní 13. ágúst 15. september
11. júlí 22. ágúst 30. september
Ferðamiðstöðin hf.
AÐALSTRÆTI 9 — SÍMI 28133
auðvitað!
Pantið ferðina sem fyrst, því á
síðastliðnu ári seldist upp, í
flestar ferðir til Benidorm
Brottfarardagar 1979:
Kaup
höfn
Húsgagnasýning
Brottför 2. maí.