Morgunblaðið - 07.12.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.12.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 333. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is TÆKNISAMRUNI SÍMI ER EKKI BARA SÍMI HELDUR STÖÐU- TÁKN OG ALHLIÐA VERKFÆRI >> VIÐSKIPTI 17 dagar til jóla Reuters Fundur Lee Hamilton, George W. Bush, for- seti Bandaríkjanna, og James Baker ræða við fréttamenn um nýju Íraksskýrsluna. Washington. AFP. | George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, segir að ný Íraksskýrsla gefi mjög dökka mynd af stöðunni í Írak en í henni séu áhugaverðar tillögur og hann taki allar til- lögur alvarlega. Forsetinn biður um pólitískt vopnahlé í Íraksmálinu og með þjóðarhag í huga sé best að allir vinni saman í því. James A. Baker III, fyrrverandi utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, og Lee H. Hamilton, fyrrverandi þingmaður demókrata, fóru fyrir starfshópi sem Bandaríkjaþing skipaði í mars sl. til að skilgreina stöðuna í Írak og leggja fram tillögur til lausnar ástandinu í landinu. Skýrslan var gerð opinber í gær og eru þar lagðar fram 79 tillögur á 160 síðum. Meðal ann- ars kemur fram að staðan í Írak sé grafalvar- leg og fari versnandi og Bandaríkjastjórn verði að breyta stefnu sinni í landinu. Friðarviðræður nauðsynlegar George W. Bush fékk skýrsluna í hendur í gær og við það tækifæri hvatti hann alla þing- menn Bandaríkjaþings til að kynna sér hana vandlega. Í skýrslunni er bent á að Bandaríkjastjórn nái ekki markmiðum sínum í Mið-Austurlönd- um nema hún taki á deilu araba og Ísraela og óstöðugleikanum á svæðinu öllu. Það þýði bein- ar friðarviðræður við Ísrael annars vegar og hins vegar við Palestínu, Sýrland og Líbanon, og viðræður þeirra á milli. | 18 Biður um pólitískt vopnahlé Áhugaverðar tillögur um Írak að mati forsetans FORNLEIFAFRÆÐINGAR frá Fornleifastofnun Íslands hafa eftirlit með fornleifauppgreftri norðan Hafnarstrætis og aust- an Tryggvagötu við Reykjavík- urhöfn. Í gær var verið að vinna við gamlar grjóthleðslur sem komið hafa í ljós bak við hús Rammagerðarinnar og önnur hús norðan Hafnar- strætis. Fyrirtækið Urð og grjót ehf. er nú að breyta lögnum sem lenda inni í byggingarreitum fyrirhugaðs tónlistarhúss, hót- els og banka við Reykjavík- urhöfn. Garðar Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Urðar og grjóts ehf., sagði að þessi verk- þáttur væri upp á um 200 millj- ónir króna og lagnirnar sem þyrfti að færa og leggja mæld- ust samtals í kílómetrum. Hann taldi að fjarlægja þyrfti gömlu garðana að stórum hluta. Úti í Pósthússtræti væri gömul steinbryggja og hugmyndin að reyna að sleppa við að fjar- lægja hana. Garðar Guðmundsson, forn- leifafræðingur hjá Fornleifa- stofnun, sagði að þau væru þarna að vinna fyrir Minjasafn- ið í Reykjavík við fornleifa- rannsóknir. Á þessu svæði eru leifar vel hlaðinna grjótveggja. Garðar sagði veggina svo vel byggða að menn veltu því fyrir sér hvort verkþekkingin sem þar var beitt hefði komið með þeim sem byggðu Alþingishúsið 1881. Flestir veggjanna mynd- uðu kjallara húsa sem voru byggð saman og stóðu fremst á sjávarkambinum um aldamótin 1900. Þessi hús voru þá bakhús verslunarhúsa við Hafn- arstræti. Um 1925 var byggður grjótgarður, götubreidd utar, fyllt á milli garðanna og Tryggvagatan lögð á uppfyll- ingunni. Framan við grunnana á myndinni komu í ljós leifar for- vitnilegrar bryggju. Bryggju- stólparnir voru festir með grjóthleðslum í tréstömpum. Austan við þetta svæði hafa fundist töluverð ruslalög, m.a. með fiskbeinum, sem benda til fiskverkunar, og einnig húsa- sorpi á borð við leirmuni. Garðar sagði þessar minjar merkar að því leyti að þarna hefði verið lagður grunnurinn að borgarmyndun Reykjavíkur. Breyta þarf lögnum í kíló- metratali við miðborgina Vandaðar grjót- hleðslur frá fyrri tíð líta dagsins ljós Morgunblaðið/RAX Uppgröftur Fornleifafræðingar voru að rannsaka grjóthleðslurnar við Tryggvagötu í gær. Eftir Andra Karl andri@mbl.is BANDARÍSKA verslunarkeðjan Whole Foods Market (WFM) hefur ákveðið að hætta markaðssetningu á íslenskum vörum í verslunum sínum sökum ákvörðunar stjórn- valda að hefja að nýju hvalveiðar í atvinnu- skyni. Verslunarkeðjan mun þó áfram bjóða upp á íslenskar vörur frá einstökum framleið- endum. Ákvörðunina sendi Kenneth Meyer, aðalforstjóri austurstrandardeildar, Einari K. Guðfinnssyni sjávarútvegsráðherra bréfleiðis 22. nóvember sl. Í bréfinu segir Meyer meðal annars mikið áhyggjuefni að ákveðið hafi verið að veiða níu langreyðar en verst þykir honum að engar ákvarðanir hafi verið teknar um frekari veið- ar og verði ekki fyrr en niðurstöður úr rann- sóknum á hvalkjötinu liggi fyrir. Það þykir Meyer gefa skýrt til kynna að til skoðunar sé að auka við kvótann, þ.e. ef niðurstöðurnar eru jákvæðar. „Okkur þykir sú ákvörðun að styðja ekki alþjóðlegt bann við hvalveiðum andstæð markmiðum um að kynna landið sem sjálfbært samfélag og framsækið í um- hverfismálum,“ segir Meyer og bætir því við að staða Íslands í hvalveiðimálum dragi úr viðskiptavild sem náðst hafi á meðal við- skiptavina WFM. Því sé ómögulegt að halda áfram markaðssetningu vörumerkisins Ís- land. „Við hyggjum að ef afstaða Íslands til hval- veiða breytist ekki muni eftirspurn eftir ís- lenskum vörum í verslunum okkar minnka og við verðum tilneyddir að leita eftir vörum frá öðrum löndum.“ Whole Foods Market er í fremstu röð verslana sem selja lífrænar afurðir og þær sem framleiddar eru með sjálfbærum hætti. Verslanirnar eru 180 víðsvegar um Bandarík- in og stefnt er að því að fjölga þeim í þrjú hundruð fyrir árið 2010. Undanfarin ár hefur markaðssetning á íslenskum afurðum farið fram í verslunum og meðal annars verið boðið upp á lambakjöt, skyr, smjör og osta. Hætta markaðssetningu vara vegna hvalveiðanna Í HNOTSKURN » Ríkisstjórninákvað að leyfa hvalveiðar í atvinnu- skyni í október sl. Veiða má níu lang- reyðar og þrjátíu hrefnur á yfirstand- andi veiðitímabili. » Fyrsta langreyðurin var veidd 22.október og voru tvær eftir óveiddar þegar Hvalur 9 hætti veiðum. » Talið er fullvíst að hvalkjötið verðiflutt á markað í Japan. » Beðið er eftir niðurstöðum rann-sókna á kjötinu og er þeirra að vænta um eða eftir áramót. GILDISTÖKU þrjú hundruð þúsunda kr. frí- tekjumarks vegna atvinnutekna örorkulífeyr- isþega og ellilífeyrisþega verður flýtt til 1. jan- úar 2007, en að óbreyttu hefðu tillögur um frítekjumörkin tekið gildi 2009 og 2010. Þessar og fleiri breytingar voru kynntar á sameiginlegum blaðamannafundi Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra og Sivjar Frið- leifsdóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra í gær. Þessar tillögur sem og þær til- lögur sem fram koma í frumvarpi um almannatryggingar fela í sér samtals 28 millj- arða aukaútgjöld til lífeyrisþega á næstu fjór- um árum, að sögn heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra. | 4 Kjarabætur til ör- yrkja og aldraðra ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.