Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 68
upplýsingar ^ n,v um vörur og ^ þjónustu. fe*» FERSKLEIKI © - - CÉÉIÉMPr ÞEGAR MESTÁ REYNIR FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR. Viðræðurnar í Eyjum stóðu fram á nótt: Rætt um möguleika á frestun verkfalls Vestmannaeyjum, frá Huga Ólafssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. S AMNIN G AFUNDUR Snótar, Verkalýðsfélags Vestmannaevja og Vinnuveitendasambands Is- lands með ríkissáttasemjara stóð enn yfir á Hótel Þórshamri í Vestmannaeyjum um miðnætti í gser. Vonast hafði verið til að ákveðið yrði að verkfalli Snótar Alþjóðasam- tök dugnaðar- forka stofn- uð á íslandi? HUGSANLEGT er að stofn- fundur Alþjóðasamtaka dugn- aðarforka (Extra Effort) verði haldinn á íslandi árið 1990. Samtök þessi eru bandarisk að uppruna og hafa nú innan sinna vébanda félög i 32 ríkjum Bandaríkjanna og fímm þjóðlöndum að auki. Samtökin Extra Effort (X-E) beijast fyrir því að vinnusemi og yfirvinna verði talin dyggð og að hugtakið „vinnusjúkling- ur“ („workaholic") verði látið víkja fyrir hugtakinu „dugnað- arforkur" („extra-effort-per- son“). Til þess að gerast félagi í samtökum þessum þarf við- komandi að sanna að hann vinni að minnsta kosti 50 stundir á viku og hafi ánægju af því. Eins og áður sagði er fyrir- hugað að halda formlegan stofn- fund Alþjóðasamtaka dugnaðar- forka árið 1990 og hefur Hugh Riordan, formaður bandarísku samtakanna, tekið mjög líklega í að hann verði haldinn á Is- landi, sérstaklega eftir að hon- um voru kynntar aðstæður og }rfirvinnuvenjur hér á landi, að sögn Bjama Sigtryggssonar, aðstoðarhótelstjóra á Hótel Sögu. yrði frestað, en talsmenn vinnu- veitenda og verkalýðsfélaganna vOdu ekkert segja um líkurnar á samkomulagi þegar blaðamað- ur Morgunblaðsins tók þá tali á tólfta tímanum i gærkvöldi. Samninganefnd VSÍ, með Þór- arinn V. Þórarinsson fram- kvæmdastjóra í broddi fylkingar, kom ásamt Guðlaugi Þorvaldssyni ríkissáttasemjara til Vestmanna- eyja um hádegisbilið í gærdag til viðræðna við samninganefndir Verkalýðsfélags Vestmannaeyja og Snótar. Þessir aðilar hafa áður ræðst við einu sinni hjá ríkissátta- semjara í Reykjavík. Þó að rætt hafí verið um almenna kjarasamn- inga á þessum fundum mun, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins, einkum hafa verið rætt um þann möguleika að Snót frestaði verkfalli sínu fram yfír páska þeg- ar búist er við að fleiri félög hefji verkfall. Þá mun einnig hafa verið rætt um að Verkalýðsfélag Vest- mannaeyja fresti sínu verkfalli, en það hefur verið boðað næstkom- andi miðvikudag, 23. mars. Eins og áður sagði stóð samn- ingafundurinn enn yfír um mið- nætti í gær og bjuggust menn þá allt eins við því að hann gæti stað- ið eitthvað fram á nótt. Blaðamað- ur náði tali af Þórarni V. Þórarins- syni í kaffíhléi á tólfta tímanum en hann vildi þá ekkert tjá sig um gang viðræðnanna. Og þau Vilborg Þorsteinsdóttir formaður Snótar og Jón Kjartansson formaður Verkalýðsfélagsins vildu heldur ekkert segja um stöðu mála. Flug- vél beið þá eftir ríkissáttasemjara og fulltrúum vinnuveitenda en óvíst var hvort flogið yrði til Reykjavíkur, enda farið að hvessa. Til stóð að Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari héldi fund með samninganefnd VSÍ og Alþýðu- sambands Austurlands í dag. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Rikissáttasemjari og vinnuveitendur ganga út úr flugvélinni í Vest- mannaeyjum i gærdag. í landganginum eru Adolf Guðmundsson Seyðisfirði, Arnar Sigurmundsson Vestmannaeyjum og Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari og Elísabet Ólafsdóttir skrifstofustjóri embættis rikissáttasemjara er lengst til hægri. Bandaríkjamarkaður; Long John Silver’s krefst 5-10% lækkiumr þorskflaka LONG John Silver’s, einn helsti kaupandi íslensks fisks í Banda- ríkjunum, hefur krafist 5—10% verðlækkunar á þorskflökum í viðræðum við íslensku fisksölu- fyrirtækin sem nú standa yfir. íslensku fyrirtækin hafa selt Long John Silver’s flökin á 2,30 dollara pundið en fulltrúar LJS segja að verðið hafi lækkað frá því í haust er siðast var samið og að þeir geti nú fengið þessa vöru frá öðrum á 2,10. íslensku fisksölufyrirtækin, Coldwater og Icelandic Seafood, hafa ekki getað fallist á þessa lækkun. Friðrik Pálsson forstjóri Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna sagði í gær að viðræðumar við Long John Silver’s væru á við- kvæmu stigi og vildi ekki tjá sig frekar um þær. Benedikt Sveinsson aðstoðarframkvæmdastjóri sjávar- afurðadeildar SÍS vildi heldur ekki tjá sig um efnisatriði samning- anna. Hann sagði þó ljóst að mark- aðurinn væri ekki eins góður og þegar samið var síðast og fyrirtæk- in í vamarbaráttu fyrir því að halda óbreyttu verði. Hann sagði að Long John Silver’s væri að leita eftir ódýrari físki og væri með hug- myndir um að flökin hefðu lækkað í verði. Fulltrúar Icelandic Seafood vildu aftur á móti halda verðinu og teldu að framboðið gæfí ekki tilefni tii þessarar lækkunar. Vitað er að Long John Silver’s er að semja við aðra seljendur um að kaupa flök á 2,10 dollara pund- ið og er það 5—10% lækkun frá fyrra verði. Þeir kaupa þorskflök frá Kanada og Noregi, auk ís- lands, og er talið að þessu verði •hafí þeir náð í samningum við Kanadamenn. Einnig kaupa þeir annan físk frá ýmsum öðmm lönd- um. Eins og fram hefur komið lækk- aði verð á þorskblokk í Banda- ríkjunum fyrir skömmu og telja menn sem þekkja þennan markað vel að blokkariækkunin og viðræð- umar um flökin nú sýni að markað- urinn geti verið að veikjast. Kjarnf óðurgjald á sólskríkjufóður Framleiðendur fuglafóðurs þurfa nú að borga kjarnfóður- gjald af vöru sinni, en fuglafóður hefur þar til nú verið undan- þegið því, að sögn Tryggva Magnússonar, framkvæmdastjóra Kötlu hf. „Kjamfóðurgjald mun vera til þess að halda einhverri stjórnun á alifugla- og svínarækt, en fjármálaráðherra virðist líka vi(ja stjórna fjölda smáfuglanna,” sagði Tryggvi. Hann sagði að landbúnaðar- ráðuneytið hefði fellt niður þann hluta kj amfóðurgj aldsins sem heyrði undir það, en fjármálaráðu- neytið hefði ekki fengist til að gera slíkt hið sama. Katla hefði ekki hækkað verð á fuglafóðri í vetur vegna þess að menn hefðu ekki viljað trúa því að þessi undan- þága fengist ekki og stefnir í stórtap á framleiðslunni að öllu óbreyttu. Hann sagði að Kötlu- mönnum þætti það sérlega súrt í broti að kjamfóðurgjald skyldi leggjast á fýrsta árið sem innlend framleiðsla á fuglafóðri tæki við af innflutningi. Ekki náðist í full- trúa fjármálaráðuneytisins vegna þessa máls í gær. Tryggvi sagði að yfírleitt hefði sala á fuglafóðri farið að dala í febrúarmánuði, en í vetur hefði hún haldist mun Iengur. Skýringin á því væri sú að hinn reytingslegi vetur hefði haldið góðvilja fólksins gagnvart fuglunum lengur en oft áður og eins sú að eftir að Katla hóf framleiðslu á fuglafóðri hér innanlands í fyrra væri hægt að fullnægja sveiflukenndri eftir- Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Nú er hart f búi hjá smáfuglunum, eins og sést á þessari mynd sem Sigurgeir i Eyjum tók nú í vikunni, en það kann lika að verða hart í búi hjá fuglafóðursframleiðendum ef kjamfóður- gjald verður ekki fellt niður af sólskríkjufæðinu. spum á markaðnum. Erlingur Þorsteinsson, formað- ur Sólskríkjusjóðs, sagði að nú væru jarðbönn hjá smáfuglunum vegna snjóa og svellalaga og hvatti hann alla til að gefa þeim út á gaddinn. Erlingur hefur sent fuglafóður til bamaskóla úti á landi, einkum á Norðurlandi þar sem snjóþyngsli hafa verið mest, en auk þess sendir hann nokkuð af fóðri til vita og virkjana. Hagnaður Eimskips 272 millj. Rekstrarhagnaður Eim- skipafélags Islands á árinu 1987 nam 272 milljónum króna og hefur þá verið gjaldfærður allur hefðbundinn rekstrar- kostnaður félags, svo og reikn- aður tekju- og eignaskattur að upphæð alls um 206 milljónir króna. Rekstrartekjur Eimskips á síðasta ári námu 4.419 milljónum króna sem er um 21% hækkun milli ára eða 3% raunaukning ef miðað er við hækkun byggingar- vísitölu á sama tíma. Eigið fé fé- lagsins í árslok 1987 er 1.857 milljónir króna. Heildarflutningar Eimskips á árinu 1987 vom 902 þúsund tonn sem er 14% aukning milli ára. Sjá nánar í viðskiptablaði Bl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.