Morgunblaðið - 22.03.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.03.1959, Blaðsíða 1
24 síður / höfubborg Tíbet hefur nú ver- /ð barizt i fjóra daga samfleytt Kommúnlstar hugðust lokka Dalai Lama til Peking NÝJU DEHLI, 21. marz. — Reutersfréttir herma, að enn sé barizt af hörku í Lahsa, höfuðborg Tíbets, og sé upp- reisn Tíbetbúa gegn kommún- istum í algleymingi. — Sam- kvæmt þessum fréttum hófst uppreisnin fyrir fjórum dög- um og mun hafa soðið upp úr, þegar orðrómur komst á kreik um það, að kommúnist- *r hyggðust flytja Dalai Lama til Kína. Orðrómur þessi fékk byr undir báða vængi, þegar kommúnistaforingjarnir í Lahsa boðuðu Lama á sinn fund og sögðu honum að skilja lífvörð sinn eftir heima. Dalal Lama Skömmu síðar söfnuðust þús- undir Tíbetbúa fyrir framan höll Lama til að koma í veg fyrir, að Kínverjum tækist að hafa hendur í hári hans. Aðrir Tíbetbúar söfn- uðust saman fyrir utan sendi- ráðsbústað Indlands og báðu sendiherrann um hjálp til að hindra kommúnista í að hand- taka leiðtoga þeirra. BERLIN G ATÍÐINDI skýra frá því í frétt á fimmtudaginn, að ðanska stjórnin geri sér ljóst, að ekki ósvipaðar ástæður séu á Grænlandsmiðum og miðunum við Færeyjar, en þó hafi hún ekki í hygffju að gera neinar endan- legar breytingar á landhelginni þar norður frá fyrr en að al- Þegar svo var komið, fóru kín- verskir hermenn á vettvang og hugðust dreifa mannfjöldanum, en þá sló í bardaga, þótt Tíbet- búar væru vopnlausir. Síðan hafa að sögn geisað blóðugir bar- dagar í höfuðborginni milli Tíbet- búa og kommúnista. Kommúnistar vildu, að Lama færi til Peking til viðræðna, en Tíbetbúar segja, að hann eigi nú samkvæmt venjunni að heim- sækja klaustrin í landinu, þar sem hann hafi náð 23 ára aldri. Eins og kunnugt er, þá játa Tíbetbúar Búddatrú sína og eru þess fullvissir, að fyrirrennari Lama sé endurfæddur í piltinum og sé það raunar sjálfur Búdda. Fréttamenn segja, að Dalai Lama óttist, að honum verði meinað að fara heim aftur, ef hann fer til Peking, en kommún- istar vilja fyrir alla muni hindra hann í að heimsækja klaustrin í landinu, því þeir óttast, að för hans muni efla trú lands- manna og veita þeim um leið meira þrek í baráttunni við kín- verska herliðið í landinu, sem telur um 30 þús. manna. Þá eru kommúnistar sagðir vilja svipta Lama embættinu og skipa annan trúarleiðtoga í hans stað, a. m. k. um stundarsakir. Sá er 21 árs og hægri hönd Dalai Lama, mun m. a. vera næstur honum á andlega sviðinu. í hon- um hafa guðir einnig endur- fæðzt samkvæmt kenningunni. Hann hefur einna mest vald Tíbetbúa í veraldlegum málum, en landsmenn vefengja margir andlega reisn hans og nú hefur Dalai Lama gert kröfu til þess að fara með veraldlega leiðsögn líka. Kommúnistar hernámu Tíbet 1950. Næsta ár var þeim falið að fara með utanríkismál lands- ins, en það skyldi sjálft fara með innanríkismál. í Tíbet er þing, en yfirstjórnin er í höndum fimm manna ráðs. — Dalai Lama var krýndur 1940. Undanfarin ár hefur Khamba- ættflokkurinn haldið uppi skæru- hernaði gegn kínverskum komm- únistum, einkum í austurhéruð- unum, þar sem ættflokkur þessi býr. Af sumum fregnum mætti þjóðaráðstefnunni um landhelgis mál lokinni, en hún verður haldin á vegum SÞ í Genf á næsta ári, eins og kunnugt er. Blaðið segist ráða þetta af yfir. lýsingu, sem Krag utanríkisráð- herra gaf í þinginu á þriðjudág- inn var, þegar rætt var um samn- Framh. á bls. 23. helzt ráða, að skæruliðarnir séu komnir til höfuðborgarinnar, en í síðasta mánuði voru þeir sagðir um 40 mílur frá borginni. Haun- ar er hér varla um skæruliða að ræða, heldur herflokka, allvel vopna búna. Flóttamenn, sem komu til Ind- lands í gær, segja, að maður að nafni Antuk Gounpo Tashistjórni nú uppreisninni í Tíbet. Hann er óþekktur maður, en hefur barizt gegn Kínverjum lengi. Hann er frá Litang í austurhluta Tibets, en þar var mikið barizt í upp- reisninni 1956, þegar Kínverjar sprengdu Litangklaustrið í loft upp. Dulles heimsœkir Peppin ÞAÐ þótti tíðindum sæta, þegar Dulles utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, skrapp heim í síðustu viku og hitti litla franska hund- inn sinn, sem heitir Peppin. — Utanríkisráðherrann gekk hægt úr Walter Reed hersjúkrahúsinu niður í garðinn, en þar gekk hann fram og aftur í rúman klukku- tima, unz hann skrapp heim og var þar í hálfa klukkustund. — Peppin líður vel, sagði utan- rikisráðherrann að heimsókn lok- inni, en hann hóstar dálítið. Þetta var í þriðja skiptið, sem Dulles fékk heimfararleyfi síð- an hann lagðist í sjúkrahúsið 13. febrúar sl. eins og menn muna. Frú Dulles hefur verið í fylgd með manni sinum. Undanfarið hefur Dulles verið í geislalækningum við krabba- meini, en nú er því lokið og ár- angurs beðið. Myndin hér að ofan er af Dulles, þegar hann er að leggja af stað í heimsóknina til Peppins. Danir vikka ekki út landhelgina fyrir 1960 Ummæli Krags um landhelgi Græn- lands voru misskilin Miðstjórnarfull- trúi Framsóknar vill stór kjördæmi MBL. birtir í dag grein, sem Gunnar Þórðarson í Grænu- mýrartungu ritaði árið 1954 I Tímann um kjördæmamálið. Mælir hann þar með stórum kjördæmum og hlutfallskosn- ingu. Gunnar á sæti í mið- stjórn Framsóknarflokksins og stjórn Búnaðarfélags Islands. — Sjá grein á bls. 6. / Ásge't Pétursson irambjöðandi Sjólistæðisflokksins í Mýrnsýslu Á FJÖLMENNUM fundi, sem trúnaðarmannaráð Sjálfstæðisflokks- ins í Mýrasýslu hélt fyrir skömmu í Borgarnesi var einróma samþykkt að skora á Ásgeir Pétursson lögfræðing að verða í kjöri fyrir Sjálfstæðismenn i héraðinu i næstu alþingiskosningum. Hef- ur hann orðið við þeim tilmælum og er framboð hans því ákveðið. Er þetta fyrsta framboð Sjálfstæðisflokksins í kosningum þeim, sem fram eiga að fara í sumar, sem birt er. Ásgeir Pétursson er fæddur 21. marz árið 1922. Varð hann því 37 ára í gær. Hann er sonur Péturs heitins Magnússonar fjár- málaráðherra og alþingismanns frá Gilsbakka í Borgarfirði og Ingibjargar Guðmundsdóttur konu hans. Lauk hann lögfræði- prófi árið 1950 og starfaði síðan í nokkra mánuði sem blaðamað- ur við Morgunblaðið. Síðan gerð- ist hann fulltrúi í Menntamála- ráðuneytinu og var skipaður deildarstjóri ráðuneytisins árið 1956 og hefur verið það síð'an. Hefur tekið mikinn þátt i félagsmálastarfi. Ásgeir Pétursson hefur tekið mjög mikinn þátt í félagsmálum og verið sýndur þar margvísleg- ur trúnaður. Á háskólaárum sín- um var hann einn af fulltrúum lýðræðissinnaðra stúdenta í stúdentaráði. Formaður Heim- dallar, félags ungra Sjálfstæðis- manna, var hann árin 1950— 1952 og formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna var hann árin 1955—1957. Átti hann þá einnig sæti í miðstjórn Sjálf- stæðisflokksins. Ásgeir Péturs- son hefur þannig um áraskeið verið einn af fremstu forystu- mönnum ungra Sjálfstæðis- manna. Á unglingsárum sínum og námsárum stundaði hann jöfnum höndum sveitavinnu og sjó- mennsku á togurum. öðlaðist hann við þessi störf góða þekk- ingu á atvinnuvegum þjóðarinn- ar og lífskjörum fólks til sjávar og sveita. Ásgeir Pétursson er, eins og hann á kyn til, ágætlega gefinn og starfshæfur maður. Nýtur hann trausts og vinsælda meðal allra er honum kynnast. Er óhætt að fullyrða að hann mundi reynast farsæll og dugandi full- trúi ættarhéraðs sins á Alþingi, enda munu Mýramenn hyggja gott til forystu hans. Inflúensa i Bretlandi LUNDÚNUM, 21. marz. — Fyrstu 10 vikur þessa árs hafa 5782 menn dáið úr inflúensu í Bretlandi, en 1873 á sama tíma í fyria. Frá þessu er skýrt í opinberri tilkynningu brezka heilbrigðismála- i áðuneytisins, sem gefin var út í dag. Heilbrigðismálaráðuneytið seg- ir ennfremur, að inflúensufar- aldurinn í Bretlandi sé nú í rén- un eins og sjá megi af þvi, að í síðustu viku létust 907 sjúkl- ingar úr veikinni, en 1400 í vik- unni þar áður. 701 sjúklingur af þessum 907 var yfir 65 ára. 1951 var mesta inflúensuárið í Bretlandi eftir styrjöldina. Þá létust lþ þús. manns á 10 fyrstu vikum ársins. Fleiri Fœreyingar við Crœnland en áður KAUPMANNAHÖFN, 21. marz. Landsstjórn Grænlands hefir nú ákveðið að leyfa fleiri færeysk- um bátum að leggja upp í græn- lenzkum höfnum í sumar en nokkru sinni fyrr, eða þrisvar sinnum fleiri en í fyrra. Er talið að um 1200 færeyskir sjómenn muni stunda veiðar við Vestur Grænland yfir sumarið. - Seinna í sumar munu Færeyingar ræða við grænlenzka ráðamenn um af- not af höfnum í Grænlandi til margra ára. Mun þá einnig verða samið um að færeyskir bátar leggi afla sinn á land í Grænlandi og þar verði unnið úr aflanum í fiskiðjuverum, sem stjórnin tel- ur nú mjög mikla nauðsyn á að byggð verði. ★------------------------★ JMiprpmM&lúÍ* Sunnudagur 22. marz. Efni blaðsins m.a.: Bls. 3: Kirkjuþáttur. — Úr verinu. — 6: Kjördæmaskipunin. — 8: Sitt af hverju tagi." — 9: Bevan beðinn að bjarga konu. — 10: Fólk í fréttunum. — Skák. — 11: Kvenþjóðin og heimilið. — Þjó® dansar. — 12: Forystugreinin: — Vandamál gatnagerðarinnar. Átti að myrða milljónaerfingj* ann Polo? (Utan úr heimi). — 13: Reykjavíkurbréf. — 15-16: Barnalesbókin. — 22: Samstarf bæjarfélagsins vtb samtök borgaranna. ★------------------------★

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.