Morgunblaðið - 14.11.1958, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.11.1958, Blaðsíða 12
12 MORainSTtLAÐlÐ Föstudagur 14. nóv. 1958 Ný bók: vísindi mmm Viðfangsefni þeirra og hagnýting. „En hvað er það þá, sem einkum verður eftirsótt í framtíðinni ? Það er þekkingin. Vísindaleg og tækni- leg þekking og menn sem kunna að beita henni. Auðug verður talin sú þjóð, sem á mörgum vel menntuðum vísindamönnum á að skipa en ekki hin þar sem gull og gimsteinar liggja í jörðu“. Próf. Þorbjöm Sigurgeirsson. | \ Höfundar: \ Davíð Davíðsson ■ \ Ernest Hovmöller | Hörður Bjarnason i Jón E. Vestdal 5 Ólafur Björnsson i Sigurbjörn Einarsson S Símon Jóh. Ágústsson \ Trausti Einarsson | i Vilhjálmur Þ. Gíslason ) ) Þorbjörn Sigurgeirsson i \ Þórður Eyjólfsson j j Þorkell Grímsson * Á öld vísinda og tækni eru engar bækur þarfari, en alþýðulegar greinargerðir um lifandi og hagnýtar fræði- greinar nútímans. Þetta er yfirgripsmesta yfirlitsritið um almenna þekk- ingu, sem til er á íslenzku. Þetta verður m.a. kjörbók íslenzkrar skólaæsku, sem er í þann veginn að velja sér lífsstarf. Hluðfaúð S krifs tofustúika Stúlka óskast til skrifstofustarfa, þarf að hafa gott vald á íslenzku og ensku. Vélritunarkunnátta nauð- synleg. Upplýsingar á auglýsingaskrifstofu Vik-' unnar Tjarnargötu 4 I. hæð milli kl. 5—7 1 dag. Efni: Tækni Eðlisfræði Læknisfræði Stjörnufræði Veðurfræði Byggingar Lögfræði Hagfræði Sálarfræði Guðfræði Fomleifafræði Sagnfræði DUGLEG STtJLKA ÓSKAST TIL Afgreiðslustarfa í Kjörbúð í Vogahverfl. Upplýsingar í skrifstofunni Skóiavörðustíg 12. Vetrarkápur í glæsilegu úirvali. Poplinkápur Peysufatakápur úr beztu fáanlegum efnum. Kápu- og dömubúðin Laugavegi 15. Jóhann J. E. Kúld, fiskvinnsluleiðbeinandi: Undirbúningur vetrarvertíðar Forspjall ÞEIR sem bezt hafa búið til lands og sjávar á íslandi frá öndverðu, það voru menn með mikla fyrir- hyggju. Menn sem undirbyggðu það af mikilli kostgæfni að geta notað álla þá möguleika sem ís- lenzk náttúra hafði upp á að bjóða hverju sinni. Það voru fyrst og fremst þessir eiginleikar, sem fleyttu þjóðirmi lifandi gegnum brim og boða fyrri alda. Það’ eru þessar fornu dyggðir, sem við megum hvorki vanmeta né vanrækja, ef við eigum að búa vel í þessu landi. Þessar dyggðir eru undirstaða efnalegs sjálfstæðis í nútíma þjóðfélagi, alveg á sama hátt og þær voru bjargvættur þjóðarinnar gegnum aldirnar. Vetrarvertíðin á Suður- og Vesturlandi hefur alla tíma ver- ið mjög gildur þáttur í þjóðar- búskapnum, og hafi þessi vertíð að einhverju leyti brugðist, þá hefur alltaf orðið þrengra fyrir dyrum en ella, í þessu landi, og svo er enn í dag, þrátt fyrir byltingu í tækjum og útbúnaði öllum til sjósóknar. Undirbúningsstörfin I. Nú þegar vertíðin fer að nálg- ast þá er nauðsynlegt, að tekið sé til starfa við alian undirbún- ing hennar, bæði í sjálfum ver- stöðvunum og þá ekki síður hjá þeim útvegsmönnum, er sendu báta sína um langa vegu í ver- stöðvar á Suður- og Vesturlandi, annars staðar frá af landinu. Ég veit að uppsetning nýrra veiðar- færa og endurbætur á notuðum veiðarfærum stendur nú yfir hjá útvegsmönnum, enda er sízt hætta á, að sá undirbúningur gleymist. En þegar farið er að tala um veiðarfæri, þá er margt sem við íslendingar eigum ólært, þrátt fyrir langa útgerðarsögu að baki. Og það sem okkur skortir helzt á í þeim efnum, er betri meðferð veiðarfæranna. Við þurf um að geta tileinkað okkur í rík- ara mæli en verið hefur, snyrti- mennsku, og hagsýni í allri með- ferð og nýtingu á veiðarfærum. í þeim efnum gætum við mikið lært af frændum okkar Norð- mönnum, sem standa þjóða fremstir á því sviði. Ég hef ekki fleiri orð um þessa hluti, því það er margur annar undirbúningur sem frekar gleymist fyrir vertíð heldur en veiðarfærin. II. Ég sný mér þá að sjálfum fiski bátunum, og þá fyrst og fremst að geymsluhæfni þeirra hvað við kemur aflanum. Sú sorglega staðreynd hefur átt sér stað á undanförnum árum, að fiskilest- ar og fiskiþilför sumra vertíðar- báta hafa verið í svo lélegu ásig- komulagi að það hefur valdið stórskemmdum á fiskinum. Sök- um trassaháttar, skorts á þrifnaði og góðu viðóhaldi á fiskiþilfari og fiskilest hefur slagvatnsger- illinn tekið sér bólfestu um borð í sumum fiskibátum, og valdið stórskaða á nýjum og ísvörðum fiski. Sum frystihúsin hafa orðið fyrir þungum búsifjum af þess- um sökum, því eitt af því versta sem fyrir getur komið, er það, ef slagvatnsskemmdur fiskur kem- ur á okkar freðfisksmarkaði. Það er korninn tími til, að við upp- rætum með öllu svona sóðaskap úr útgerð okkar íslendinga. Það veltur á miklu, að á þessu sviði séu ekki meiri vettlingatök við- höfð. Útvegsmenn og skipstjórar takið fiskilestina og fiskiþilfarið vel í gegn nú fyrir vertíðina. Hreinsið, þurrkið og málið fiski- lestina vel, með minnst tveimur umferðum af málningu eða lest- arlakki. Sé málning notuð verður hún að vera blönduð með lakki í síðari umferð. Þegar lestin er hreinsuð þá verður að gæta vel að hvergi leynist fúlt eða úldið vatn milli þilja. Taka verður upp lestarhólf báðumegin við kjalsog og hreinsa vel á milli banda, svo og kjalsog og svelg. Á síðustu vetrarvertíð kom slagvatns- skemmdur fiskur úr tveimur bátum sem mér er kunnugt, að rekja mátti til þilfars bátanna. Þarna höfðu slagvatnsgerlar búið um sig í illa hirtu tré, neðarlega á yfirbyggingunni yfir vélarhúsi. En bátarnir geymdu fisk að jafn- aði í göngunum báðum megin við vélarhúsið. Svona á ekki að geta komið fyrir nema vegna van- þekkingar og vanhirðu og er hvorugt afsakanlegt, í útgerð okkar. Útvegsmenn notið rimlafleka i fiskilest og á þilfari undir fisk- inum og hafið þá þannig úr garði gerða, að sjór geti runnið undir þeim, ekki aðeins fram og aftur, heldur líka til hliða. Öll skilrúmsborð sem notuð eru á þilfari, þurfa bæði og eiga, að vera máluð eða lakkborin svo tryggt sé að slor eða blóð úr fiskinum gangi ekki inn í viðinn. Ég vil eindregið ráðleggja öllum útvegsmönnum að fara nú þegar að hyggja að þessum hlutum ef þeir eru eltki þegar búnir að því. Þessi mál verða áreiðanlega tek- in fastari tökum nú í byrjun ver- tíðar, vegna þeirrar slæmu reynslu, sem ég hef bent á hér að framan, og tafir þá gætu orðið dýrar. Ýmsir gera vel og eru öðrum til fyrirmyndar í allri um- hirðu og búnaði fiskiskipa, enda er það svo að þessum mönnum Hið nýfa einangrunarefni WELLIT WELLIT þolir raka og fúnar ekki WELLIT plötur eru mjög léttan* og auð- veldar í meðferð. WELLIT einangrunarplötur kosta aðeins: 5 cm. þybkt: Kr. 46.85 fermeter Bir^ðir fyrirliggjandi MARZ TRADIIUG CO. Klapparstíg 20 — Sími 17373. WELLIT-pIata 1 cm á einangrar jafnt og: 1.2 cm asfalteraðnr borkur 2.7 — tréullarplata 5.4 — gjall-ull 5.5 — tré 24 — tígulsteinn 30 — steinsteypa CZECHOSLOVAK CERAMICS Prag, Tékkóslóvakíu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.