Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1984, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1984, Blaðsíða 6
ÚRVALSEFNI VIÐ ALLRA HÆFI AskriftarsIminn er 27022 GRJÓTGRINDUR Á FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA HVORT KÝSTÞÚ GATEÐA GRIND? Eigum á lager sérhannaðar grjót- grindur á yfir 50 tegundir bifreiða! Ásetning á staðnum i Láttu létta þér störfin. ^SSSSSSSSíSSXSSsíSSa^ ' I* ..- # - 4» 41 Buffvél. Það besta er hagkvæmast. UMBOÐSAÐILI: ^--\ UMBOÐSADILi: y RÖKRÁS hafeindatæknipjonusta HAMARSHOFÐA 1 - SIMI 39420 OFFSET FJÖLRITUN SILIUPRENT- LTT GLÆR UR (myndvarpa VÉLRTTUN- BLOKKIR- síndum íMlkjfjut!FJÖLRITUN SF. Magnús H .Jónsson Skipholt 1 Sími 91-25410 •••••••• DV. ÞRIÐJUDAGUR10. APRIL1984. ÓDÝRASTA LAUSNIN —ekki alltaf sú besta Maöur fór meö reiðhjól á verkstæöi og bað um aö gert yrði við slöngur og dekk og bremsumar yröu athugaðar. Hann fékk þær upplýsingar aö viö- gerðin á dekki myndi kosta 95 krónur. Hann gerði ráð fyrir að við- gerðin á h jólinu myndi kosta 200—300 krónur. Þegar upp var staðiö kostaði viðgerðin hins vegar 745 krónur. Eig- andi hjólsins taldi það allt of hátt verð þar sem unnt hefði verið að gera við bremsumar meö því að gera aöeins einn hnút á bremsu- vírinn. Viðgerðarmaðurinn hafði hins vegar skipt um barka, enda var hann ónýtur. Væri gerður hnútur á barkann kæmi brot á hann að sögn viðgerðarmannsins og hefði það veikt hann. Viö snöggt átak gæti vírinn slitnaö og hjólið orðið bremsulaust. Sjónarmiö viögerðarmannsins voru kynnt eiganda hjólsins sem féllst á þau. Viðgerðarmanninum var hins vegar bent á að sé áætlaöur viðgerðarkostnaður miöa'ður við einföldustu viðgerð verði jafnframt að vekja athygli viðskiptavinarins á hver kostnaðurinn verði, reynist þörf á meiri viðgerð. Þetta sem sagt hefur verið hér að framan er eitt af þeim atriðum sem fjallað hefur verið um í neytenda- máladeild Verðlagsstofnunar. Þetta segir okkur m.a. aö ódýrasta við- gerðin fullnægir ekki alltaf þeim kröfum sem gerðar eru til umferðar- öryggis. vert að hafa það i huga að vanda skai tii aiira Nú fer að koma timi tii að taka hjóiin i notkun, en það er viðgerða. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Bankarnir hafa ekki aðgang að útskriftunum „Kreditkort sf. er algjörlega sjálf- stætt fyrirtæki og upplýsingar um út- tektir korthafa fara ekki út fyrir dyr hér. Bankamir, sem við erum í sam- starfi við, hafa þessar upplýsingar ekki undir höndum og fá þær ekki undir neinum kringumstæðum,” sagði Haraldur Haraldsson stjómarfor- maöur í viðtali við DV. Þó svo aö Utvegsbankinn og Versl- unarbankinn séu eignaraðilar að Kreditkortum sf. og Sparisjóður vél- stjóra sé í samstarfí við fyrirtækið hafa þessir bankar ekki aögang að upplýsingum um þær úttektir sem fara f ram hjá korthöfum Eurocard. Haraldur vildi koma þessu á fram- færi vegna þess að hér á síöunni birtist grein fyrir skömmu þar sem greint var frá því að bankarnir, sem stæöu í tengslum við greiðslukortin, gætu hugsanlega fært sér í nyt úttektaryfir- lit greiðslukoartahafa. Sagt var frá dönskum þingmanni sem hafði áhyggj- ur af þessu þar í landi og lagði til aö settar yrðu reglur sem kæmu í veg fyr- ir að þessar upplýsingar væru í hönd- um bankanna. Bankamir, sem standa að Visa Is- land, hafa þessar upplýsingar undir höndum en Sólon R. Sigurðsson, aöstoðarbankastjóri Búnaðarbankans, sagði að engin hætta væri á því að þess- ar upplýsingar yrðu misnotaðar á nokkum hátt. -APH Raddir neytenda Hárþvegiðí handlauginni Þegar hár er þvegiö yfir handlaug- inni vilja laus hár festast í niðurfallinu og stífla vatnslásinn. Hægt er að koma í veg fyrir þetta með því að setja hár- rúllu af mátulegri stærð í niðurfallið. Þá munu hárin festast í rúllunni, sem auðvelt er að hreinsa á eftir. Þetta er kannski úrelt húsráð vegna þess að hárrúllur eru orðnar fáséður hlutur á heimilum nú til dags. itil samanburöar á heimiliskostnaðin |Hvað kostar heimilishaldið? IVinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- “andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar I fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nvtsamt heimilis- tæki. Nafn áskrifanda I I | Heimjli ^ Sími I 1 Fjöldi heimilisfólks-- j Kostnaður í mars 1984. Matur og hreinlætisvörur kr. Raddir neytenda Sala á tómum flöskum Þannig er mál með vexti að nær hvern dag kaupi ég um 5—6 flöskur af gosi. Því hagar svo til að þegar ég kaupi þessar flöskur er ekki hand- hægt fyrir mig að skila tómu flöskun- um frá því síðast. Eg hef því haft þá reglu að með vissu millibili fer ég með uppsafnaðar birgðir, um 100 flöskur, og sel þær. En nú bregður svo við aö þegar ég kem með tómu flöskurnar til baka er mér neitað um að fá greitt í peningum fyrir þær. Mér er sagt að það verði að taka einhverjar vörur út á andvirði flasknanna. Þetta finnst mér vera óréttlátt og þvinguð við- skipti. Þaö er í raun og veru verið að þvinga fólk til þess að kaupa aðrar vörur sem það hefur kannski enga þörf fyrir. Það er vert að geta þess að allar flöskumar keypti ég á þessum staö þar sem mér var neitaö um að fá peningana. Kaupmaðurinn bar því við að hann sæi sér ekki fært að greiða peninga út til viðskiptavina sinna. Mér finnst að kaupmenn eigi að vera skyldugir til að greiða ölium beinharöa peninga til baka ef óskað er eftir því þegar tómar flöskur eru seldar. Ef þeir hins vegar hafa fullan rétt á að krefjast þess að fólk taki út aörar vörur fyrir tómar flöskur get ég ekki séð, annaö en að þeir sem kaupa gosdrykki hafi leyfi til að bjóða kaupmanninum gamla SÓkka eða slitna skó fýrir andvirði glerj- anna. Kjötið rýrnaði um helming Fyrir skömmu keypti ég hakkaö kjöt. Eg keypti 1,5 kg af nautahakki og 1,5 kg af svínahakki. Þessum tveimur tegundum blandaöi ég saman og bjó til bollur úr öllu saman. Eg blandaði engu öðru saman við hakkið nema örlitlu af salti og pipar. Siðan steikti ég bollurnar eins og lög geifá ráð fyrir. Eftir að hafa gert það skellti ég öllum bollunum á vikt og kom í ljós, mér til mikillár undrunar, að hakkið hafði rýmað um helming. Nú vó það einungis helming af upphaflegri þyngd,þ.e.l,5kg. Þetta finnst mér vera óeðlilega mikil rýrnun og mjög óréttlátt gagnvart neytendum ef kaupmenn hafa leyfi til að selja kjötvörur sem rýrnasvomikið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.