Vísir - 17.06.1944, Síða 88

Vísir - 17.06.1944, Síða 88
88 VÍSIR — Þ J ÓÐHÁTÍÐ ARBLAÐ Dr, Björn Björnsson; Kaupstaðir á Islandi. Upphaf þeirra og þróun. Eftir að íslenzka þjóðin öðl- aðist aftur sjálfsforræði, hefir þróun atvinnulífsins i landinu verið örari og stórstígari að til- tölu en dæmi munu til annars- staðar á jafn skömmum tíma. Á þeim tíma hafa atvinnuveg- irnir breytzt úr einhæfri frum- framleiðslu landbúnaðar og sjávarafurða i fjölþætt við- skiptalíf. Samfara þeirri þróun hefir orðið gjörbreyting á byggða- háttum landsins. Áður höfðu ná- lega allir landsmenn lifað í dreifðum byggðum sveitanna. Nú risu víðsvegar upp bæir, sem tóku ört að vaxa, og eru enn flestir í hröðum vexti. ★ Um leið og verzlunin hér á landi var gefin frjáls við alla þegna Danakonungs með kon- ungsúrskurði, 18. ág. 1786, var 6 verzlunarstöðum veitt kaup- staðaréttindi: Reykjavik, Vest- mannaeyjum, Eskifirði, Eyja- firði (Akureyri), Skutuls- eða Isafirði og Grundarfirði. Með konungsúrskurði þessum, svo og tilskipun um fríheit kaup- staðanna á Islandi frá 17. nóv. 1786 og tilskipun úm íslenzka verzlun og siglingar frá 18. júní 1787, var þeim, er setjast vildu að i kaupstöðunum til að reka þar nytsaman atvinnuveg, eink- um þó faglærðum iðnaðarmönn- um,. heitið ýmsum fríðindum. Tilgangurinn með þessum vel meintu fyrirmælum og öðrum opinberum ráðstöfunum varð- andi verzlun, siglingar og fiski- veiðar á Islandi frá þeim tím- um, var að reisa atvinnuvegina úr rústum og koma á fót blóm- legu, fjölþættu atvinnulífi í landinu. Árangurinn varð þó miklu minni en til var ætlast. Orsökin var sú, að ennþá vant- aði hin innri skilyrði fyrir þeirri þróun, sem stefnt var að með þessari opinberu viðleitni. Með opnu bréfi „innihaldandi nákvæmari ákvarðanir með til- liti til tilskipananna um þá is- lenzku kauphöndlun og skipa- ferðir“ frá 28. des. 1836, voru allir kaupstaðirnir, nema Reykjavík, aftur Iagðir niður. Framvegis skyldi ekki gerður greinarmunur á þeim og öðrum viðurkenndum verzlunarstöð- um. Hélst sú skipan fram yfir 1860. Akureyri var aftur veitt kaupstaðarréttindi með tilskip- un frá 29. ágúst 1862.og Isa- firði („þar með talin öll Skut- ulsfjarðareyri og prestssetrið, sem á eyrinni stendur“) með til- skipun frá 26. janúar 1866. Odd- eyri var með auglýsingu 12. maí 1866 lögð undir kaupstaðinn Akureyri. Fjórði kaupstaðurinn bættist svo í hópinn á síðasta áratug aldarinnar. Með lögum nr. 15, 8. maí 1894, sem gengu í gildi 1. janúar 1895, var Seyð- isfirði veitt kaupstaðarréttindi. Það, sem af er þessari öld, hefir fimm verzlunarstöðum verið veitt kaupstaðarréttindi, Hafnarfirði með I. nr. 75, 22. nóv. 1907, Vestmannaeyjum með 1. nr. 26 og Siglufirði með 1. nr. 30, 22. nóv. 1918, Nes- kaupstað með I. nr. 48, 7. maí 1928 og loks Akranesi með 1. nr. 45, 27. júní 1941. Kaupstað- irnir eru því nú alls níu að tölu. Ibúatala þeirra var í árslok 1942 (nýrri tölur liggja enn ekki fyrir) 63,5 þús., eða 51,2% af allri þjóðinni. ★ Á dögum einveldisins var það trú manna, að föðurleg forsjón einvaldans yrði að leiða, styðja og styrkja allar framkvæmdir. Með flóknum og þunglamaleg- um konunglegum tilskipunum átti að skapa ný viðhorf í at- vinnulífinu og beina þróun þess inn á nýjar brautir. 1 lagafyrirmælum ]>eim, sem minnst hefir verið á hér að framan, kemur greinilega í ljós, að kaupstaðirnir, bæirnir, þyrftu og ættu að vera grundvöllur þeirrar nýskipunar atvinnulífs- ins, sem keppt skyldi að. Er- lendis höfðu bæirnir orðið mið- stöðvar verzlunar og iðnaðar, eða hins fjölþætta atvinnulífs, sem byggðist á félagslegri verkaskiptingu og viðskiptum. Hér á landi vantaði enn öll skilyrði fyrir bæjarlífi, sem byggist á félagslegri verkaskipl- ingu. Sjálfstæð iðnaðarstarf-. semi, sem framleiðir vörur fyrir innlendan markað, getur fyrst risið upp er samþjappaður mark- aður með tiltölulega fjölmenn- um viðskiptavinum hefir mynd- azt. Á meðan fiskveiðarnar voru nálega eingöngu reknar með opnum róðrarbátum hlaut sjáv- arútvegurinn að vera dreifður í smáverstöðvum. Bátarnir voru mjög staðbundnir, og algerlega háðir grunnmiðum. Sjávarút-, veginn var því ekki hægt að reka nema í smáum stíl á hverj- um stað, og hann var næsta ó- tryggur atvinnuvegur á þessu stigi veiðitækninnar. Þeir, sem við sjóinn bjuggu, þurftu að kosta kapps um að styðjast öðr- um þræði við landbúnað, og sveitabændur sóttvi til sjófanga í verstöðvarnar á vertíðum. Greinileg félagsleg verkaskipt- ing og stéttagréining á milli sjávarútvegs og landbúnaðar gat enn sem komið var ekki komist á, og iðnaðarstarfsemin hélt áfram að vera heimilisiðn- aður dreifbýlisins. Það er ekki fyrr en þilskip til fiskveiða komu að ráði til sög- unnar og ný veiðitækni var upp tekin i sjávarútveginum, að grundvöllur fyrir bæjarlíf, sam- fara félagslegri verkaskiptingu og sjálfstæðri stéttagreiningu skapaðist hér á landi. Skilyrði fyrir því, að sú nýskipun þjóð- lífsins gæti hafizt, og náð fram að ganga, var og að landsmenn fengju löggjafar- og f járveiting- arvaldið í sínar hendur og inn- lenda framkvæmdarstjórn. Árið 1874 og 1904 eru því einhverjir þýðingarmestu áfangarnir í við- reisnarbaráttu þjóðarinnar. Ávöxlur hins aukna sjálfsfor- ræðis kom brátt í ljós: Bættar samgöngur, vegir, brýr, vitar, hafnarbætur, talsími og ritsími; lánstofnanir, bankar og spari- sjóðir; menningarstofnanir, skólar og söfn; félagssamtök til eflingar andlegu lífi og efna- hagslífi þjóðarinnar o. s. frv. Hin langvarandi hnignun þjóð- lífsins á einokunartímunum og kyrrstaðan, sem fylgdi i kjölfar þeirra, þrátt fyrir margháttaða umbótayiðleitni, sem byggðist á ólífrænu valdboði hinna erlendu yfirboðara, snerist nú upp í öra framþróun. Sú framþróun hefir brotið sér sjálfkrafa braut sam- kvæmt eðlilegum lögmálvun, sem leituðu sér jafnvægis í hinu fámenna þjóðfélagi. Misræmd átök pólitiskra sérhagsmuna hafa að sönnu truflað þessa þróun nokkuð, en í meginatrið- um hefir hún verið stöðug. Höf- uðeinkenni hennar er einmitt hinn mikli og öri vöxtur bæj- anna. Eftirfarandi yfirlit sýnir íbúa- töluna í kaupstöðunum 1904, 1918 og 1942, og hvernig hún hefir breytzt á því tímabili. Kaupstaðir > 1 Öðlast kaupst.rétt ffaúatalan Af íb. landsins °/0 19U4 1918 1942 1904 1918 1942 Reykjavík . . . %- -1786 8304 15328 40902 10,5 16,7 33,0 Akureyri ..... 2%- -1862 1514 2221 5644 1,9 2,4 4,6 tsafjörður .... 2%- -1866 1310 1778 2897 1,7 1,9 2,3 Seyðisfjörðúr -1895 654 885 850 0,8 1,0 0,7 Hafnarfjörður y«- -1908 1076 1887 3873 M| 2,1 3,1 Vestmannaeyj. y- -1919 452 1788 3513 0,6 1,9 2,8 Siglufjörður .. 2%- -1919 198 924 2790 0,3 1,0 2,2 Neskaupstaður %- -1929 192 737 1082 0,2 0,8 0,9 Akranes -1942 732 897 1929 0,9 1,0 1,6 Samtals Allt landið . . . 14432 78802 26445 91912 63480 123979 18,3 28,8 51,2 Umdæmi bæjanna munu hafa breytzt eitthvað á tímabilinu, en þó ekki til verulegra muna. Skildingancs var t. d. innlimað í Reykjavík frá 1. jan. 1932, með 630 íbúum, en þorpið hafði að- allega byggzt frá Reykjavík á undanförnum árum. Breyttu -tölurnar sýna. íbúatölu bæjanna áður en þeir fengu kaupstaðar- réttindi. Yíirlitið sýnir glögglega, að hér á landi eru að myndast, og hafa þegar myndazt, ákveðin at- hafnasvæði, sem draga að sér æ fleiri af íbúum landsins, og þungamiðja þeirra er Suðvestur- landið. I fjórum kaupstaðanna, Reykjavík, Hafnarfirði, Akra- nesi og Vestmannaeyjum, búa nú meir en tveir af hverjum fimm landsmanna, og í höfuð- staðnum einum rösklega einn af hverjum þremur. I þessum hæjum hefir íbúatalan nær fimmfaldazt á tímabilinu frá
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.