Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 18
18______________MORGUNBLABIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987_ Hvað er fijálshyggja? eftir Ólaf Björnsson í kosningabaráttu þeirri, sem nú er að ljúka, hefir allmikið verið rætt um frjálshyggju, ef marka má þann takmarkaða hluta hennar, sem ég hefí getað fylgzt með, en ég hefi að mestu leyti dvalið erlend- is síðan baráttan hófst fyrir alvöru eftir að Alþingi lauk. Þar sem ég tel mig að verulegu leyti bera ábyrgð á því að orð þetta hefír rutt sér til rúms í umræðum um íslenzk stjómmál, tel ég mér beri siðferðis- leg skylda til að reyna að leiðrétta að einhveiju leyti þann grófa mis- skilning og mistúlkun á þeirri merkingu orðsins, sem ég myndi vilja leggja í það. Hér verður eingöngu rætt um orðið sjálft og merkingu þess, hins vegar er það utan þess viðfangsefn- is, sem þessum línum er markað, að ræða um fijálshyggjuna sem slíka, eða það, hvaða röksemdir megi færa fram með og móti þeirri stefnu, sem þetta heiti er valið. Það gegnir nokkurri furðu, að þótt það eigi sér stutta sögu, að almennt hefir verið farið að nota þetta orð í umræðum um stjómmál, þá kemur það sjaldan fyrir, að þeir sem notað hafa orðið geri sér það ómak að skilgreina þá merkingu, sem þeir leggja í það. Virðist gert ráð fyrir því sem sjálfsögðum hlut, að allir hljóti að vita hvað orðið merkir, eins og verið væri að tala um sólina eða tunglið. Á þetta ekki einvörð- ungu við um þá sem telja sig frjálshyggjunni andvíga, heldur einnig marga þeirra, er segjast að- hyllast hana. Nokkrar heiðarlegar undantekn- ingar eru þó frá þessu. Kemur mér þar t.d. í hug grein, er Stefán Karls- son, kennari og þjóðfélagsfræðing- ur, skrifaði hér í blaðið fyrir um það bil 3 árum, og ræddi þar m.a. um frjálshyggju. Minntist hann þar jafnvel á danska bókmenntafræð- inginn Georg Brandes og kenningar hans, sem mjög koma við sögu þessa orðs í íslenzkri tungu, svo sem nánar verður vikið að hér á eftir. Eftir því sem ég bezt veit, var það upphaf þess, að farið er al- mennt að nota orðið fijálshyggja í umræðum um stjórnmál, að þetta orð var notað í titil bókar er út kom eftir mig fyrir tæpum 9 árum und- ir heitinu „Frjálshyggja og alræðis- hyggja". Síðara orðið er þýðing á enska orðinu „totalitarianism“. Hvað í því felst ætti í sjálfu sér ekki að þurfa skýringar við. í al- ræði felst það, að stjómvöld ákveða það, hvaða skoðanir borgaramir skuli hafa og hvaða markmiðum skuli keppt að, bæði í efnahagsmál- um og menningarmálum. Borgur- unum em svo settar reglur um það, hvemig þeir skuli hegða sér í samræmi við þau markmið, er ríkis- valdið setur. Er svo gjaman beitt jöfnun höndum áróðri og beinum þvingunum til þess að tryggja það, að „línu“ stjómvalda sé fylgt. Andstæða slíks stjómarfars er þjóðskipulag, sem viðurkennir rétt einstaklingsins til þess að velja sér markmið sjálfur, jafnt í andlegum sem veraldlegum efnum, og vinna að þeim innan þeirra takmarka, sem á hveijum tíma verður að setja at- hafnafrelsi einstaklinga til þess að fyrirbyggja að þeir skaði aðra. Hvaða orð átti nú að nota sem heiti þessarar andstæðu alræðis- hyggjunnar? Ég vildi ekki nota þau orð sem ég þekkti sem þýðingar á hinu alþjóðlega orði liberalismi, svo sem frjálslyndi eða frjáls verzlun. Lágu til þess tvær ástæður. Merk- ing orðsins_ liberalismi er jafnan fijálsræði á sviði viðskipta og at- vinnureksturs og er hún þannig þrengri en það sem felst í orðinu alræðishyggja, en hún tekur til allra sviða mannlífsins. í öðru lagi væri það að mgla saman markmiði og leiðum, ef skilgreina ætti frelsi sem athafnafrelsi í atvinnurekstri. Þar sem atvinnurekendur eru minni- hlutahópur í þjóðfélaginu getur frelsi þeim til handa aldrei orðið svo mikilvægt markmið sem t.d. frelsi neytandans, sem allir borgarar þjóðfélagsins njóta góðs af. At- hafnafrelsi í atvinnurekstri verður því að rökstyðja á annan hátt en þann, að þar sé um einhver sjálf- sögð mannréttindi að ræða, svo sem með því að athafnafrelsið sé heppi- leg leið til þess að auka framleiðni og framleiðsluafköst. Mér datt þá f hug orðið fijáls- hyggja. Gerði ég mér þá ekki grein fyrir því, hvort ég hafði einhvers staðar rekizt á það á prenti eða hvort um eigin nýsmíði væri að ræða. Ég taldi því rétt að kanna það, hvort það væri þekkt í íslenzku máli og þá í hvaða merkingu. Ég sneri mér því til Orðabókar Há- skóla íslands og fékk ég þar góða fyrirgreiðslu af_gömlum skólabróð- ur mínum, dr. Asgeiri Bl. Magnús- syni, er þá hafði nýverið tekið við starfí forstöðumanns Orðabókar- innar af dr. Jakob Benediktssyni, er um það bil hafði látið af því starfi fyrir aldurs sakir. Það kom nú í ljós, að orð þetta hafði verið til í íslenzku máli síðan á síðustu áratugum 19. aldar og Ólafur Björnsson má vera lengur, þótt Orðabókin hefði þá ekki upplýsingar um það. Var orðið þýðing á danska orðinu „fritænkeri", en með því var átt við kenningar og viðhorf Georgs Brandesar til trúmála, sem svo miklu umróti ollu hér á landi á síðustu áratugum 19. aldarinnar. Allar þær upplýsingar, sem ég þekki um orðið og notkun þess fram til þess tíma, að mín bók kom út 1978, hníga að því, að orðið fijáls- hyggja hafi eingöngu verið notað í þessari merkingu, en vissulega eru þessar upplýsingar fátæklegar. Þannig er orðið alls ekki að finna í hinni miklu orðabók Sigfúsar Blöndals, er út kom árin 1920-24, en hins vegar er þar orðið fríhyggj- andi, sem þýtt er á dönsku með „fritænker". í fyrri útgáfu orðabók- ar Bókaútgáfu Menningarsjóðs frá 1963 er orðið skýrt sem „fríhyggja, trúleysi". Þeir sem aðhylltust kenn- ingar Brandesar voru gjaman taldir trúleysingjar og vafalaust hefir Brandes verið það. Fráleitt mun þó að túlka hann svo að hann amaðist við því að menn hefðu sína trú, heldur taldi hann að einstaklingur- inn ætti að mynda sér í þeim efnum sjálfstæðar skoðanir, óháð kénning- um hinnar ríkisreknu kirkju. Þessi viðhorf, sem á dönsku voru nefnd „fritænkeri" voru svo á íslenzku nefnd fríhyggja eða fijálshyggja. Mér fannst nú að hér væri um gott orð að ræða sem heiti á andstæðu alræðishyggjunnar og valdi það því á titil bókar minnar. Var það að vísu nú notað í allmiklu víðari merk- ingu en þeirri upphaflegu, sem aðeins tók til trúmálanna, en nær til allra sviða mannlífsins sam- kvæmt þeirri merkingu, sem ég nota orðið í. Ég þekki því miður mjög lítið til rita Brandesar, en í grein um Brandes í alfræðabók er þess getið, að meðal þeirra heim- spekinga er mest áhrif hafi haft á hann sé John Stuart Mill. Gerír það líklegt, að fijálshyggja Brandesar hafi náð til fleiri sviða mannlífsins en trúmálanna. Þáttur minn í því, að orðið fijáls- hyggja fer svo að verða meira og meira notað í stjómmálaumræðum, mun þó vera meira óbeinn en beinn. Bók minni var fyrst og fremst ætl- að að vera alþýðlegt fræðirit. íslenzkri stjórnmálabaráttu og stefnu íslenzkra stjómmálaflokka voru þar nánast engin skil gerð. Bókinni var í fyrstu alls ekki illa tekið í hinni svokölluðu „vinstri pressu". Má nefna menn eins og Harald Ólafsson alþm., Ólaf Ragnar Grímsson prófessor og Áma Berg- mann ritstjóra, sem allir skrifuðu um bókina. Gagnrýndu þeir að vísu ýmsar þær skoðanir, sem þar var haldið fram, en öll var sú gagnrýni málefnaleg og síður en svo óvin- samleg, svo að þar hafði ég ekki undan neinu að kvarta. En nokkm seinna kom út ritgerð- arsafn nokkurra ungra sjálfstæðis- manna með titlinum: Uppreisn frjálshyggjunnar? Langt er síðan ég las þá bók og minnir mig, að það væri upp og ofan, hvort orðið var þar notað í nákvæmlega sömu merkingu og gert var í minni bók. Og er auðvitað ekkert við því að segja, því að orðið hefir verið til í íslenzku máli í heila öld eða lengur, cg að sjálfsögðu á ég ekki einka- rétt á því að skilgreina merkingu þess. En eftir þetta verður notkun orðsins smám saman mjög almenn í umræðum um stjómmál. Eins og gengur um orð, sem mikið eru not- uð á þeim vettvangi, vill merking orðanna þá verða margræð í stað þess að vera skýr og ákveðin. Getur komið svo að merkingin verði svo óákveðin að orðin verði ónothæf með öllu í skynsamlegum stjóm- málaumræðum. Gott dæmi um það em orðin hægri og vinstri, sem enginn skilur lengur hvað merkja. I þessa átt hefir notkun orðsins frjálshyggja því miður þróazt. í munni þeirra andstæðinga fijáls- hyggjunnar, sem nota það, táknar það eitthvað vont, einhveija grýlu, án þess að nokkur grein sé gerð fyrir því, hvað verið er að tala um. Ékki bætir það úr skák þegar farið er að tala um nýfijálshyggju. Það orð skaut fyrst upp kollinum fyrir fáum ámm og virðist talsvert hafa borið á góma í kosningabaráttu þeirri, sem nú er að ljúka. Ég þekki enga þá hreyfingu, hvorki á erlendum né innlendum vettvangi, sem fram hefir komið á þessari öld, og skynsamlegt vit gæti verið að nefna því nafni. Hins vegar kæmi til greina að nota orðið um þá breytingu, sem verður á því hugtaki, sem fijálshyggjan er heiti á, með kenningum John Stuart Miller þar sem hann leggur áherzlu á frelsi neytandans en ekki athafna- frelsi atvinnurekandans svo sem hinir gömlu liberalistar eins og Adam Smith og Ricardo höfðu gert. En Mill dó árið 1873, svo að varla er hægt að tala um nýjabmm á kenningum hans. Fráleitt er og að mínum dómi að vitna í kenningar þeirra Hayeks eða Miltons Friedman og kalla þær „nýfijálshyggju". Framlag þessara merku höfunda er fólgið í því að gera fyrir því nánari grein en áður var gert hvemig framkvæma megi hugsjónir fijálshyggjunnar og vissulega er framlag þeirra í því efni mikilvægt. Átökin milli fijáls- hyggju og alræðishyggju má hins vegar rekja allt til Fom-Grikkja, eins og austurríski heimspekingnr- inn Karl Popper hefir sýnt fram á og em því efni gerð nokkur skil í minni bók. Hugtökin, sem þessi heiti hafa verið valin, hafa í raun ekki breytzt síðan, hvorki fyrir áhrif þeirra Hayeks, Friedmans eða ann- arra sem um þetta efni hafa fjallað. En orðið nýfijálshyggja hefir í vaxandi mæli að undanfömu verið notað sem heiti á einhverri Grýlu sem á það sameiginlegt með gömlu Grýlu, sem allir þekkja, að vera ekki til. Ég hefi aldrei rætt það við upp- eldisfræðinga hvort Grýla geti gegnt nokkm skynsamlegu uppeld- ishlutverki. Mér kæmi það á óvart ef afstaða þeirra til slíks væri já- kvæð. Foreldrar, sem hræða böm sín með Grýlu, verða alltaf að játa það síðar, að þau hafi farið með ósannindi, því að Grýla hafi aldrei verið til. En grýlupabbamir á vettvangi stjómmálanna, sem að undanfömu hafa verið önnum kafnir við það að smíða Grýlu til þess að hræða þann hóp kjósenda, sem að þeirra dómi hefir þroska smákrakka, em sjaldnast svo heiðarlegir að viður- kenna að þeir hafí farið með ósannindi. Þegar einni lotu stjóm- málaátakanna er lokið, er farið að velta því fyrir sér, hvort ekki sé hægt að búa til aðra ennþá snið- ugri Grýlu fyrir næstu lotu. Höfundur er fyrrverandi prófess- or við viðskiptafræðideild Háskóla ísiands. Hann var um 15 ára skeið alþingismaður fyrir Sjálfstæðis- flokkinn ÍReykjavik. Börnin okkar o g skólinn eftír Maríu E. Ingvadóttur Ég þakka Önnu S. Bjömsdóttur kennara fyrir grein hennar í Morg- unblaðinu 15. apríl sl., sem hún fann sig knúna til að skrifa vegna greinar minnar í sama blaði 11. apríl. Ég er fegin því að hún telur aðalatriðið, þegar hún tekur á móti bömunum að hausti, að þau vilji og langi til að koma í skólann eftir að hafa kynnst honum. Ég vil bara óska Önnu góðs árangurs og vona að þau böm sem hún kennir, svo og sem flest önnur mæti full áhuga og tilhlökkunar á hveijum morgni, tilbúin að takast á við verkefni dagsins. Nauðsynlegt að spreyta sig Mannfólkið er nú einu sinni þann- ig að því þykir skemmtilegt að spreyta sig og ná árangri, enda talið eðlileg leið til þroska. Verkefnin þurfa að vera við hæfi hvers og eins, hvort sem litla mann- eskjan er 5 eða 6 ára eða eldri. Bestu verkefnin hvetja og veita ánægju yfir því að hafa lært eitt- hvað nýtt, uppgötvað eitthvað áður óþekkt. Ef það tekst að halda opn- um hugum bama í gegnum gmnn- skólastigið, þannig að hvert og eitt þeirra fái verkefni við sitt hæfi, yrði námsleiði væntanlega úr sög- unni. María E. Ingvadóttir Á að raða í bekki eftir námsgetu Við emm misjafnlega fljót að átta okkur á hlutunum. Það hefur mikið verið um það rætt, hvort raða ætti bömum í bekkjardeildir eftir „Bestu verkefnin hvetja og veita ánægju yfir því að hafa lært eitthvað nýtt, uppgötv- að eitthvað áður óþekkt. Ef það tekst að halda opnum hugum barna í gegnum grunn- skólastigið, þannig að hvert og eitt þeirra fái verkefni við sitt hæfi, yrði námsleiði væntan- lega úr sögunni.“ námsgetu. Ef það er gert er hætt við að einhver þeirra yrðu undir, og gætu ekki með góðu móti risið undir því að vera í „verri bekkn- um“. Óðmm yrði þessi skipting sem hvatning til að standa sig betur. Þeim bömum sem fljótari em til, yrði þá ekki haldið til baka vegna hinna, þau fengju líka að spreyta sig, og það ekki síður mikilvægt að taka tillit til þessara bama. Þeg- ar börnum er ekki raða niður í bekki eftir námsgetu, er hætt við að sum þeirra verði miður sín yfír að geta ekki fylgst með hinum, og önnur leið yfír að fá ekkert að gera. Mér finnst það athyglisverð leið með yngstu bömin, að skipta hveij- um bekk í hópa, þar sem hver hópur er á svipuðu stigi í lestrarkunnátt- unni. Með skilningi og tillitssemi kennarans ættu ekki að hljótast af leiðindi milli hópanna, enda starfa þeir þá saman að þeim verkefnum sem það er mögulegt. Sex ára böm sem hefja sína skólagöngu læs og jafnvel farin að draga til stafs, eiga ekki að verða fyrir vonbrigðum þegar þau byija í „alvömskóla". Þau verða líka að fá eitthvað til að glíma við. Það hlýtur að vera sameiginleg hugsjón okkar, foreldra og kennara, að vilja vinna saman að því að böm- in okkar séu ánægð í skólunum, þau fái þar skemmtilég og skap- andi verkefni sem hvetji þau til að takast á við vandamálin, jafnt í skólanum sem síðar á Hfsleiðinni. Höfundur skipar 9. sætiá frnm- boðslista Sjálfstæðisflokks I Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.