Tíminn - 16.12.1989, Blaðsíða 4

Tíminn - 16.12.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn Laugardagur 16. desember 1989 ÚTLÖND Andrei Sakharov látinn limur forsætisnefndarinnar, var út- nefndur sem formaður útfararnefnd- ar og fór í heimsókn til ekkju eðlisfræðingsins og samstarfsmanns í mannréttindabaráttunni, Jelenu Bonner. Útförin verður gerð á mánudag- inn, segir talsmaður Eðlisfræðistofn- unarinnar þar sem Sakharov vann. Lík Sakharovs liggur á viðhafnar- börum á mánudagsmorgun á stofn- Andrei Sakharov, sem í meira en áratug var af opinberum yflrvöldum í landi sínu kallaður nöfnum eins og „landráða- maður“ og „rógberi“ vegna mannréttindabaráttu hans, lést á fimmtudagskvöldið. Innan örfárra klukkutíma lofsungu æðstu menn Kremlar hann sem drengskaparmann. Sakharov, sem varð 68 ára, virðist hafa fengið hjartaáfall á skrifstofu sinni meðan hann var að undirbúa ræðu um hið sjúka efnahagslíf Sovét- ríkjanna, sem hann ætlaði að flytja í gær í þinginu, þingi þjóðkjörinna fulltrúa, þar sem hann átti sæti. Sakharov var í forystuhópi þeirra sem bjuggu til fyrstu vetnissprengju Sovétmanna 1953 en sagði síðar skilið við vísindastörf og gerðist leiðtogi sovéskra andófsmanna. Þingmenn sovéska þingsins héldu einnar mínútu þögn þegar þeim hafði verið tilkynnt um dauða fyrr- um forystukjamorkueðlisfræðings- ins sem hafði sagt skilið við þægilegt líf til að berjast gegn hinum voldugu sovésku yfirvöldum fyrir pólitísku frelsi. Gorbatsjov stóð til virðingar hin- um látna meðan þögnin varði en ávarpaði ekki þingið. Gorbatsjov átti snörp orðaskipti við Sakharov á þriðjudaginn var í þinginu, en það var skv. fyrirskipun Gorbatsjovs, sem nóbelsfriðarverðlaunahafanum 1975 var sleppt úr 6 ára útlegð í Gorky árið 1986. Gorbatsjov sagði blaðamönnum fyrir utan þinghúsið að Sakharov hefði haft sérstakt hlutverk með höndum í uppbyggingu perestroika- stefnu forsetans. „Háskólamaðurinn Sakharov hafði sitt sérstaka verk- efni, sitt sérstaka hlutverk á tímum perestroikunnar,“ sagði Gorbatsjov. „Hann var ekki leynimakksstjórn- málamaður. Hann var maður með eigin hugmyndir, sannfæringu sem hann lét hreinskilnislega og án vafn- inga í ljós. Þetta mat ég við hann,“ sagði Gorbatsjov. „Þar með er ekki sagt að ég hafi verið honum sam- mála, þó að okkur kæmi saman um margt.“ Aðspurður hvort hann yrði viðstaddur útför Sakharovs svaraði Gorbatsjov því til að þingmenn yrðu viðstaddir og hann væri einn þeirra. Félagar hans í umbótahópnum á þinginu og vinir í andófshreyfing- unni sem hann veitti forystu sögðu að enginn kæmi í hans stað sem baráttutákn. „Við höfum aldrei átt eins grand- varan foringja. Dauði hans er meiri- háttar ógæfa fyrir lýðræðið," sagði ritstjóri frjálslynds blaðs. Vísinda- maðurinn Roald Sagdeyev lýsti því yfir að hann vissi ekki hvernig áfram- haldið yrði hjá félögum hans þegar ekki nyti lengur við algerra heilinda Sakharovs. Yevgeny Primakov, kosinn með- Líkfylgdin gengur til Luzhniki- leikvangsins, þar sem Sakharov tal- aði oft á almennum fundum, að öllum líkindum til þess að nægt rúm verði fyrir þær þúsundir manna sem búist er við að vilji votta hinum látna virðingu sína. Skáldið og fjölskylduvinurinn Vladimir Kornilov, sagði að Sakhar- ov yrði grafinn í hljóðlegum kirkju- garði í úthverfi Moskvu skv. beiðni Jelenu Bonner. Andrei Sakharov og eiginkona hans, Jelena Bonner. Utanríkisráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins samþykkir tillögur fyrir næsta leiðtogafund: RISAVAXINN NIDUR- SKURÐUR VOPNABÚRA Utanríkisráðherrafundi NATO í Brússel lauk í gær en á fundinum var gengið endanlega frá afvopn- unartillögum Atlantshafsbanda- lagsríkjannasem lagðar verða fram á Vínarfundinum snemma á næsta ári. „Tillögurnar snúast um risavax- inn niðurskurð á vopnum og herjum. Þær voru mótaðar í grund- vallaratriðum á utanríkisráðherra- fundinum fyrir ári og drög þeirra hafa síðan verið kynnt fulltrúum Varsjárbandalagsríkjanna. Nú hefur endanlega verið gengið frá þeim. Jafnframt gera menn sér í fúlustu alvöru vonir um að þessum viðræðum ljúki með allsherjar af- vopnunarsamningi á næsta ári,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra í gær. Utanríkisráðherra sagði að á fundinum í gær hefði ríkt almenn bjartsýni um að nú loks muni fást niðurstöður í samninga NATO og Varsjárbandalagsríkjanna í Genf um helmings niðurskurð lang- drægra kjarnavopna og að samn- ingur um það verði undirritaður á fyrirhuguðum leiðtogafundi Bush og Gorbatsjovs um mitt næsta ár, þar sem einnig verði viðstaddir leiðtogar allra ríkja Evrópu. Á utanríkisráðherrafundinum var einnig lögð fram áætlun sem hlotið hefur nafnið Open Skies. Sú áætlun felur í sér að ríki NATO og Varsjárbandalagsins fái gagn- kvæman rétt til að skoða og hafa eftirlit úr lofti með varnarviðbún- aði hvers annars. „Ef áætlunin nær fram að ganga felur hún einnig í sér að Varsjár- bandalagsríki fá rétt til að fljúga yfir og athuga herstöðina í Kefla- vík allt að fjórum sinnum á ári,“ sagði Jón Baldvin. Hann sagði að þessi hugmynd yrði til nánari um- fjöllunar á sérstakri ráðstefnu sem Joe Clark utanríkisráðherra Kan- ada hefur boðað til í febrúar n.k. þar sem fulltrúar beggja bandalaga munu hittast. Utanríkisráðherrar NATO fjöll- uðu einnig um áætlun um að bjóða fræðimönnum og forystumönnum í ríkjum Mið- og A-Evrópu til að kynna sér sérstaklega starfsemi lýðræðisstofnana á sviði stjórn- og efnahagsmála á Vesturlöndum. -En er NATO þá að tapa upp- haflegu hlutverki sínu sem útvörð- ur gagnvart hættunni úr austri? „Bandalagið var stofnað vegna þess að ríkin á Vesturlöndum töldu að tilveru sinni væri ógnað af hernaðarmætti og útþenslustefnu Stalínismans í Sovétríkjunum. Til- gangurinn var að koma í veg fyrir styrjöld, að varðveita frið og tryggja öryggi þjóða sem búa við réttaröryggi og lýðræði. Segja má að markmiðum með stofnun NATO hafi verið náð með eindæmum vel vegna þess að stór- veldið sem ógnaði ríkjunum hefur nú horfið frá villu síns vegar að verulegu leyti og í þeim skilningi hefur megin tilganginum verið náð. Hins vegar er að hefjast þróun sem ekki sér fyrir endann á og staðreynd er að enn hafa ekki farið fram lýðræðislegar kosningar í neinum af þessum ríkjum. Rætur þeirrar þróunar sem á sér stað í A-Evrópu er að finna í Perestrojku Gorbatsjovs og því er ekki að neita að menn hafa þungar áhyggjur af ástandinu í Sovétríkjunum. Hagkerfi þar er á brauðfótum og allar væntingar um að Gorbatsjov geti bætt lífskjör fólks í Sovétríkj- unum innan árs eða svo eru út í hött. Efnahagur fólks og lífskjör hafa versnað mjög tilfinnanlega s.l. tvö ár. Þegar fólk þar hefur nú fengið smjörþef af auknu frelsi er hætt við að vonbrigði almennings vegna versnandi afkomu auk vax- andi þjóðernishyggju geti leitt til upplausnarástands. Það var sameiginleg niðurstaða allra sem til máls tóku á ráðherra- fundinum, að NATO ætti áfram að gegna því hlutverki sínu að tryggja lágmarks öryggi bandalagsríkj- anna. Hins vegar þyrfti í stóraukn- um mæli að leggja áherslu á pólit- ískt samráð og hinn pólitíska þátt í starfi bandalagsins," sagði utan- ríkisráðherra. Innan NATO er starfandi vís- indanefnd og aðalverkefni hennar eru umhverfismál. Á hennar veg- um er fyrirhuguð ráðstefna um mengunarvarnir á N-Atlantshafi sem haldin verður í Reykjavík snemma á næsta ári. Verður eink- um fjallað um hættu á mengunar- slysum af völdum kjarnorkuknú- inna skipa og kafbáta og hvernig þau verði fyrirbyggð. Þessi mál voru að sögn utanríkis- ráðherra talsvert á baugi á ráð- herrafundinum og rætt var um að reisa sérstaka miðstöð á íslandi fyrir umhverfisvernd og -rannsókn- ir á N-Atlantshafssvæðinu. Einnig var rætt um að stuðla að því að gerður yrði alþjóðasáttmáli með lagagildi þar sem skilgreindar væru skuldbindingar og réttindi þjóða að því er varðar umhverfismál og umhverfisvernd. -sá Glasgow hefur verið útnefnd höfuðborg lista og menningar í Evrópu, á næsta ári: Boðið til listaveislu í Glasgow Hvað dettur íslendingum fyrst í hug þegar Glasgow ber á góma? Sjálfsagt eru þeir margir sem sjá fyrir sér, eða minnast úttroðinna plastpoka frá hinum ýmsu stórmörkuðum. Fleytifullar ferðatöskur og óttann við afskipti tollvarða. Einhverjum dettur sjálfsagt í hug þjóðardrykkurinn, Whiskey, eða karlmenn í skotapilsum - þetta klassíska tákn þeirra Skotanna. Þeir eru sjálfsagt fáir íslendin- gamir sem ferðast hafa til Glasgow, gagngert til að öðlast menningarleg- an innblástur og upplifun. En það gæti breyst fljótlega. Glasgow hefur verið útnefnd höfuðborg menningar í Evrópu næstkomandi ár. Taka borgaryfirvöld við þessu hlutverki af hinni miklu menningarborg París. Nýverið var haldinn blaðamanna- fundur um efnið - Glasgow höfuð- borg menningar í Evrópu 1990. Tíminn var viðstaddur fundinn og vissulega er það hlaðið borð kræs- inga sem sælkerar á menningarsviði geta gengið að á komandi ári í borginni. Glasgowbúar og raunar Skotar allir verða minntir á menningarárið strax er nýtt ár gengur í garð. Viðhafnarflugeldasýning verður í til- efni tímamótanna í Glasgow og miðað við lýsingar heimamanna verður hún ein sú eftirminnilegasta sem haldin hefur verið. Sex fyrirtæki í framleiðslu flugelda, frá jafnmörg- um löndum, munu sjá um fírverkið. Verður flugeldum skotið upp í sex görðum sem mynda hring um borg- ina. Þá verða einnig leysigeislar notaðir til að auka enn á sjónarspil- ið. Akvednir í að standa sig Á yfirlýsingum þeim sem gefnar hafa verið út vegna komandi árs og hlutverks Glasgow er ljóst að borg- aryfirvöld leggja allan sinn metnað í að gera árið vel úr garði. „Þetta ár mun heimurinn beina sjónum sínum að Glasgow, menningararfleifð og sögu borgarinnar. Vegna þess að Glasgow varð fyrir valinu mun borgin leggja metnað sinn í að bjóða upp á og kynna listir og menningu hinna ýmsu Evrópu- landa og álfunnar sem eina heild,“ segir m.a. í fréttatilkynningu frá skipulagsnefnd hátíðahaldanna. En snúum okkur að kræsingunum sem boðið verður upp á. Skoska óperan mun setja upp fimm ný óperuverk eftir hina ýmsu höfunda. Ekki gleymast hinir ódauðlegu meistarar og verða færðar upp óper- ur m.a. eftir Strauss og Verdi. Ballettáhugafólk fær nóg við sitt hæfi. Ný spennandi verk eftir unga danshöfunda, í Evrópu, verða færð upp. Sinfoníuhljómsveitin skoska bíð- ur velkomna fjölmarga stjórnendur frá Evrópu. Má þar nefna Neeme n.ijq róó-’ ■'i'j'r.: Jarvi, James Loughran, Yuri Tem- erkanov og Alexander Gibson. Há- punktur sinfoníuhljómsveitarinnar verður hinsvegar hinn 8. október, þegar tekin verður í notkun ný tónleikahöll í Glasgow, sem tekur 2.500 manns í sæti. Börnin gleymast ekki þetta hátíð- arár í Glasgow. Sérstök dagskrá fyrir yngri kynslóðina hefur verið tilkynnt og ljóst er að ALLIR íbúar geta hlakkað til hátíðahaldanna. I tilefni þess að 27. janúar gengur í garð nýtt ár, samkvæmt tímatali Kínverja verður haldin sérstök sýn- ing í Glasgow á hestum. Einhver kann að spyrja hverju það sætir að halda sýningu á hestum þó nýtt ár gangi í garð í Kína. Jú, nýtt ár í Kína verður ár hestsins. Málverkasýningar verða í löngum bunum í Glasgow allt árið. Rétt er að geta um nokkrar þeirra. Konur Degasar verður yfirskrift á sýningu á verkum franska listmálarans Edg- ars Degas. Degas hafði mikinn áhuga á konum og í meirihluta allra r. O jT/ I * a í.i i krJ.0?l.Tí i \'C vj't verka hans voru þær viðfangsefnið. Verk eftir annan frægan Frakka, Camille Pissaro, verða til sýnis í Burrell safninu 4. maí til 17. júní. Er þar á ferðinni mjög athyglisverð sýning á verkum Impressionistans Pissaro. Sýningin er samansett af sjötíu málverkum, teikningum og vatnslitamyndum. í sama safni verður sett upp Van Gogh sýning, í lok nóvember. EHthvað fyrir alla Hér hefur aðeins fátt eitt verið talið upp. Það þyrfti eins og eina útgáfu af Tímanum til að gera dagsskrá listahátíðar Glasgowborg- ar tæmandi skil. En víst er að allir munu finna eitthvað við sitt hæfi í höfuðborg lista og menningu á næsta ári. íþróttaviðburðir, jazz, þjóðlaga- tónlist, flugdrekasýningar, högg- myndir, ýmiskonar farandsýningar og gestaleikir. Nokkurn veginn hvað sem listþenkjandi fólk getur látið sér detta í hug. - ES ; i?5 ; i * ,9 )ti'! )'i > vj : f n/nt'.t'OÍSir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.