Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988
4
Hafnarfjörður:
Athugasemd vegna
dagvistargjalda
Vegna fréttar í Morgunblað-
inu þann 10. mars sl. varðandi
hækkun dagvistargjalda í
Hafnarfirði þann 1. mars sl.
hefur bæjarstjórinn í Hafnar-
firði, Guðmundur Árni Stefáns-
son, beðið Morgunblaðið að
birta eftirfarandi:
Eins og fram kemur hér að
neðan eru dagvistargjöld í Hafnar-
firði eftir u.þ.b. 10% hækkun 1.
mars enn með því lægsta sem
tíðkast á höfuðborgarsvæðinu.
Hafnarfjörður, 1. mars eftir
u.þ.b. 10% hækkun: Leikskóli 4
tímar kr. 3.300, leikskóli 5 tímar
©
INNLENT
kr. 4.000. Dagheimili forgangur
kr. 5.000, dagheimili aðrir kr.
7.700.
Reykjavík, án hækkunar 1.
mars: Leikskóli 4 tímar kr. 3.200,
leikskóli 5 tímar kr. 4.000. Dag-
heimili forgangur kr. 4.750, dag-
heimili aðrir kr. 7.250.
Garðabær, 1. mars eftir u.þ.b.
10% hækkun: Leikskóli 4 tímar
kr. 3.600, leikskóli 5 tímar 4.500.
Dagheimili forgangur kr. 4.800,
dagheimili aðrir kr. 8.050.
Seltjamames, 1. mars eftir
u.þ.b. 10% hækkun: Leikskóli 4
tímar kr. 4.510, leikskóli 5 tímar
kr. 5.885. Dagheimili forgangur
kr. 5.445, dagheimili aðrir kr.
9.240.
Frétt Morgunblaðsins mátti
skilja þannig að aðeins Hafnar-
fjörður og Kópavogur hefðu hækk-
að dagvistargjöld þann 1. mars sl.
Hið rétta er að bæði Seltjamarnes
og Garðabær hækkuðu gjöldin á
sama tíma.
Hafís í fjörunni við Raufarhöfn.
Ljósm. Helgi
Hafís utan við Raufarhöfn
Raufarhöfn.
ÞAÐ er ekki mikill ís sjáanlegur
út frá Raufarhöfn. Þó sáust stak-
ir jakar á reki austur í flóanum
á leið til lands siðastliðinn þriðju-
dag. Talsvert af stökum jökum
kom þá á fjörur austan og vestan
Raufarhafnar og einnig komust
nokkrir jakar að virnum, sem
strengdur var fyrir höfnina.
Jakamir lyft vímum næst landi
og komust margir smáir jakar þá
leið inn á höfnina. Einnig inn um
lítið sundið milli höfðans og hólm-
ans.
Skip var á siglingu á vesturleið
norð-austur af Hraunhafnartanga
kl. 10 á mánudagsmorgun og virt-
ist nánast á auðum sjó, þó stakir
jakar væru á reki. Isbrúnin var
ekki í augsýn frá landi við Hraun-
hafnartanga en hún sást þó þaðan
á sunnudag.
— Helgi
Grænlenskir bændur í heimsókn
Syðra-Lanprholti.
Syo
HOPUR ungra bænda frá Græn-
landi var á ferð hér í Hruna-
mannahreppi síðastliðinn sunnu-
dag. Þeir brugðu sér hingað í
vikuferð til að kynna sér land-
búnað og fleira honum tengt.
Þeir Þór Þorbergsson, búfræði-
kandidat frá Reykjavík, sem verið
hefur ráðunautur á Grænlandi síðan
1982 og Lasse Bjerge, skólastjóri
við bændaskólann í Upemaviasuk,
sem er um 10 km frá Julianeháb,
skipulögðu ferðina. Lasse var hér
við búnaðamám og störf og talar
íslensku reiprennandi. Flestir þeir
ungu bændur sem hér voru á ferð-
inni hafa verið við landbúnaðarstörf
hér á landi, en það er liður í búnað-
amáminu á Grænlandi að vinna eitt
ár hjá íslenskum bændum. Alls komu
17 manns frá Grænlandi að þessu
sinni en 6 bættust í hópinn sem nú
eru við landbúnaðarstörf hér á landi,
allir við sauðfjárbú. Hér í sveitinni
skoðuðu þeir kúabú hjá Sveini Flosa
Jóhannssyni í Efra-Langholti, sauð-
fjárbú og tamningastöð hjá Haraldi
Sveinssyni á Hrafnkelsstöðum og
gróðurhús hjá Guðjóni Birgissyni á
Melum. Sigmundur Jóhannesson,
bóndi í Syðra-Langholti, annaðist
móttöku þeirra hér í sveit en hann
hefur tvívegis sótt grænlenska
bændur heim og dvalið þar um tíma.
Þessi hópur ungra, grænlenskra
bænda heimsótti einnig m.a. Hvann-
eyri og tilraunabúið á Hesti í Borgar-
firði. Þá skoðuðu þeir ullarverk-
smiðjuna á Álafossi en í umræðu er
að reyna að koma á einhveijum ulla-
riðnaði þar í landi en eins og er er
öll ull flutt úr landi óunnin. Einnig
var litið á röraverksmiðjuna á Rey-
kjalundi en mikill áhugi mun vera
hjá grænlenskum bændum að koma
sér upp heimilisrafstöðvum.
í spjalli fréttaritara við þá Þór og
Lasse kom fram að grænlenskir
bændur hefðu lært mikið af íslensk-
um bændum. Nú væri sauðfjárstofn-
inn um 25 þúsund íjár og 85 fjöl-
skyldur lifðu af sauðfjárbúskap.
Meðalbúið væri um 350—400 íjár
og meðalvigtin 15—16 kíló, það færi
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Grænlensku bændurnir skoða fjósið í Efra-Langholti.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Ungur grænlenskur bóndasonur
hefur brugðið sér á dráttarvél í
Efra-Langholti.
þó eðlilega eftir beitarsvæðum. Vetr-
arbeit væri mikið stunduð. Hinir
ungu grænlensku bændur virtust
hafa mikinn áhuga á heyverkun,
bæði votheysgerð og súgþurrkun,
og fannst greinilega mikið til koma
að hægt væri að hita loftið með
hverahita fyrir súgþurrkkun heysins.
— Sig. Sigm.
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
Konur og tækni
Fimmtudaginn 17. mars nk. ræðir Guðrún
Zoéga verkfræðingur, aðstoðarmaður iðn-
aðarráðherra, um „konur og tækni" i Torf-
unni uppi, kl. 12.00. Fjölmennið.
Hvöt og Landssamband sjálfstæðiskvenna.
Hella: Ráðstefna um
raforkumál á Suðurlandi
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi boðar til almenns
fundar um raforkumál á Suðurlandi í Hellubíóí laugardaginn 19.
mars kl. 13.30. Fjallaö verður um raforkumál, uppbyggingu á þeim
vettvangi og möguleikum til almennrar nýtingar og framleiðslu.
Framsögumenn verða: Örlygur Jónasson, RARIK, Jón Örn Arnar-
sson, veitustjóri á Selfossi, Eirikur Bogason, veitustjóri '/estmanna-
eyjum, Gisli Júlíusson, deildarverkfræðingur Landssvirkjunnar, Frið-
rik Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og Ólafur
Davíðsson framkvæmdastjóri Féiags íslenskra iðnrekenda
Reykjaneskjördæmi
-aðalfundur
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi verður í
Glaumbergi, Keflavik, laugardaginn 19.
mars kl. 10.00, stundvislega.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ólafur G. Einarsson, formaður þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins, ræðir um
stjórnmálaviðhorfið.
Stjórnin.
Menningarmálanefnd
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins
á Suðurlandi.
Þeir, sem hafa
áhuga á að taka þátt
í starfi menningar-
málanefndar Sjálf-
stæðisflokksins eru
beðnir að hafa sam-
band við skrifstofu
flokksins í sima
82900 helst fyrir 21.
mars nk. Formaður
nefndarinnar er
Þuríður Pálsdóttir,
söngkona, og með
nefndinni starfar
Ragnhildur Helgadóttir, alþingismaður.
Stjórn menningarmálanefndar.
Keflavík
Sjálfstæðiskvennafélagiö Sókn heldur fund þriöjudaginn 22. mars i
Sjálfstæðishúsinu í Keflavik kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Bæjarmál: Bæjarstjórnarfulltrúarnir Ingólfur Falsson og Garðar
Oddgeirsson fjalla um bæjarmálin.
2. Kaffiveitingar.
3. Bingó.
Mætið vel og stundvislega.
Stjórnin.
Málefni aldraðra
í Rangárþingi
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins og Sjáflstæðisfélag Rangárvalla-
sýslu boða til fundar um málefni aldraðra í Rangárþingi föstudags-
kvöldið 18. mars kl. 21.00 i Hvoli. Fundurinn er öllum opinn en
rætt veröur um stöðu og stefnu i málefnum aldraðra i sýslunni.
Framsögumenn: Jón Þorgilsson, Markús Runólfsson, Ólöf Kristófers-
dóttir og Inga Jóna Þóröardóttir.
Að loknum framsöguerindum verða almennar umræður.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflolksins
á Suðurlandi.
Akranes - bæjarmálefni
Fundur um bæjar-
málefni verður hald-
inn í Sjálfstæðis-
húsinu við Heiðar-
gerði sunnudaginn
20. mars kl. 10.30.
Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins
mæta á fundinn.
Kaffiveitingar.
Sjálfstæðisfélögin Akranesi
~L