Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988
47
létta bjórbanninu, í nýjustu könnun
Hagvangs, sem birtist í Vikunni
þann 11. febrúar sl. þá eru 60,9%
þeirra sem voru spurðir fylgjandi
en 32,3% á móti og 6,8% voru
óákveðnir. Það er athyglisvert að
meirihlutinn er mestur meðal yngri
kynslóðanna en fer ört minnkandi
þegar ofar dregur og þegar komið
er yfir fímmtugt þá eru bjórunnend-
ur komnir í minnihluta meðal þjóð-
arinnar, samt voru íslendingar yfír
67 ára aldur ekki með í þessari
könnun, en þeir eru um 10% þjóðar-
innar. Sannleikurinn er sá, að það
er enginn afgerandi meirihluti til
meðal þjóðarinnar, sem vill aflétta
bjórbanninu, og okkur sem viljum
ekki aflétta bjórbanninu, fer fjölg-
andi með hveijum deginum sem
líður.
Það virðist flækjast fyrir bjór-
unnendum að skilja, að þrátt fyrir
minni áfengisneyzlu á íbúa hér á
landi, þá virðist drykkjusýki vera
almennari hér en t.d. í Skandinavíu,
ef marka má fjölda þeirra sem hafa
farið í áfengismeðferð. Því er til
að svara, að eftir að Víetnam-stríð-
inu lauk, kom mikill Qöldi banda-
rískra hermanna heim, og voru þá
orðnir forfallnir eiturlyíjaneytend-
ur.
Þá var gert átak í Bandaríkjun-
um til að hjálpa þessum mönnum
til lífsins aftur, og það kom í ljós
að sú meðferð sem notuð hafði ver-
ið við áfengissýki hentaði þessum
mönnum best, síðan hefur þróunin
orðið geysilega hröð á þessu sviði
hjá þeim, og algengt er orðið að
meðferðarstofnanir séu með sjúkl-
inga sem hafa notað öll möguleg
vímuefni og algengt er orðið að
tala um þetta sem „cemical decend-
ancy“ (mig vantar góða þýðingu),
frekar en diykkjusýki í Banda-
ríkjunum.
Vegna tengsla okkar við Free-
port-spítala og fleiri stofnanir í
Bandaríkjunum, þá hefur þessi
þekking borist ótrúlega fljótt hing-
að, sem betur fer, þannig að tölur
um fjölda þeirra sem hafa farið í
„áfengis“meðferð eru villandi.
Þórarinn Tyrfíngsson yfírlæknir
SÁÁ hefur Ijáð mér að t.d. fyrir
árið 1986 þá hefí aðalgreining
sjúklinga á Vogi verið eftirfarandi:
áfengi 65,2%, áfengi og róandi lyf
21,8%, hass 6,4%, amfetamín 2,3%,
róandi lyf 4%, kókaín 0,1%, sterk
verkjastillandi lyf, heróín, morfín
og metadon 0,2%.
011 þessi þróun hefur gert það
að verkum að fólk leitar sér miklu
fyrr hjálpar hér á landi en t.d. í
Skandinavíu og ég fullyrði, að þeir
eru ekki með tærnar þar sem við
erum með hælana, á þekkingu og
greiningu og meðferð á drykkjusýki
(cemical dependency), því til sönn-
unar er hægt að benda á, að nú
þegar eru tugir íslendinga, sem
hafa lífsviðurværi af, að hjálpa
Skandinövum á þessu sviði, baeði
hér heima og í Danmörku.
Góðir þingmenn, ég tel að við
Kvennalistinn
á Vesturlandi:
Laun og
störf verði
endurmetin
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Kvenna-
listanum:
„Almennur félagsfundur
Kvennalistans í Vesturlandsanga
haldinn 5. mars 1988 samþykkir
svohljóðandi ályktun:
Eftir síðustu kjarasamninga er
ljóst að enn er ekki talin ástæða
til að borga fólki sem vinnur að
undirstöðuatvinnugreinum mann-
sæmandi laun. Á sama tíma
skammta milliliðir og yfirmenn sér
upphæðir sem eru mörg hundruð
prósentum hærri.
Við teljum að tími sé koíninn til
að endurmeta öll laun og störf í
þjóðfélaginu og fá úr því skorið
hvort þessi Iaunamunur stenst hjá
fijálsbomum mönnum."
eigum stórkostleg verðmæti fólgin
í okkar lágu heildameyzlu áfengis,
ekki bara í peningaseðlum, heldur
líka á hinu félagslega, andlega og
líkamlega sviði, og það væri hörmu-
legt slys, ef við köstuðum því á
glæ, fyrir bjórþorsta.
Þið þurfíð nú að gera upp hug
ykkar, hvemig þið greiðið atkvæði
um bjórinn, og ég er ekki í vafa
um að hver einstakur ykkar, hvort
sem þið eruð með eða móti bjór,
greiðið atkvæði ykkar eftir bestu
samvisku. Þessvegna fínnst mér öll
þessi umræða og skoðanaskipti af
hinu góða, því að hún hlýtur að
gagna.
Að lokum langar mig að segja
ykkur sögu, sem ég heyrði fyrir
nokkra síðan og höfð var eftir
Nancy Reagan forsetafrú Banda-
ríkjanna.
Hún var að ræða við einhvem
um áfengisvandamálið eins og
gengur og viðmælandi hennar sagði
eitthvað á þessa leið, áfengisvanda-
málið er svo ógnvekjandi stórt og
það er búið að fylgja mannkyninu
frá örófi alda, er ekki tilgangslaust
að berjast á móti því.
Og Nancy svaraði þessum manni
með eftirfarandi sögu, sem ég ætla
að botna þessa grein mlna með.
Það var gamall maður, sem stóð
á sjávarströnd að morgni dags, það
hafði brimað mikið um nóttina og
brimið hafði sópað á land milljónum
af krossfiskum, sem lágu svo langt
sem augað eygði á ströndinni, og
gátu enga björg sér veitt og fyrir
þeim lá ekkert annað en að veslast
upp og deyja.
Gamli maðurinn beygði sig niður
og byijaði í rólegheitum að tína upp
krossfiskana einn af öðram og
henda þeim út í sjóinn aftur og
bjarga þannig lífi þeirra.
Kom þá til hans ungur maður
og sagði hlægjandi, „Gamli minn
sérðu ekki að þetta skiptir ekki
nokkra máli, flöldinn er alveg óend-
anlegur." Gamli maðurínn horfði á
unga manninn og sagði um Ieið og
hann henti krossfískinum, sem
hann hélt á út í sjóinn aftur, „Það
skiptir máli fyrir þennan."
Höfundur er flugsijóri.
i EGAR EITTHVAÐ N^TENDURTIL!
Hvort sem það er
árshátíð, þorrablót, brúðkaup
eða fermingarveisla er nauðsynlegt að
hafa líflegt í kringum sig. dúkarúllur
eru til í mörgum fallegum litum og ávallt í nýjustu
tískulitunum. dúkarúllur eru 40 m á lengd
og 1,25 m á breidd. Þeim má rúlla út á hvaða
borðlengd sem er og síðan skærin á.
Þægilegra getur það ekki verið.
Fannir hf. H. Sigurmundsson hf., helldverslun Hafsteinn Vilhiilmsson Hliðarvegi 28. ísafiröi, s. 94-3207 M. Snndal, heildverslun
Bildshöfda 1« a. 91-672611 Vestmannaoyium, s. 98-2344/2345 Lagarfelli 4, Egilsstöðum. s. 97-1715.
Otta- og smjörsalan st Rekstrarvörur Þ. Ðjórgúlfsson hf., helldverslun
Bitruhálsi 2. Reykjavik. s 91-82511 Róttarhálsi 2. Reykjavik, s 91-685554 Hafnarstræti 19, Akureyn, s. 96-24491
ENGIN SNURA !
Snúrulaust gufustraujárn frá
Morphy Richards. Allar stillingar
og enn fleiri möguleikar.
Já, snúrulaust — óneitanlega
þægilegra, ekki satt?
Fæst í næstu raftækjaverslun.
5
morphq richards