Vísir - 17.06.1944, Síða 44

Vísir - 17.06.1944, Síða 44
44 VÍSIR — Þ J ÓÐHÁTÍÐ ARBLAÐ lifnaðarháttum — og ég vil segja — menningu landsmanna í framtíðinni. Atvinnumál. Hér hefi ég drepið á nokkur mál, er sýna hvernig sveitarfé- lögin hafa orðið brautryðjend- ur hinna stórkostlegustu fram- fara. Þau hafa kennt íbúum sín- um, að með sameiginlegu átaki og með því að taka á sig sam- eiginlegar byrðar, er hægt að lyfta hinum ótrúlegustu grettis- tökum og ná hinum ákjósan- legasta árangri. Smágrein þessi leyfir ekki að mikið fleira sé nefnt, en ekki má þó með öllu sleppa að minn- ast á tilraunir sveitarfélaganna til þess að tryggja atvinnulíf íbúa sinna með beinum aðgerð- um í þeim efnum, og til að skapa þeim vistleg híbýli. Mörg sveitarfélaganna hafa á síðustu árum lagt út í að tryggja at- vinnulíf staða sinna á ýmsan hátt, svo sem með útgerð, iðn- aði, hraðfrystihúsabyggingum o. m. fl. Stærstu tilraunirnar um at- vinnurekstur hafa gert kaup- staðirnir Isafjörður og Hafnar- fjörður, þó fjöldi smærri staða hafi einnig reynt ýmislegt í þá átt. En flest eru þetta ennþá byrjunarspor, er sýna þó að vel má athuga, hvort það er ekki einmitt með aðstoð og atbeina sveitarfélaganna, sem tryggja má atvinnulíf þjóðarinnar, en það verður það viðfangsefni, sem Islendingar, eins og aðrar þjóðir, verða að glíma við þeg- ar í stað og núverandi ófriði lýkur. Þau lítt skipulögðu og oftast vanmetnu, en stundum beinlínis ofsóttu átök eða til- raunir, sem gerðar bafa verið í þessum efnum af sveitarfélög- unum, þykir mér þó ekki ólík- legar til þess að verða að veru- legu leyti sú undirstaða, sem byggt verður á þegar þar að kemur. Byggíngamál. Hin lélegu húsakynni, sem aðkomnir fátæklingar hrófluðu upp yfir sig og sína á lóðum kaupstaða og kauptúna voru ekki líkleg til að geta enzt til frambúðar. Allt frá söguöld hefir sá háttur verið á bygging- armálum Islendinga, að hver kynslóð hefir orðið að byggja yfir sig, efni húsanna hefir ver- ið svo endingarlitið. En við til- komu kaupstaðanna, fyrst með timburhús sín járnvarin og sið- ar með steinhúsin, hafa bygg- ingamál allra landsmanna kom- izt inn á alveg nýjar brautir. Þetta er þó ekki sveitarstjórn- um né sveitarfélögum sérstak- lega að þakka, heldur bæja- og þorpamynduninni sjálfri og framtaki einstaklinga par. En aðalvandamálið er enn að mestu óleyst og það er hvernig hægt sé að tryggja öllum íbú- um bæjanna og kauptúnanna hollar og góðar framtíðaríbúðir. Hér hafa sveitarfélögin sér- staklega þó kaupstaðirnir — lagt inn á nýja og merkilega braut, þar sem er^ hinir svn- nefndu verkamannabústaðir og fyrirkomulagið á því, hvernig menn geta eignazt slíkar íbúð- ir, án þess að íþyngja um of fjárhag sínum. Allt er þetta enn á byrjunarstigi, enda mjög skipulagslítið, en framtíðar- lausn liúsnæðismálanna, bæði í sveitum og kaupstöðum, mun ekki lengi dragast héðan af og þá er líklegt, að sú reynsla, sem fengizt hefir í þessari grein af verkamannabústöðum kaup- staðanna komi í góðar þarfir. Hitaveitan. Þá skal að lokum aðeins minnzt á það fyrirtækið, sem allra einstæðast verður að telja af öllum viðfangsefnum ís- lenzkra sveitarfélaga fyrr og síðar og sem jafnframt er hið stærsta þeirra og dýrasta. Það er hitaveitan í Reykjavík. Alger ógerningur er að spá nokkru um hvílíkri gerbyltingu það fyrirtæki veldur hér sunnan- lands sérstaklega, og nú þegar er farið að athuga möguleik- ana á notkun jarðhitans víðar. Er það enn ein af mörgum sönnunum þess, hvernig það einmitt eru sveitarfélögin, sem ryðja brautina til vaxandi sam- starfs til almenningsheilla og framfara. IV. Fjármál sveitarfélaganna. Það mun vart teljast viðeig- andi, að ekki sé fám orðum minnzt á fjármál sveitarfélag- anna, áður en línum þessum lýkur. En ætti að ræða þau að ráði, mundi til þess þurfa langa grein, svo hér verður að stikla á stóru. Allt frá upphafi hafa sveitar- félögunum verið ætlaðar frem- ur takmarkaðar tckjur til starl'- semi sinnar. I fvrstu höfðu þau heldur vart nema einu máli að sinna, sem hein útgjöld hafði i för með sér, fátækraframfærsl- unni, og enn er ]>að svo, að sá liður er stærsti útgjaldaliður jjeirra flestra. Með vaxandi skilningi á því, hversu mikilvægt, ])jóðfélags- legt hlutverk sveitarfélögin inna af hendi, hefir þetta þó n.okkuð breytzt, sérstaklega bin síðustu' árin. Ennþá er þó aðal- tekjustofn allra sveitarfélaga aðeins cinn, þ. e. beinu skattur á tekjur manna og eignir út- svörin illræmdu. Með þeim verða sveitarfélögin að starfa, og þeim verður þó að stilla í hóf, ef ekki á ver að fara fyrir þeim, sem skattabyrðina bera, og þar með sveitarfélaginu sjálfu. Ctsvörin hafa alltaf verið að vaxa að krónutölu og munu hafa verið s.l. ár um 100 millj- ónir króna á öllu landinu, ])ó fullnaðar skýrslur liggi ekki fyrir um það enn. Er slíkt mik- ið fé, enda hafa þau margt að borga. Fram til 1929 mátti telja fjár- hag sveitarfélaganna fremur góðan víðast hvar. En í „krepp- unni“ frá 1929- 1936 hrakaði fjárhag sveitarfélaganna stór- lega og á þau hlóðust miklar skuldir. Aðaltekjustofninn litsvörin brást þá ár eftir ár, enda urðu þá fram að fara eins- konar gjaldþrotaskipti bjá mörgum sveitarfélögum og öðrum varð að veita stórlán með ríkisábyrgð til þess að þeim yrði ekki gcngið fyrir van- skil. Var þetta gert með svo- nef ndum „Kreppulánas j óði bæjar- og sveitarfélaga“ og var- ið um 3 milljónum króna til þessara fyrirgreiðslna. Mörg sveit'arfélög voru þá algerlega gjaldþrota á venjulegan mæli- kvarða. En eftir 1937—38 fór nokkuð að rofa íil, en þó breyttist ekki til verulegs batnaðar fyrr en 1940 og hefir siðan orðið gjör- breyting á hjá nálega öllum sveitarfélögum landsins. Sum, sem áður voru á heljarþröm, eru nú stórauðug á okkar mæli- kvarða, og öll hafa þau bætt hag sinn verulega, eftir því sem séð verður. Ilin mikla atvinna og bætt afkoma allra stétta hefir auk þess orðið til þess, að lækka fá- tækraframfærsluna til muna, en hún var og er þyngsta fjár- hagsbyrði sveitarfélaganna. — Fjölmörg sveitarfélög hafa auk ])ess fengið nýja tekjustofna, — s. s. fasteignaskatt — og fyrirtæki sveitarfélaganna hafa skilað arði mörg hver, sem áð- ur ýmist börðust í bökkum eða voru rekin með tapi, sem þá lenti á sveitarsjóði. Nú, við tímamótin í Islands- sögunni, er fjárhagur flestra sveitarfélaga á Islandi betri en hann hefir nokkuru sinni áður verið í sögu þjóðarinnar. V. Gömlu sveitarfélögin. Hér hefir þá verið gefið noklc- urt yfirlit um þróunarsögu ís- lenzkra sveitarmálefna. Þetta litía yfirlit sýnir glögglega hver Norðfjörður.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.