Morgunblaðið - 25.01.1955, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 25. jan. 1955
Framh. af bls. 6
menningu sinni mundi frelsa
hana frá slíku. Því vill sú þjóð
oft sanna sitt eigið gildi með því
að kúga aðra. Þjóðernisstefnan,
lýðskrumið, ljær hrifningu þá, er
þeim tekst að vekja, einmiít af
þeirri orku, sem ekki var nýtt til
að finna fótfestu í eigin menn-
ingu.“
★ MANNÚÐLEGUR SKII.N-
INGUR — SIÐFERÐILEG
SXOÐ
Vegna þessara sjónarmiða
berst Bukdal gegn öllum fordóm-
um, sem gömul dönsk valdastefna
hefir greipt í danskt hugarfar.
Hann vill, að öll óleyst vandamál
frá árum valdastefnunnar séu
leyst á Norðurlöndum á grund-
velli mannúðlegs skilnings, svo
að Norðurlönd geti orðið siðferði
leg stoð í deilunni um Suður-
Slésvík. En ef ekki tekst að leysa
ágreining Norðurlandanna á milli
vegna ólíkrar valdaaðstöðu þjóð-
anna, þá verður falskur hljómur
í öllum þeim ásökunum, er við
beinum gegn Þjóðverjum í Suð-
ur-Slésvík, segir hann. Og hjá-
róma þjóðernislýðskrum getur
ekki hjálpað Suður-Slésvíkur-
búum. Ekkert getur hjálpað þeim
nema þjóðarbylting í landi þar
sem þjóðræknisleg stefna ríkis-
ins hefir stirnað í gömlum for-
dómum, bylting sem breytir
almúganum í þjóð.
En þegar svo voldug raust
hljómar — líka okkar vegna —
í handritamálinu — hversu mikið
hugsum við þá um vandamál
Surður-Slésvíkur. Þar er dönsk
þjóð, sem vegna langvarandi
undanhalds, hefir misst mikið af
sínu danska ívafi, en sem samt
þráir stöðugt danska menningu?
Ég veit, að íslenzka þjóðin gladd-
ist einlæglega, þegar Danmörk
hlaut aftur frelsi sitt 1945. Gam-
all ágreiningur gat ekki hindrað
hindrað þróttmikla samheldni í
því brimróti, í vopnabraki styrj-
aldarinnar. En getum við fært út
mörk þessarar samkenndar svo,
að við finnum til ofurlítils skiln-
ings gagnvart þjóðarbrotinu í
Suður-SIésvík, sem þráir að
þroska þjóðerniskennd sína i
samræmi við afstöðu Norðurland
anna til þess jafnréttis, er allir
menn eiga rétt á? Ég veit ekki.
Það hefir reynzt Dönum heima
fyrir örðugt, og hversvegna ætti
það þá ekki að vera örðugt fyrir
okkur íslendinga líka. En eitt er
víst, að í þeim mæli sem skiln-
ingur gagnvart ísland.i vex hjá
Dönum í handritamálinu, verð-
um við að vera fær um að skilja
hið þjóðlega landnám í Suður-
Slésvík. Við þekkjum okkar eigin
sögu. Nú stendur yfir lokaþáttur
erfiðra sátta milli þessara tveggja
þjóða. Ef til vill hefir það gert
mönnum lífið auðveldara. „En
mannkynið verður að halda
áfram í átt til aftureldingar og
ljóss.“
Og einmitt með því að líta í
sögu annarra þjóða, sem enn eru
undirokaðar, missir nútíðin sinn
tilviljanakennda og þýðingar-
lausa blæ og verður óhjákvæmi-
leg nauðsyn. Lausn deilunnar í
Suður-SIésvík er alveg eins og
handritamálið nauðsyn Norður-
landa nú í dag. Og nauðsyn Suð-
ur-Slésvíkur mun verða útkljáð
með sameiningu Norðurlanda í
því að vekja skilning Þjóðverj-
anna á, að einmitt viðurkenning
á jafnrétti jafnvel minnstu
þjóðarbrota til jafns við stór-
veldin, er einasti haldgóði grund-
völlurinn fyrir samvinnu í
Evrópu.
Bjarni M. Gíslason.
Magnús Thorlacius
hæstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
ASalstræti 9. — Sími 1875.
INNRÖMMUN
Tilbúnir rammar.
SKILTAGERÐIN
Skólavörðustíg 8
«*n
Sólarkaffi
Þriðjudagur.
F. I. H.
Þriðjudagur.
ísfirðingafélagsins er í kvöld í Sjálfstæðishúsinu
klukkan 8,30.
STANGAVEIÐIFÉLAG REYKJAVÍKUR
DANSLEIKUR
í ÞÓRSCAFÉ í KVÖLD KL. 9.
K. K. SEXTETTINN leikur frá kl. 9—11.
Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar leikur frá kl. 11—1.
STra ÁRSHÁTÍÐ
Stangaveiðifélags Reykjavikur
verður haldin laugardaginn 5. febrúar n. k. í Sjálfstæðis-
húsinu og hefst með borðhaldi kl. 6,30 síðdegis.
Áskriftalistar liggja frammi fyrir félagsmenn í Verzl.
Veiðimaðurinn, Lækjartorgi, og hjá Hans Petersen,
Bankastræti. — Félagsmenn eru beðnir að tilkynna
þátttöku sína fyrir 1. næsta mánaðar.
STJÓRNIN
Þriðjudagur.
F. I. H.
Þriðjudagur.
FELAGSVIST
í kvöld kl. 8,30.
CÖMLU DANSARNIR kl. 10,30
HLJÓMSVEIT Svavars Gests.
= Aðgöngumiðasala frá kl. 8.
iiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini’iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimiiimiiiiiiiiiiimiiiniinn
Nauðungaruppboð
sem fram átti að fara í dag á hluta í Ránargötu 11, þingl.
eign Lilju Jónsdóttur o. fl., fellur niður.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
HÚNVETNINCAFÉLACIÐ
heldur spila- og skemmtikvöld í Tjarnar-
café (uppi), fimmtud. 27. þ. m. kl. 8.30.
Skemmtiatriði:
Stutt kvikmynd — Félagsvist.
Já eða nei? —- Annaðhvort eða?
Skemmtinefndin.
N ý
De Soto
fólksbifreið til sölu. — Upplýsingar í síma 80388
klukkan 4—7 í dag.
IBUÐIR TIL SOLIi
2ja herbergja íbúð í Hlíðahverfinu, ásamt herbergi í
risi. — Laus til íbúðar 14. maí n. k.
3ja herbergja kjallaraíbúð við Lynghaga. íbúðin er
fullgerð að utan, en að innan er hún múrhúðuð og með
miðstöð. — Allar nánari upplýsingar gefur
málflutningsskrifstofa Gústafs Ólafssonar, Aust-
urstræti 17, sími 3354.
SjálfstæðisféBag
Kópavogshrepps
SPILAKVÖLD
halda Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi í Tjarn-
arcafé, uppi, þriðjudaginn 25 janúar 1955,
klukkan 8,30 e. h.
EINSÖNGUR — TVÍSÖNGUR
DANS
Strætisvagn flytur fólk heim að skemmtun lokinni
Fjölmennið stundvíslega
Skemmtinefndirnar.
íbúðir til sölu
2ja og 3ja herbergja íbúðir í nýju húsi á hitaveitusvæðmu
við Miðbæinn. — Hagstæðir greiðsluskilmálar á áhvíl-
andi lánum.
ALMENNÁ FASTEIGNASALÁN
Austurstræti 12 — Sími 7324
Húsmæðraskóiinn á Hallormsstaií
mun halda námskeið í saumum og vefnaði er hefjast 1.
marz og námskeið í matreiðslu og garðyrkju er hefjast
1. apríl. — Umsóknir sendist forstöðukonu fyrir miðjan
febrúar.
Ásdís Sveinsdóttir.
M A R K ÍJ S Eftir Ed Dodd
pr
AH HA, MAP"
LA CROlX...C
DEM V
(T.AK.D MAVBE I BE IM TÍME POB
■DB COMING OF DE LEETLE ONE f
HAVE
1) — Jæja, Markús. Nú gengur
það glatt....
2) .... og bráðum verðum við tímanlega áður en barnið okkar
komin heim. Líklega komum við f fæðist. t w
3) Á meðan:
— Þetta lítur illa út. Er nóg
af heitu vatni.
— Já, ég hef allt til reiðu.
til
IIIIIIUilllU