Morgunblaðið - 07.12.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.12.1983, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 281. tbl. 70. árg. MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Kasparov nær forystu Lundúnum, 6. desember. AP. GARRY KASPAROV sigraði Vikt- or Korchnoi eftir 43 leiki í áskor- endaeinvíginu í skák í gær, hefur þar með náð forystu, 4—3. Þá krækti Vassily Smyslov í vinning, er Zoltan Ribly gaf biðskák þeirra. Smyslov hinn sovéski hefur því tveggja vinninga forystu. Sjá nánar frásögn á miðopnu. EBE-fundur- inn leysti ekki fjár- hagsvandann \þ< nu, 6. desember. AP. ÞRIGGJA daga ráðstefnu leiðtoga EBE-landanna lauk í Aþenu í Grikk- landi í gær án þess að fjárhags- vandamál bandalagsins væru leyst. Kngin fréttatilkynning var gefin út í ráðstefnulok og allar yfirlýsingar leið- toganna bentu til þess að vonbrigði þeirra væru mikil. Ekki er þetta talið marka enda- lok Efnahagsbandalags Evrópu eft- ir 25 ára sögu, en á hinn bóginn eru fjárhagsörðugleikarnir geysilegir og efnahagslíf landanna flestra er bágborið. Atti að gera tilraun til að stilla saman strengi á ráðstefnunni, en orð Margaret Thatchers í fund- arlok segja margt um hvernig til tókst: „Það fengust engar niður- stöður. — Engar." Fjárhagsvandi bandalagsins mun liklega versna heldur en hitt og reiknað er með vaxandi pólitískri spennu landa í milli, sérstaklega þar sem Bretland er annars vegar og hin löndin mörg hver hins vegar, enda hafa Bretar lengi talið að framlög þeirra til EBE hafi verið allt of mikil miðað við hluti ann- arra. Var það nokkuð sem Margaret Thatcher ætlaði að kippa í liðinn. Dýrmætar bókmenntir VESTUR-þýska ríkisstjórnin keypti í gær á uppboði hjá Soth- bys í Lundúnum „Guðspjöll Hin- riks Ljóns", sem er fagurlega skreytt handrit frá 12. öld. Ritið var slegið á slíka upphæð, að listaverk hefur aldrei áður selst svo dýrt. Uppboðið stóð aðeins yfir í 2 mínútur. Kaupverðið: rúmlega 8,14 milljónir sterl- ingspunda, eða rúmlega 341 milljón íslenskra króna. Á með- fylgjandi símamynd má sjá starfsmann hjá Sothbys sýna gripinn. Sjá nánar frétt bls. 15. Fórnarlömb sprengingarinnar liggja eins og hráviði um allt. Símamynd AP. Strætisvagn sprakk í loft upp í Jerúsalem: PLO stóð fyrir hryðjuverki sem drap og særði 50 manns — Arafat og menn hans senn frá Trípólí Tel Ayív, Beirut, Trípólí. 6. desember. AP. ÖFLUG SPRENGJA tætti strætisvagn í sundur í miðborg Jerusalem í gær og létu 4 lífið, en 46 særðust, margir alvarlega. Sprengjan reif þakið af vagninum og mölvaði allar rúður. PLO lýsti verknaðinum á hendur sér, í tilkynningu frá samtökunum sagði að það hefði heppnast að sprengja í loft upp rútubifreið sem flutti „hermenn“, eins og komist var að orði. Sannara reyndist að það voru óbreyttir borgarar sem urðu fyrir barðinu. Aðkoman var hroðaleg. Eitt vitni sagði: „Ég sá þakið og hlið- arnar þeytast burt og er spreng- ingin var um garð gengin tók við hryllileg þögn. Það voru engin hróp og engin óp. Fólkið sat ger- samlega lamað í sætum sínum, meira og minna sundurtætt og brunnið. Ég sá litla stúlku horfa tómum augum í kring um sig. Andlit hennar var ein brunarúst og annan handlegginn vantaði. Sumir höfðu kastast úr sætum sínum og lágu langt í burtu. Það var blóð um allt.“ Skotið var á bandarísku friðar- gæsluliðana í gærkvöldi, áköf vélbyssuskothríð frá stöðvum drúsa skammt frá flugvellinum í Beirut. Engan sakaði, en Banda- ríkjamennirnir svöruðu með léttri fallbyssuskothríð. Þá skutu Sýr- lendingar á ómannaðar fjarstýrð- ar könnunarflugvélar Israela í gær og grönduðu tveimur, sögðust þeir jafnframt hafa skotið niður eina herþotu þeirra, en ísraelar báru það snarlega til baka, auk þess sem þeir sögðu aðeins eina mannlausa könnunarvél hafa hrapað eftir skothríð Sýrlendinga. Enn er allt með kyrrum kjörum í Trípólí, en loftið þrungið spennu eftir sem áður. Komið hefur í ljós að Yasser Arafat hefur beðið Grikki um aðstoð við að koma sér og hermönnum sínum í burt frá borginni. Hafa Grikkir ákveðið að verða við beiðninni og einn helsti talsmaður Arafats í Trípólí sagði í gær að nokkur grísk skip væru Hörðustu bardagar ársins í Afganistan Nýju Delhi, 6. desember. AP. VESTRÆNIR diplómatar sem ekki létu nafna getið greindu frá þvf í Nýju Delhi í gær, að fjölmennar hersveitir Sovétmanna og afganskra stjórnarhermanna hefðu ráðist að stöðvum frelsissveita í Shomali- héraði fyrir skömmu. Voru gerðar margar árásir með aðstoð skrið- dreka, stórskotaliðs, herþota og vopnaðra þyrla. Var mótspyrnan hörð og mannfall mikið. Sagt var að 2500 sovéskir her- menn hefðu tekið þátt í bardögun- um og enn fleiri af hermönnum Babraks Karmal sem er forseti leppstjórnarinnar í Kabúl. Nokkur hundruð skriðdreka voru notuð í átökunum, en tugir þeirra voru eyðilagðir þar sem mótspyrna frelsisliða var mikil. Felldu þeir marga Rússa og stjórnarhermenn, auk þess sem þeir handtóku 24 Sovétmenn. Nákvæmar tölur um mannfall lágu ekki fyrir, en ljóst að frelsisliðarnir höfðu einnig orð- ið fyrir miklu mannfalli. Árásirnar hófust í lok nóvember og þeim lauk að sögn diplómat- anna á föstudaginn. Voru bardag- arnir harðastir í svokölluðum Guldara-dal, en þetta eru einhver mestu átök sem orðið hafa í hinu hrjáða landi á þessu ári. væntanleg innan „fárra daga“. Munu þau flytja Arafat og menn hans til Túnis og Norður-Jemen. Munu skipin sigla undir fánum Líbanon og Sameinuðu Þjóðanna. Gullránið mikla: Öryggis- vörður var handtekinn Lundunum, 6. desember. AP. BRESKA lögreglan Scotland Yard greindi frá því í gær, að öryggis- vörður sem starfaði við gull- gevmsluhúsið við Heathrow-flug- völl. þar sem glæpamenn rændu 3 tonnum af gulli á dögunum, hefði verið handtekinn og grunaður um aðild að ráninu. Handtakan kom mjög á óvart, því talið var að lögreglan hefði lítið í höndunum til að moða úr og í raun ekkert annað en lýsingu á tveimur vörubifreiðum sem hugsanlegt væri að hefðu verið notaðar til að aka þýfinu af vettvangi er ránið var framið. Öryggisvörðurinn sem handtek- inn hefur verið, heitir Anthony John Black. Talið er öruggt að þjófarnir hafi verið sex talsins, en þeir hótuðu meðal annars að bera eld að einum varðanna ef hann opnaði ekki gullhirslurnar. Ekki hefur verið látið uppi hvaða aðili átti gullið sem rænt var, en talið að það sé einhver í austurlöndum fjær. Hefur sá þegar fengið helming tryggingar- upphæðarinnar greidda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.