Morgunblaðið - 15.03.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.03.1988, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B 62. tbl. 76. árg. ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Gorbatsjov ákaft fagnað í Belgrað Belgrað, Reuter og Daily Telegraph. MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétleið- togi hóf í gær fimm daga opin- bera heimsókn til Júgóslavíu og var ákaft fagnað við komuna þangað. Hrópaði lýðurinn: „Míkhail, Míkhaíl" og gekk hann þá inn í þyrpinguna miðja og tók í hendur fólks. Minnti hann á langvinna vináttu þjóða Sovétríkj- anna og Júgóslavíu, þrátt fyrir að á ýmsu hefði gengið. Eftirtekt- arvert þótti að Gorbatsjov vakti máls á þjóðernisróstunum í Arm- eníu og Azerbajdzhan og sagði að Sovétmenn gætu margt lært af Júgóslövum um það, hvernig margar þjóðir gætu lifað í sátt og samlyndi. „Við getum verið stolt af sameig- inlegri sögu okkar,“ sagði Gor- Atvinnuþörf heimsins: 47 millj ónir nýrra starfa á ári Genf, Reuter. SAMKVÆMT nýútkominni árs- skýrslu Vinnumálastofnunar Sam- einuðu þjóðanna þarf að skapa 47 milljónir nýrra starfa á ári næstu fjóra áratugi, ef takast á að út- rýma atvinnuleysi í heiminum og halda þvi í skefjum. í ársskýrslunni kom fram að útlit væri fyrir að atvinnuleysi hefði náð hámarki og væri nú í rénum. Sérstak- lega mun það eiga við um rómönsku Ameríku, sem er að rétta úr kútnum. Eigi að síður er atvinnuleysi enn mjög almennt og hefur einkum bitn- að á konum og ungu fólki. I skýrslunni kom hvergi fram heildartala atvinnulausra í heimin- um, en í hinum iðnvædda hluta heimsins er ekki færri en 31 milljón manna atvinnulaus. batsjov eftir langvinnt lófatak og fagnaðarlæti fólksins. „Nú getum við hugað að frekari stórræðum." Gorbatsjov gerði einnig stuttan stans á götu í miðborg Belgrað, þar sem hann sté úr glæsivagni sínum, spjallaði við vegfarendur og tók í hendur þeirra. Gorbatsjov gerði þó fleira en að blanda geði við alþýðuna, því hann átti viðræður við júgóslavneska ráðamenn, þá Lazar Mosjov forseta og Bosko Krunic leiðtoga kommúni- staflokksins. Þegar hann kom til viðræðnanna ræddi hann m.a. við blaðamenn um ástand mála við ræt- ur Kákasus. „Hvað hefur í raun og veru gerst í Armeníu og Azerbajdz- han? Enginn hefur efast um Sovét- stjómina, sósíalismann eða ríkja- sambandið,“ sagði leiðtoginn. „Stað- reyndin er sú að upp hafa komið vandamál menningarlegs og fram- kvæmdalegs eðlis, sem okkur hafa yfirsést. Um það snýst málið.“ I heimsókninni mun Gorbatsjov undirrita yfirlýsingu um fullt jafn- ræði ríkjanna og sjálfstæði. Tákn- ræn þýðing þessarar yfirlýsingar er Júgóslövum mikilvæg, en árið 1948 rak Stalín Júgóslava úr KOMIN- FORM, alþjóðasambandi kommún- ista. Gorbatsjov kyssir hér unga stúlku á vangann, en hún var meðal þeirra sem fögnuðu Sovétleiðtoganum í Belgrað. Afganistan: Pakistanar ákveða að slá ekki af kröfum sínum Sovétmenn segja ákvörðunina um brottflutninginn standa Genf og BelsTað, Reuter. hefur gert að skilyrði fyrir und- irritun samkomulags um brott- flutning sovéska innrásarhersins leun RÍKISSTJORN Pakistans til- kynnti í gær, að hún hygðist ekki slá af kröfum þeim, sem hún Shamir í Bandaríkjaheimsókn: Engrar ákvörðunar að vænta Útgöngubann sett á Gaza Washingfton, Reuter. YITSHAK Shamir, forsætisráðherra ísraels, sagði við komu sína til Bandaríkjanna í gær, að hann myndi ekki taka ákvörðun um friðaráætlun Banda- ríkjastjórnar meðan á heimsókn hans þar stæði. „Allir í ísrael vilja frið, en menn greinir á um hverju skuli til þess kosta og hvernig ísrael verði eftir slíka friðargjörð," sagði forsætisráðherrann við hóp gyðingaleiðtoga í New York-borg, áður en hann hélt til viðræðna við bandaríska ráða- menn í Washington. I gærkvöldi var sett útgöngu- bann á Gazasvæðinu og mun það gilda hverja nótt þar til annað verður ákveðið. „Það er vegna þessa ágreinings sem ég afréð að taka ekki neina ákvörðun um tillögur [bandaríska utanríkisráðherrans Georges] Shultz. „ísraelska þjóðin er klofin og ég tel ómögulegt að semja um frið, þegar aðeins hálf þjóðin er því sam- þykk. Við munum leggja eins hart að okkur og við frekast getum, til þess að ná samkomulagi við Banda- ríkjastjórn, en það verður ríkisstjómarinnar heima að ákveða hvað gert verður,“ sagði forsætisráðherrann. í gær tilkynnti ísraelsher að útgöngubann myndi Reutcr George Shultz, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, tók á móti Shamir í gær og var ekki annað að sjá en vel færi á með þeim. ríkja á Gaza-svæðinu yfir blánóttina, en þar búa um 650.000 manns. Sjá nánar á síðu 37, „Meirihluti er andvígur... “ úr Afganistan. I dag rennur út sá frestur sem Sovétmenn settu um brottflutninginn, en Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi sagði í síðasta mánuði, að ef samningar næðust fyrir 15. mars gæti brott- flutningur innrásarhers Sov- étríkjanna hafist hinn 15. maí. A hinn bóginn sagði háttsettur sov- éskur embættismaður að ekki væri um neinn eindaga að ræða; ákvörðunin um brottflutninginn hefði þegar verið tekin og hún stæði. Helst þeirra krafna, sem Pakistanar vilja ekki hvika frá, er skilyrðislaus myndun bráða- birgðastjórnar, sem taka myndi við völdum af leppstjórninni í Kabúl. Þegar ljóst var að Pakistanar myndu ekki láta undan þrýstingi Sovétmanna, var talið að friðarvið- ræðurnar væru komnar í óleysan- legan hnút. Þegar fréttamenn báru fregnirnar hins vegar undir sovéska embættismenn í föruneyti Gor- batsjovs í Belgrað, höfuðborg Júgó- slavíu, virtust þeir litlar áhyggjur hafa af þessari þróun mála. Vadím Logínov, aðstoðarutanrík- isráðherra Sovétríkjanna, sagði í gærkvöldi að ákvörðunin um brott- flutning væri pólitísk, hún hefði þegar verið tekin og hún stæði, enda engin ástæða til þess .að end- urskoða hana sem slíka. „Hvað ein- dagann varðar, hefur enginn nefnt endanlegan eindaga." Logínov sagði að vissulega væru enn á lofti spumingar um hvenær brottflutn- ingurinn gæti hafist og hversu hratt hann gæti átt sér stað. Slíkt væru þó framkvæmdaratriði, sem væru auðleysanleg þegar búið væri að ganga frá öðrum málum. Sovétmenn gerðu innrás í Afgan- istan á jólum 1979. Talið er að um 115.000 manna sovéskur her sé laus í landinu. íran-írak: Linnulaus hemaður við Persaflóa Nikósíu, Reuter. HERIR írans og írak héldu í gær uppi linnulausum flugskeyta- árásum á borgir hvors annars og að sögn yfirvalda i Teheran hafa bardagar við víglínuna blossað upp að nýju. írakar segja írani hafa rofið tveggja daga vopnahlé sem ríkti milli ríkjanna og tók til árása gegn borgum stríðsaðila. Kváðust írakar hafa svarað fyrir sig og skotið flug- skeytum ojg varpað sprengjum að borgum i Iran.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.