Morgunblaðið - 14.11.1958, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.11.1958, Blaðsíða 2
2 M O R C r N B L 4 Ð 1 Ð Posfudagur 14. nóv. 1958 Mistök á báða bóga AMMAN, 13. nóv. Reuter. — Það er haft eftir góðum heimildum i Amman, að Jórdaníustjórn muni ekki fara með árásarkæru sína á hendur Arabíska sambandslýð- veldinu fyrir Öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna. Skömmu eftir að einkaflugvél Husseins Jórdaníukonungs hafði verið stöðvuð yfir Sýrlandi, tii- kynnti forsætisráðherra Jórd- aníu, Samir Rifai, á skyndifundi þingsins, að Jórdaníustjórn mundi standa fast á kæru sinni. Síðan hefur rannsókn leitt í ljós skyssu í áætlun jórdönsku flug- stjórnarinnar. Flugvél konungs var send inn yfir Sýrland í góðri trú án tilskilins leyfis. Flug- Vörður laganna drukkinn við stýrið YFIRLÖGREGLUÞJÓNN í Óð- insvéum £ Danmörku lenti í slæmu klandri um síðustu helgi. Hann var á heimleið úr veizlu í bíl sínum, er nokkrir starfs- bræður sáu til ferða bílsins og þótti sem honum væri ekið nokkuð skrykkjótt og ógætilega. Þeir stöðvuðu því för yfirlög- regluþjónsins, og við blóðrann- sókn kom í ljós, að þessi vörður laganna var lítið eitt undir áhrif- um áfengis. — Hann var sviptur ökuleyfi, en sennilega er þó meira í húfi, því að öllum lík- indum mun hann einnig verða látinn víkja úr stöðu sinni. stjórnin í Jórdaníu fylgdi hinum venjulegu alþjóðareglum um millilandaflug áður en lagt var upp. Það sannaði að hún ieyfði flugið í góðri trú. Skriffinnsku kennt um Sömu heimildir herma að skrif finnskan í Sýrlandi hafi orðið þess valdandi að tvær orrustu- þotur voru sendar í veg fyrir flugvél Husseins, sem var á leið til Sviss. Hussein neitaði að hlýða skip- unum um að lenda í Sýrlandi og flaug rakleitt til Amman aítur, þar sem hann lýsti því yfir að hann mundi ekki taka sér frí í bráðina. Afsökunartónn Menn hafa veitt því eftirtekt, að útvarpssendingar frá Kaíró og Damaskus eru nú mun kurteis- legri, og ekki laust við afsökunar- tón í þeim. Helzta vandamálið virðist nú vera það að finna lausn sem allir geti unað við án þess að „týna andlitinu“. Ein lausn gæti verið að leyfa Zein drottningu, móður Husseins, að fljúga yfir Sýrland, þegar hún fer heim til Jórdaníu frá Sviss. Það er einkum Pier Spinelli, full- trúi Hammarskjölds í Amman, sem vinnur að lausn málsins. Ekki kært ewnþá Hussein hefur unmð með 'Spin- elli að því að safna öUum stað- reyndum í sambandi við atvikið og róa Jórdaníustjórn. Emi hefur málið ekki verið kært fyrir Ör- yggisráðinu, en stjórnin í Jór- daníu hefur gefið Spinelli skýrslu um málsatvik. Svíar byggja fullkomn- asta flugvöll Norðurl. Og nýtízku bílabrauf mun tengja hann við borgina BÆJARYFIRVÖLDIN í Stokkhólmi hafa um langt skeið verið að velta vöngum yfir því, hvar staðsetja ætti í nágrenni borgarinnar full- kominn nýtízku flugvöll, sem sé nógu stór fyrir síðustu og stærstu farþegaþoturnar. Nú hefur staðurinn verið á- kveðinn í Arlanda, einu út- hverfi Stokkhólms og er ekk- ert verið að tvínóna við framkvæmdir. Þegar er byrj- að að leggja fyrstu flugbraut- ina, sem verður 2500 metrar, en seinna lengd í 3300 metra. Verkinu á að vera lokið síðla árs 1959. Arlanda flugvöllurinn verður 40 km frá miðbiki Stokkhólms. Fjarlægðin sakar þó ekki svo mjög mikið, því að ætlunin er að leggja mjög fullkomna bíla- braut milli flugvallarins og borgarinnar, svo að vegalengdin verður farin í einum skothvelli. Það er álitið mikið verk að jafna jörðina undir þennan full- komna flugvöll. Til dæmis er það ljóst, að sprengja verður mikið magn af hörðu graníti, til að fá flugvöllinn sléttan. Áætlað er að sprengja þurfi og flytja burt 450 þúsund rúmmetra af bjargi. Síðan verður að fylla upp í dæld- ir og lægðir með um milljón rúm- metrum af möL Við flugvallargerðina munu aðeins starfa um 300 manns, en þeir hafa í höndum fullkomnustu vélar og verkfæri, sem hægt er að hugsa sér. Verðmæti vélanna sem notaðar eru mun nema um 15 milljón sænskum krónum. Arlanda-flugvöllurmn mun kosta uppkominn um 230 milljón sænskar krónur. En ofsafín og fullkomin bílabraut milM flugvallarins og borgar- innar á að kosta 70 milljón sænskar krónur. Það er álit manna að bílabrautin sé einn þýðingarmesti þáttur flugvall- argerðarinnar, án hennar væri þýðingarlítið að byggja flug- völlinn í svo mikilli fjarlægð frá borginni. í bandarískri kennslubók í flugi stendur þessi setning: „Engin tunga á orð, sem hægt sé að nota þeim flugmanni til afsökunar, sem verður uppi skroppa með benzín meðan á flugi stendur“. — Þessa setningu hefur flugmaður koptans á myndinni sýnilega ekki skilið, því rétt áður en hann átti að lenda var benzínið búið Þar sem hann va r staddui yfir skóglendi átti hann ekki annars úrkosta en lenda á akbraut sem lá gegnum skóginn. Þar stóð svo koptinn í vegi fyrir umferðinni þangað til búið var að ná í benzín á næsta flugveili. Réttur vesturveldanna byggisf ekki á Potsdam- samþykkt- mm Washington og Berlín, 13. nóv. NTB-AFP. BANDARÍKJASTJÓRN lýsti því yfir í kvöld, að réttur Vestur- veldanna til að hafa herstyrk í Berlín og réttur þeirra til að fara til og frá borginni væri ekki byggður á Potsdam-samþykkt- inni frá 1. ágúst 1945, heldur hafi hann verið staðfestur í f jölmörg- um fjórveldasamningum, cnda sé hann grundvöllur þeirrar stefnu sem rekin hafi verið síðan til- raun Rússa til að loka Berlin árið 1948 fór út um þúfur. í yfirlýsingunni sem birt var Afgreiðslubann á skip undir ,fö!skum4 flöggum HAMBORG, 13- nóv. — Reuter. — Fulltrúafundur Alþjóðasam- bands flutningaverkamanna hófst í Hamborg í dag. Fyrir fundinum liggur tillaga frá sam bandsstjórninni um að hefja bar- áttu gegn þeim útgerðarfélögum sem láta skrásetja skip sin í Panama, Honduras, Costa Rica og Líberíu til þess eins að kom- ast hjá því að ráða áhafnir í sam ræmi við samninga þá, sem sjó- mannasamtök í heimalöndum út- gerðarfélaganna hafa gert við út- gerðarmenn. Er í ráði að hafnarverkamenn, bifreiðastjórar og aðrir sem eru AKRANESI, 13. nóv. — Sigurð- ur Ammundsson, verkamaður, var í dag að setja jámhring á innri brún hafnargarðsins. Missti hann þá armbandsúr sitt, þúsund króna virði, niður um gatið sem hringurinn er boltaður í. Lásinn á armbandinu hafði bilað. Ligg- ur nú úrið á 8 m dýpi á botni bryggjukersins. — Oddur. STYKKISHÓLMI, 13. nóv. — Tíðarfarið hefir verið mjög ó- stillt undanfarið. Sl. nótt og í d.ag snjóaði, en síðdegis í dag var slydda. Hvassviðri var á í morg- un, en hefir lygnt með kvöldinu. Götumar eru blautar og hálar. — Fréttaritari. í félögum, er aðild eiga að Al- þjóðasambandinu, neiti að vinna við afgreiðslu skipa, sem skrá- sett eru í fyrrgreindum löndum eða öðrum sem líkt er ástatt með. Sænska útvarpið hefur það eft- ir fréttaritara sínum í Hamborg, að það sé ætlun sambandsstjórn- arinnar að afgreiðslubannið hefj- ist 15. desember nk. Fundinn í Hamborg sitja 60 fulltrúar frá 11 löndum. af bandaríska utanríkisráðuneyt- inu er á það minnt, að árið 1948 reyndu Sovétríkin að vefengja rétt Vesturveldanna til Berlínar, en urðu að láta undan. Stjórnmálafréttaritarar líta á þessa yfirlýsingu sem óbeina við- vörun til Sovétríkjanna um að reyna ekki að endurtaka skrípa- leikinn frá 1948. 600 flugvélar til taks Bandarískar heimildir í Bonn herma, að hingað til hafi þess ekki sézt nein merki, að Rússar hafi í hyggju að hefta ferðir Vesturveldanna til og frá Berlín. Allar samgöngur í lofti og á landi hafi farið fram með venjulegum hætti. Hins vegar eru Bandaríkin reiðubúin að byggja nýja „loft- brú“ til Berlínar, ef þess gerist þörf. 600 flutningaflugvélar cru reiðubúnar að hefja flutninga til borgarinnar hvenær sem er. Pervukin til Moskvu Rússneski sendiherrann í A- Berlín, Mikhail Pervukin, fór í kvöld áleiðis til Moskvu til að ráðgast við stjórn sína. Hann kemur aftur til Austur-Berlínar snemma í næstu viku. Talið er að för hans standi í sambandi við tillögu Krúsjeffs um endurskoð- un á Potsdam-samþykktinni. ★ París, 13. nóv. — (Reuter) — Búizt er við, að Fastaráð Atlants- hafsbandalagsins ræði titlögu Rússa, þess efnis, að afnumin Nefnd til að rannsaka nýtingu geimsins NEW YORK, 13. nóv. — Reuter. — Fulltrúar 20 ríkja hjá Samein- uðu þjóðunum fluttu í dag til- lögu þess efnis, að samiökin skipi nefnd til að rannsaka mögu leika á friðsamiegri hagnýtingu himingeimsins undir yfinumsjón Sameinuðu þjóðanna. Skuli þessi nefnd starfa með það fyrir aug- um að rannsóknir og hagnýting á þessu sviðí miðist við hag alis mannkynsins. Nefnd þessi skal flytja næsta Allsherjarþingi skýrslu um starf sitt og niðurstöður. M.a. skal hún athuga lögfræðileg vandamál í sambandi við geimsvæði. Níu manna nefnd? Henry Cabot Lodge aðalfulltrúi Bandarikjanna flutti tillöguna í stjórnmálanefndinni. Hann taldi í framsöguræðu sinni heppilegt að nefndin yrði skipuð níu mönn um, en í tillögunni er ekkí tekið fram hve margir skuli sitja í henni. Vildi hann að fulltrúar í nefndinni yrðu fyrst og fremst frá þeim ríkjum, sem hafa þegar gerzt brautryðjendur í geimrann sóknum eða hafa sýnt greinileg- an áhuga á málinu. verði hernámsstjórn fjórveldanna í Berlín, á sérstökum fundi snemma í næstu viku. Er þetta haft eftir heimildum, sem eru í nánum tengslum við NATO. Yfirlýsing Rússa var „athuguð" á fundi ráðsins í gær, en engar formlegar umræður urðu um hana. Kvenfélagið „Freyja 40 ára KVENFÉLAGIÐ „Freyja“ í Arn- arneshreppi í Eyjarfjarðarsýslu minntist 40 ára afmælis síns laug- ardaginn 8. nóv. sl. með fjöl- mennu samsæti að félagsheimili sveitarinnar „Freyjulundi“. Formaður félagsins, Ásrún Þór- hallsdóttir, Möðruvöllum, setti samkomuna og stjórnaði henni. Rakti hún og sögu félagsins frá upphafi og sagði frá stofnun þess og helztu starfsemi á liðnum ár- um. En félagið hefur látið til sín taka flest nytja- og nauðsynjamál sveitarinnar og stutt menningar- viðleitni ýmis lconar alla tíð. Það hefur t.d. mjög beitt sér fyrir líknar- og hjúkrunarstarfi og lagt ötult lið málefnum kirkju og skóla, glætt félagslíf sveitarinnar á ýmsan hát og komið upp mynd- arlegum trjáreit, svo eitthvað sé nefnt. í afmælishófinu voru þrjár kon ur gerðar að heiðursfélögum, og höfðu þær allar tekið þátt í stofn un félagsins, Þóra Stefánsdótt- ir, Hjalteyri, sem var formaður félagsins í 34 ár, Geirlaug Kon- ráðsdóttir frá Bragholti, sem var í stjórn þess yfir 20 ár, og Mar- grét Jónsdóttir frá Arnarnesi, nú í Reykjavík. En áður kjörnir heið ursfélagar voru Jóhanna Frið- riksdóttir, fyrrv. yfirljósmóðir, Reykjavík, fyrsti formaður félags ins, og Valgerður Davíðsdóttir á Hofi, nú látin. Tilkynnt var um gjafir til fé- Iagsins, frá Ungmennafélagi Möðruvallasóknar, fánastöng, og frá bændum I Arnarneshreppi, fundarhamar, auk peningagjafa. Samsætið fór vel og virðulega fram, öllum viðstöddum til mik- illar ánægju, og skemmtu menn sér við ræðuhöld, söng og dans lengi nætur. Núverandi stjóm kvenfélagsins „Freyju" skipa þessar konur: Ás- rún Þórhallsdóttir, formaður, Brynhildur Hermannsdóttir, ljós- móðir, Hofi, gjaldkeri, og Sig- ríður Magnúsdóttir, Björgum, ritari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.