Morgunblaðið - 26.06.1930, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.06.1930, Blaðsíða 18
ooooooooooo< oooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo oooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo LandsímastOSin á Akureyri. Landslmaslöðin l Seyðisfirði. Landslmastöðin l tsaflrði. Landsímastöðin á Borðeyri. Landslmastöðln i Hafnarfirði. hefði ekki verið, mundum vjer áreiðanlega hafa verið framar í röðinni. Þrátt fyrir það skip- um vjer á þessu sviði allveglegan sess meðal menningarþjóðanna, eins og sjá má á eftirfarandi skýrslu: Talsímar á 100 íbúa Bandaríkin ....... . Kanada ........... . Danmörk......... Nýja Sjáland........ . Svíþjóð ............. Noregur ............ Ástralía ............ Sviss ........... Á. ísland .............. Þýskaland .. ........ Bretland . . . ...... Holland ............. Finnland ............ Austurríki .......... Belgía .............. Frakkland ........... Ungverjaland......... Tjekkoslovakía ...... 14.2 11.6 9.0 8.8 7.0 6.2 5.5 4.9 4.3 3.9 3.0 3.0 2.5 2.3 1.8 1.8 1.1 1.0 Að ári komanda verður bætt úr símaskortinum, því að þá verður komin upp hin nýja land- símabygging, sem nú er verið að reisa við Austurvöll (Thorvald- senstræti). Þar verður sett upp hin nýja sjálfvirka miðstöð, sem keypt hefir verið af A/B L. M. Ericsson í Stokkhólmi. Er hún gerð fyrir 4000 símanotendur, en þó má fjölga númerum smám saman, eftir því sem þörf kref- ur, og um meira en helming. — Önnur sjálfvirk miðstöð verður einnig sett í Hafnarfirði og næg- ir hún fyrir 900 símanotendur ef vill. Þegar þessar miðstöðv- ar eru komnar mun símanotend- um brátt fjölga stórkostlega. Nú sem stendur eru 344 talsíma- stöðvar í landinu, og 4500 einka- símar, eða 4.3 símar á hverja 100 íbúa. Af endurbótum sem gerðar voru á símanum síðastliðið ár, má nefna, að ritsímastöðin í Reykjavík, hefir fengið sjer Creed-móttökuvjelar. Munurinn á þeim og móttökuvjelum þeim, sem til þessa hafa verið notaðar, er sá, að í staðinn fyrir að skrifa á pappírsband hvern staf með punktum og strykum (Morse-stafróf), skrifa þessar nýju vjelar venjulega bókstafi og skipa þeim í orð. Þarf því ekki annað en klippa pappírs- lengjuna sundur og líma bútana á skeytaeyðublöð. Áður þurfti að afskrifa hvert skeyti til þess að viðtakendur, sem ekki kunna Morse-stafróf, gæti lesið það. Önnur endurbót er það, að fjölsímatæki hafa verið fengin og með þeirra hjálp er hægt að hafa tvö sambönd samtímis á einni símalínu, í stað þess að ekki var hægt að hafa nema eitt samband áður. Fyrstu 3 árin var dálítill halli á rekstri hans, en síðan hefir altaf verið beinn ágóði af honum, minstur 5% árið 1909, en mestur 14.6% árið 1924. Sein- ustu 3 árin hefir hinn beini ágóði orðið um 10%. En þessar tölur eru enginn mælikvarði á það stórkostlega gagn sem síminn gerir öllum atvinnugreinum landsmanna óbeinlínis, því að það verður aldrei tölum talið. Hitt er víst, að síminn hefir orð- ið lyftistöng allra framfara lner á landi seinasta aldarfjórðung- inn. Á eftirfarandi línuriti má sjá samanburð á tekjum og gjöldum Landsímans frá upphafi. Sýnir það betur en mörg orð vöxt og viðgang símans. Landsíminn er nú ovðinn stærsta ríkisfyrirtæki á íslandi. Þar eru nú 180 fastir starfs- menn, auk 327 stöðvarstjóra á smástöðvum út um land. Loftskeytastöðvar. Þegar það hafði verið afráðið, að koma Islandi í skeytasamband við umheiminn, risu þegar deil- ur um það hvort heldur skyldi velja síma eða loftskeyti. Og sumarið 1905 kom hingað verk- fræðingur frá Marconifjelaginu í London, W. Densham að nafni, og reisti bráðabirgða Ioftskeyta- stöð innan við Rauðará, þar sem nú er Hjeðinshöfði. Og 26. júní bárust fyrstu loftskeytin hingað frá Englandi. Ljetu blöðin „Isa- fold“ og „Fjallkonan“ prenta þau á fregnmiða og dreifa út um allan bæ. „Og ös var lið- langan daginn í afgreiðslustofum blaðanna af fólki, utan bæjar og innan, sem þurfti að ná í fregnmiðana........Allir fundu að hjer hafði gerst hinn sögu- legasti atburður, sem dæmi eru til á þessu landi margar aldir. ......Hólmanum alt í einu kipt fast að hlið heimsins höfuðbóli, hinni frægustu bygð og blómleg- ustu á öllum hnettinum. Fagn- andi kvöddust þeir, sem hittust á strætum og gatnamótum, ó- kunnugir sem kunnugir" (Isa- fold, 1. júlí 1905). Stjórnarblöðin gerðu fremur lítið úr skeytunum og loftsam- bandinu og komust hinar fárán- legustu sögur á loft um það. Til dæmis var sagt, að einu loft- skeytinu, sem fara átti til stöðv- arinnar hjá Rauðará, hefði sleg- ið niður upp á Mýrum og legið við að það dræpi þar mann. Deilurnar um ritsíma og loft- skeytastöðvar urðu afar svæsn- ar, en þeim lauk svo að Hannes Hafstein hafði sitt fram og Stóra norræna tók að sjer að leggja sæsíma til íslands. Loftskeyta- stöðin hjá Rauðará starfaði þó fram á haust 1906, en þá var hún tekin niður. Síðan var ekki minst á loftskeyti fyr en á Al- þingi 1911, að rætt var um að koma á loftskeytasambandi milli Vestmannaeyja og lands, en það fjell um sjálft sig. Seinna fór franska stjórnin eða franskt fje- lag fram á það að fá að reisa hjer loftskeytastöð vegna þess, I Landsimastöðúf i Siglufirði. Landsímastöðin i Vestmannaeyjum. Landsimastöðin i Stykkishólmi. Loftskeytastöðin l Reykjavik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.