Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988
fclk í
fréttum
Poppstjömum á borð við Michael
Jackson vinnst sjaldan timi til
hvíldar. Hann sá sér þó fært að
gera hlé á hljómleikaferð um
Bandaríkin, fara í sitt fínasta
púss og fylgja Lisu Minelli á
fmmsýhingu á „Óperudraugn-
um“ í New York.
Michael Douglas og frú. Frægðarsói Douglas tók loks
að skina í vetur eftir mörg ár í kvikmyndabransanum.
Hann sló í gegn í myndunum „Fatal Attraction“ og
„Wall Street“ og segir ekkert hjálpa leikara meira en
að fá hlutverk raunvemlegs skúrks.
Hin leðurklæddu hjón Bmce Willis úr Moonlighting þáttunum
og Demi Moore létu sig ekki vanta á fmmsýningu „Ópera-
draugsins" í New York. Raddir em uppi um að hjónaband
þeirra standi á brauðfótum eftir örfárra mánaða reynslutíma-
bil.
LEIKHÚS
Frægir á frum-
sýningum
jt
Ihópi frumsýningargesta hafa sameiginlegt að vera af frægu og
löngum leynst kynlegir kvistir. kyndugu fólki sem skundar áfjáð á
Þessar forláta myndir eiga það eitt frumsýningar.
Lesendur víðlesins vikurits í
Hollywood töldu Föruh Faw-
cett-Majors hafa ljótustu hné í
gervallri borginni. Hún lét álit
þeirra ekki á sig fá og sýndi hné
sín á fmmsýningu á „Ópem-
draugnum".
Söngkonan Annie Lennox úr
Eurythmics dúettnum reyndi að
fela sig í randýrsfeldi á frumsýn-
ingu söngleiks eftir Chuck Berry
í London.
Matmóðir þingmanna og
annarra starfsmanna Al-
þingis heitir Þórdís Valdimars-
dóttir. Hún hefur gefíð ráðamönn-
um í svanginn í tuttugu og þijú
ár og þykir baka fádæma góðar
pönnukökur. Hún segir þingmenn
misjafnlega vanafasta. Einn vill
alltaf sjö pönnukökur, annar hatt-
inn af rúnnstykki og jarðarberja-
mauk, sá þriðji tvær ristaðar
brauðsneiðar og malt...Þeir biðja
bara um skammtinn sinn og bæta
gjaman við að Þórdís viti hvað
þeir vilja.
Þórdís hellti fyrst upp á kaffi
í Alþingi í október 1965 og tók
við stjóminni í eldhúsinu af
Margréti Valdimarsdóttur sjö
árum seinna. Kaffiveitingar voru
í anddyri þinghússins og setustofu
sem kölluð er Kringlan allt til
ársins 1973. Þá var núverandi
kaffístofa tekin í notkun, en þar
var áður skrifstofa forseta ís-
lands.
Inn af kaffístofunni er eldhús
sem ekki má minna vera, til að
þær fjórar konur sem þar vinna
ÞORDIS
VALDIMARSDÓTTIR
Engin
mat vendni í
þingmönnum
Morgunblaðið/Emilla
Pönnukökurnar hennar Þórdísar Valdimarsdóttur á
kaffistofu Alþingis þykja feikigóðar. Hún rúllar þeim
. upp með sykri og segir þingmenn ekki hafa gott af
' ijómapönnukökum.
geti athafnað sig. Gamla eldhúsið
undir stiga hússins er mun stærra.
Þar bakaði 'Þórdís rúllutertur og
marmarakökur, jólakökur og
vínarbrauð þangað til í fyrra-
haust. Nú gefst aðeins tími til að
baka hinar ómissandi pönnukök-
ur, annað kaffíbrauð þingmanna
er aðsent. Svo er og um hádegis-
verðinn, salat og súpu eða heitan
rétt, sem kemur úr Veitingahöll-
inni.
Að sögn Þórdísar eru oftast á
milli sextíu og áttíu manns í há-
degismat í þinginu og hátt í tvö
hundruð drekka þar kaffi dag-
lega. „Kaffistofan tekur 42 í sæti
og við dúkum borðin oft á dag.
Þeir eru svo vinsælir, mínir
menn,“ segir Þórdís. Hún hefur
heitt á könnunni frá morgni til
fundaloka, þannig að teygst getur
úr vinnudeginum. „Þetta var
strangt fyrir jólin, maður fór að-
eins heim að leggja sig og var
mættur aftur klukkan sjö.“
Þórdís kannast hvorki við að
þingmenn séu matvandir, né held-
ur döllað heilsubylgjan hafi skollið
á kaffistofu Alþingis af fullum
þunga. „Flestir fá sér köku-
skammt með kaffinu og nokkrir
vilja ekkert nema pönnukökur,“
segir Þórdís. „Það er helst að
yngra fólkið biðji. um ristað brauð
með osti. Þessar elskur hafa ekki
allar sama smekk, en þetta er
eins og eitt stórt heimili og hér
hefur mér líkað fjarska vel.“
Fólk í fréttum kann fátt til eld-
húsverka og bað Þórdísi að gefa
sér uppskriftina góðu að pönnu-
kökunum. Það var auðsótt: Út í
bolla af hveiti hrærist 2>/2 des-
ilítri af undanrennu. Tvö egg eru
svo þeytt út í blönduna. Örfáum
vanilludropum, agnarögn af sóda-
dufti og lyftidufti er bætt út í
ásamt dálitlu bræddu smjörlíki.
Þá er ekkert eftir nema að steikja
pönnukökurnar og eta.
Þórdís kveðst venjulega baka
um tvö hundruð pönnukökur á
dag úr sex bollum af hveiti og
tólf eggjum. Hún notar þijár
pönnur og er að í klukkutíma eða
þar um bil, eftir því hvernig hún
er upplögð. Byijendum skal þó
ráðlagt að taka sér góðan tíma,
nota aðeins eina pönnu og hleypa
engum inn í eldhúsið fyrr en allt
er afstaðið.