Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988 KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN Maí dug< - skoraðibein „VIÐ áttum alian leikinn og heföum átt að vinna þetta með tveggja til þriggja marka mun. Það má segja að við höfum gefið þetta frá okkur í fyrri leiknum í Portúgal, en þar átt- um við ekki að tapa með tveggja marka mun,“ sagði Arnór Guðjohnsen sem skoraði eina mark Anderlecht gegn Benfica í seinni leik liðanna í Evrópukeppni meistaraliða í Brussel í gœrkvöldi. Benfica fer því áfram í undanúrslit keppn- innar á samanlagðri markatölu 2:1. Amór var besti leikmaður vall- arins í Brussel í gær og fékk nokkur góð marktækifæri. Á 7. minútu átti hann skot af stuttu færi sem fór rétt framhjá og á 36. mínútu átti hann hörku skalla, eftir fyrirgjöf frá Lue Nilis, sem smaug vinsti markstöng Benfíca utanverða. Frá Bjama Markússyni í Brussel Amór skoraði síðan eina mark Anderlect á 64. mínútu. „Ég tók aukaspymu rétt utan vftateigs og vippaði í markhomið hægra megin. Markvörðurinn áttaði sig ekki á þessu, en kom aðeins við knöttinn en náði ekki að verja," sagði Amór. Benfíca lék með níu menn í vöm og aðeins Mats Magusson frammi. Leikmenn Benfíca freisuðu þess að halda fengnum hlut og það tókst. Völlurinn var mjög blautur og þungur og mikið um háspymur. Anderlecht sótti látlaust allan tímann og var óheppið að skora ekki fleiri mörk. Amór hafði lýst því yfír í blaðavið- tali fyrir leikinn að ef þeim tækist að knýja fram framlengingu myndu þeir vinna því leikmenn Anderlecht væm í betra úthaidi. „Þátttöku okkar í Evrópukeppninni er lokið og nú stefnum við á sigur í belgísku bikarkeppninni þar sem við emm komnir í 8-liða úrslit." Amórs i skammt úr aukaspyrnu gegn Benfica 9 W Reuter Arnór Quðjohnsen átti mjög góðan leik með Anderlecht. Hér sést hann sækja að marki Benfíca í gærkvöldi. Fátt stöðvar Real Madrid Bayem Munchen átti engin vopn gegn snjöllum leikmönnum liðsins LEIKMENN Bayern Miinchen áttu engin vopn gegn fljótum og ákveðnum leikmönnum Real Madrid á Santiago Bernabeu. Þar sem spánska meistaraliðið tryggði sér rétttil að leika í undanúrslitum Evrópukeppni meistaraliða í gœrkvöldi, með því að leggja Bayern að velli, 2:0, eftir að hafa tapað fyrri leiknum, 2:3. Leikmenn Real Madrid, sem höfðu áður slegið Napólí og Porto út úr keppninni, mættu ákveðnir til leiks og áttu leikmenn M KEPPNI MEISTARALIÐA m Seinni leikir: PSV Eindhoven (Hollandi) - Bordeaux (Frakklandi).......(1:1) 0:0 1:1 Ahorfendun 27.000. Glasgow Rangers (Skoti.) - Steua Bukarest (Rúmeníu) .(0:2) 2:1 2:2 Ricarhd Gough (10.), Ally McCoist (80.v.) - Marius Lacatua (3.). Ahorfendui-. 44.000. Real Madríd (Spáni) - Bayem Munchen (V-Þýskal.)........(2:3) 2:0 4:3 Milan Jankovic 27.), Michel Gonzalet (41.). Áhorfendur: 90.000. Anderlecht (Belgíu) - Benfica (Potrúgal)...............(0:2) 1:0 1:2 Amór Guójhónsen (64.). Áhorfendur: 44.000. EVROPUKEPPNI BIKARHAFA Seinni leikir: Marseille (Frakklandi) - Rovaniemen (Finnlandi).... Genghini (18.), Allofs (22.) og Papin (77.). Áhorfendun 30.000. Ajax (Hollandi) - Young Boys (Sviss)............... Perer Larsson (39.). Áhorfendur: 80.000. Dynamo Minsk (Sovétrfkjunum) - Mechelen (Belgíu). Kristcn (69.) - Eli Ohana (29.). Áhorfendur: 60.000. Sporting (Portúgal) - Atalanta (Ítalíu)............ Peter Houtman (66.) * Cantarutti (82.). Áhorfcndur: 65.000. ..(1:0) 3:0 4:0 ..(2:1) 1:0 3:1 ..(0:1) 1:1 1:2 ..(0:2) 1:1 3:1 Bayem ekkert svar Frá við leik þeirra. Júgó- lóhanni Inga slavinn Milan Gunnarssyni Jankovic skoraði fyrra mark Real Madrid á 27. mín., með skoti beint úr aukaspymu. Knötturinn fór í vamarvegg Bayem og þaðan fram hjá Jaen-Marie Pfaff, markverði. Eftir markið settu leikmenn Real f „fluggír" og á 40. mín. bættu þeir öðru markinu við eftir skemmtilega sóknarlotu. Michel Gonzalez komst á auðan sjó og skoraði með við- stöðulausu skoti - fjórða mark sitt í keppninni. í síðari hálfleik skipti Bayem báð- um varámönnum sínum inná til að freista þess að vinna upp fyrirsjáan- legt tap en allt kom fýrir ekki. Real Madrid lék sterkan vamarleik í seinni hálfleik og sigur þeirra var í öruggri höfn. Mótlætið fór í skap- ið á leikmönnum Bayem og fengu nokkrir þeirra að sjá gula spjaldið. Þar á meðal var markvörðurinn Jean Marie Pfaff sem fékk gula spjaldið fyrir kjaftbrúk. Flestir veðja nú á að Real Madrid verði Evrópumeistari í sjöunda sinn í sögu félagsins. Steaua Bukarest, Benfíca og Eindhoven leika einnig í undanúrslitunum. KNATTSPYRNA / UEFA-KEPPNIN faémR FOLK ■ LEIKMENN Real Madrid fengu ekki mikinn svefn fyrir leik- inn í gær. Þeir dvöldu á hóteli í úthverfí Madríd, en þurftu að yfir-~ gefa herbergi sín á miðnætti vegna sprengjuhótunnar. Hotelið var tæmt, en engin sprengja fannst. Gestir fengu þá að fara aftur til herbergja sinna, en leikmenn Real Madrid voru búnir að fá nóg og fóru heim. ■ PSV Eindhoven tryggði sér sæti í undanúrslitum Evrópukeppni meistaraliða í knattspymu í gær. Liðið gerði markalaust jafntefli gegn Bordeaux frá Frakklandi. Þetta er í fyrsta sinn siðan 1976 sem Eindhoven kemst í undanúr- slit, en þá tapaði liðið fyrir St. Eti- enne frá Frakklandi. Leikurinn i gær þótti frekar slakur og eina góða færið í leiknum átti belgíski landsliðsmaður Eric Gerets, en hann átti þrumuskot í þverslá á 24. mínútu. ■ MARIUS Lacatus skoraði fyr- ir Steaua Bukarest eftir aðeins þijá mínútur og má segja að hann hafí þá gert út um vonir Ragners á áframhaldandi þátttöku í Evrópu- keppninni að þessu sinni. Steaua vann fyrri leikinn 2:0. Þrátt fyrir slaka byrjun Rangers náði liðið að rífa sig upp og skora tvö mörk fyr- ir leikhlé. Fyrra markið gerði Ric- hard Gough á 16. minútu með hörku skalla upp í þaknetið eftir homspymu frá Davie Cooper. Síðan skoraði Ally McCoist úr vita- spymu sem dæmd var á Miodrag Belodedici fyrir að bijóta á Iain Durrant innan vitateigs. ■ GRAEME Souness varð fyrir miklum vonbrigðum er lið hans Rangers var slegið út úr Evrópu- ker'nni meistaraliða í knattspymu, þrátt fyrir sigur yfír Steua Bukar- est 2:1. Hann hefur eytt milljónum í að kaupa sterka leikmenn og stefnan var sett á Evrópumeistara- titil, en sá draumur er orðinn að engu. Ofan á allt þetta fékk Sou- ness að líta gula spjaldið á 6. mínútu fyrir gróft brot. Ikvöld Fram og Víkingur leika í bik- arkeppni HSÍ kl. 20.00 í Laugardalshöll. Armann og Selfoss leika strax á eftir í 2. deild. Einn leikur er í úr- valsdeildinni í körfuknattleik: Haukar og ÍR mætast í Hafri- arfirði kl. 20.00. Bremen og Leverkusen áfram GEYSIt.EGUR fögnuöur braust út í Bremen í gœrkvöldi, eftir aö leikmenn Werder Bremen höfðu slegið Veróna út. Leikn- um lauk með jafntef II, 1:1, en Bremen sigraði á Ítalíu, 1:0. Fyrirliða Veróna, Antonio di Gennaro, var vísað af leikvelli þegar 10 mín. voru tii leiksloka, fyrir gróft brot á Norðmanninum Rune Bratseth. 40 þús. áhorfendur sáu leikinn, sem fór fram við erfiðar að- stæður - völlurinn var blautur og þungur. Leikmenn Bremen, sem léku mjög vel, áttu að gera út um leikinn í fyrri hálf- leiknum. Þeim tókst aðeins að skora eitt mark. Gunnar Sauer fékk knöttinn 28 m frá marki Veróna og sendi hann með þrumuskoti í mark Veróna, á 32. mín. Veróna náði að jafna metin á 54. Frá Jóhannilnga Gunnarssoni V-Þýskaiandi mín., 1:1 - Volpecina skoraði með skalla. Við þetta tvíefldust leikmenn Veróna og sóttu grimmt að marki Bremen, sem átti í vök að veijast. Harka færðist í leikinn og voru fimm leikmenn bókaðir og einn rek- inn af leikvelli. Leikmenn Bremen vörðust vel og Veróna kom ekki höggi á þá. Aðeins 40 þús. áhorfendur voru á Nou Camp-leikvellinum í Bracelona, sem tekur 120 þús. áhorfendur. Bayer Leverkusen vann þar óvænt- an sigur, 1:0, og sló Barcelona út. Brasilíumaðurinn Tita skoraði skor- aði sigurmarkið. Bemd Schuster tók vítaspymu fyrir Barcelona rétt fyrir leikslok. Hann skaut yfír mark Levrekusen. mm EVROPUKEPPNI FELAGSLIÐA Seinni leikir: Vitkovice (Tékkóslóvakiu) - Espanol (Spáni)..........(0:2) 0:0 Áhorfendur: 20.000. Brttgge (Belgíu) - Panathinaikos (Grikklandi)........(2:2) 1:0 Kenneth Brylle (43.). Áhorfendur: 16.000. Barcelona (Spáni) - Bayer Leverkusen (V-Þýskalandi) (0:0) 0:1 Milton Tia Queiroz (69.). Áhorfendur: 40.000. Werder Bremen (V-Þýskalandi) - Verona (Ítalíu).......(1:0) 1:1 Sauer (82.). - Volpecina (68.). Áhorfendur: 40.000. 0:2 3:2 0:1 2:1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.