Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987 Kristín Halldórsdóttir á kosningafundi Stöðvar 2: Kvennalistinn and- vígur NATO og dvöl varnarliðsins KVENNALISTINN er andvígur hernaðarbandalögum og hernað- arbrölti og þar af leiðandi andvígur aðild að NATO og dvöl varnarliðsins í landinu, sagði Kristín Halldórsdóttir, þingmað- ur Kvennalistans og frambjóð- andi á Reykjanesi, á kosninga- fundi Stöðvar 2 i Háskólabíói í gærkvöldi. Kristín Halldórsdóttir tók fram að hún liti ekki þannig á að vamar- málin væru á dagskrá núna. Hins vegar myndi hún sjálf styðja tillögu um að vamarliðið færi úr landi og fsland segði sig úr NATO. Hún vildi dregið yrði úr hemaðaruppbygg- ingu hér á landi ef við hann yrði rætt um stjómarmyndun. A hinn bóginn þyrfti hún að bera það und- ir fund hja Kvennalistanum, hvort það yrði sett sem skilyrði fyrir ríkis- stjómarsetu að landið segði sig úr NATO og vamarliðið yrði sent úr landi. Um stjómarsamstarf sagði Kristín Halldórsdóttir að Kvenna- listinn myndi setja bættan hag bama og kvenna á oddinn. Taldi hún þá flokka sem kenna sig við félagshyggju helst styðja þau mál sem Kvennalistinn ber fyrir bijósti. > Morgunblaðið/Þorkell Platters á Islandi Bandaríska söngsveitin The Platters kom fram i veitingahúsinu Broadway í gærkvöldi og hlaut góðar viðtökur. Söngsveitin heldur hér fimm tónleika, þijá í Rcykjavík og tvo á Akureyri. Platt- ers hafa sungið mörg þekkt lög inn á plötur, þar á meðal „Only you“, sem hljómað hefur oftar í islenzkum óskalagaþáttum en nokkurt annað lag. hins vegar minna á, að skoðana- kannanir sýndu stuðning við aðild að NATO og vamarsamninginn og frekar þyrfti að ræða málin og síðan framkvæma aðra skoðanakönnun og jafnvel þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún sagðist telja að Kvennalist- inn myndi setja skilyrði um að Leifsstöð sýnd almenningi í dag „FÓLK sem vinnur hérna er al- mennt í skýjunum," sagði Trausti Tómasson vaktstjóri í afgreiðslu Flugleiða í nýju flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Flugstöðin var sýnd almenningi yfir pásk- ana og verður einnig til sýnis í dag, sumardaginn fyrsta, milli kl. 11 og 14. „Það er mikill munur á allri að- stöðu fyrir starfsfólk hér miðað við hvemig hún var í gömlu flugstöð- inni. Við emm að vísu ekki búin að koma okkur endanlega fyrir enda stutt síðan flutt var inn en þetta lofar góðu. Stöðin hentar mjög vel fyrir alla, bæði farþega og starfsfólk. Nú er eins og við séum að hefja störf á ný.“ Hann sagði að einhveijar efa- semdir hefðu verið um að hægt yrði að afgreiða vélar á Norður- Atlantshafsleiðinni, sem koma við í Keflavík, á 45 mínútum en það gengi vonum framar þrátt fyrir að farþegar fari nú einungis um fremri dyr vélarinnar þegar henni er lagt við stöðina. Könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgnnblaðið; Framsóknarflokkurimi bætir við sig og er næst stærstur EKKI hafa orðið miklar breytingar á fylgi stjómmálaflokkanna á undanförnum dögum samkvæmt nýrri könnun sem Félagsvísinda- stofnun hefur gert fyrir Morgunblaðið. AJþýðubandalagið hefur bætt við sig 1,2% fylgi og Framsóknarflokkurinn 2% og er á ný orðinn næst stærsti stjómmálaflokkurinn. Fylgi Alþýðuflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Borgaraflokksins er heldur minna en það var í síðustu könnun Félagsvisindastofnunar. Könnun Félagsvísindastofnunar, sem gerð var dagana 18. til 21. aprfl, hafði það að meginmarkmiði „Sumarið ’87“ opnuð í dag SÝNINGIN „Sumarið ’87“ verður opnuð í dag, sumardaginn fyrsta, kl. 14.00 i Laugardalshöll. Yfirskrift sýningarinnar er „Ferða- lög, frítími og útivera". Hún tengist því aðallega ferðalögum innanlands og utan, ferðavörum og þjónustu. Sýningin verður opin alla virka daga frá kl. 16.00 til 22.00 og frá kl. 13.00 til 22.00 um helgar til 3. maí. að þessu sinni að athuga breytingar á afstöðu kjósenda til stjómmála- flokka í kosningabaráttunni. Leitað var til 1.010 manna sem tekið höfðu þátt f könnun stofnunarinnar um síðustu mánaðarmót og fengust svör frá 889 manns eða 88% þátt- takenda. Niðurstöður könnunarinnar eru þær að Alþýðuflokkurinn nýtur fylgis 14% kjósenda en hafði í síðustu könnun 15,5%, Framsókn- arflokkurinn 16,6% (14,6%), Sjálf- stæðisflokkurinn 28,1% (29,6%), Alþýðubandalagið 13% (11,9%) og Kvennalistinn 12,8% (12,1%) og Borgaraflokkurinn 11,3% (12,2%). Aðrir flokkar hafa um eða innan við 2% fylgi; Bandalag jafnaðar- manna 0,1% (0,2), Flokkur manns- ins 1,1% (1,6%), Samtök um jafnrétti og félagshyggju 0,9% (0,8%) og Þjóðarflokkurinn 2,1% (1,5%). Þegar litið er á sveiflur á milli stjómmálaflokka kemur f ljós að 76,7% þeirra sem sögðust ætla að kjósa Alþýðuflokkinn í mars-aprfl ætla að kjósa hann nú. 5,5% þeirra ætla hins vegar að kjósa Kvennalis- tann og 4,4% Framsóknarflokkinn. 84,2% þeirra sem sögðust ætla að kjósa Framsóknarflokkinn hyggjast kjósa hann nú, en 2,6% þeirra ætla að kjósa Alþýðubandalag eða Kvennalista. 88,3% þeirra sem sögðust ætla að kjósa Sjálfstæðis- flokkinn ætla að kjósa hann nú, en 2,8% ætla að kjósa Framsóknar- flokkinn. 75,6% þeirra sem ætluðu að kjósa Alþýðubandalagið styðja flokkinn áfram, en 4,7% ætla að kjósa Kvennalistann og 10,5% segj- ast nú ekki hafa gert upp hug sinn. 83,1 þeirra sem sögðust ætla að kjósa Kvennalistann styðja hann áfram, en 3,4% ætla að kjósa Al- þýðuflokkinn. 59,1% þeirra sem ætluðu að kjósa Borgaraflokkinn segjast ætla að kjósa hann nú, en 10,4% hyggjast kjósa Sjálfstæðis- flokkinn og 12,2% eru óráðnir. Af þátttakendum sem sögðust vera óákveðnir í síðustu könnun ætluðu 6% að kjósa Alþýðuflokkinn, 13,7% Framsóknarflokkinn, 14,5% Sjálfstæðisflokkinn, 5,1% Alþýðu- bandalagið, 9,4% Kvennalistann og 9,4% Borgaraflokkinn. 33,3% hinna óákveðnu höfðu enn ekki tekið af- stöðu. Sjá nánar um könnun Félags- visindastofnunar á bls. 32. Þórður Friðjónsson, forsijóri Þjóðhagsstofnunar: Verðlagsþróuniní 1 samræmi við spár ÞÓRÐUR Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar segir að allar tölur um verðlagsþróun fyrstu mánaða þessa árs, bendi til þess að verðlagsþróunin sé alveg í samræmi við það sem spáð var, bæði hvað varðar framfærsluvísitölu, lánskjaravísitölu og bygg- ingarvisitölu. Þórður sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fram- færsluvísitalan í byijun þessa mánaðar hefði verið 193,2 stig, en áætlað hefði verið að hún yrði 193,9 stig á þessum tíma. „Verð- lagsþróunin er því aðeins undir því sem spáð var,“ sagði Þórður. Sömuleiðis væri byggingarvísital- an mjög nálægt því sem spáð hefði verið að hún yrði í byijun þessa mánaðar. Hún mældist í aprflbyijun 306,96 stig, en því hafði verið spáð að hún yrði 306,9 stig. „Ef litið er á lánskjaravísi- töluna, þá er alveg sama uppi á teningnum þar - hún er aðeins undir áætlun," sagði Þórður. „Ef við horfum á þetta frá því sjónarmiði, hver mánaðarhækk- unin er miðað við heilt ár, þá er hækkunin 18% miðað við fram- færsluvísitöluna, en einungis 8% miðað við byggingarvísitöluna og á mælikvarða lánskjaravísitölu er hækkunin á milli 14 og 15%,“ sagði Þórður, „þannig að allar þessar tölur staðfesta það að fyrstu fjóra mánuði ársins hefur ekkert það komið fram eða gerst, sem var öðru vísi en menn gerðu ráð fyrir." Þórður sagði að menn byggðu umræður um það að verðbólgan hér á landi yrði á milli 20 og 30% á þessu ári, á ágiskunum um þró- un efnahagsmála á síðari hluta þessa árs. Það væri helst að ætla að þeir sem væru með slíkar vangaveltur gerðu ekki ráð fyrir að gripið yrði til neinna efna- hagsráðstafana til þess að mæta breyttum aðstæðum í efnahagslíf- „Það er auðvitað ekki rétt að gefa sér forsendur um það hvem- ig framhaldið verður síðari hluta ársins, án þess að velta því fyrir sér hvort og með hvaða hætti efnahagsstjóm komi til með að spila þar inn í,“ sagði Þórður. „Það sem er aðalatriðið er að á þessu stigi er ekkert hægt að fullyrða um það að verðbólga sé farin úr böndum, nema að stjóm efnahagsmála verði slæm að lokn- um kosningum. Það sem kemur til með að ráða úrslitum um efna- hagsþróunina, er hvemig málum verður stjómað hér að loknum kosningum," sagði Þórður Frið- i jónsson. Guðmundur Bjarnason á framboðsfundi á Akureyri: Er aðili að Samtökum hernáms- andstæðinga GUÐMUNDUR Bjamason, al- þingismaður, efsti maður á framboðslista Framsóknarflokks í Norðurlandskjördæmi eystra, lýsti því yfir á framboðsfundi á Akureyri i fyrrakvöld, að hann ætti aðild að „Samtökum her- námsandstæðinga". Guðmundur harmaði jafnframt að hann hefði ekki verið virkur í starfi samtak- anna undanfarin ár. Guðmundur Bjamason sagði efn- islega að Framsóknarflokkurinn væri fylgjandi aðild íslands að Atl- antshafsbandalaginu. Hinsvegar væri hann persónulega andvígur dvöl vamarliðsins hér á landi. Málmfríður Sigurðardóttir, sem skipar efsta sæti á framboðslista Samtaka um kvennalista, kvaðst eindregið andvíg hemaðarbanda- lögum og þar með aðild landsins að NATO og dvöl vamarliðsins hér á landi. Hún gagnrýndi Alþýðu- bandalagið harðlega fyrir það að hafa ekki gert brottför vamarliðsins að ófrávíkjanlegu skilyrði fyrir aðild að ríkisstjómum, sem það hefði staðið að hér á landi á gildistíma vamarsamningsins við Bandaríkin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.